Morgunblaðið - 26.10.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.10.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER1986 27 ast að þjóðarbókhlaðan yrði sjálf- stæð stofnun en ganga þyrfti vel frá tengslum hennar við háskól- ann. Undir þetta tók háskólarektor og sagði hann að sennilega myndi þjóðarbókhlöðunni farnast best ef hún væri sjálfstæð stofnun. Hann tók sem dæmi Raunvísindastofnun háskólans, sjálfstæða stofnun sem hefði að ýmsu leyti farnast betur en öðrum deildum háskólans. „Þingmenn hafa brugdist“ Nokkrar fyrirspurnir komu fram um fjármál þjóðarbókhlöð- unnar, eins og við mátti búast. Sig- urlaug Bjarnadóttir, menntaskóla- kennari og fyrrum alþingismaður, var þungorð í garð stjórnvalda og varpaði hún fram þeirri hugmynd hvort ekki mætti nota þann hluta af hagnaði Seðlabankans, sem ríkið hygðist nú taka í sína vörslu, til þess að borga framkvæmdir við þjóðarbókhlöðuna; nú þegar Seðla- bankinn væri búinn að reisa sinn „svarta kastala". Hlaut þessi hug- mynd töluvert klapp ráðstefnu- gesta. Arni Gunnarsson svaraði því til að varasamt væri að eyrnamerkja tekjustofna á þennan hátt; stjórn- málamenn væru mjög fundvísir á leiðir til þess að fara í kringum slíkt. Guðrún Helgadóttir taldi að vel væri hægt að útvega þær 277 milljónir sem þyrfti til að klára húsið án þess að finna nýja tekju- stofna. Peningarnir væru til en þjóðarbókhlaðan hefði augljóslega ekki forgang á Alþingi. „Það eru alþingismenn sem hafa brugðist í þessu máli,“ sagði Guðrún, „ég vil ekki fría okkur þeirri ábyrgð." Að visu kvað hún sig og sinn flokk geta haft nokkuð góða samvisku vegna þessa máls en um það atriði urðu nokkrar umræður. Svo var rætt töluvert um húsið sjálft og arkitektúr þess en það er önnur saga... - U Skákhátíð í Hafn- arfirði um helgina SKÁKFÉLAG Hafnarfjarðar og Sparisjóður Hafnarfjarðar gangast um helgina fyrir skákhátíð í íþrótta- húsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Háð verður hraömót með þátttöku allflestra sterkustu skákmanna landsins, auk þess sem Helgi Olafs- son, nýbakaður stórmeistari, teflir fjöltefli og heldur fyrirlestur. Fjöl- tefli Helga við unglinga fór fram í gærkvöldi, en í dag kl. 10.30 fyrir hádegi hefjast undanrásir hraðmóts- ins. í dag verða tefldar níu umferðir og er umhugsunartíminn 15 mín- útur á skákina. Allir skákmenn með minna en 2100 stig hafa þátttökurétt, en þeir sem hafa 2100 Elo-stig eða meira komast beint í aðalkeppnina á morgun, sunnudag. 20 efstu menn í undan- rásunum öðlast þátttökurétt í A- flokki, en þeir sem verða fyrir neð- an 20. sæti tefla í B-flokki úrslit- anna. Tefldar verða 3 umferðir fyrir hádegi í dag kl. 10.30—12.20. Síðan 3 umferðir kl. 13.30—15.10. Kl. 15.15. mun Helgi ólafsson halda fyrirlestur, en kl. 16.15 hefst taflið að nýju og lýkur kl. 18.00. Úrslitin fara síðan fram á morgun, sunnudaginn 27. október. Verða þá tefldar 11 umferðir eftir Monrad-kerfi. í A-flokki tefla allir skákmenn með 2100 stig eða meira, auk þeirra 20 sem efstir verða í undanrásunum. Eftirtaldir skákmenn hafa þeg- ar tilkynnt þátttöku sína: Guð- mundur Sigurjónsson, Haukur Angantýsson, Helgi ólafsson, Jón L. Árnason, Karl Þorsteins, Jó- hann Hjartarson, Margeir Pét- ursson og Sævar Bjarnason, svo titilhafarnir séu nefndir. í B-flokki tefla þeir sem vilja vera með, en hafa ekki unnið sér þátttökurétt í A-flokki. Skákin hefst kl. 10.00 á sunnu- deginum og verða tefldar fjórar umferðir fyrir hádegi, en tekið er til við taflið að nýju kl. 13.00 og tefldar sjö umferðir. Verðlaunafé í A-flokki er þann- ig: 1. 25.000 kr. 2. 15.000 kr. og 3. 10.000 kr. Þrír efstu í B-flokki, efsta konan, öldungurinn og ungl- ingurinn, fá verðlaunapeninga. Skákdómari mótsins verður Sig- urberg H. Elentínusson. Mótið verður sett af formanni stjórnar Sparisjóðs Hafnarfjarðar, Stefáni •lónssyni. Lánskjaravísi- tala í nóvember hækkar um 2,7 % LÁNSKJARAVÍSITALAN fyrir nóvember 1985 hækkar um 2,76% frá mánuðinum á undan, sam- kvæmt útreikningum Seðlabanka íslands. Samkvæmt þessum út- reikningum gildir lánskjaravísi- tala 1.301 fyrir nóvember. Um- reiknuð til árshækkunar hefur breytingin verið sem hér segir: síðasta mánuð 38,7%, síðustu 3 mánuði 36,3%, síðustu 6 mánuði 35,2%, síðustu 12 mánuði 39,7%. -J. fc n Siðumúla32 Simi 38000 k _________________________J HemíKs* buckkm Það stendur allt og fellur með heimilisbuddunni. Hún er undirstaðan. Ef eitthvað er í henni, - þá er gaman. Sé hún tóm þá er ekki eins gaman. Þess vegna verður að gæta buddunnar, - gæta sparnaðar í hvívetna. Til dæmis í heimilisinnkaupunum, þar er eflaust hægt að spara. Hér er gott ráð: Kauptu inn þar sem vörurnar eru ódýrar, en láttu það umfram allt ekkl koma niður á vörugæðunum. Slíkt er ekki sparnaður. Hafðu það hugfast, að heimilisbuddan þolir ekki hvað sem er. Verðið er enqin spurning -gœðinekkiheldur A1IKLIG4RÐUR MIKIÐ FYRIR LfTÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.