Tíminn - 25.09.1965, Qupperneq 2

Tíminn - 25.09.1965, Qupperneq 2
TÍMINN LAUGARDAGUR 25 september 1965 FÖSTUDAGUR, 24. sept. NTB-Washington. -p- Banda- ríkin og Panama hafa orðið sammála um, að nema úr gildi núverandi samning um Panama skurðinn, sem gilt hefur frá 1903, og hefja viðræðu; um nýjan samning, sem taka á tillit til sjálfstæðis Panama inn an skurðarsvæðisins, sem Bandaríkjamenn hafa ráðið yfir að undanförnu. Verður hinn nýi amnimgur í gildi þar til nýr skurður hefur verið grafinn í gegnum Panama. Mun undirbúnimgur að þeim skurði hefjast sem fyrst. NTB-París — Talið er líklegt, að de Gaulle forseti Frakk- lands muni síðustu daga októ- bers tilkynna opinberlega hvort hann muni gefa kost á sér sem forsetaefni í næstu forsetakosn ingum. Mun hann líklega skýra frá því í útvarps- og sjón- varpsræðu. Talið er líklegast, að de Gaulle verði í kjöri. NTB-Moskvu. — Bresnev, leið togi kommúnistaflokksins í Sovétríkjunum, lagði í dag áherzlu á nauðsyn þess, að dreifing kjarnorkuvopna yrði stöðvuð, og sagði, að komm únistaríkin muni gera nauð- isynlegar gagnráðstafanir, lef Vestur-þýzkaland fái að- ild að kjarnorkuvopnum. iBresjnev hélt ræðu á vin- 'áttu fundi í sambandi við heim 'sókn Ulbrichts til Moskvu. NTB-Saigon. — Vieteongmenn rændu á þriðjudaginn franska aðstoðarræðismanninum í Saig on, Jean Biron, er hann var staðsettur á stað einum milli Pleiku og Kontuk í Suður- Vietnam. Komu fimm vopnað ir menn út úr frumskóginum, stöðvuðu bifreið Birons og tóku hann með sér. I l NTB-Leopoldville. — Kongóbú ( amir tveir, sem ákærðir voru fyrir að hafa reynt að myrða Tshjombe, forsætisráðherra Kongó, hafa lýst því yfir, að þeir hafi verið í fangelsi er þeir hefðu átt, samkvæmt á- kærunni, að hafa gert morðtil raunina, — og hefur fang- elsisstjórinn staðfest þ«tta En það var innanríkisráðherra Kóngó, sem tilkynnti þetta. Sagði ráðherrann, að dómari einn hefði staðið að Þessari röngu ákæru, en um ástæðu dómarans er ekki vitað. i NTB—Bonn. — Vestur-þjóð- ! verjar hafa lýst yfir stuðningi j við tillögur belgíska utanríkis ! ráðherranns Paul-Henri Spaak, ! um að ráðherranefnd Efna- hagsbandalagsins komi saman til fundar um miðjan nóvember án þátttöku framkvæmdanefnd arinnar, til þess að reyna að leysa deiluna innan bandalags ins. Telja menn, að tillaga þessi geti ef til vill leyst ýmis vandamál innan EBE. R AFM AGNSBILUNIN Nl Kl. 22.55 á fimmtudagskvöld fór straumurinn af öllum bænum. Samtímis sá fólk, sem býr í ná- grentni við aðalspennistöð Raf- veitu Hafnarfjarðar, eldbjarma og reyk leggja upp frá spennaklefa Þeim, sem annar af tveimur 5 Megawatta spennum stöðvarinnar er í, og tilkynnti það Slökkviliði Hafnarfjarðar, sem kom strax á staðinn ásamt starfsmömnum Raf- veitunnar. Við athugun kom í ljós, að rafbruni hafði orðið í endateng ingu á 6000 volta streng, sem ligg ur frá fyrrnefndum spenni og hartti bruninn strax og sjálfvirk ir rofar höfðu leyst bæinn út og þurfti því ekki að koma til að- gerða Slökkviliðsins. Þessi spennir var þá rofinn frá kerfinu og settur straumur á bæ- inn í gegnum hinn 5 Megawatt spenninn, eftir 26 mínútna straum leysi. Þá kom í ljós, að bilun hafði