Tíminn - 26.09.1965, Blaðsíða 5

Tíminn - 26.09.1965, Blaðsíða 5
SUKNBIk&GXIB 26* septeanber 1965 TfMINN — Hméíe —i Útgefandi: FRAMSÖKNARFLOKKURINN Fraœikvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7 Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90.00 á mán. innanlands. — f lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Áæthin um eflingu Háskólans Á seinasta þingi flutti Ólafur Jóhannesson ásamt allmörgum þingmönnum Framsóknarflokksins öðrum tillögu um, að ríkisstjórnin léti semja í samráði við há- skólaráð áætlun um skipulega eflingu Háskóla íslands á næstu tuttugu árum. Áætlun þessi skyldi lögð fyrir Al- þingi til samþykktar. í málum Háskólans hefur ríkt mikil kyrrstaða sein- ustu árin. Þó er gert ráð fyrir, að tala nemenda hans muni þrefaldast næstu tuttugu árin. Sú þróun útheimtir, að ekki aðeins séu þær deildir, sem fyrir eru, auknar og efldar, heldur sé bætt við nýjum deildum, tekin upp kennsla í nýjum fræðigreinum og ýmsum þáttum raun- vísinda. í ræðu háskólarektors 1. des. síðastl. var gerð athyglisverð og ítarleg grein fyrir þessum málum. Þá þarf að efla mjög bókasafn skólans og alla rann- sóknaraðstöðu. Að þessum málum öllum þarf að vinna með skipuleg- um hætti. Þar má ekkert handahóf að ráða. Það eru skynsamleg vinnubrögð að gera áætlun um skipulega eflingu háskólans á tilteknu árabili fram í tímann, t.d. um tvo næstu áratugi, svo sem hér er gert ráð fyrir, Það er eðlilegt, að háskólaráð og menntamálaráðuneyti vinni í sameiningu að slíkri áætlunargerð. Annars gætu á- rekstrar á milli þessara aðila orðið framkvæmdum til tafar. Síðan á að festa áætlunina með alþingissamþykkt. Þá er tryggt svo vel sem unnt er, að eftir áætluninni verði raunverulega farið í framkvæmdinni. Allar menningarþjóðir kappkosta nú að efla háskóla sína og vísindalega menntun. Er t.d. mikil hreyfing í þá átt á Norðurlöndum. Við íslendingar megum sannarlega gá að okkur að dragast ekki aftur úr í þessum efnum. Þess vegna er áætlunargerð sú, sem um ræðir í áður nefndri þingsályktunartillögu, fylilega tímabær. Bygging Seðlabankans ekki aðkallandi Alþýðublaðið hreyfir i gær athyglisverðu máli, sem vert er að taka undir. Málavextir eru þeir að Seðlabank- inn keypti nýlega lóð í Lækjargötu, þar sem hann hugð. ist reisa sér framtíðarheimkynni. Nú virðist bankinn horfinn frá þessari hugmynd og vill fá að byggja við Fríkirkjuveg, þar sem nú er m.a hið gamla hús Thor Jensens. í Alþýðublaðinu er réttilega bent á, að fyrir útlit bæjarins er miklu meira aðkallandi að Lækjargata sá byggð upp, en að farið sé að byggja á áðurnefndu svæði við Fríkirkjuveg. Til tals hefur líka komið að verði byggt nýtt Alþingishús/ verði það einmitt bvggt á þess- um stað. Það mál þarf a m.k. að íhuga áður en þessu svæði er ráðstafað til frambúðar f Síðast en ekki sízt er það svo laukrétt hja Alþbl. að erfitt er að sjá, meðan þenslan er jafn mikil og nú, að réttmætt sé að hefjast handa nm bvgging- á Seðlabanka- höll til viðbótar öllum öðrum bankabvgingum. Sjúkra- hús, skólar og íbúðarhús eiga sanarlega að hafa for- gangsrétt. Og það fé. sem Seðlabankinn festi í dýrri byggingu væri betur komið sem lánsfé biá atvinnuvegun- um. Walter Lippmann