Morgunblaðið - 18.01.1986, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986
Stormur í vatnsg'lasi
Hugleiðing um stjórnarsamstarfið við upphaf árs
umboði fyrir löngu og á að gera
það“. Frá mínum bæjardyrum er
útilokað að núverandi ríkisstjóm
leiti sem slík eftir nýju umboði af
þeim ástæðum, sem ég hef hér
rakið. Á bak við tjöldin virðist fram-
sóknarkórinn vera byijaður að æfa
gamla flokkssönginn: „Allt er betra
en íhaldið."
eftir Friðrik Sophusson
Þriðjudaginn 14. janúar sl. var í
Staksteinum Morgunblaðsins fjall-
að um „ótímabæran kosninga-
skjálfta". Þar segir að ekki hafi
komið fram í áramótagreinum
stjómmálaforingjanna, að nú væri
tímabært að ijúfa þing og efna til
kosninga. „Einu kosningamar, sem
stjómmálaflokkamir ættu að hafa
hugann við um þessar mundir, em
sveitarstjómarkosningar", segir
höfyndur Staksteina.
í þessum sömu Staksteinum em
síðan riQuð upp viðtöl úr DV við
Þorstein Pálsson formann Sjálf-
stæðisflokksins, Vilhjálm_ Egilsson
formann SUS, Sigurð Óskarsson
formann Verkalýðsráðs Sjálfstæð-
isflokksins, Þóranni Gestsdóttur
formann Landssambands sjálfstæð-
iskvenna, Pál Pétursson formann
þingflokks framsóknarmanna, Unni
Stefánsdóttur formann Landssam-
bands framsóknarkvenna og Finn
Ingólfsson formann Sambands
ungra framsóknarmanna.
Af tilvitnunum í viðtöl við þetta
fólk dregur höfundur Staksteina þá
ályktun, að það sé „ekki neinn
kosningaskjálfti í forsvarsmönnum
stjómarflokkanna", þótt Vilhjálmur
Egilsson sé „orðinn óþreyjufullur".
Svona til að undirstrika þetta álit
sitt gefur höfundur Staksteina Al-
freð Þorsteinssyni, formanni Fram-
sóknarfélags Reykjavíkur, orðið í
lokin með tilvitnun í viðtal við hann
í DV, þar sem hann segir orðrétt:
„Mér finnst þessi taugatitringur,
sem kominn er í stjómarsamstarfíð,
minna á storm í vatnsglasi. Ég
held að þetta tal sé mnnið undan
rifjum varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins, Friðriks Sophussonar,
sem gjaman vill ráðherrastól eins
ogformaðurinn."
Þar sem bæði DV og Morgun-
blaðið hafa birt þetta viðtal við
formann Framsóknarfélags Reykja-
víkur og hvomgt blaðið hefur séð
ástæðu til að kanna viðhorf mitt
til málsins tel ég rétt að segja frá
því með hvaða hætti ég hef rætt
um stjómarsamstarfíð á fundum á
Ólafsfírði sunnudaginn 12. janúar
og hjá Heimdalli í Reykjavík 13.
janúar eða næstu tvo daga áður en
Staksteinar vitna í viðtal við for-
mann Framsóknarfélags Reykja-
víkur.
Leiðaraskrif Tímans
Gamall draugur í íslenzkum
blaðaheimi, dagblaðið Tíminn, var
vakinn upp um áramótin, þegar NT
lagði niður laupana og var rennt
ofan í gröfína skuldum vafíð. Rétt
fyrir jólaleyfí tryggðu þingmenn
vinstri flokkanna blöðum sínum
vemlega tjármuni úr ríkissjóði.
Málgögn þeirra geta því áfram
komið út, þótt almenningur í
landinu vilji ekki kaupa þau inni-
haldsins vegna. Fyrsti flutnings-
maður tillögunnar um aukinn ríkis-
styrk til blaðanna var Páll Péturs-
son, þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins. Og strax eftir ára-
Friðrik Sophusson
„ Að minni hyggju er
því fátt, sem bendir til
þess að kosningar til
Alþingis verði á þessu
ári. Sjálfsagt eru árásir
Tímans á Sjálfstæðis-
flokkinn og einstaka
forystumenn hans að-
eins stormur í vatns-
glasi. En um leið er
framsókn að gefa til
kynna að hún sé tilbúin
til að skipta um dans-
herra í næstu syrpu.“
mótin kom út 1. tbl. Tímans, sem
Framsóknarflokkurinn og fram-
sóknarfélögin í Reykjavík gefa út.
