Tíminn - 25.09.1965, Blaðsíða 14

Tíminn - 25.09.1965, Blaðsíða 14
LAtJGARDAGUR 25 september 1965 14 TÍMINN BRYNNINGARTÆKI Með kopar-fittings og galv- aniseruðu ioki eru nú fyrirligg-jandi. KRISTJÁN G. GÍSLASON Sími 20-000. ’ a ''W bflahlutir W | FUSTAR GERÐIR BÍLA. KRISTINN GUÐNASON hf KLAPPARSTlG 25—27 LAUGAVEGI 168 SÍMAR 12314—21965 SKIPAUTGCRÐ RIKISINS Ms. Esja fer vestur um land í hringferð 30. þ.m. — Vorumóttaka árdeg is á laugardag og mánudag til Patreksfjarðar Sveinseyrar, Bíldudals, Þingeyrar Flateyr- ar Suðureyrar, ísafjarðar Siglu fjarðar Akureyrar, Húsavíkur og Raufarhafnar. Farseðlar seldir á miðviku- dag. SMYGL Framhald af bls. 1 676 flöskur af áfengi verið gerð ar upptækar. í Langjökli fundust 3970 flöskur og í Vatnajökli 667 flöskur. Alls eru þetta 5313 heil flöskur af áfengi. 30. september í fyrra höfðu „aðeins“ 1138 flösk ur verið gerðar upptækar, en upplýsingar höfðu borizt erlend is frá um meira magn, sem sett hafið verið um borð í íslenzk skip, og fléttaðist nokkuð af því inn í dómstólamál hér heima. Það sem af er þessu ári hafa samtals 455.800 sígarettur verið gerðar upptækar. Áður en Jökla smyglin komust upp höfðu 92.800 sígaretfur verið gerðar upptækar, í Langjökli fundust svo 130 þús und sígarettur og 223 þúsund í Vatnajökli. 30. september í fyrra höfðu 147 þúsund sígarettur ver ið gerðar upptækar. AðaBfundyr Byggingasamvinnufélags Reykjavíkur j verður haldinn þriðjudag- : inn 5. okt kl. 8 eftir hádegi | í Lindarbæ niðri. i Stjórnin. Au^lvsið í í imanuiT i A VIÐAVANGI Framhald af bls. 3 skólabyggingarnar vildi hún þó hafa enn óbundnari hcndur og gaf út bráðabirgðalög, sem heimiluðu að stöðva sumar byggingar en hygla öðrum því meira. Samkvæmt því ákvað svo stjómin að fara þannig með Kópavog að stöðva bæði gagnfræðaskólabyggingu, sund- laugarbyggingu og íþróttahús- bygginu alveg í sumar og skerða Þar með ríkisframlagið til skólabygginga í Kópavogi ekki um 20% heldur 36%. f þófi um þetta stóð alllengi en fékkst þó loks nokkur leiðrétt ing, þannig að vinna mætti að gagnfræðaskólaálmu og sund laug. Af þessu stafar dráttur inn fyrst og fremst. SKIPAÐ í NEFNDIR Fraitihald af 2. síðu sókharstöfnún fiskiðnáðárins, er heyri undir sjávarútvegsmálaráðu neytið. Stofnun þessi tekur við þeim verkefnum, sem Rannsókn astofa Fiskifélags íslands hefur áður sinnt. Við Rannsóknastofnun fiskiðn aðarins er starfandi ráðgjafar- nefnd. í ráðgjafarnefnd Rann sóknarstofnunarinnar hafa verið tilnefndir eftirtaldir menn: Björgvin J. Ólafsson, tækni- fræðingur, Bragi Eiríksson, fram kvæmdastjóri, Einar G. Kvaran, framkvæmdastjóri, Gísli Her- mannsson, verkfræðingur. Guð mundur Jensson, skrifstofustjóri, Gunnar Flóvenz, framkv.stj., Jó- hann J. E. Kúld, fiskimatsmaður, Loftur Loftsson, verkfræðingur, Már Elíasson, skrifstofustjóri, Pét ur Sigurðsson, alþingismaður. Sveinn Benediktsson, framkvstj. Nefndin hefur kosið Má Elías son, skrifstofustjóra, formann. I stjórn Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins skulu vera þrír Ráðskona Ráðskona óskast á sveita. heimili í Skagafirði. Má hafa með sér barn. menn skipaðir af sjávarútvegsmála ráðherra til fjögurra ára í senn, þar af einn án tilnefningar, einn tilnefndur af Fiskifélagi íslands og einn tilnefndur af ráðgjafa- nefnd stofnunarinnar. Sömu aðil ar tilnefna varamenn. Ráðherra skipar formann stjómarinnar. í stjórn Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins hafa verið skipaðir eftirtaldir menn: Davíð Ólafsson, fiskimálastjóri, formaður, tilnefndur af Fiski- félagi íslands, til vara Hafsteinn Bergþórsson, framkvæmdastjóri. Jón Árm. Héðinsson, útgerðar maður, skipaður af ráðherra án tilnefningar, tU vara Sigurður Pót ursson, útgerðarmaður. Sveinn