einnig orðið í háspennukerfi Suð urbæjarins og var hann því á- fram .straumlaus. Var strax farið Hörður og kona hans. (Tímamynd GE) SYNIR HERIFYRSTA SINN JHM—Reykjavík, föstudag. Á morgun, laugardag, opnar ungur íslendingur sem dvalið hefur nokkur ár í Bandaríkjun um, málverkasýningu í Ásmund arsal. Maðurinn heitir Hörður Karlsson, sonur Karls Guð- mundssonar lögreglumanns. Hörður er nú starfandi sem yfir maður teiknistofu alþjóðabank ans sem staðsettur er í Wash- iii'gton D.C. Fyrir skömmu hlaut hann fyrstu verðlaun i frímerkjasamkeppni um Evr- ópufrímerkið, sem kemur út n.k. mánudag. Á sýningunni í Ásmundarsal eru mörg málverk, sem Hörð ur hefur málað á. s.L þrem til fjórum árum, og eru þau öll til sölu hér. Hann sendi mál- rerkin á undan sér með skipi og tjáði hann fréttamönnum, að margir aðilar hefðu hjálpað sér við að koma málverkunum hingað, en það var bæði kostn aðarsamt og tímafrekt. Hörður var hér um tíma í Myndlistarskólanum, auk þess sem hann lagði stund á málun við kunnan skóla í Bandaríkj- unum. Þetta er fyrsta sýning listamannsins hér á landi, en hann hefur Sýnt verk sín fyr- ;/! ir vestan haf, og á næsta ári ætlar hann að sýna á Spáni, en það er heimaland konu hans Rósabellu. Sýningin í Ásmundarsal. er mjög eftirtaktarverð og má búast við, að margir borgar- búar sæki hana þennan stutta tíma, sem hún verður opin, eða nánar frá 25. sept. til 3. október. Hörður er hér með konu sína og unga dóttur, ,sem heitir Tana Freyja og er fjög urra ára. Sýningin er opin dag lega frá 2 til 10 á kvöldin. Skipað í ráðgjafamefndir Rannsóknarstofnunar fisk- iðnaðarins og Hafrannsóknarstofnunarinnar Samkvæmt lögum um rannsókn ir í þágu atvinnuveganna, skal starfrækt sjálfstæð stofnun, Haf rannsóknastofnunin, er heyri und ir sjávarútvegsmálaráðuneytið. Stofnun þessi tekur við þeim verk efnum, sem fiskideild Atvinnu- deildar Háskólans hefur áður sinnt. Við Hafrannsóknarstofnunina er starfandi ráðgjafarnefnd. í ráð gjafarnefnd Hafrannsóknarstofnun arinnar hafa verið tilnefndir eft irtaldir menn; Ágúst Flygenring, framkvstj., jjón Sigurðsson, formaður Sjó- ! mannasambar.ds íslands, Loftur ’Bjarnason, framkvæmdastjóri, ÍMár Elíasson, skrifstofustjóri, j Sverrir Guðvarðsson, stýrimaður, I Sverrir Júlíusson, alþingismaður, j Tryggvi Helgason, sjómaður. ; Nefndin hefur kosið Má Elías son, skrifstofustjóra formann. í stjórn Hafrannsóknastofnunar ;innar skulu vera þrír menn skip aðir af sjávarútvegsmálaráðherra til fjögurra ára i senn, bar af einn án tilnefningar, einn til- nefndur af stjórn Fiskifélagi FINNSKUR HEiniip OPERUSÓNGVARI Finnski óperu og ljóðasöngv- arinn Tom Krause kemur hing- að til Reykjavíkur á vegum Tón listarfélagsins um næstu helgi og ætlar að halda hér tvenna tón- leika. Tom Krause er fæddur árið 1934. Hann stundaði tónlistarnám í Helsinki, og að þvi loknu hélt hann til Vínarborgar til fram haldsnáms. Árið 1959 var hann ráðinn til Berlínar og söng þar ýmis óperuhlutverk, auk þess sem hann hélt fjölda tónleika í ýmsum löndum. Árið 1962 var hann ráðinn til að syngja með Filharmonisku hljómsveitinni í Hamborg, og að því loknu réðist hann til óperunn ar þar í borg og hefur