Morgunblaðið - 26.10.1985, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.10.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 26. OKTÓBER1985 13 Áhugahópur um byggingu náttúrufræðisafns: Náttúrufræðidagurinn — Maðurinn er mesta undrið Náttúrufræðidagurinn sunnu- daginn 27. október verður haldinn í kennslumiðstöð Námsgagnastofn- unar, Laugavegi 166 (Víðishúsinu). Þar verður opið hús fyrir alla kl. 13.30 — 16.00 og heitt á könnunni allan tímann. Aðgangur er ókeypis og allir eru að sjálfsögðu velkomn- ir. Dagurinn verður helgaður mann- inum sem lífveru, til þess að minna á að við erum hluti af náttúrunni og umfjöllun um manninn er veigamikill þáttur í starfsemi náttúrufræðisafns. Komið og kryfjið í kennslumiðstöðinni gefst okk- ur m.a. tækifæri til þess að skoöa líkön af manninum og einstökum líkamshlutum, handfjatla þau og raða saman hlutunum. Einnig getum við skoðað vefjasýni í smá- sjá og spreytt okkur á að kryfja hjörtu og önnur líffæri. Þeir sem misstu af hinni stórkostlegu mynd „Saga lífsins" sem sjónvarpið sýndi í vor, geta séð hana ásamt öðrum myndbandsþáttum um manninn. Ennfremur verður sýn- ing á skyggnum, bókum og tímarit- um sem fjalla um þetta efni, ásamt því hvernig tölvur eru notaðar við rannsóknir og úrvinnslu gagna. Sérstakt tillit er tekið til barna og dagskráin er þannig að öll fjöl- skyldan geti notið hennar og upp- götvað þennan ævintýraheim í sameiningu. Til þess að framkvæma þetta hefur áhugahópur um byggingu náttúrufræðisafns fengið í lið með sér starfsmenn Námsgagnastofn- unar til þess að setja sýninguna upp, og verða þeir leiðbeinendur okkar ásamt öðrum sérfræðingum. Með þessu viljum við einnig vekja athygli á, að nútímalegt náttúrufræðisafn er ekki einungis hefðbundnir sýningarsalir. Víða um heim hafa slík söfn komið sér upp fræðslumiðstöðvum, sambæri- legum við kennslumiðstöð Náms- gagnastofnunar, þar sem fólk get- ur undirbúið ferðir um sýningar- sali, unnið úr fræðslu sem þeir miðla, undirbúið eigið fræðsluefni og gert athuganir undir leiðsögn sérfræðinga. Við viljum ennfrem- ur minna á, að þótt kennslumið- stöðinni sé einkum ætlað að veita kennurum og skólafólki. Megintilgangur náttúrufræði- daga er, eins og áður hefur komið fram, að vekja athygli á þeirri ótrúlegu staðreynd, að við íslend- ingar eigum ekkert náttúrufræði- safn og hvetja til aðgerða hið snarasta. Á meðan við bíðum eftir að slíkt safn rísi viljum við nota tímann til þess að setja á svið hluta af starfsemi slíks safns og einnig teljum við að sú reynsla sem fæst af þessu, geti nýst við uppbyggingu væntanlegs safns. Áhugahópur um byggingu náttúrufræðisafns Þingmenn Vesturlands um skulda- stöðu Qlafsvíkinga vegna Más: Ríkisábyrgðasjóður afskrifi skuldirnar „MÉR dettur ekki í hug að leiða hugann að því að togarinn Már hverfi úr byggðarlaginu. Hann hlýtur að verða í byggðarlaginu áfram og það er mitt mat að miðað við forsögu þessa máls geti ríkissjóður ekki á neinn hátt komist undan þeirri skyldu að svo geti orðið,“ sagði Alexander Stefánsson, félagsmála- ráðherra og þingmaður Vesturlands- kjördæmis, í samtali við Morgun- blaðið um þann vanda sem nú blasir við Ólafsvíkingum, ef Landsbankinn gengur hart fram í innheimtu gjald- fallinna skulda vegna togarans Más frá Ólafsvfk. Alexander sagði að á sínum tíma hefði það verið mikið mál fyrir stjórnvöld