Morgunblaðið - 18.01.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986
I atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
I
Verkamenn
Viljum ráða nokkra verkamenn til starfa nú
þegar við framkvæmdir okkar í Grafarvogi.
Mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar hjá verkstjórum í símum 671773
og 671691 og í vinnuskála við Frostafold.
Stjórn verkamannabústaða íReykjavík.
Viðskiptafræðingur
óskast
Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar eftir að ráða
viðskiptafræðing sem fyrst. Viðkomandi þarf
að vera vinnusamur og töluglöggur. Starfs-
reynsla og þekking á tölvum æskileg. Farið
verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Skriflegar umsóknir óskast sendar augld.
Mbl. fyrir 22. janúar nk. merktar: „V — 0602".
Laus staða
I
Staða löglærðs fulltrúa við embætti sýslu-
manns Þingeyjarsýslu og bæjarfógetans í
Húsavík er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisstarfs-
manna.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 1986.
Húsavík 13.janúar 1986.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu,
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Rafiðnfræðingar
— Rafvirkjar
— Rafvélavirkjar
— Nemar
Viljum ráða:
Rafiðnfræðing eða rafvirkja með hliðstæða
menntun, til að annast viðhald og þjónustu,
ásamt því að vera yfirverkstjóra til aðstoðar.
Fjölbreytt vinna.
Rafvélavirkja til vinnu á rafvélaverkstæði í
almenna viðgerða- og viðhaldsvinnu.
Nema í rafvirkjun. Fyrstu mánuðirnir yrðu
vinna á efnislager. Þeir sem lokið hafa verk-
námi iðnskóla ganga að öðru jöfnu fyrir.
Upplýsingar um námsárangur óskast.
Getum boðið á leigu litlar einstaklingsíbúðir
skammt frá vinnustað. Munum aðstoða við
útvegun leiguhúsnæðis fyrir fjölskyldur.
Upplýsingar gefur Óskar Eggertsson, sími
94-3092.
Póllinn hf., safirði.
Rafvirkjar
Vanir rafvirkjar óskast strax. Mikil vinna.
Ljósvakinn sf.,
símar: 45717 og 71694.
Grunnskólar
Hafnarfjarðar
Kennara vantar nú þegar í Víðistaðaskóla til
kennslu 6 ára barna.
Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 52911
og 651511.
Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar.
Auglýsing
Lausar eru nokkrar stöður lögreglumanna í
lögreglunni í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og
Gullbringusýslu. '
Umsóknarfrestur er til 31. janúar 1986.
Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjóni,
sem veitir allar nánari upplýsingar.
Lögreglustjórinn íKeflavík, Njarðvik,
Grindavík og Gullbringusýslu.
Vanur og duglegur
Sölumaður
— Karl eða kona —
Óskast strax til starfa hjá fasteignasölu í
miðborginni sem hefur áratugareynslu á sviði
fasteignaviðskipta og ráðgjafar.
Framtfðaratvinna í boði fyrir góðan starfs-
mann.
Eiginhandarumsókn með upplýsingum um
aldur menntun og fyrri störf ásamt Ijósriti
af einkunnum sendist auglýsingad. Mbl. fyrir
kl. 17.00, þriðjudaginn 21. janúar nk., merkt:
„Bestu kjör — 8379".
Egilsstaðir —
Hjúkrunarfræðingar
Viltu breyta til!
Við auglýsum eftir hjúkrunarfræðingi til
starfa frá 1. mars eða síðar eftir samkomu-
lagi.
Flutningur á staðinn ykkur að kostnaðar-
lausu. Bjóðum upp á húsnæði.
Leitið frekari upplýsinga um vinnustað og
launakjör hjá hjúkrunarforstjóra í símum
97-1631 og 97-1400.
Sjúkrahúsið Egilsstöðum.
ST. JOSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
Konur — karlar
Óskum etir starfsfólki við ræstingar. Upplýs-
ingar veitir ræstingastjóri alla virka daga
frá kl 09.00-15.00 í síma 19600-259.
Reykjavík 16.janúar 1986.
Bændabókhald
Búnaðarsamband Suðurlands óskar eftir að
ráða í þjónustu sína ráðunaut, til að annast
bændabókhald ásamt hagfræðileiðbeining-
um, með aðsetur á Selfossi. Nauðsynlegt
er að umsækjandi að starfinu hafi hlotið
menntun í bókhaldi og hafi unnið að bók-
haldsverkefnum með aðstoð tölvu. Einnig
er mikilvægt að hafa góðan kunnugleika á
almennum búrekstri.
Umsóknir sendist til skrifstofu Búnaðarsam-
bands Suðurlands, Reynivöllum 10, Selfossi.
Búnaðarsamband Suðurlands.
Hannarr
Ingibjörg Gunnarsdóttir
sérmenntun í ráöningum
og starfsmannastjórn.
Ráðningar-
þjónusta
Starfsmaður
Meðalstórt iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir
starfsmanni.
Starfið er einkum fólgið í:
Minni háttar viðhaldi.
Akstri.
Umsjón með geymslu á áhöldum.
Óskað er eftir manni sem er hreinlegur og
lipur í umgengni.
Vinnutími 09.00-17.00 eða 08-16.00.
Laun 31.000,- í dagvinnu.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu okkar að
Síðumúla 1, eigi síðar en 24. janúar á um-
sóknareyðublöðum sem þar fást.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Hannarr
RAÐGJAFAÞJÓNUSTA
Síðumúla 1 108 Reykjavik Sími 687311
Rekstrarráðgjöf. Fjárfestingamat. Skipulag vinnustaða.
Markaðsráðgjöf. Aaetlanagerð. Framleiðslustýrikerfi.
Töh/uþjónusta. Launakerfi. Stjórnskipulag o.fl.
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingai
i IMiÍi
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar
Hjúkrunarfélags íslands
verður haldinn fimmtudaginn 30. janúar kl.
20.30 að Grettisgötu 89, 4.hæð.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning stjórnar
3. Kosning fulltrúa á fulltrúaþing HFÍ.
Stjórnin.
tn sc
J
Vinnuskúrar —
byggingarefni
Við Ofanleiti 1 í Reykjavík eru til sölu vandað-
ir vinnuskúrar. Stærðir 45 m2 , 22 m2 og 6
m2 skúr með snyrtingu. Á sama stað eru
einnig til sölu: dokaplötur um 1350 m, doka-
bitar um 550 m, dokajárnstoðir um 400 stk.
ásamt fylgihlutum og vetrarmottur um 250
m2 . Upplýsingar í síma 29922.
Verslunarskóli Islands.
Timburhús óskast
Vantar timburhús ca. 50-70 fm.
Upplýsingar í síma 96-21430.
Vöruskemma til leigu
500 m2 að Iðuvöllum 11, Keflavík. Lofthæð
5,10 m. Innkeyrsludyr 4X3,50 m.
Upplýsingar í síma 92-1766 eða 92-4154.