Morgunblaðið - 01.12.1985, Page 53
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR1. DESEMBER 1985
53
VALGEIR SKORAöl
Á GERVIGRASINU!
Einnig er væntanleg frá
honum platan FUGL DAGSINS
Fugl dagsins heitir væntanleg
hljómplata frá hinum 33 ára gamla
Valgeiri Guöjónssyni sem i mörg ár
hefur gert garöinn frægan meö
hljómsveitum eins og Spilverki
þjóöanna og Stuðmönnum. Á þess-
ari hljómplötu eru þaö kvæöi Jó-
hannesar úr Kötlum sem Valgeir
semur lög viö. Popparanum gafst
tækifæri til aö hlýöa á snældu meö
lögunum og væntanlega á þetta
nokk eftir aö koma aödáendum
Valgeirs á óvart. Tónlistin er meira
í ætt við þaö sem Spilverkiö geröi
á sínum tíma, svona vísnapopp meö
alls kyns ívafi. Valgeiri til aöstoöar
viö sönginn eru Sigrún Hjálmtýs-
dóttir (Diddú) og Ævar Kjartansson,
útvarpsmaöur sem aö sögn Val-
geirs er meö gullfallega rödd. Tíu
mínútum áöur en Valgeir ætlaöi á
fótboltaæfingu á gervigrasinu meö
starfsmönnum Pennans, náöi
Popparinn tangarhaldi á þessum
afslappaöa frakkamanni.
Hvenær uröu lög þessi til?
„Þau uröu til úti
Noregi fyrir 4-5 árum er
ég var þar viö nám. Ég
haföi kvæöi Jóhannes-
ar meö mér og þetta
varö mín tómstundar-
iöja.
Þessi kvæöi eru mjög vinsamleg
mannfólkinu og langt frá því aö vera
pólitísk,” sagöi Valgeir og fór úr
frakkanum.
Þú ert eini gitarleikarinn á plöt-
>1 III í
►
unni. Er sjálfstraustiö komið aftur?
„Ætli þaö ekki bara. Ég hef marg-
oft tekiö fram aö ég er ekki góöur
gítarleikari, en þessi tónlist er ekki
flókin og ég ræö nokkuö vel viö þaö
sem ég er aö gera, “ segir Valgeir.
Eric Clapton er kallaður Slow-
hand.En þú?
„Þaö má þá bara kalla mig Still-
hand“, sagöi Valgeir, nú oröinn
ber aö ofan. Hann teygöi sig ofan i
æfingatöskuna og tók upp forláta
æfingatreyju, rauöa aö lit. Brá
henni síðan yfir höfuö sér.
„Ég spila líka á hljómboröin,"
heyröist þá ofan úr hálsmálinu.
En hverjir fleiri aöstoöa þig?
„Þaö eru m.a. Ásgeir
Óskarsson á trommur
og Skúli Sverrisson á
bassa. Öölingspiltur,“
svaraði Valgeir og
smeygöi sér í hvítar
stuttbuxur. Ótrúlega
hugaöurmaöur.
Þaö var kalt úti þennan morgun.
Þessi plata er auövitaö ætluö
sérstaklega til spilunar á vinsælda-
lista hlustenda rásar 2 (ferlega er
nafniölistanslagt).
„Ég veit ekki. Ég held þó aö þessi
plata, Fugl dagsins, höföi til allra
aldurshópa, og vona þaö alla
vega,“ sagöi Valgeir og bætti viö:
„Réttu mérfótboltaskóna."
Svo kom næsta spurning: Ertu
bjartsýnn?
„Maöur er nú búinn aö læra aö
vera hæfilega bjartsýnn. Hvítir
mávar gengu nú ekkert ofboöslega
nú eöa þá Stuðmannabókin. Ég er
dalandi bjartsýnn. Réttu mér legg-
hlífarnar.“
Þaö eru allir að gefa
út plötu. Geturöu út-
skýrt það?
„Aö sjálfsögöu ekki.
En fólk hefur greinilega
mjög mikla þörf fyrir aö
koma frá sér efni, hvort
sem þaö lítur vel út eða
ekkl.
