Morgunblaðið - 18.01.1986, Page 1

Morgunblaðið - 18.01.1986, Page 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ1913 14. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Skoðanakönnun í Danmörku: Fleiri voru með EB-tillögunum en á móti þeim Kaupmannahðf n, 17. janúar. AP. EF til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur í Danmörku um fyrirhugaðar umbætur á Evrópubandalaginu (EB), þá eru þeir Danir fleiri, sem styðja þær en hinir, sem eru þeim andvígir. Kom þetta fram i niður- stöðum skoðanakönnunar nm málið, sem birtar voru í dag. Poul Schliiter forsætisráðherra hefur lagt til, að slík þjóðaratkvæða- greiðsla fari fram. Niðurstöður könnunarinnar voru birtar í fjármálablaðinu Börsen. Þar kom fram, að 40% af þeim 608 manns, sem spurðir voru, myndu greiða atkvæði með EB-tillögum stjómarinnar, yrði kosið um þær nú. 35% aðspurðra sögðust aftur á móti vera tillögunum andvígir, en 24% vom óákveðnir og 1% sagðist ekki ætla að taka þátt í atkvæða- greiðslunni. Málið allt setur nú æ meiri svip á dönsk stjómmál. Minnihlutastjóm Schluters styður breytingamar, en allar líkur virðast þó á því, að þær verði felldar á Þjóðþinginu í at- kvæðagreiðslu næsta þriðjudag. Schluter hefur varað Dani við því, að fallist þeir ekki eins og aðrar aðildarþjóðir EB á fyrirhugaðar umbætur, þá muni þeir einangrast innan bandalagsins. Jafnframt yrði það til stórskaða fyrir efnahag þjóð- arinnar og yrði túlkað á þá leið, Nigería; Shagari verði látinn laus FJÖLSKIPAÐUR dómstóU í Nigerfu mælti með þvi í dag, að Shehu Shagari, fyrrum forseti landsins, yrði látinn laus þegar í stað og án nokkurra skilyrða. Honum hefur verið haldið í stofu- fangelsi, siðan honum var steypt af stóU i byltingu hersins fyrir tveimur árum. Dómurinn var skipaður §ór- um óbreyttum borgurum og tveimur mönnum úr hemum og síðan var embættisdómari formaður dómsins. í forsend- um dómsins sagði m.a. að engar sannanir hefðu komið fram við rannsókn málsins, sem réttlætt gætu, að Shagari yrði haldið lengur í stofufang- elsi. Shagari, sem er 59 ára að aldri, var kjörinn forseti Níger- íu árið 1979 eftir 13 ára stjóm hersins þar í landi og síðan endurkjörinn í kosningunum 1983. Herinn steypti svo stjóm hans með valdaráni fyrir tveimur ámm. að Danmörk væri á leið út úr Evr- ópubandalaginu. Umbótatillögumar gera ráð fyrir ýmsum mikilvægum breytingum á EB, þar á meðal auknum völdum Evrópuþingsins og að bundinn verði endi á neitunarvald einstakra aðild- arríkja bandalagsins í sumum mál- um. Hluthafafundurinn í Westland fór fram i Albert Hall í London í gær. Myndin sýnir Sir John Cuckney, stjómarformann fyrirtækisins í ræðustól við setningu fundarins. Hluthafafundurinn í Westland; Tilboð Sikorsky fékk ekki nægan meirihluta Urslitin túlkuð sem sigur fyrir Heseltine en ósigur fyrir Thatcher London, 17. janúar. AP. HLUTHAFAFUNDUR í brezku þyrluverksmiðjunni Westland hafnaði í dag tilboði bandaríska fyrirtækisins Sikorsky og ítölsku Fiat- verksmiðjanna um aðstoð. Tilboðið hlaut samþykki 65,2% hluthafa, en þurfti 75% til að hægt væri að ganga að því. Allt er þvi á reiki um framtíð Westland nú. Brezka sjónvarpið hafði beina útsendingu frá fundinum hjá West- land, sem sýndi glöggt, hve þýðing- armikið málið er orðið í brezkum stjómmálum. Sir John Cuckney, stjómarformaður í Westland, skýrði