Morgunblaðið - 01.12.1985, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
'í Ragnar BJörnsson orgelleikari
Tekur við hljóm-
sveitarstjórn
í Grímu-
dansleik
RAGNAR Björnsson tekur við hljóm-
sveitarstjórn í uppfærslu Þjóðleik-
hússins i óperunni Grímudansleik
eftir Verdi nk. miðvikudag, 4. des-
ember. Þann dag þarf Maurizio
t* Barbacini, sem til þessa hefur stjórn-
að hljómsveitinni, að hverfa af landi
brott til að sinna verkefnum á Ítalíu.
Ragnar Björnsson hefur marg-
oft verið hljómsveitarstjóri á sýn-
ingum Þjóðleikhússins og nægir i
því sambandi að nefna Sumar í
Týrol, Leðurblökuna, Carmen og
ballettinn Blindisleik eftir Jón
Ásgeirsson og Jochen Ulrich.
Ragnar var dómorganisti í fjölda
ára en hefur jafnframt farið í tón-
leikaferðir m.a. til Rússlands,
Bandaríkjanna, Kanada, Þýska-
lands og Norðurlandanna. Undan-
farin ár hefur Ragnar Björnsson
verið skólastjóri Nýja tónlistar-
skólans.
Fréttatilkynning
Ekki að-
dáunarvert
kvikmyndir
ú Árni Þórarinsson
Bíóhöllin: James Bond aðdáand-
inn — Shut Up When You TalkA
ítölsk-frönsk. Árgerð? Ilandrit:
Enrico Oldoni, Philippe Clair. Leik-
stjóri: Philippe Clair. Aðalhlutverk:
Aldo Maccione, Edvige Ferrech.
Heldur er þetta nú bágborið
grin. Eins og íslenski titillinn
bendir til segir hér frá hvers-
dagsmanni sem dáir mest hið
alþjóðlega glæsimenni, kvenna-
gull og ofurhuga James Bond.
Sjálfur er maðurinn , Giacomo,
feitlaginn og nefstór piparsveinn
sem kúldrast atvinnulaus í
kompu sinni með Bond og píurn-
ar hans uppi á vegg og mömmu
sína vælandi í símanum. Myndin
snýst svo um það þegar draum-
óramaðurinn er tekinn í mis-
gripum fyrir spæjara nokkurn,
lendir í æsilegum ævintýrum og
þokkadísum á la Bond og er allan
tímann að telja sér trú um að
þetta sé bara einn dagdraumur-
inn enn.
Sumsé misskilningsfarsi sem
notar James Bond sem stökkpall.
En stökkpallurinn skiptir ekki
máli ef menn kunna ekki að
stökkva. Þá lenda menn bara á
maganum. Og það gerir þessi
ítalsk-franska framleiðsla með
amerísku tali. Aðalleikarinn,
Aldo Maccione er að vísu stöku
sinnum ögn fyndinn í bægsla-
gangi sínum en hann fær litla
aðstoð frá handritshöfundum og
leikstjóra. Þótt James Bond eigi
sér marga aðdáendur leyfi ég
mér að efast um að sama eigi
, ' við um James Bond aðdáandann.
Hugvekja í skammdeginu
— Af gefnu tilefni
— eftirKarlJ.
Steingrímsson
Jólin nálgast. Hátið frelsarans
fer senn í hönd og við minnumst
fæðingar Krists. Efst í huga
okkar verður boðskapur jólanna
— bræðralag manna og kærleikur.
Sunnudaginn 24. nóvember
síðastliðinn birtist í Morgun-
blaðinu grein eftir sr. Heimi
Steinsson. Þar segir m.a.:
„Jafnrétti birtist m.a. í at-
hafnafrelsi, þar sem allir menn
fá að njóta hæfileika sinna
innan þess ramma, sem lög
heimila. Atferli framkvæmda-
mannsins, sem ávaxtar þjóðar-
auð, er skilgetið afkvæmi jafn-
réttis. Hverjum og einum
heimilast að freista gæfunnar
án tillits til ætta og uppruna,
stjórnmálaskoðana eð lífsvið-
horfa.
Þetta á þó aðeins skylt við
Guðs ríki, að tryggt sé, að
ávöxtur athafnamannsins skili
sér jafnt til allra þjóðfélags-
þegna. Þar víkur sögunni á ný
til þess jafnvægis, er að fram-
an greinir. Tákn Guðs ríkis
birtist e.t.v. hvergi jafn ljóslif-
andi og í viðleitni stjórnvalda
til að efla fullkominn jöfnuð
manna á meðal.
