Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 1

Morgunblaðið - 26.10.1985, Side 1
48SÍÐUR OGLESBÓK STOFNAÐ 1913 242. tbl. 72. ár; L LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins E1 Salvador: Banatil- ræði við Duarte? S»n Salvador, 25. oktéber. AP. JOSE Napoleon Duarte, forseta El Salvador, var sýnt banatilræði af leyniskyttum, sem hófu skothríó er hann bjóst til að yfirgefa skrifstof- ur forsetaembættisins. Forsetinn slapp ómeiddur. Aðrar fregnir herma að lögreglumenn hafi staðið fyrir skothríðinni og hafi þeir verið að skjóta á eftir flýjandi þjófí. Tveir menn létust og 10 særð- ust í skothríðinni. Hermenn skutu á strætisvagn, þaðan sem þeim sýndist skothríðin koma, en farþegar í strætisvagninum, sem sluppu ósærðir úr skothríðinni, fullyrða að skotin hafi ekki komið þaðan. Farþegarnir voru hand- teknir og yfirheyrðir eftir tilræð- ið og hermenn leituðu skæruliða í nærliggjandi hverfum. Ekki er ljóst hvort einhverjir hermenn særðust í árásinni. Talið er að skotin hafi komið frá bil sem ekið var framhjá forsetahöllinni. Árásin var gerð minna en sól- arhring eftir að dóttir forsetans var látin laus, eftir að skæruliðar höfðu haldið henni fanginni í 44 sólarhringa. Fregnir herma að forsetinn hafi haldið ró sinni meðan á árásinni stóð og snúið aftur til skrifstofu sinnar minna en klukkutíma eftir að árásin var gerð. AP/Slmamynd HORFT í HYLDÝPIÐ Uurent Fabius, forsætisráðherra Frakklands, (tv.) og Paul Quiles, varnarmálaráðherra, (t.h.), horfa niður í djúpa tilraunaholu, sem geymdi kjarnorkusprengju, sem Frakkar sprengdu í fyrradag á Mururoaeyjum í Kyrrahafí. Ráðherrarnir fylgdust með tilrauninni. Skiptar skoðanir um ræðu Reagans Mo.skvu. 25 nktóhpr AP —* ÓLÍKLEGT er talið að Sovétmenn fallist á tillögur Ronalds Reagan, forseta Bandaríkjanna, sem hann setti fram í ræðu sinni á allsherjarþinginu í gær, fímmtudag, um að þeir taki þátt í samningaviðræðum um frið í einstökum hlutum heims. Tass, sovéska fréttastofan, segir að ræða Reagans hafi verið endur- tekning á gjaldþrotastefnu Banda- ríkjanna í utanríkismálum. Hún ásakaði Reagan fyrir að draga at- hyglina frá tillögum Sovétríkjanna í afvopnunarmálum og fyrir að gefa ranga mynd af ástandinu í Nicaragua, Afganistan og fleiri löndum. Tass sagði að Reagan hefði viðurkennt að jákvæðar hliðar væru á tillögum Sovétmanna í af- vopnunarmálum. Daniel Ortega, forseti Nicar- agua, brást reiður við ræðu Reag- ans, en viðbrögð annarra þjóðar- leiðtoga voru jákvæðari. Zia U1 Haq, forseti Pakistan, sagði ræð- una vera eina þá bestu sem hann hefði heyrt, en Olof Palme sagði hana hafa verið þversagnakennda og Helmut Kohl og franski utan- ríkisráðherrann Roland Dumas sögðu að ræðan hefði borið þess vott að fundur leiðtoga stórveld- anna væri fyrirhugaður. Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Ind- lands, sagði að hann hefði kosið að ræðan hefði fjallað um afvopnun, því deilur í einstökum hlutum heims væri hægt að leysa á öðrum vettvangi. Fundur sex leiðtoga Vesturveld- anna með Reagan lýsti yfir stuðn- ingi við stefnu Bandaríkjanna i viðræðum stórveldana í Genf. George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur ákveðið að þiggja boð Shevardnadze, utanrík- isráðherra Sovétríkjanna, um að fara til Moskvu 4.-5. nóvember til að undirbúa fund leiðtoga stórveld- ana í Genf 19.—20. nóvember. Noregur: Landsréttindum lýkur í fjörunni Osló, 25. oklóber. FriJan Erik Laure. IrétUriUra Morgunbluósins. HÆSnRÉTTUR í Noregi felldi í Maður nokkur frá Sogni setti dag dóm, sem er mjög mikilvægur fiskræktendum. Þar er því slegið föstu að landeigandi eigi ekki einka- rétt á sjónum utan landareignar sinnar. 