frá úrslitunum í fundarlok, en þá hafði fundurinn staðið yfir í 6 V2 klukkustund. Sagði hann, að fyrir- tækið væri nú komið í þrástöðu og allt í óvissu um framtíð þess. Sir John Cuckney skoraði á samsteypu vestur-evrópskra fyrir- tækja, sem einnig hefa sýnt West- land mikinn áhuga, að hætta ölium tiiraunum til þess að eignast hlut í fyrirtækinu. Þetta tilboð var hins vegar ekki á dagskrá fundarins og var því engin afstaða tekin til þess þar. Um 500 hluthafar mættu á fund- inum og var það miklu færra en búizt hafði verið við. Eftirvæntingin fyrir fundinn var gífurleg og var gert ráð fyrir, að þúsundir hluthafa kæmu á fundinn. Suður-Jemen; Brottflutningur út- lendinganna hafinn Manama, Bahrain, 17. janúar. AP. BARDAGAR brutust út í dag milli skriðdrekasveita hinna stríðandi afla í Suður-Jemen, sem verið hefur einangrað frá umheiminum í fimm daga vegna borgarastyrjaldarinnar í landinu. Landið er enn nær sambandslaust við umheiminn, landamærin eru lokuð og flug- vellir landsins lokaðir fyrir umferð. Erlend sendiráð í Suður-Jemen undirbjuggu í dag sameiginlegar aðgerðir til þess að koma þegnum landa sinna burt úr landinu sem fyrst. Þessi lönd voru Sovétríkin, Bretland, Frakkland og Vestur- Þýzkaland. Þijú brezk skip sigldu í dag í þessu skyni inn í höfnina í Aden, höfuðborg landsins. Þeirra á meðal var Brittannia, sneklqa Bret- landsdrottningar. Seint í kvöld skýrði brezka utan- ríkisráðuneytið frá því að byrjað væri að flytja þetta fólk um borð í skipin. Sovézkt skip var þá einnig komið á vettvang til þess að aðstoða við brottflutning fólksins. Um 130 Frakkar eru búsettir í Suður-Jemen, en þar eru ennfremur 80—90 Bretar, 16 Þjóðverjar og einnig nokkrir ítalir. Sovétmenn eru þó lang íjölmennastir allra útlend- inga í landinu, en ekki er vitað um, hve margir þeir eru. Talið er, að Sovétmenn geri nú allt til þess að koma á vopnahléi milli hinna stríðandi marxistafylk- inga í Suður-Jemen. Þess sáust þó engin merki í dag, að bardögum væri að linna. Þannig geysaði síð- degis í dag mikil skriðdrekaorrusta nærri flugvellinum í Aden og virtust báðir aðilar leggja ofurkapp á að hafa flugvöllinn á valdi sínu. Biil Paui, varaformaður stjómar Sikorsky-verksmiðjanna, sagði eftir fundinn í dag, að fyrirtæki hans myndi ekki hætta tilraunum sínum til að „bjarga" Westland, þrátt fyrir að ekki hefði náðst nauðsynlegur stuðningur á fundinum. Úrslit fundarins eru talin mikill sigur fyrir Michael Heseltine, frá- farandi vamarmálaráðherra Bret- lands, sem sagði af sér embætti 10. janúar sl. Sakaði hann Margaret Thatcher forsætisráðherra um að reyna að koma í veg fyrir tilraunir sínar til þess að koma f veg fyrir, að Sikorsky-fyrirtækið næði tang- arhaldi á Westland. Niðurstöður skoðanakönnunar, sem birtar voru í dag, bentu greini- lega til þess, að deilan um Westland og afsögn Heseltines hefði dregið mjög úr vinsældum Thatcher og einnig úr fylgi íhaldsflokksins. Ákvörðun um göng undir Ermarsund Parls, 17. janúar. AP. Samgöngumálaráðherrar Bretlands og Frakklands sam- þykktu í morgun áætlun um byggingu ganga undir Ermar- sund. Þar með rætist 180 ára gamall draumur Frakka og Breta um bættar samgöngur miili landanna með þessum hætti. Ekkert verður látið uppi fyrr en á mánudag um nánara fyrirkomu- lag á göngunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.