að þessi togari væri keyptur frá Portúgal, til þess að liðka fyrir viðskiptasamningum við Portúgal. Hins vegar hefði málið fljótlega farið úr böndum, þar sem ekki varð ráðið við stjórn Fiskveiðasjóðs, sem ekki hefði vilj- að samþykkja 67% lán til togar- ans, eða yfirtaka lánin frá Portú- gal, sem hefðu verið 80% af kaup- verði skipsins. Ríkisábyrgðasjóður hefði því verið látinn koma í stað- inn með þau 17% sem á vantaði, en það hefði náttúrlega ekki verið hagstætt. Þá hefði það jafnframt komið á daginn að stjórn Byggðasjóðs hefði neitað að fallast á 10% lán út á togarann, og ekki viðurkennt þá sérstöðu sem var með togarana frá Portúgal, sem beinlínis tengd- ust viðskiptasamningum ríkis- stjórnarinnar við Portúgal. Þá hefði Landsbankinn komið inn í málið, og veitt lán með sjálfskuld- arábyrgðum. Allt hefði þetta verið gert í þeirri von að Byggðasjóður og Fiskveiðasjóður myndu breyta afstöðu sinni og lána það fé sem til þurfti. Það hefði hins vegar ekki orðið, og því væri vandinn eins stór og ógnvænlegur og raun bæri vitni. „Inn í þetta fléttaðist svo það BSSGAGNAHOLLIN BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK • 91-81199 og 81410 að skipið varð fyrir gífurlegum áföllum," sagði Alexander, „því það strandaði með fullfermi undir ólafsvíkurenni, fyrir handvömm eina. Af því varð gífurlegt tjón og í framhaldi af því hrundi hluti vélarinnar. Þarna vil ég segja að tugir milljóna hafi tapast." Alexander sagði að togarinn Már hefði haft gifurlega þýðingu fyrir byggðarlagið þrátt fyrir of- angreind áföll og það væri stór- kostlegt slys ef byggðarlagið fengi ekki að halda togaranum. „Eins og staðan er í dag er það mitt mat, fyrst Ríkisábyrgðasjóð- ur bauð í togarann, og er þannig búinn að taka að sér Fiskveiðasjóð- inn, að ekki sé um neitt annað að ræða, en að ríkið gefi heimamönn- um kost á að fá skipið fyrir það verð sem Ríkisábyrgðasjóður bauð,“ sagði Alexander, „sem þýðir augljóslega það að Ríkisábyrgða- sjóður verður að afskrifa sína skuld. Þá verða heimamenn að semja við Landsbankann í sam- bandi við sjálfskuldarábyrgðina og fara fram á það við Byggðasjóð að fá fjármagn að láni sem gengi þá að hluta til í það að gera upp við Landsbankann." Friðjón Þórðarson, þingmaður Vesturlandskjördæmis, sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins um þetta mál: „Það er mjög skuggalegt ástand framund- an i þessu byggðarlagi, ef Lands- bankinn gengur hart fram í inn- heimtu skulda sinna á Ólafsvík. Ég trúi ekki öðru en að úr þessum málum rætist, m.a. með því að Ríkisábyrgðasjóður afskrifi skuld- ir sínar. Það verður að horfast í augu við staðreyndir og það er útilokað annað en viðunandi lausn verði fundin á þessu máli, þvi annars verða fyrirtæki og byggð- arlagið í heild fyrir svo þungu áfalli að ekki verður risið undir því og afleiðingarnar verða ófyrir- sjáanlegar um mörg ókomin ár.“ Allir eru sammála um ágæti VWGOLF VW GOLF CITY er sömu kostum búinn O HANN er sérhannadur til sendilerða og ílutnings á smávörum. O HANN er einstaklega lipur í notkun og snar í snúningum. O HANN er aíar léttur á íóörum varðandi eldsneytis- og viðhaldskostnað. O HANN skilar ótrúlega vel upphaílegu kaupverði við endursölu. O HANN kostar aðeins kr. 415.000 m bensínvél 0 HANN íœst einnig m. dieselvél [h]HEKLAHF J Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.