Morgunblaðið - 18.01.1986, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986
Alþjóðleg bænavika
18.—25.janúar
Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga á íslandi stendur að undir-
búningi Alþjóðlegu bænavikunnar hér á landi en hún verður haldin
18.—25. janúar. Bænavikan ber
munuð vera vottar mínir".
í ávarpi samkirkjuiegrar undir-
búningsnefiidar á vegum Alkirkju-
ráðsins segir meðal annars: „Krist-
ur sendir lærisveina sína í heiminn
til þess að bera honum og frelsandi
starfí hans vitni í orðum og at-
höfiium." Einn liður í þessu er að
kristnir söftiuðir heimsæki hveijir
aðra og taki þátt í guðsþjónustum
hver annars þessa viku, segir í frétt
fránefndinni.
í Reykjavík hefst bænavikan á
morgun, sunnudag, kl. 11.00 í
Dómkirkjunni. Samkomur verða kl.
20.30 miðvikudag í Kristskirkju,
Landakoti, fímmtudag í Hjálpræðis-
hemum, föstudag Aðventkirkjunni,
laugardag Fíladelfíu, en bænavik-
unni lýkur með guðsþjónustu í
Grensáskirkju sunnudaginn 26.
janúar kl. 14.00.
Á Akureyri hefst vikan að þessu
sinni með guðsþjónustu í Glerár-
skóla á morgun, sunnudag, klukkan
14. Þar prédikar sr. Ágúst Eyjólfs-
son prestur katólskra. Æskulýðskór
Hjálpræðishersins, Hvítasunnukór-
að þessu sinni yfirskriftina „Þér
inn og Kirkjukór Lögmannshlíðar-
sóknar syngja.
Á mánudagskvöld verður sam-
koma á Hjálpræðishemum klukkan
20.30. Ræðumaður verður major
Kolbjöm Enguy. Æskulýðskórinn
og Hvítasunnukórinn syngja.
Á miðvikudagskvöld klukkan
20.30 verður samkoma í Katólsku
kirkjunni. Ræðumaður verður sr.
Birgir Snæbjömsson. Anna Júlíana
Þórólfsdóttir syngur einsöng.
Á fimmtudagskvöld verður sam-
koma í Hvítasunnukirkjunni. Ræðu-
maður verður sr. Pálmi Matthías-
son. Skúli Torfason tannlæknir sýn-
ir myndir frá landinu helga. Hvíta-
sunnukórinn og Kirkjukór Lög-
mannshlíðarsóknar syngja.
Bænavikunni lýkur síðan með
guðsþjónustu í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 26. janúar klukkan
14.00. Þar er ræðumaður Iautenant
Paul Willam Marti. Kirkjukór Akur-
eyrarkirkju syngur.
Á öllum samverunum annast
fulltrúar trúfélaganna lestur úr
ritningunni.
Morgunblaðið/RAX
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Erla Þórðardóttir gjaldkeri, Ragn-
heiður Ágústsdóttir meðstjómandi, Birna Flygenring og Guðmundur
Egilsson sem tók við styrk Bryndisar Guðmundsdóttur, Þórey Guð-
mundsdóttir formaður og Ólöf Knudsen ritari.
Námsstyrkjum úthlutað
tíl háskólakvenna
NÁMSSTYRK félags háskóla-
kvenna og kvenstúdenta var út-
hlutað 10. janúar sl., en eitt af
markmiðum félagsins er að
styrkja konur til framhaldsnáms.
Styrk hlutu að þessu sinni Bima
Flygenring til framhaldsnáms í
hjúkrunarfræðum og Bryndís Guð-
mundsdóttir til náms í talmeina-
fræðum.
Vinsældalisti rásar 2:
Hjálpum þeim enn í 1. sæti
4. (3) In the Heat of the Night
HJÁLPUM þeim, lag íslensku
hjálparsveitarinnar, er enn í
fyrsta sæti á vinsældarlista rás-
ar tvö, 6. vikuna í röð. Það
hefur aldrei áður gerst að sama
lagið hafi tijónað svo lengi í
fyrsta sæti listans. Listinn sem
valinn var á fimmtudaginn er
sem hér segir:
1. (1) Hjálpum þeim______ís-
lenska hjálparsveitin
2. (4) Gaggó Vest ... Gunnar
Þórðarson
3. (2) Allur lurkum laminn ...
Bubbi Morthens
... Sandra
5. (6) Segðu mér satt... Stuð-
menn
6. (7) Sentimental Eyes ...
Rickshaw
7. (9) Brothers In Arms_____
Dire Strait
8. (5) Fegurðardrottning ...
Ragnhildur Gisladóttir
9. (8) Saving All My Love for
You ... Whitney Houston
10. (15) Gull ... Gunnar Þórð-
arson
Hafnfirðingar og
Jón Rafn (jr.) leikur og syngur
Ijúflingslög fyrir matargesti á
veitingahúsinu A. Hansen
laugardagskvöld 18. janúar.