Málarinn kaupir sér jú striga án
þess aö vita hvort myndin selst,"
sagöi íþróttahetjan aö endingu,
síkvik íöllu sínu veldi.
Eftirmáli:
Valgeir Guðjónsson var settur
í stöðu vinstri bakvarðar, sór
þvert um geð en skoraöi þó tvö
gullfalleg mörk með vinstri fæti.
A 34. mínútu síöari hálfleiks lenti
hann í útistöðum viö dómara
leiksins sem vísaði honum um-
svifalaust í bað. Valgeir sagði þaö
þó ekki koma í veg fyrir útkomu
breiöskífunnar.
Sjaldseðir hvitir hrafnar
á Fáheyröum hvítum úlfi
—eftirtektarveröir rokktónleikar viö Skúlagötuna í kvöld
Fáheyrður hvítur úlfur heitir frönsk-íslensk
rokkhátíð sem haldin veröur í Zafarí í kvöld.
Þaö eru sjaldséðir hvítir hrafnar frá Frakk-
landi sem verða í aðalhlutverkum. Er þar átt
við nýbylgjusveitina Etron Fou Leloublan sem
sagt var frá hór á síðunum um daginn.
Framlag íslendinga til rokkhátíðarinnar er
ekki dónalegt. Svart-hvítur draumur lætur
gamminn geisa og fram koma rokkskáldin
ástsælu, Einar Már Guömundsson og Sigfús
Bjartmarsson, en þeir eiga báðir kafla á ný-
stárlegum Ijóöasnældum sem Grammið mun
gefa út innan tíðar.
Súrrealistahópurinn Medúsa verður á
svæðinu eins og venjulega þegar erlenda
gesti ber að garöi og mun hópurinn klæða
Zafarí og hátíöina „sérstökum viðhafnar-
skrúða með Ijósum, litum og tali“ eins og
segir orðrétt í fréttatilkynningu.
Þessa þekkja nú allir. Þatta ar Jo Thirion, söng-
kona og hljómborösleikari Etron Fou Laloublan.
Pass á fulla ferð
Eflaust kannast margir viö hljómsveitina Pass
sem þótti lengi vel vera með efnilegri bárujárns-
sveitum. Pass er enn komin af staö og nú skipa
hana þrír stofnendur hennar, þeir Birgir Haralds-
son, söngvari og gítarleikari, Þórhallur Árnason,
bassaleikari og Karl Tómasson, trommuleikari.
Þaö hefur litiö heyrst frá Pass aö undanförnu
en nú eru þrennir tónleikar á næstunni. Þeir fyrstu
í Safarí fimmtudaginn 5. desember, síöan í Félags-
stofnun stúdenta föstudaginn 6. desember og loks
halda þeir hljómleika á Hótel Borg fimmtudaginn
12. desember. Á efnisskránni er nýtt efni.
Þessi mynd var tekin af Valgeiri í Skrúögörðum Reykjavíkur (Hortus
Botanicus Reykjavicensis) eftir leikinn á gervigrasinu. Hann lók sór
þá að því að halda knetti á lofti, sitjandi upp við tró um leið og hann
þýddi sakamálasögu eftir Agöthu Christie yfir á swahili. Fjölhæfur
maður Valgeirl
o
Sú besta
SMÁSKÍFUR
VIKUNNAR
o
Fine Young Cannibals
— Blue
Þetta er skrambi vel gert og
söngurinn í sérflokki. Það væri
gaman ef allir legöu jafnmikla til-
finningu í sönginn og raddbanda-
eigandinn í Fine Young Cannibals.
Lagiö venst vel eftir 2—3 hlustanir.
í fljótu bragöi er erfitt aö finna ein-
hverja hliöstæöu í poppinu i dag.
Fine Young Cannibals er alveg sér
ábáti.
Annað ágætt
Lloyd Cole and the Com-
motions — Lost Weekend
Þetta er lauflétt og einfalt popp-
lag á allan hátt en þaö er bara ekki
sama hvernig slíkt er meöhöndlaö.