Réttlæti Guðs felst öðru
fremur í því, að hann réttir
„Mannorðið er horn-
steinn mannlegs sam-
félags og er ofar öllum
lífsVerðmætum. Það er
því mikið alvörumál,
þegar einhver er rænd-
ur slíkum hornstein —
og það að tilefnis-
Iausu.“
hlut hinna smáu. Þjóðfélag,
sem annars vegar gefur at-
hafnamönnum tækifæri til að
afla verðmæta og hinsvegar
skila sömu verðmætum til
þeirra, er minna mega sín,
endurspeglar Guðs ríki og þar
með þá helgun og ummyndun,
sem öllum kristnum mönnum
er ætluð um síðir."
(Tilvitnun lýkur)
Um þessar mundir ganga
miklar sögur manna á meðal,
vegna okurmáls sem nú er í
rannsókn. Inn í þessar sögur
blandast fólk sem á engan hátt
tengist þessu máli. Velgengni
eins má ekki gefa öðrum tilefni
til öfundar með því að ala á gróu-
sögum og getgátum í þá veru að
eitthvað óhreint sé í fari at-
hafnamannsins á slíku augna-
bliki. Við búum í lýðræðisríki þar
sem öllum er frjálst hvar þeir
setja markmiðin og stefnuna í
lífinu, hvort heldur er í fjár-
hagslegum ávinningi eða öðrum.
Spjót öfundarmannanna bein-
ast oftast nær að þeim sem ná
árangri. Þeir sem slíkum vopnum
beita eru yfirleitt ekki sjálfum
sér nógir eða vantar einhverja
lífsfyllingu. En gætum þess að
dæma ekki. Það er til æðri dóm-
stóll hér á jörðu og annar í
himnaríki. Jesús var saklaus en
Barrabas sekur. Samt dæmdi
lýðurinn Jesú og krossfesti. Hver
og einn verður dreginn fyrir dóm,
hafi hann synd að bera, hvort
heldur er hér eða á himni Guðs.
En það er ekki okkar hlutverk
að dæma, heldur réttvísinnar og
yfirvaldanna. Þeirra er lokaorð-
ið.
Skammdegið kallar á okkur og
við eigum til að svara í sömu
mynt. Hreinskilni og vinátta eru
verðmæti sem aldrei verða metin
til fjár. Engu að síður má leggja
þau til grundvallar réttlætis-
kennd og þroska hvers og eins,
þegar á reynir.
Mannorðið er hornsteinn
mannlegs samfélags og er ofar
öllum lífsverðmætum. Það er því
mikið alvörumál þegar einhver
er rændur slíkum hornstein —
og það að tilefnislausu. Okkur
ber sem kristnum einstaklingum
að varðveita mannorð okkar í
Karl Steingrímsson
daglegri umgengni við aðra
menn. Þar er að finna lykilinn
að innri frið og hamingju. Öll
erum við mannleg og ekki hafin
yfir mannleg mistök, en gætum
þess að troða ekki á því sem
mönnum er kærast með því að
fara með gróusögur og getgátur.
Það birtir af degi og glampar
i augum barnsins og hins rétt-
láta, en aðrir dragast inn í eigin
skel — því að yfirborðið er upp-
lýst orðið.
Að þessum orðum slepptum vil
ég óska landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsæls kom-
andi árs, í þeirri von að við setj-
um okkur framvegis það mark
að rækta eigin garð í stað þess
að sá illgresi í garð náungans.
Höfundur er framkræmdastjóri
Pelsins.
AIWA ---- AIWA
Vorum aö fá 30% lægra verð frá framleiöanda á einni sendingu
af þessari stórglæsilegu hljómtækjasamstæðu. V-900 B.'
Útvarp: LB, MB, FM-stereo meö sjálfleitara og tólf stööva minni, klukku og
tímastilli fyrir upptöku eöa afspilun.
Magnari: 2x90 wött. 5 banda tónjafnari, jafnt á upptöku sem afspilun.
Segulband: 20-18000 riö, metal, lagaleitari, 2 mótorar, sjálfvirkt val á normal,
CrOa- og Metal-spólur. Auto record mute, samhæfö tenging viö útvarp og plötu-
spilara.
Plötuspilari: Sjálfvirkur eöa manual, linear tracking.
Þettaer einstakt tækifæri til aö eignast frábæra hljómtækjasamstæöu á veröi
sem á sér enga hliöstæöu miöaö viö gæöi.
Verö kr. 47.280 stgr. án hátalara.
Bjóöum einnig kr. 10.000,- útb. og eftirstööv-
aráailt aö8mán.
Dm m i , . i__i x
ÍKIWS <
Ármúla 38
Garðakaupum/Garðabæ