Morgunblaðið - 26.10.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.10.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 26. OKTÓBER1985 Morgunblaðift/Snorri Snorrason KOMIÐ ÚR RÓÐRI Rækjubáturinn Neisti HU-5 kemur úr róAri við Hvammstanga fyrir skömmu. Aóeins gustar á móti og gefur á bátinn. FLÍSAR Þrettán sfld- veiðibátar með afla í gær EÍTIRFARANDI þrettán sfldveiði- bátar tilkynntu um afla í gær og var afli þeirra samtals 695 tonn: Glófaxi VE, 15 tonn; Sigurður ólafsson SF, 20 tonn; Þuríður Halldórsdóttir GK, 120 tonn; Sif SH, 30 tonn; Firðrik Sigurðsson ÁR, 100 tonn; Dalarafn VE, 60 tonn; Axel Eyjólfsson KE, 90 tonn; Skóey SF, 80 tonn; Elliði GK, 10 tonn; Freyja GK, 20 tonn; óskar Halldórsson RE, 50 tonn; Boði GK, 30 tonn og Þorri SU, 70 tonn. LEIR — MARMARI — GRANÍT Á GÓLF — VEGGl — ÚTI — INNI H AGSTÆTT VERÐ OG GREIÐSLUSKILMÁLAR VERULEGUR MAGNAFSLÁTTUR _________MIKIÐ ÚRVALÁ LAGER____ TEIKNUM og veitum RÁÐLEGGINGAR komiö og skoðiö úrvalið VIKURBRAUT SF. KÁRSNESBRAUT 124, KÓP. S; 46044 2.000 tonn af loðnumjöli seld til Noregs — verð á lýsi og mjöli hefur hækkað um 10% frá upphafi vertíðar Sfldarverksmiðjur ríkisins hafa nýlega gengið frá samningi um sölu á 2.000 lestum af loðnumjöli til Noregs. Loðnuvertíðin í Bar- entshafi hefur að mestu leyti brugðist og þurfa Norðmenn því að kaupa mjöl til að anna eftir- spurn innanlands. Jón Reynir Magnússon, fram- kvæmdastjóri SR, sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að vegna þessa og vegna þess, að mikið hefði verið selt af mjöli héðan, færi verð nú nokkuð hækkandi á lýsi og mjöli og eftirspurn vaxandi. Sagði hann verð á þess- um afurðum hafa hækkað um 10% frá upphafi vertíðar í dölum talið, en þess bæri að geta að talsvert hafði verið selt áður en hækkunarinnar hefði verið farið að gæta. Verð á hverri lest lýsis væri nú komin í um 330 dali (13.700 krónur) en hefði verið um 300 dalir við upphaf vertíðar. Verð á hverri próteineiningu mjöls nú væri um 5,30 dalir (220 krónur), en hefði verið komið niður í 4,80 dali. Þá gat Jón Reynir þess, að sjór í Barentshafi væri nú mun hlýrri en undanfarin ár og teldu menn það meðal annars skýr- ingu á slakri loðnuveiði þar. Loðnan kynni ekki við hlýja sjó- inn og leitaði kælingar á meira dýpi en hægt væri að ná henni. Einnig teldu menn mikinn upp- gang þorsks í Barentshafinu eiga einhverja sök á minni loðnu- gengd, þar sem loðnan væri stór hluti af fæðu hans. Fyrirlestur um Þorlák helga SVEINBJÖRN Rafnsson, pró- fessor, flytur fyrirlestur um Þorlák helga Skálholtsbiskup í Safnaðarheimili Félags kaþ- ólskra leikmanna að Hávalla- götu 16 nk. mánudag, 28. októ- ber. Hann ræðir almennt um Þor- lák biskup, ævi hans, starfsemi og samtíð. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30. Öllum er heimiil að- gangur meðan húsrúm leyfir. Síðustu dagar hafa verið spennandi fyrir þá sem stefna að því að kaupa nýjan Opel: Fyrst tilkynntum við umtalsverða verðlækkun, sem ein og sér gaf fullt tilefni til að skella sér í kaupin. Þá var tilkynnt tollalækkun sem leiddi af sér enn frekari verðlækkun! Þegar svo við bættust tilboð okkar um auðveldari leiðir en áður til greiðslu á nýja bílnum, sáu menn í hendi sér að það hefur aldrei verið meira vit í því að kaupa Opel en einmitt núna! Gamli bíllinn tekinn upp í Oft kemur mjög vel út að setja gamla bílinn upp í. Þá erum við tilbúnir að hjálpa. Dæmi: Opel Corsa LS 3 dyra (eftir lækkun) kr. 349.600 Sá gamli kostar t.d. kr. 160.000 Þá er útborgun kr. 145.000 og afganginn greiðir þú með jöfnum afborgunum á sex mánuðum kr. 44.600 Verðlækkunin er ótrúieg: Þannig lækkar t.d. Opel Corsa LS 349.600* 3 dyra úr 379.600 í *Miðað við qengi 17/10 '85 kr. 349.600 60% lánað Þú getur líka samið við okkur um lánafyrirgreiðslu. Dæmi: Nýr Opel Corsa LS 3 dyra kr. 349.600 Útborgun 40% kr. 139.800 Helming eftirstöðva lánum við síðan í 3 mánuði kr. 104.900 og afganginn í 12 mánuði kr. 104.900 kr. 349.600 BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687BOO * Gildir til 10. nóvember eda i meðan birgðir endast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.