Morgunblaðið - 01.12.1985, Side 36

Morgunblaðið - 01.12.1985, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGUR1. DESEMBER1985 Leikfélag Reykjavíkur: Skyggnst á bak við tjöldin — kíkt inn í hvern krók og kima Slappað af í stiganum. Allt á fullri ferð — innan dyra sem utan. Frá pínulitlu poppi... Stund á milli stríða. Veigamikil en ves- eldarleg vistarvera — snyrtiaðstaða og reyksalur í senn. höfuðborgarinnar. Húsnæðis- skorturinn hefur háð hugmynda- flugi þeirra um langt árabil — aðbúnaður allur og aðstaða sniðið þeim heldur þröngan stakk. Synd væri þó að segja að leikhúsgestir liðu fyrir hið litla og lélega at- hafnasvæði leikaranna — þökk sé útsjónar- og nægjusemi þátttak- enda. En er átandið raunverulega eins slæmt og margir vilja vera láta? Á fjölunum í Iðnó er nú um- fangsmesta og fjölmennasta sýn- ing, sem sett hefur verið þar upp — leikritið „Lands míns föður" eftir Kjartan Ragnarsson. Sviðs- setningin er all sérstæð — svalirn- ar og salurinn ekki síður vettvang- ur viðburðanna en sviðið sjálft. Til að kynnast hinu raunverulega ástandi á bænum fengu Morgun- blaðsmenn að fylgjast með gangi mála á einni sýningu hópsins — og þá að sjálfsögðu á bak við tjöld- in. Sannaðist þar hið fornkveðna, í eitt skipti fyrir öll, að sjón er sögu ríkari. reynsluna hafa. Er hér að sjálfsögðu átt við aðsetur Leikfélags Reykjavík- ur — gamla, góða Iðnó. Innan veggja þess hafa líka skipst á skin og skúrir — gleði og grátur — bæði á sviðinu sjálfu sem og utan þess. Annars vegar eru það hinar rómuðu revíur — at- hvarf hinna fjölmörgu flótta- manna raunveruleikans — hins vegar hinir háalvarlegu harmleik- ir, sem vekja eiga menn til um- hugsunar um tilgang og takmark tilverunnar. Hvort heldur sem er — túlkun tilfinninga er það sem leiklistin snýst um. Áhorfendurnir bregða sér í búning prófdómara — en einkunnirnar birtast í formi fögnuðar eða fordæmingar — oft aðeins fyrirgefningar fjöldans, þar sem viljinn er tekinn fyrir verkið. „Neyðin kennir naktri konu að spinna" er forn fullyrðing, sem fyrir löngu hefur sannað gildi sitt. Áuðveldlega má líka heimfæra setningu þessa upp á húsbændur og hjú hins háaldraða húss í hjarta Húsið er staðsett í hjarta Reykjavíkur, nánar tiltekið við Tjörnina, sem reynst hefur skáldum landsins óendanleg uppspretta Ijóða og listrænna lýsinga. Það lætur lítið yfir sér, er laust við hinn hrokafulla blæ háhýsanna, hlýlegt og vingjarn- legt og er ekki laust við að manni finnist sem það lumi á einhverju leyndarmáli — líkt og þeir, sem lífs- í kapphlaupi við klukkuna — hermennirnir hafa fataskipti. Baktjaldamakk — í orðsins fyllstu merkingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.