í fímm af sex fyrstu leiðurum Tím-
ans er fjallað um stjómmál. Það
er athyglisvert að kynna sér efnis-
innihald leiðara blaðsins, sem
Framsóknarflokkurinn gefur út.
Hinn 4. janúar ber leiðari Tímans
heitið „Hækkun ferðamanna-
skatts". Þar segir orðrétt: „Hækkun
ferðamannaskattsins er skammsýn
ráðstöfun. Það þarf ekki mikla
spekinga til þess að sjá, að nær
hefði verið að lækka skattinn eða
afnema með öllu. Raunar hefði
maður haldið, að það væri í anda
stjómmálaviðhorfa fjármálaráð-
herrans og formanns Sjálfstæðis-
flokksins, en hann virðist nú vera
að tapa áttum í pólitíkinni.“ Og síð-
ar segir: „í stað þess að hækka
flugvallarskatt, hefði fjármálaráð-
herra átt að lækka hann eða jafnvel
útvega meira fé til öflugrar kynn-
ingar á landi og þjóð sem áfanga-
stað fyrir ferðamenn. í stað þess
að hækka skattinn hefði íjármála-
ráðherra átt að skila Ferðamálaráði
þeim þijátíu milljónum, sem gert
er ráð fyrir að hafa af því í láns-
ijárlögum." Svona skrifar Tíminn í
leiðara um aðgerðir, sem ríkisstjóm
og stjómarflokkar bera sameigin-
lega ábyrgð á. Allir þingmenn
Framsóknarflokksins greiddu at-
kvæði með hækkuninni.
í næsta leiðara Tímans (7. jan.),
sem nefnist „Misbeiting valds" segir
orðétt: „Ekki hefur það farið dult,
að ýmis öfl í Sjálfstæðisflokknum
hafa alla tíð síðan núverandi ríkis-
stjóm var mynduð skipulagt sér-
staka aðför að Lánasjóði ísl. náms-
manna. Framsóknarmenn hafa
þama verið til vamar og stundum
átt í vök að veijast, en þó tekist
að koma í veg fyrir að íhaldinu
heppnaðist að koma fram áformum
sínum um allsheijar árás á sjóðinn
í því skyni að veikja hann og gera
hann ófæran um að sinna því mikil-
væga hlutverki sem slíkur sjóður
hefur að gegna í nútíma þjóðfélagi
.. . Hér er um pólitíska ofsókn að
ræða, nánast pólitíska hreinsun eins
og gerist í einræðisríkjum ... Því
verður vart trúað en að þingmenn
annarra flokka sameinist um að
fordæma þannig hugsunarhátt".
Hér er verið að eggja þingmenn
Framsóknarflokksins lögeggjan
gegn menntamálaráðherra. Fram-
sóknarmenn meðal umbótasinnaðra
stúdenta hafa þegar hlýtt kallinu
og stofnað til samstarfs við vinstri
menn. Ekkert er minnst á það að
þingmenn Framsóknarflokksins
stóðu að skerðingu framlaga til
Lánasjóðsins.
Daginn eftir, hinn 8. janúar,
heggur leiðarahöfundur Tímans enn
í sama knérann, brigzlar mennta-
málaráðherra um að bjóða mútur
og segir: „í þessu máli er nauðsyn-
legt að félagshyggjumenn séu vel
á verði, ekki sízt framsóknarmenn,
sem svo oft og lengi hafa haft
forgöngu fyrir eflingu sjóðsins."
Næsta dag, hinn 9. janúar, er til
tilbreytingar ráðizt á Davíð Odds-
son borgarstjóra fyrir þá einræðis-
legu ákvörðun meirihlutans að hafa
strætisvagna í Reykjavík gula, „án
þess að spyija kóng eða prest".
