Morgunblaðið - 18.01.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986
19
Morgunblaðið/Emilía
Frá vinstrí á myndinni eru: Þór Ingólfsson umdæmisstjóri, Bragi
Stefánsson féhirðir, Sigurður Ingibergsson umdæmisritari, Ævar
Breiðfjörð fráfarandi umdæmisstjóri, Matthías G. Pétursson fjöl-
miðlafulltrúi, Arnór Pálsson kjördæmisstjóri, Eyjólfur Sigurðsson
verðandi fulltrúi Evrópusambandsins í heimastjórn, Björn Gestsson
forstöðumaður Kópavogsheimilis og Ragnhildur Ingibergsdóttir
yfirlæknir á Kópavogshæli.
Kiwanishreyfingin á íslandi:
Safnar fyrir brunavarnar-
kerfi fyrir Kópavogshælið
KIWANISHREYFINGIN á íslandi gengst nú fyrir landssöfnun til
kaupa á eldvamarkerfi fyrir Kópavogshælið, en eldur braust þar út
í upphafi vikunnar með þeim afleiðingum að einn vistmaður lést og
14 vom fluttir á slysadeild. Gert er ráð fyrir að brunavarnarkerfið
muni kosta um fjórar milljónir króna, en útboð hafa þegar verið
auglýst á vegum Kiwanis. Áætlaður kostnaður við uppsetningu
brunavamarkerfisins er ein og hálf milljón króna og hefur heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra, Ragnhildur Helgadóttir, gefið
Kiwanismönnum vilyrði fyrir þvi að ríkissjóður muni bera þann
kostnað, að sögn Þórs Ingólfssonar, umdæmisstjóra.
Opnaður hefur verið ávísana-
reikningur í Landsbanka íslands,
Breiðholtsútibúi, þar sem hægt er
að leggja inn á reikning númer
979. Þá hafa Kiwanismenn um allt
land til sölu dagbækur fyrir árið
1986 sérstaklega merktar þessari
flársöfnun. Verð hverrar bókar er
350 krónur. Kiwanisklúbbamir
munu leggja fram fé úr styrktar-
sjóðum sínum auk þess sem fyrir-
tæki og einstaklingar, sem gefa
10.000 krónur eða meira, fá inn-
rammað viðurkenningarskjal.
Borist hefur nokkurt fé í söfnun-
ina frá eftirtöldum fyrirtækjum:
Flugleiðum, Brunabótafélagi ís-
lands, Landsbanka íslands, Búnað-
arbanka íslands í Kópavogi og frá
Eimskipafélagi íslands, sem einnig
hyggst greiða flutninginn á eld-
vamarkerfínu hingað til lands. Þá
hefa Kiwanismenn fengið vilyrði
fyrir íjármagni frá Sambandi ís-
Ienskra samvinnufélaga og frá
Skeljungi. Fjörutíu klúbbar eru
innan Kiwanishreyfíngarinnar með
um 1.300 félaga.
Kópavogsheimilið tók til starfa
árið 1952 og er það ríkisstofnun,
ætluð vangefnum eða þroskaheft-
um einstaklingum. Upphaflega
vom hælisdeildimar tvær en nú em
þær orðnar 15 talsins. Vistmenn
em 165 á öllum aldri og af báðum
kynjum. Þriðjungur er böm og
unglingar.
Við þjófstörtum
Þorra...
Blandaður
súrmatur
(Lundabaggi-Sviðasulta-
Hrútspungar- Bringur-Lifrapylsa og blóðmör)
Þorramatur
Lundabaggar
Hrútspungar
Bringur
Magáll
Hvalur
Hákarl
Nýtt slátur
Lifrarpylsa
Marineruð síld
Kryddsíld
Síldarrúllur
Harðfiskur
Vestfirskur
gæðahákarl
Nýreyktur
rauðmagi
Reykt síld
Saltsíld
Rófustappa
Kartöflusalat
Flatkökur
Rúgbrauð
Ný sviðasulta
Súr sviðasulta
Ný svínasulta
Soðið hangikjöt
Heitt & gott:
Heit svið og rjúkandi slátur.
Fiskborð
í sérflokki
Glænýr línufiskur, spriklandi ýsa
og úrval tilbúinna rétta
í fiskborðinu í Mjóddinni
Félagasamtök og
vinnuhópar:
Seljum Þorramat til
stórra og lítilla hópa.
SPARITILBOÐ!
Kindabjúgu 178 !H!
Raðsmíðaskipin falboðin á næstunni:
Ríkissjóður tek-
ur á sig hluta fjár-
magnskostnaðar
— allt að 30 milljóna króna fjármagns-
kostnaður fallinn á skipin umfram það,
sem eðlilegt getur taiizt vegna dráttar
á sölu þeirra
NÚ ER verið að vinna að gerð tilboðsgagna vegna sölu á fjórum
raðsmíðaskipum í þremur skipasmíðastöðvum hér á landi. Smíði
þeirra var ákveðin 1982 og er hún mislangt komin. Ekki hefur
tekizt að selja þau til þessa bæði vegna þess, að Fiskveiðasjóður
hefur ekki lánað í þeim og einnig vegna óvissu með veiðiheimildir.
Vegna þessa hefur fallið óeðlilega mikUl fjármagnskostnaður á
skipin á smíðatíma, allt að 30 milljónir króna umfram það, sem
eðlilegt má teljast. Til að liðka fyrir sölu skipanna mun ríkissjóður
að öllum líkindum taka á sig mesta hluta þessa kostnaðar.
Nú mun ákveðið að skip þessi fái
leyfí til sóknar í vannýtta físki-
stofna og kemur þá fátt annað til
grejna en úthafsrækja, en eigendur
skipanna telja nauðsynlegt að þau
fái þorskkvóta til að gera þau eftir-
sóknarverðari. í samvinnu við fjár-
málaráðuneytið er nú verið að búa
skipin til sölu, fyrst og fremst með
rækjuveiðar í huga. Síðan verður
leitað tilboða í skipin og þau seld
hæstbjóðendum í sameiginlegu út-
boði skipasmíðastöðvanna. A Ijár-
lögum er heimild fyrir því að ríkið
komi inn í myndina með niður-
greiðslu á vöxtum. Þá er ennfremur
gert ráð fyrir því, að Fiskveiðasjóð-
ur láni væntanlegum kaupendum
með sama hætti og lánað er til
annarra skipakaupa. Tvö skipanna
eru í Slippstöðinni á Akureyri, eitt
í skipasmíðastöð Þorgeirs og EÍlerts
á Akranesi og eitt í Stálvík í
Garðabæ. Þau verða öll sömu
stærðar, 39 metrar á lengd. Tvö
skipanna eru nánast tilbúin til sölu,
en hin tvö geta orðið tilbúin á miðju
ári.
Eigum ennþá lambakjöt
í Vi skrokkum á
AÐEINS
.80
pr.kg.
/>no/ AFSLÁITUR
L\3 /O á öllu lambakjöti
Hryggur
Frampartur
Kótilettur
Lærissneiðar
Smásteik
Gúllas
Snitsel
Lambageiri
Karbónaði
Buff
Beikon bauti
Paprikubuff
Kryddlegnar
lærisssneiðar
Stroganoff
Hakk
Fyllt læri
Læri
Úrbeinað læri
Ávaxtafyllt læri
Beinlausir fuglar
Mínútusteik
Innra læri
Hamborgarar
Opið til kl.16 í Mjóddinni
og Starmýri en til kl. 12 í Austurstræti
• •