ALLIR ÁVALLT VELKOMNIR.
V —
Myndin er tekin er hljómplötumar voru kynntar hlaAamönmun
í enda nóvember. Frá vinstri eru: Þorkell Sigurbjörnsson formað-
ur Tónskáldafélags íslands, Hjálmar H. Ragnarsson fulltrúi
stjómar íslenskrar tónverkamiðstöðvar, Karolína Eiriksdóttir
fulltrúi stjómar íslenskrar tónverkamiðstöðvar, Hörður Vil-
hjálmsson fjármálastjóri Ríkisútvarpsins og Viðar Gunnarsson
fulltrúi Vöku-Helgafells, sem sér nm dreifingu platnanna innan-
lands.
Þrjár íslensk-
ar hljómplötur
verðlaunaðar
- í tilefni Evrópuárs tónlistarinnar 1985
Þrjár íslenskar hljómplötur fengu svokölluð „Discoboles 1985“
verðlaun i keppni, sem haldin var í tilefni Evrópuárs tónlistarinn-
ar 1985. Það var franska stofnunin „Grand Prix de l’Académie
de Disque Francaix" sem stóð fyrir keppninni — sú sama og
veitir hin árlegu „Grand Prix de Disque“-verðlaun, sem eru ein
eftirsóttustu hljómplötuverðlaun í heiminum. Að sögn Karolínu
Eiríksdóttur tónskálds sendu öll Evrópulönd plötur inn til stofnun-
arinnar og mun hveiju þeirra hafa verið úthlutað einum til tvenn-
um verðlaunum.
Hljómplötumar, sem allar inni-
halda íslenska tónlist, komu út
fyrir jól: íslensk hljómsveitartón-
list, íslensk fíðlutónlist og íslensk
píanótónlist. Sinfóníuhljómsveit
Islands leikur á plötunni íslensk
hljómsveitartónlist. Stjómendur
em Jean-Pierre Jacquillat og Páll
P. Pálsson. Einleikarar em Krist-
ján Þ. Stephensen og Einar Jó-
hannesson. Verkin á þeirri plötu
em eftir þá John Speight, Leif
Þórarinsson og Jón Nordal. ís-
lensk fíðlutónlist er einleiksplata
Guðnýjar Guðmundsdóttur. Á
henni em verk eftir Karolínu
Eiríksdóttur, Jón Nördal, Áskel
Másson, Jónas Tómasson og Þor-
kel Sigurbjömsson. íslensk píanó-
tónlist er einleiksplata Önnu Ás-
laugar Ragnarsdóttur og á þeirri
plötu em verk eftir Þorkel Sigur-
bjömsson, Jónas Tómasson, Atla
Heimi Sveinsson og Hjálmar H.
Ragnarsson.
Islensk tónverkamiðstöð gaf
plötumar út í samvinnu við ríkis-
útvarpið, en alls er fyrirhugað að
gefa út tólf hljómplötur. Fyrirjólin
komu §órar þeirra út og á næstu
tveimur ámm munu átta hljóm-
plötur í viðbót verða gefnar út
með íslenskri tónlist. Hljómplöt-
unum er ætlað að gefa sem heil-
steyptasta mynd af skapandi tón-
list á íslandi undanfarin 15 ár,
að sögn útgefenda. Hljómplötum-
ar vora að mestu teknar upp í
hljóðveri Ríkisútvarpsins í Há-
skólabíói og í Langholtskirkju og
var Bjami Rúnar Bjamason upp-
tökustjóri.
Gullplötur
fyrir
„Borgarbrag“
Skemmtidagskráin „Söngbók
Gunnars Þórðarsonar" verður
frumsýnd í veitingahúsinu Bro-
adway í kvöld. Þar mun 13
manna hljómsveit Gunnars flytja
hans þekktustu lög ásamt mörg-
inn þekktum söngvurum.
Á frumsýningunni í kvöld mun
Fálkinn afhenda Gunnari gullplötu
fyrir hljómplötuna „Borgarbrag",
en Gunnar hefur samið öll Iög plöt-
unnar. Ennfremur munu Davíð
Oddsson borgarstjóri og Ólafur
Haukur Símonarson rithöfundur fá
afhentar gullplötur, en þeir hafa
samið texta plötunnar.
Hljómplatan „Borgarbragur"
hefur selst í u.þ.b. 6.000 eintökum,
að því er fram kemur í frétt frá
Fálkanum.
Mokveiði á
loðnumiðunum
MOKVEIÐI er nú á loðnumiðun-
um á Bakkaflóadýpi sunnan
Langaness. Öll íslenzku skipin
hafa verið þar og aflað vel, bæði
dag og nótt. Norsku skipin hafa
verið við Hvalbak og aflað
minna. Sólarhringsafli þerra á
hádegi í gær var 2.670 Iestir. Á
fimmtudag fengu 34 íslenzk skip
samtals 22.430 lestir og síðdegis
á föstudag var aflinn orðinn
10.010 lestir af 12 skipum. 8 skip
voru þá á leið til erlendra hafna
með afla sinn, þar sem þau fá
um 3.000 krónur fyrir hveija
lest en 1.700 til 1.800 krónur hér
heima.