Ekki er þess getið hvomm hópnum
Kristján Benediktsson tilheyrir.
Þar næsta dag, hinn 10. janúar,
er í leiðara Tímans vitnað til ára-
mótagreinar Ingvars Gíslasonar
fyrrverandi ráðherra Framsóknar-
flokksins undir nafninu „Félags-
hyggjumenn standi saman". Leið-
arahöfundurinn segir m.a.: „Ingvar
leggur áherslu á að efling félags-
hyggju sé alger þjóðamauðsyn og
viðnám gegn markaðshyggjunni,
sem ranglega er nefnd ftjálshyggju-
stefna, sé í rauninni brýnast allra
praktískra viðfangsefna í íslenskri
pólitík ... Tíminn tekur undir þessi
orð Ingvars Gíslasonar, alþingis-
manns og fyrrverandi menntamála-
ráðherra. Full þörf er á því að þeir
aðilar sem ekki trúa blint á mark-
aðshyggju hægri aflanna standi
saman í baráttu fyrir því þjóðfélagi
sem þeir vilja skapa." Á sama tíma
og Framsóknarflokkurinn er í
samstarfí við Sjálfstæðisflokkinn
er það „alger þjóðamauðsyn" og
„brýnast allra praktískra viðfangs-
efna“ að vinna gegn frjálshyggj-
unni.
Þessi dæmi úr leiðaraskrifum
Tímans, sem Framsóknarfélag Al-
freðs Þorsteinssonar gefur út, em
ekki valin af handahófí heldur em
þau tekin úr 5 af 6 fyrstu leiðuram
blaðsins eftir að það var vakið upp
í byijun árs.
Framsóknarflokkurinn
í stjórnarsamstarfi
í 15 ár hefur Framsóknarflokk-
urinn valið sér það hlutverk í ís-
lenzkum stjómmálum að sitja í rík-
isstjóm, hvað sem tautar og raular.
Nokkuð hefur borið á þreytu innan
flokksins með þessa afstöðu og
sumir ungir framsóknarmenn telja,
að kominn sé tími til að þjóðin hvíli
Framsóknarflokkinn um stund, hlífí
honum við stjómarsetu og sendi
hann í endurhæfingu a.m.k. eitt
kjörtímabil. Aðferðin, sem fram-
sóknarmenn nota til þrásetu í ríkis-
stjómum, er einföld. Þegar líða
tekur á kjörtímabiþ breyta þeir
málflutningi sínum. í stjómarsam-
starfí við vinstri flokka verða þeir
í orði kveðnu fijálslyndir, en í
samstarfí við Sjálfstæðisflokkinn
tekur félagshyggjan völdin, þegar
líður frá stjómarmyndun. Nú er
einmitt sá tími kominn. Efling fé-
lagshyggju gegn Fijálshyggju er
brýnasta hagsmunamálið sam-
kvæmt dagskipun Tímans. Það er
einmitt þetta hverflyndi, sem gerir
það að verkum, að sjaldnast hvarfl-
ar að öðmm flokkum að endumýja
stjómarsamstarf við Framsóknar-
flokkinn.
Vilhjálmur Egilsson formaður
SUS segir í viðtali við DV, að „ríkis-
stjómin hefði átt að leita eftir nýju
Hvenær verða Alþingis-
kosningar?
Það er deginum ljósara, að ríkis-
stjómin þarf að ná betri tökum á
eftiahagsstjóminni. Erlendar skuld-
ir hafa aukizt, ríkissjóður er rekinn
með halla og verðbólgan vex. Til
að hægt sé að takast á við þessi
vandamál og styrkja stöðu atvinnu-
veganna þarf tvennt að gerast í
senn. Annars vegar verðum við að
gera kerfísbreytingar á opinberam
rekstri og draga þannig úr ríkisút-
gjöldum. Niðurskurður fjárfesting-
ar og „flatur spamaður" duga ekki
lengur sem aðgerðir í þeim efnum.
Hins vegar verður að samræma
leikreglur á lánamarkaðinum,
þannig að bankar og verðbréfa-
markaður keppi í eðlilegri sam-
keppni. Meira frelsi í vaxtamálum
eflir spamað, lækkar hæstu vexti,
útiýmir okri, stuðlar að arðsemi í
fjárfestingum og bætir þannig lífs-
kjörin.