Benediktsson, framkvstj. tilnefndur af ráðgjafamefnd stofn unarinnar, til vara Einar G. Kvaran, framkv.stj. Að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar hefur sjávarútvegs málaráðherra hinn 23. þ. m. skip að dr. phil. Þórð Þorbjamarson, til að gegna stöðu forstjóra Rann sóknarstofnunar fiskiðnaðarins frá 1. þ. m. að telja. Sj ávarútvegsmálaráðuneytið, 24 september 1965. ÓPERUSÖNGVARI Framhald af 2. síðu. ur hann haldið fjölda tónleika. Nú er Tom Krause á leið til Bandaríkjanna, er ráðinn þar til að syngja við Metropolitanóper- una ,einnig mun hann halda fjölda tónleika í ýmsum borgum þar í landi. Landi hans, Pennti Koskimies, píanóleikari, er með í ferðinni og annast undirleik á tónleikun- um. Tom Krause heldur tvenna tónleika hér á þriðjudagskvöld og miðvikudagskvöld 28. og 29. þ.m. Verða þeir í Austurbæjar- bíói, kl. 7 bæði kvöldin. Á efnis- skránni eru lög eftir Ilugo Wolf. Rich. Strauss, Ravel og Siböliu$. Tónlistarfélagið hefur gefið út efnisskrá, lrar sem allir frum- textar ljóðanna eru prentaðir. Þorsteinn Valdimarsson, skáld, hefur þýtt þá alla í bundið mál, og eru þær þýðingar einnig prent aðar í efnisskrána. Þetta verða aðrir tónleikar Tón listarfélagsins á þessu hausti en þeir áttundu í röðinni þetta ár. SKÁLHOLT Framhald af 2. síðu. orgeltónverk Jóhanns Sebastian Bachs Prelúdíum og Fuga í f moll og einnig Preludium og Fuga í a dúr. Hin stórbrotna Passa- caglia og Fuga í c moll er svo síðasta viðfangsefnið á tónleikun um. Förstemann mun einnig spila á öðrum stöðum á landinu. Á undan tónleikunum, kl. 16.30 messar séra Guðmundur Óli Ól- afsson, sóknarprestur í Skálholti. Ferð verður frá Bifreiðastöð íslands kl 14. U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu Þjóðanna, sagði í dag, að hann hefði fengið jákvætt svar við beiðni sinni um hermenn í gæzlulið á landamæri Pakistans og Indlands, frá ýmsum ríkjum. Hann segir, að Kanada, Noregur, Dan mörk og ftalía hafi lofað að senda 10 hermenn hvert til Kasmír. Finnland og Svíþjóð hafa lofað að senda 5 hvor. Einnig hafa Brasil ía, Eþiópía, írland og Nigería lof að að senda hermenn. Hollenzka utanríkisráðuneytið tilkynnti í kvöld, að landið myndi senda 10 hermenn. Harðar umræður urðu í ind verska þinginu í dag og í kvöld, þegar Kasmír-málið var rætt. Margir þingmenn réðust harka lega á Bretland, einkum þó, að Wilson, forsætisráðherra, hefði ekki lýst því yfir, að Pakistan væri árásaraðilinn. Þá réðust þing menn einnig á Sovétmenn og kváðu stefnubreytingu hafa orðið hjá þeim. Áður en Kasmír-styrjöld in hófst, hafi þeir talið Kasmír- málið útkljáð. Shastri sagði, að stuðningur Sovétríkjanna við Indland í Kas mírmálinu væri jafn ákveðinn og áður, og sagði, að Sovétríkin væru ástríðufullir baráttumenn fyrir friði. í kvöld .sendi kínverska ríkis- stjórnin Indverjum orðsendingu, þar sem þess er krafist, að Ind verjar skuldbindi sig til þess að afhenda alla kínverska borg- ara, sem þeir eiga að hafa rænt og farið með yfir landamærin, ásamt nautgripum þessara manna, sem einnig á að hafa verið rænt. Einnig að hætta öllum ögrunum á landamærunum. Segir ríkis- stjórnin, að hún muni alltaf geta lagfært vandamálið í sam- bandi við þau kínversku land- svæði, sem Indverjar hafa her numið; eín’s o’g þnð er drðáð. ’ Upplýsingar i síma 37820. Faðir okkar Kristján Ásgeirsson fyrrv. verzluna'stjórl á Flateyrl andaðist í gær, 24. september að Vífilsstöðum. Börnin. 