60 daga neyðarástandi lýst yfir í Argentínu i»__ k <ie ad Buenos Aires, 25. október. AP. RAUL ALFONSIN, Argentínuforseti, lýsti í dag yfir tveggja mánaða neyðarástandi í landinu vegna „ítrekaðra ofbeldisverka“, sem beinst hafa gegn stjórn hans. Forsetinn ákvað hins vegar að leyfa pólitíska fundi og hefur ekki í hyggju að hætta við fyrirhugaðar kosningar til þings og bæjar- og sveitarstjórna 3. nóvember nk. Að sögn Antonio Troccoli, innanríkisráðherra, var ákveðið að lýsa yfir neyðarástandi er dómari lýsti því yfir í gær að sérstök handtökutilskipun for- setaembættisins á þriðjudag á hendur 6 foringjum í hernum og 6 óbreyttum borgurum stæðist ekki samkvæmt stjórnarskránni. Fyrirskipaði dómarinn að Alej- andro Arias, fyrrum ofursti, yrði látinn laus. Alfonsin fyrirskipaði hand- töku tólfmenninganna, sem tald- ir eru viðriðnir sprengjuherferð, símahótanir og aðra hermdar- verkastarfsemi, sem beinst hefur gegn stjórninni. Þeir eru kunnir fyrir pólitnka afstöðu sína og tengdust náið herforingjastjórn- unum, sem sátu að völdum í Argentínu frá 1976 og þar til Alfonsin tók við völdum í des- ember 1983. Linnti ofbeldisverk- unum ekki eftir handtöku mann- anna 12, því rétt á eftir sprakk sprengja í varðstöð við skrifstof- ur yfirmanns herafla landsins. í gær sprakk svo sprengja í húsi, sem Troccoli dvelst jafnan í um helgar í úthverfi höfuðborgar- innar. Um leið og Alfonsin lýsti yfir neyðarástandi gaf hann út nýja handtökutilskipun á hendur tólf- menningunum, til að fullnægja ákvæðum stjórnarskrárinnar. Forsetinn hefur nú m.a. völd til að afnema öll mannréttindi og banna útifundi, en hann hefur ákveðið að beita ekki þessum ákvæðnm. Háttsettir embættismenn telja stjórnarbyltingu mjög ólík- lega, þar sem Alfonsin hefur aldrei verið vinsælli, samkvæmt skoðanakönnunum, og hylli hers- ins er í lágmarki. Á rúmum mánuði hafa verið sprengdar á annan tug sprengja í Argentínu og embættismönn- um, mannréttindabaráttumönn- um og þingmönnum hafa borist hundruð símahótana. Margar sprengjanna hafa sprungið við mannvirki hersins, til að láta líta út fyrir að vinstri öfgamenn séu að færast í aukana, að sögn stjórnar Alfonsins. fyrir nokkrum árum á laggirnar fljótandi fiskræktarstöð og batt festar hennar í landareign annars manns. Eigandi landsins hafnaði tilboði fiskræktandans um að greiða aðstöðugjald og flutti síðar- nefndur þvi fiskeldissteðina fimm- tíu metra frá fjöruborði. En landareigandinn var þeirrar hyggju að flytja þyrfti stöðina á braut. Annars vegar hélt hann fram að hann hefði yfirráð yfir sjónum utan landareignar sinnar og hins vegar stæði fiskeldisstöðin í vegi fyrir skipum, sem leið ættu um þröngan fjörðinn. í undirrétti var dæmt landeig- andanum i vil, en hæstiréttur ákvað að hann hefði ekki yfirráð yfir því sem lægi i sjónum út af landareigninni. Þessi dómur á ugglaust eftir að gleðja margan fiskræktandann, því að mörg mál af þessu tagi liggja fyrir norskum dómstólum um þessar mundir. Átök milli eistneskra og rússneskra stúdenta Stohkhólmi, 25. október. AP. STUDENTUM af eistneskura og rússneskum uppruna hefur lent saraan og þeir barist á götum úti í háskólaborginni Tartu í Eistlandi, að því er Ants Kippar, formaður samtaka sem vinna að lausn eistneskra sam- viskufanga, segir. Til saras konar árekstra hefur einnig komið milli stúdenta í Riga í Lettlandi. Árekstramír áttu sér stað i endaðan september og i byrjun október að sögn Kippar og voru í tengslum við undirbúning þjóð- hátíðardags Sovétrikjanna. Að sögn þátttakenda i átökunum voru notaðir hnífar, keðjur og hnúajárn í óeirðunum, en her- skólanemar frá Tallin i Eist- landi voru notaðir til að bæla beirðirnar niður. Að eögn Kipp- ars leiddu átökin til handtöku fjölda fólks, sem þátt tók i þeim, auk þess sem nokkrir þeirra þurftu aðhlynningu á sjúkrahús- um. Mikið af Rússum hefur flust til baltnesku landana á undan- förnum áratugum og hefur Sov- étstjórnin unnið gegn þvf að þessar þjóðir við strönd Eystra- saltsins haldi þjóðareinkennum sínum. Það hefur valdið reiði og ókyrrð í þessum löndum, en Sov- étríkin innlimuðu þau í lok seinni heimsstyrjaldarinnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.