Á næstu mánuðum kemur í ljós,
hvort Framsóknarflokkurinn er til-
búinn til að skapa skilyrði fyrir
jaftivægi í efnahagsmálum á gmnd-
velli þessara leiða. Engin ástæða
er til þess á þessu stigi að efast
um vilja framsóknarmanna, þrátt
fyrir leiðaraskrif Tímans. Af minni
hyggju er því fátt, sem bendir til
þess að kosningar til Alþingis verði
á þessu ári. Sjálfsagt em árásir
Tímans á Sjálfstæðisflokkinn og
einstaka forystumenn hans aðeins
stormur í vatnsglasi. En um leið
er framsókn að gefa til kynna að
hún sé tilbúin til að skipta um
dansherra í næstu syrpu.
Hafí Framsóknarflokkurinn hins
vegar ekki áhuga á því að ná ár-
angri í efnahagsmálum, hlýtur
Sjálfstæðisflokkurinn að endur-
skoða afstöðu sína til stjómarsam-
starfsins. Slíkar vangaveltur em
ekki tímabærar nú fremur en veður-
fregnir af stormi í vatnsglasi.
S veitarstj órnar-
kosningar
„Einu kosningamar, sem stjóm-
málaflokkamir ættu að hafa hug-
ann við um þessar mundir, em
sveitarstjómarkosningar." Undir
þessi orð Staksteinahöfundar get ég
tekið. Staða Sjálfstæðisflokksins er
sterk í sveitarstjómarmálum. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur ávallt lagt
áherzlu á sem mest sjálfsforræði
sveitarfélaga. Ríkisstjómin náði í
upphafí verðbólgunni verulega nið-
ur og tryggði þannig verðgildi
tekjustofna sveitíirfélaga. í fram-
haldi af því hætti ríkisstjómin af-
skiptum af gjaldskrám þjónustufyr-
irtækja sveitarfélaga. Sveitar-
stjómimar hafa nú einar ákvörðun-
arréttinn.
Undir stjóm Davíðs Oddssonar
borgarstjóra og meirihluta sjálf-
stæðismanna í Reykjavík er hægt
að vera bjartsýnn. Sigurvissa er þó
varhugaverð og getur leitt til kæm-
leysis. Langt út fyrir flokksraðir
sjálfstæðismanna heyrist enn, að
slysið frá árinu 1978 megi ekki
endurtaka sig. Misheppnuð sam-
stjóm vinstri flokkanna á sl. kjör-
tímabili er víti til vamaðar.
Það er von mín og vissa, að í
kosningum í vor vinni Sjálfstæðis-
flokkurinn sigur gmndvallaðan á
góðu starfí þeirra ijölmörgu sjálf-
stæðismanna, sem sitja í sveitar-
stjómum fyrir flokkinn um allt land
og hafa lagt sig fram við að styrkja
og bæta hag byggðanna hver á sín-
um stað. Góður sigur Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjómarkosning-
unum er ekki einungis æskilegur út
frá hagsmunum byggðarlaganna
heldur einnig hvatning til okkar,
sem störfum fyrir flokkinn að lands-
málunum, að standa okkur betur.
Höfundur er varaformaður Sjálf-
stœðisflokksins.
FLISAR
LEIR — MARMARI — GRANÍT
Á GÓLF - VEGGI - ÚTI - INNI___________
OVæntanlegt mikið úrval af marmara. Pantið tímanlega.
Sérpantanir mögulegar. Komið og skoðið úrvalið.
OVeitum ráðleggingar og útvegum fagmenn og allt sem
þarftil flísalagna.
VIKURBRAUT SF.
KÁRSNESBRAUT 124, KÓP. S: 46044
Af hverju ekki?
Höfum endurbætta og glæsilega veislusali fyrir
öll samkvæmi, 50—70,100—200 manna.
Veislumatur í hæsta gæðaflokki.
Ath. okkarverð.
Upplýsingar í síma 666195.
Útvegum einnig hljómsveit ef óskað er.
Hlégarður.