verið bú- settur þar síðan og sungið óperu hlutverk bæði í Hamborg og öðr um borgum Þýzkalands. Þá hef- Framhald á bls. 14. ! íslands og einn til- ; nefndur af ráðgjafarnefnd stofn- : unarinnar. Sömu aðilar tilnefr.a varamenn. Ráðherra skipar for- ; rrtann stjórnarinnar. ; í stjórn Hafrannsóknarstofnun ! arinnar hafa verið skipaðir eftir • taldir menn: , Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri, formaður. tilnefndur af Fiskifé- lagi íslands, til vara Hafsteinn Bergþórsson, framkvæmdastjóri. Loftur Bjarnason, framkvæmda- stjóri, tilnefndur af ráðgjafar- nefnd stofnunarinnar, til vara Jón Sigurðsson, formaður Sjó- tnannasambands íslands. Marteinn Jónasson. skipstjóri, skipaður af ráðherra án tilnefn ingar, til vara Sigfús Bjarnason, sjómaður. Að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar hefur sjávarútvegs málaráðherra hinn 23. september s. I. skipað Jón Jónsson til að gegna stöðu forstjóra Hafrann sóknastofnunarinnar frá 1. þ. m. að telja. Samkvæmt lögum um rannsókn ir í þágu atvinnuveganna. skal starfrækt sjálfstæð stofnun, Rann Framhald á bls. 14. í það að leita að þeirri bilun, og reyndist fljótlega hægt að koma straum á vissa hluta Suðurbæjar ins eftir því, sem leitinni að bil uninni miðaði áfram. Að lokum fannst dauður hrafn í stauraspennistöð við grjótnám á Hvaleyrarholti og hafði hann valdið skammhlaupi háspennuvír.s til jarðar. Klukkan 3.20 var straumur kom inn aftur á allan bæinn. TONLEIKAR SKÁLH0LTI Sunnudaginn 26. september kl. 18 verða orgeltónleikar haldnir í Skálholtsdómkirkju. Listamaður- inn Martin Giinther Förstemann, sem er einn hinna viðurkennd- ustu orgelsnillinga nú á tímum, er prófessor við tónlistarháskól- ann í Hamborg. Prófessor Förstemann er ís- lendingum að góðu kunnur frá því er hann hélt hér tónleika fyrir nokkrum árum. Það er ekki nóg með að hann hafi farið í tónleikaferðir um gjörvalt föður- land sitt, Þýzkaland heldur hefur hann einnig haldið tónleika í flest um Evrópulöndum og Ameríku, auk útvarps- og sjónvarpssend- inga. Efnisskráin hefst rrieð því að leikin verður Tokkata, Variation og Fuga (quasi Improvisation) eftir Förstemann við sálminn: ,Vakna Zions verðir kalla'". Þá koma verk tveggja gamalla orgel meistara Prelúdíum og Fuga í g dúr eftir lærisvein Buxtehudes Nikolaus Bruhns, og tilbrigði eft ir Georg Böhms er eitt ,sinn var organleikari við Jóhannesarkirkj una í Liineborg. En verk þau, sem fyrst og fremst bera tónleikana uppi eru Framhald á bls 14 Stefán Júliusson rithöfundur '■mmtugur Fimmtugur er í dag Stefán Júl- íusson, yfirkennari í Hafnarfirði. Hann er fæddur að Þúfukoti í Kjós 25. sept. 1915. Stefán á lang an og góðan kennaraferil að baki i Hafnarfirði og hefur um skeið verið yfirkennari við Flensborgar skólann. Hann hefur ritað og þýtt margt góðra bóka við hæfi barna og unglinga og skrifað nokkrar lengri skáldsögur og smá sögur, sem skipað hafa honum með sæmd á rithöfundabekk. Hann hefur leyst af hendi mikið starf i félagsmálum fyrir heima- bæ sinn, stétt og æskuna. Stefán er fjölgáfaður maður, atorkusam ur og vinsæll vel. HRAFN VALDUR AD

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.