3ARDAGAR Framhald af bls. 1. stöð eina í Rajasthan. Einnig full yrða þeir, að Pakistanar hafi brot ið vopnahléð á ýmsum stöðum í Jhangar-svæðinu í ».vasmir. Síðar var tilkynní, að sam- kvæmt upplýsingum áreiðaniegra heimilda í Lahore, hefðu Ind verjar hafið fallbyssuskothríð suð austur af Lahore í dag. Hafi skot hríðin byrjað í Burkihéraðinu, 25 km frá Lahore. Sömu heimildir segja, að barizt hafi verið í pak istanska hluta Kasmírs. Þessar tilkvnningar hafa ekki verið stað festar opinberlega. Þá ákærði indverska ríkis- stjornin Kínverja í kvöld fyrir að hafa rænt og drepið þrjá indverska lögreglumenn í Ladakh héraðinu í Himalaya. Ind»erjar hafa sent Kínverjum orðsendingu og mótmælt þessu, og beðið rík isstjórn Kína um að stöðva slík ar árásaraðgerðir. BORTEN Framhald af bls. 1. Hann var kjörinn á þing 1950 og varð formaður þingflokks síns ár- ið 1957. Síðasta kjörtímabil var hann forseti Óðalsþingsins. Ákvörðunin var endanlega tek in á fundi flokksleiðtoganna síð degis í dag, en fyrr um daginn hafði verið tveggja tima fundur hjá trúnaðarmönnum íhaldsflokks ins. | Meðal stjórnmálamanna í Noregi I er talið, að flokkarnir hafi orðið sammála um, að íhaldsmenn fái sex ráðherra í hinni nýju ríkis stjórn, en miðflokkarnir Þrír fái þrjá ráðherra hver. Samtals verða ráðherrarnir 15. 1 Miðflokkurinn fær sem sagt forsætisráðherrann, og að líkind um Launa- og verðlagsmálaráð- herrann ásamt einu embætti til viðbótar. Vinstri flokkurinn mun líklega fá fjármálaráðherrann og ef til vill sveitarstjórnarmálaráð- herrann og eitt ráðherrasæti í viðbót. Einnig mun Vinstri flokk urinn liklega fá mann þann, sem verður leiðtogi allra þingflokk- anna, og er Bent Röiseland, leið togi Vinstrimanna talinn líkleg j astur. Einnig er talið líklegt, að Kristi legi flokkurinn fái Kirkju- og kennslumálaráðuneytið og félags- málaráðuneytið. Þegar þingið kemur saman að nýju, verða forseta -þess kjörnir, og er talið, að fhaldsmenn fái fyrsta forseta þingsins. Einnig er talið líklegt, að íhaldsmenn fái utanríkisráðherrann, og er John Lyng mest við það embætti kennd ur. Einnig er talið, að íhaldsmenn fái varnarmálaráðuneytið, Iðnaðar málaráðuneytið og Samgöngumála ráðuneytið. Stjórnarskiptin muni líklega eiga sér stað 9. október. Mun Gerhardsen þá biðjast lausnar, og vísa konungi á Per Borten. VATNSGEYMIR Fyamhald af bls. 16. í því neyðarástandi, sem ríkt hefur í hæst byggðu hverfunum undanfarið, hafa bæjaryfirvöldin gripið til þess sjálfsagða ráðs að flytja vatn til íbúanna í tönk um. Virðist það þó hafa verið að nokkrum vanefnum gert, því að notast varð m. a. við gamlan ryðgaðan tank, sem notaður hef ur verið til að flytja vatn í skólp leiðslur, þegar þurft hefur að ryðja úr stíflum. Þegar minnihluti bæjarstjórnar leitaði eftir því í sumar að feng- in væri djúpvatnsdæla, þá var fengin biluð dæla og að því frá gengnu sagt að engar slikar dæl ur væru til í landinu. Samt mun eitthvað af slíkum dælum hafa verið flutt inn til landsins. Nú seint og um síðir hefur verið gripið til þess ráðs að dæla vatni úr 960 m. djúpri holu við Kaldársel, en hún var boruð á sínum tíma samkvæmt tillögu Jóns Pálmasonar, og þá í sam bandi við leit að heitu vatni fyrir bæinn. Á framangreindu sést að mik ið sleifarlag hefur verið á vatns veitumálum bæjarins, og þurft hef ur að sækja til jarðfræðing til að benda bæjarstjórnarmeirihlutan- um á að byggja jafn sjálfsagðan hlut og vatnsgeymi. Þarf raunar enga jarðfræðimenntun til að sjá að slík framkvæmd hefur verið nauðsynleg i langan tíma, enda mun jarðfræðingurinn ekki hafa byggt þessa skoðun sína á sér menntun sinni, heldur hyggju- viti, sem bæjarstjórnarmeirihlut- ann virðist skorta svo tilfinnan lega, og vatnsleysið undanfarið sannar. TRULOFUNARHRINGAR Fljót atgreiðsla Sendurr gegn post kröfu | 3UÐM PORSTEINSSON , gullsmiður I Bankastraet' 12 H A L L D Ö R SkólavörSustlg 2 Trúlofunar- Hringar afgreiddir samdspours. Sendurr urr allt land.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.