Morgunblaðið - 26.10.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26.QKTÓBER 1985
Verðum að
sýna hug
okkar
í verki
Viö mætum á fundinn til að
sýna samstöðu. Konur
fala mikið um launamisrétti kynj-
anna, en það er ekki nóg. Við verð-
um að sýna hug okkar í verki og
það erum við að gera í dag,“ sagði
Helena Jónsdóttir, hárgreiðslu-
nemi á stofunni „Hjá Dúdda" á
Hótel Esju. Hún er sú í miðið, en
vinstra megin við hana er Hrafn-
hiidur Ingólfsdóttir, sem einnig
starfar á sömu stofu. Allt kven-
fólk hárgreiðslustofunnar tók sér
frí um daginn, „þótt það væri allt
vitlaust að gera“. Hrafnhildur
sagði að launamisrétti væri senni-
Iega ekki svo mikið í þeirra stétt,
enda væru það nokkuð augljóslega
sömu störfin sem bæði kynin
ynnu.
Sú þriðja á myndinni heitir ólöf
Hjartardóttir og vinnur undir
sama þaki og þær Helena og
Hrafnhildur, í útibúi Búnaðar-
bankans. „Útibússtjórinn er eini
karlmaðurinn á mínum vinnu-
stað,“ sagði Ólöf, „og hann stendur
nú í ströngu, einn og yfirgefinn."
Húsmæður mega ekki
gleymast
Kjör kvenna hafa batnað
Morgu n bl aði ð/Bj arn i
Jafnrétti
víða
ábótavant
Ef þessi fundur vekur fólk til
umhugsunar um launakjör
kvenna hefur hann orðið til góðs.
Það er staðreynd að konur eru al-
mennt mun verr launaðar, og
vinna oft störf sem enginn karl-
maður fengist til að sinna,“ sagði
Kristín Guðnadóttir. Kristín sagði
að það væri kaldhæðnislegt að á
þessum baráttudegi kvenna
skyldu vera sett lög í landinu sem
eyðilegðu launabaráttu flugfreyja.
Þess yrði lengi minnst.
„Annars er það ekki aðeins í
launamálum sem jafnrétti er
ábótavant. Það er vafalaust al-
gengt að útivinnandi konur vinni
meira og minna öll heimilisstörf-
in. Karlmönnum finnst það mörg-
um hverjum sjálfsagður hlutur, en
sem betur fer er sá hugsunarhátt-
ur á undanhaldi,“ sagði Kristín.
fólk f
fréttum
Á fundi á Lækjartorgi
í lok kvennaáratugar SÞ
Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi á fimmtudag við nokkrar konur í
miðbænum en þar voru þær til að taka þátt í baráttufundi í lok
kvennaáratugar. Óhætt er að segja að konur hafi verið í fréttunum
þennan dag.
Mér finnst að heimavinnandi
húsmæður hafi gleymst í
allri umræðunni um jafnrétti
kynjanna," sagði Vilhelmína
Böðvarsdóttir. Hún er húsmóðir
og hefur komið fimm börnum á
legg. „Ég er ekki að segja að það
ætti að launa húsmæður — ég veit
ekki hver ætti að borga þeim kaup
— en einhver verður að vinna
heimilisstörfin og það má ekki
gleyma þeim konum sem stunda
vinnu sina innan veggja heimilis-
ins og hafa engann til að borga sér
kaup.“
Eg hef unnið úti meira og
minna allt mitt líf og tala því
af reynslu þegar ég segi að kjör
kvenna eru betri í dag en þau hafa
nokkurn tíma verið," sagði Svava
Þorbjarnardóttir símadama á
skrifstofu Þjóðleikhússins. „Enn
vantar þó mikið á að konur njóti
sömu launakjara og karlmenn, en
ástandið hefur batnað mikið og
stefnir í rétta átt,“ sagði Svava.
Hún er þarna í fylgd dóttur sinn-
ar, Helgu Bernhard, og barna-
barna. Litla stúlkan á myndinni
heitir Svava eins og amman, en í
barnavagninum kúrir óskírður
snáði. Svava fagnaði því að konur
héldu daginn hátíðlegan með því
að taka sér frí, „enda hafa karL
menn gott af því að vera kven-
mannslausir við og við — þeir
kunna betur að meta okkur á eft-
ir.“