Morgunblaðið - 01.12.1985, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR1. DESEMBER1985
75v*
Hlægið í
umferðinni
Kvlkmyndir
Árni Þórarinsson
Bíóhöllin: Ökuskólinn — Moving
Violations ★★★
Bandarísk. Árgerð 1985. Handrit:
Neal Israel, Pat Proft. Leikstjóri:
Neal Israel. Aðalhlutverk: John
Murray, Jennifer Tilly, James
Keach, Sally Kellerman, Lisa Hart
Carrolí.
Sú formúla bandarískra gam-
anmynda undanfarin ár að hrúga
saman ýmsum sérkennilegum
manngerðum í afmörkuðum
kringumstaeðum, t.d. mennta-
skóla, gagnfræðaskóla, háskóla,
lögregluskóla og öðrum skólum
lífsins, og láta þær síðan fíflast
þar í einn og hálfan tíma, hefur
auðvitað gengið sér til húðar
fyrir löngu. Flestar þessar mynd-
ir eru endurtekningar og út-
þynningar hver á annarri. En svo
skýtur ein og ein upp kolli sem
sýnir að þrátt fyrir allt á formúl-
an sér viðreisnar von ef höfundar
hafa hugvitið í lagi. Gleðileg
undantekning af þessu tagi er
einmitt Moving Violations eða
Ökuskólinn sem Bíóhöllin hefur
tekið til sýninga.
Strax á kynningarmínútum
myndarinnar verður ljóst að hér
standa að verki menn sem ekki
að eins kunna sitt fag heldur
hafa gaman af því og nenna að
hafa fyrir því að láta aðra hafa
gaman af því. Flestar þessar
myndir bera hins vegar vitni
kunnáttuleysi, hugmyndaleysi og
leti. En þegar Neal Israel, leik-
stjóri, og hjálparkokkar hans
leiða fram á sjónarsviðið það
kostulega samsafn ökufanta og
aulabárða sem síðan eru dæmdir
til að fara í endurhæfingu á
ökuskóla lögreglunnar er maður
um leið farinn að hlæja og heldur
því áfram mestan part myndina
á enda. í fyrsta lagi er handrit
Israels og Profts eldfjörugt og
barmafullt af hugmyndum. I
öðru lagi hefur leikstjórinn Isra-
el ekki aðeins tilfinningu fyrir
smellnum samtölum og kynleg-
um kvistum heldur líka ágæta
hæfileika til réttrar uppbygging-
ar og tímasetningar á þeirri röð
af smáskyssum sem myndin er
samansett úr. í þriðja lagi, og
það er kannski hvað mikilvæg-
ast, hefur hann verið sérlega
fundvís á skemmtilegan leikhóp
sem skapar urmul óborganlegra
manngerða, allt frá höfuðand-
stæðingunum, æringjanum John
Murray og hinum grimma lög-
reglutöffara James Keach (en
báðir eru þeir betri gamanleikar-
ar en bræður þeirra Bill og
Stacy), til aukaleikara eins og
Clara Peller, gráhærðrar lítillar
konu sem á erfitt með að vera
úti að aka vegna þess að hún er
nánast blind.
Þótt Ökuskólinn sveigi uhdir
það síðasta inn á hefðbundinn
bílahasar amerískra afþreyinga-
mynda er hún lengst af manískt
og uppáfyndingasamt spaug sem
mælir með því að menn brosi
ekki aðeins í umferðinni heldur
hlæi, — sem að vísu leiðir til
þess að menn missa ökuleyfið.
Sigurpáll Isfjörð
sýnir í Borgum
Sunnudaginn 1. desember kl. 14, opnar Sigurpáll ísfjörð málverkasýningu
í safnaðarheimili Kársnessóknar, Borgum í Kópavogi. Þetta er 10 sýning
Sigurpáls og sýnir hann 40 verk og eru vatnslitamyndir í stórum meirihluta
en nokkur olíumálverk.
Sýningin er opin um helgar frá kl. 14-22, en virka daga frá kl. 16-22.
Meðan á sýningu Sigurpáls stendur er kaffisala á vegum þjónustudeildar.
HVIS PRESLEY
'&éé ,IJI)ertJ Mounten
Nú ma enginn sann-
ur Elvis-aðdáandi
láta sig vanta á Elvis
Presley-kvöld í
Broadway því þetta
veröur ógleymanlegt
kvöld.
Hljomsveitin
leikur svo fyrir
dansi bæöi
kvöldin.
Konungur rokksins var, er og verður hinn storkost-
legi og ógleymanlegi Elvis Presley sem allur
heimurinn daöi, ennþá eru lögin a vinsældalist
um víöa um heim. I tilefni þess aö Elvis Pres-
ley heföi oröið fimmtugur a þessu ari hefur
veitingahúsið Broactway akveöið aö
minnast hins okrynda konungs a sc't-
tæöan hatl I iberty Mounten ('i einn
besti Elvis-leikari sem fram helui
komið a scánni arum asamt 8
niaiiua hl|omsveil hans ()F
SOIO I itierty Mounten helui
fanö viöa um heun og tengiö
slórkostlegar viötökur hja
T Ivis-aödaendum sem
likja honum jalnan viö
konunginn sjalfan oc)
er þa mikið sagt.
Elvis-sýning Liberty Mo-
unten og hin stórkostlega
8 manna hljómsveit DE-
SOTO verður í Broadway
6. og7. des.nk.
og spannar aðallega það
tímabil í lífi Elvis er hann
kom fram i Las Vegas og
flytja þeir öll hans þekktari
Miða-og
borðapantanir
í síma 77500
&