ritar um alþjóðamál: Framundan er erfið og löng barátta um völdin I Asiu Engin varanleg skipun hefur enn leyst nýlendustjórnina af hólmi ÞÓ að nokkrir möguleikar virðist á því að hlé verði á bar dögum í Suður-Asíu er engin lausn deilunnar í augsýn. Við getum leyft okkur að vona að komizt verði hjá stórstyrjöld, sem Kína og önnur stórveldi dragist inn í. Mikill hluti af herafla Indverja er bundinn við vörzlu á landamærum Kína í morðri og Pakistan er lítið ríki og mætti þess takmörk sett. Indland og Pakistan eru ekki undir það búin að heyja mikla og langvinna styrjöld. Táknrænt er og uggvænlegt um leið, að bardagar hófust með aðgerðum skæruliða í Kashmír og vekur það athygli okkar á, að átökin eru fremur asíks en vestræns eðlis. Við höfum kynnst því allt of vel í Vietnam, að mikið er unnt að brenna, eyðileggja og drepa án mikilla birgða hinna marg- breytilega og dýru vestrænu vopna. ÉG HYGG, að við gerum okku" ljósasta grein fyrir um- brotunum ef við byrjum á því að líta á þau sem hrun — eða að minnsta kosti ógnun um hrun — þess samkomulags, sem við tók af brezku valdi árið 1947. Við stöndum þarna andspænis hliðstæðum vand- ræðum og í Vietnam, aðeins stærri í sniðum og umfangs- meiri. Vandinn er í því fólginn, hvernig og hvað geti með góð- um árangri komið í staðinn fyrir nýlendukerfin, sem blómstruðu í Asíu á 19. öld og ýmist eru hrunin eða verið að má út um þessar mundir. Enn er óákveðið, hvað taka eigi við af heimsveldakerfun- um og raunar óþekkt enn. Öll ókyrrðin sýnir berlega þá stað reynd, að gamla valdið til að stjórna er horfið og um nýja vaidið, — hvort sem það verð- ur kommúnistiskt eða ekki, á fárra höndum eða margra, — er keppt af ákafa. Mikil bar- átta er háð um arftöku gamla nýlenduvaldsins. Þessi barátta stendur yfir á svæðinu, sem nefnt var Ind- landsveldi Breta fram til árs- ins 1947, og við verðum að minnast þess, að Indlandsveldi Breta var stofnað upp úr her- námi Mongóla. í Indlandi búa margar þjóðir, tala mörg tungu mál, hafa mismunandi trúar- brögð og eru ákveðið aðgreind- ir í ýmsar stéttir. Og íbúar þessa víðáttumikla lands hafa ekki í þúsundir ára komizt í kynni við frið og einingu und- ir sjálfstæðri. indverskri stjórn. SAMKOMULAGIð 1947 var djarfieg tilraun til að koma á stjórnmálakerfi. sem áður var óþekkt. Þetta varð að gera í mjög skjótri svipan. í útsogi siðari heimsstyrjaldarinnar leystist brezka indlandsveldið upp með miklum og óviðráð- anlegum hraða. Árið 1947 var bæði Indverjum og Bretum jafn ljóst, að ef stjórnvaldið væri ekki í flýti fengið f nend ur einhverjum, sem gæti fram- fylgt því, hlyÚ allt landið að flóa í stjórnleysisóeirðu. Bretar hefðu að sjálfsögðu helzt kostið að afhenda valdið einni, þjóðlegri, , indverskri stjórn, til þess að komizt yrði hjá klofningshættu. En leið- togar Hindúa og Múhameðs- trúarmanna gátu ekki orðið á eitt sáttir og enginn tími gafst til að ræða samkomulag. ,Vf- hendihg brezka valdsins fór því fram á tveimur, stuttum mánuðum. Þetta leiddi til skipt ingar hins mikla landssvæðis og ákvörðunar landamæra. Það hafði i för með sér skiptingu hersins, opinberrar þjónustu og ríkisfjár. Ismay lávarður var í farar- broddi þeirra, sem sáu um