Á föstudag vom 13 norsk skip á
miðunum við Hvalbak og hafði þá
41 norskt skip haldið heim með
fullfermi, 31.995 lestir samtals.
Auk þeirra skipa, sem áður hefur
verið getið í Morgunblaðinu, til-
kynntu eftirtalin skip um afla á
fímmtudag: Dagfari ÞH, 540, Kefl-
víkingur KE, 540, Hákon ÞH, 820,
Sighvatur Bjamason VE, 680,
Bjami Ólafsson AK, 1.170, Albert
GK, 600, Guðrún Þorkelsdóttir SU,
700, Jón Kjartansson SU, 1.050,
Sigurður RE, 1.400,-Svanur RE,
700, Pétur Jónsson RE, 830, og
Beigur VE, 500 lestir.
Síðdegis á föstudag höfðu eftir-
talin skip tilkynnt um afla: Víkingur
AK, 1.250, Kap II VE, 710, Júpíter
RE, 1.350, ísleifur VE, 730, Gígja
RE, 770, Beitir NK, 1.300, Fífill
GK, 420, Þórður Jónasson EA, 500,
Guðmundur RE, 700, Hilmir II SU,
550, Magnús NK, 530, og Hilmir
SU 1.200.
Félag einstæðra foreldra:
Vonbrigði með úthlut-
un fj árveitinganefndar
STJÓRN Félags einstæðra for-
eldra samþykkti á stjómarfundi
6. jan.: „Við lýsum yfir miklum
og óþyrmilegum vonbrigðum
með þá fjárupphæð, sem fjárveit-
inganefnd úthlutaði FEF á fjár-
lögum 1986 og kallaði „bygg-
ingastyrk". Við höfðum farið
fram á 2ja milljóna króna fram-
lag, enda var orðið tímabært að
Alþingi veitti FEF i fyrsta sinn
stuðning, sem einhveiju máli
skipti.
Við teljum það verkefni brýnt
sem óskað var eftir stuðningi við
og lítum á það sem móðgun, að til
FEF er náðarsamlegast veitt 300
þúsund krónum. Óskiljanlegt er,
hvað fjárveitingamefndarmenn
hafa ætlað að „styrkja" með út-
hlutun af slíku tagi.
Öllu verra er þó áhugaleysið sem
býr að baki þessum „byggingar-
styrk“ og augljós vanþekking og
síðast en ekki sízt almennt skeyt-
ingarleysi á stöðu og högum ein-
stæðra foreldra og bama þeirra
margra. Þessi úthlutun er Igömum
fulltrúum þjóðarinnar ekki til
sóma.“
S^óm FEF vill einnig benda á
að á síðustu 16 mánuðum hefur
verið tekið á móti umsóknum í hús-
næði FEF í Skeljanesi, frá 68 ein-
stæðum foreldrum með 98 böm.
Unnt reyndist að leysa vanda 25
einstæðra foreldra með 40 böm.
Af 68 umsækjendum vom 24 utan
Reykjavíkur.
Frá því húsið í Skeljanesi tók til
starfa í apríl nýbyijum 1981 hafa
búið þar 105 foreldrar með 130
böm. Tveir þriðju hlutar umsækj-
enda hafa enga úrlausn fengið.
Með kaupum á Öldugötu 11 var
markmiðið að reyna að greiða götu
fleiri. Húsið kostaði 9,3 milljónir,
breytingar og endurbætur um 2
milljónir. Ljóst er að Félag ein-
stæðra foreldra hefur ekki nú frem-
ur en áður orðið þess aðnjótandi
að hljóta vemlegan styrk þótt það
hafí löngum sannað nauðsyn starf-
semi sinnar. (Úrfréttatilkynningu)
Sjálfboðaliðar í Háskólabíói
HÁSKÓLABÍÓ hefur tekið til
sýninga gamanmyndina „Sjálf-
boðaliðamir“. I aðalhlutverkum
eru þau Tom Hanks, John Candy
og Rita Wilson.
— Lawrence Boume þriðji er
dæmigerður glaumgosi. Hann er
nýlega laus úr skóla, en í stað þess
að læra, hefur hann stundaÆ fiár-
hættuspil, og er skuldum vafínn.
Karl faðir hans er æfareiður og
neitar að hjálpa. Þegar skuldunaut-
amir gerast aðgangsharðir grípur
Lawrence til þess ráðs að fela sig
meðal hóps sjálfboðaliða í friðar-
sveitum, sem fara til Thailands.
Þangað ætlar Lawrence sér alls
ekki að fara, en — það er ekki svo
auðvelt að losna aftur.