Einlægnin er í fyrirrúmi og þó ótrú-
legt megi viröast vill Popparinn
meina aö hér syngi söngvarinn ekki
ósvipaö Harpo gamla (nei, ekki
HarpoMarxM).
Kool and the Gang —
Emergency
Þessi sveit er fremst i flokki
þeirra sem flytja soulkennda dans-
tónlist. Þeir félagar eru hittnir á
góöar laglínur þó oft hafi þeir falliö
í heitan súkkulaöipott þegar rólegu
lögin eru annars vegar. Þetta er
hresst danslag meö fáum eöa eng-
umfeilnótum.
Afgangurinn
Queen — One Vision
Þeir eru nú orönir ansi þreytuleg-
ir á aö líta þessir. Aö vísu stóöu
þeir sig vel á Live Aid-tónleikunum
enda byggöu þeir þar upp á göml-
um, alþekktum lögum sínum. One
Vision gæti veriö á fyrstu, annarri
og þriöju Queen-plötunni. Þaö gæti
líka hafa veriö á öllum hinum, nema
kannski diskóplötunni. Lagiö er
ekki neitt, neitt, og þrátt fyrir 5—6
yfirferöir heltók þaö Popparann
aldrei.
Wham! — l’m your Man
Ekki þaö versta frá þessum sól-
bekkjabrúnu Knold og Tot. En lagiö
er samt ekki gott. Eins og kínverskt
máltæki segir: „Þaö er bara eitt
Wake me up before you gogo.“
George Michael má þó eiga þaö aö
hann er af bragös söngvari.
James Taylor — Everyday
Þaö er talaö um aö popparar og
rokkarar mýkist meö árunum, rétt
eins og aörir og sjálfsagt er þaö
hárrétt. Elton John geröi Nikita en
hann hefur margoft áöur verlö
mjúkur. Nú sendir James Taylor frá
sér Everyday, dúnmjúkan söng en.
það er heldur ekkert nýtt á þeim
bæ. Þaö væri réttara aö segja t.d.
þessa tvo gamlingja í poppinu vera
oröna einfaldari í lagasmíöum.
Everyday fer inn um annaö og út
um hitt. Eins og segir í kvæöinu sem
viö syngjum á gamlárskvöld: „Og
aldrei þaö kemur til baka.“
Heart — Never
Var þessi sveit ekki hætt? Nú,
hún heföi betur gert það.
Phil Collins/Marilyn Marat-
in — Seperate Lives
Þetta er ægilegt. Slikjan sem
umlykur þetta er minnst 35 metra
þykk. Þetta er nú vel í Kanann!
Hljómsveitin Pass ásamt aðstoðarmanni.
ÖRLITIÐ ERLENT
Madonna er byrjuö aö taka upp þriöju plötu sína. Mikiö of-
boösiegaveröurgamanaöheyraútkomuna...
Paul McCartney hefur yfirgefiö Colombia Records en undirritaö
samningviöCapitolfyrirtækisemupphaflegagafútBítlana ...
Áður óútgefiö efni eftir John Lennon, flutt af honum, kemur út
íjanúarmánuöiánæstaári. Það er Capitol sem gefur út...
Pretenders er væntanleg á breiöskífu. Húrra! Meölimir hljóm-
sveitarinnar eru nú staddir í Lundúnum og von er á plötunni með
vorinu. Þaö eru engir aukvisar sem munu stjórna upptökum. Þeir
heita Bob Clearmountain og Jimmy lovine ...
Umboðsmaður írsku hljómsveitarinnar U2 segir einhvern ungan
mann hafa veitt útvarpsviðtöl og þóst vera trymbill U2, Larry
Mullen Jr....
Eric Clapton og Lionel Richie saman á plötu? Nei þaö er ómögu-
legt kunna einhverjir að segja. En þannig er þaö nú samt. Eric
Clapton leikur meö Richie í einu lagi á væntanlegri plötu gullkálfs-
inssemaðsögnveröurrokkaörienþærfyrri...