af- hendingu valdsins. Hann lét svo um mælt, að Indland væri „eins og brennandi skip á rúm- sjó, þar sem eldur geisaði á þilfari, en sprengiefnafarmur fyllti lestar." Við þessar ör- þrifaaðstæður var fimmtungi mannkynsins sniðið nýtt stjórnmálakerfi í flaustri. í FYRSTU höfðu hvorki Bretar, Indverjar né Pakistan- ar neinar sérstakar áhyggjur út af Kashmír. Allir gerðu ráð fyrir, að furstinn í Kashmír gengi í Pakistan með þegna sína, sem voru langflestir mú- hameðstrúar, enda þótt að hann væri sjálfur Hindúi. Þeir vonuðu, að hann léti verða úr þessu áður en frelsisdagurinn í ágúst 1947 rynni upp. Þegar sá dagur reis höfðu 565 indversku ríkin, að þrem- ur undanskyldum, látið að áeggjan og gengið í annað hvort ríkið Indland eða Paki- stan. En furstinn í Kashmír hikaði Tveimur mánuðum síð- ar. réðust Pakistanar inn í Kashmír. furstinn beiddist að- stoðar og Indverjar hlupu und ir bagga. Furstinn hét í stað inn. að Kashmír skyldi sam- einast Indlandi. Enda þótt Indland hefði þannig náð yfirráðunum í Kashmír mjög skömmu eftir frelsistökuna voru starfsmenn utanríkisráðnuneytisins i Nýju Delhi tilleiðanlegir til skipt- ingar ríkjanna Kashmír og Jammu og þjóðaratkvæða- greiðslu í Kashmír-dalnum sjálfum. En út þessu varð ekki. mBmmassisimar. í'HMUaít . ÁSTÆðA þess, að yfirráðin í Kashmír eru síðar orðin að brennandi lífsspnrsmáli, liggur í því, að það er orðið tákn og líkamningur gagnkvæmrar tor- tryggni múhameðstrúarmanna og Hindúa og ótta þeirra um, að samkomulagið frá 1947 fái ekki staðizt. Indverjar líta svo á, að ef þeim takist ekki að halda Kash mír, sé. eiriing Indlands í voða. Gé'tí meirihluti múham- eðstrúarmanna í Kashmír kos- ið sig út úr indverska lýðveld- inu einnig svo að fara um aðr- ar þjóðir eða ættbálka, sem greini á við Hindúa um trúar- brögð, tungu eða hagsmuni. Að baki þessarar skoðun Ind- verja liggur hinn áleitni efi um, að samheldni Indlands fái staðist til langframa. Af hálfu Pakistana er litið svo a, að taki Indverjar Kash- mír, sé það sökum þess, að Indland, sem er fjórum sinn- um stærra en Pakistan, ætii sér með tímanum að binda endi á aðskilnaðinn, endursam eina landið allt og koma á hindúastjórn hvarvetna. ÞARNA stöndum við and- spænis sögulegu fyrirbæri, sem er að mestu utan okkar venju- legu pólitísku þekkingu. Okk- ur hættir ósjálfrátt til að halda að vegna bess, að okkur geðjast betur að lýðræði en yfirdrottn- un, þá hljóti lýðræðið smátt og smátt en óhjákvæmilega að koma í stað yfirdrottnunarinn- ar. Við gerum einnig ráð fyrir, að þegar ákveðnu velmegunar- marki er náð, hljóti hið foma hatur mannkynsins og metorða gimd að dvína. En f hugsun okkar almennt, og þó sérstaklega í hugsun okkar um heiminn eftir stríð- ið, verðum við að sætta okkur við að viðurkenna þá stað- reynd, að tilfærslan frá gömlu skipulagi til nýs skipulags er oft — og raunar venjulega — hin mesta þrautaganga. Þegar bandaríska þjöðin öðl- aðist sjálfstæði sitt tókst henni iafnvel ekki að treysta lýðveld- ið fyrri enn eftir að hræðileg borgarstyrjöld hafði gengið yfir. Heita má fullvíst, að breyt ingin frá gömlu valdi til nýs í Asíu verði mjög Iangvarandi og ærið erfið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.