Morgunblaðið - 18.01.1986, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1986
35
Minning:
Guðjón Hermanns-
son, Skuggahlíð
Það er svo margt að minnast á
frámorgniæskuljósum,
er vorið hló við barnsins brá
og bjó það skarti af rósum.
Við ættum geta eina nátt
vorn anda látið dreyma,
um dalinn fagra í austur átt,
þaráttimammaheima.
EinarE. Sæmundsen
Löngum stundum hefur hugur
minn leitað úr nokkurri íjarlægð
heim í dalinn, þar sem hún mamma
átti heima, heim í dal ljúfra og
góðra minninga bemsku- og æsku-
ára. Þær minningar eru bundnar
bæði við menn og staði. Minningun-
um verða ekki gerð nein skil hér
svo heitið geti, en hluti þeirra er
bundinn við mikinn sóma mann,
Guðjón Hermannsson og bæinn
hans, sem heitir því nafni sem lætur
heldur illa í eyrum margra sem
ekki þekkja til en það er Skugga-
hlíð. Guðjón hefur nú naustað skip
sitt og mig langar til að senda
honum og ástvinum hans nokkur
kveðjuorð við þau vegamót.
Hér í Qarlægð hefí ég ekki að-
stöðu til að rekja æviferil hans, en
til þess að menn viti við hvem ég
á vil ég geta þess að Guðjón í
Skuggahlíð fæddist 15. september
árið 1893. Foreldrar hans vom
sæmdar- og merkishjónin Hermann
Davíðsson og Valgerður Torfadóttir
Jónssonar í Skuggahlíð í NorðQarð-
arhreppi. Guðjón ólst upp heima í
Skuggahlíð og við þann bæ er lífs-
og starfssaga hans bundin, þó hins
vegar hlæðust á hann ýms störf
utan heimilis í annarra þágu. Þann
13. nóvember árið 1930 kvæntist
hann frændkonu sinni, Valgerði
Þorleifsdóttur frá Hofí í Norðfirði,
og lifir hún mann sinn ásamt þrem-
ur af fímm bömum þeirra hjóna.
Þau eru öll búsett á Norðfirði.
Þegar ég nú minnist Guðjóns í
Skuggahlíð, sem ég stundum kall-
aði fóstra, þá kemur margt upp í
hugann. Ég minnist þar mikils
höfðingja og öðlingsmanns, manns
sem var mikill drengskaparmaður,
ömggur og staðfastur í hvívetna,
fastur fyrir er því var að skipta,
en þó ljúfmenni og kurteis í allri
framgöngu. Ég held að hann hafí
haft hæfíleika og getu til að gegna
mörgum störfum og myndi hafa
famast vel í hveiju því starfí sem
honum hefði verið falið. Ég veit
ekki hvað skapaði honum starf og
stöðu, en tel þó víst að það hafí á
vissan hátt verið köllun.
Guðjón bjó vissulega yfír miklu
andlegu og líkamlegu atgervi. Hann
var skapmaður nokkur en prúð-
mennska var aðall hans. Þá var
hann mjög vel að manni og ég held
að vel mætti taka þar sterkara til
orða. Verklagnin og verkhyggnin
var fi-ábær og kunni hann vel til
allra verka. Það var oft hrein unun
að sjá hann Guðjón vinna. Hann
bar sig svo fallega að. Hreyfíngam-
ar vom markvissar og hann var
blessunarlega laus við allt fímbul-
famb. Mér er sérstaklega minnis-
stætt að sjá hann standa við slátt.
Hreyfingamar vom svo fallegar og
ljánum rennt áreynslulaust, að því
er virtist, og skárinn var langur og
Ijáfarið breitt og ég minnist þess
ekki að ég sæi hann tví- eða þrí-
höggva í sama far, sem var þó
nokkuð algengt. Hann var hreinn
snillingur í að dengja ljái eins og
þá var gert. Þeir kilpuðu ekki og
bitu vel. Margir bændur úr sveitinni
komu til hans með ljái sína til að
fá hann til að klappa þá. Og svona
var þetta í öllu sem hann gjörði.
Það var gaman að binda með hon-
um og ekki þurfti maður að kúra
lengi hálf boginn undir bagga er
hann lét upp.
Einhveijum þykir nú máski æði
mikið sagt, en ég tel að í engu sé
of sagt. En ég get þó ekki skilist
við þessi skrif án þess að geta um
eitt starf sem Guðjón heitinn gegndi
um æði mörg ár, en það var starf
landpóstsins á leiðinni milli Seyðis-
flarðar og Eskifjarðar. Póstleiðin
liggur yfír há og brött fjöll, sem
vom erfíð að sumarlagi og beiniínis
hættuleg að vetri til. Þessu starfí
gegndi Guðjón af þeirri trú-
mennsku, sem honum var svo eðlis-
læg. Það var gaman að sjá þennan
vörpulega mann koma kjagandi
niður fy'allshlíðina frá Drangsskarði
berandi þunga bagga á bakinu. Og
það var mikil tilbreyting fyrir litla
strákpjakka að fara til móts við
hann upp á Kúahjalla og heyra
hann blása í póstlúðurinn og fá svo
kannski að bera lúðurinn spotta-
kom, eða fá að taka broddstafinn
langa og þunga í hönd sér, en það
var nú varla á færi nema þeirra sem
stærri vom. Og við þennan ianga
staf með beinhnúðnum og langa
broddinum vom bundin fjallajámin
með úómm beittum broddum hvort.
Hér verður nú senn að nema
staðar en minningamar sækja fast
á. Ég stend í mikiili þakkarskuld
við Guðjón í Skuggahlíð, en ég
dvaldist 2—3 sumur á bæ hans og
með honum. Hann var mér undur
góður og kenndi mér margt og þá
ekki síst að vinna. Ég kveð hann
nú með miklu þakklæti og óska
honum og öllum ástvinum hans
allrar blessunar. Hinsta för hans
er hafín og ég veit að hinum trausta
ferðamanni mun ekki hlekkjast á í
þeirri för fremur en áður. Ég bið
góðan engil Guðs að leiða hann og
okkur öll, þegar þar að kemur.
Svo bið ég að heilsa að Klappar-
hylnum, út í Völlumar, upp á
Hnjúkana, í Sneiðingamar og Nátt-
hagann. Eiginkonu hans og ástvin-
um votta ég innilega samúð mína.
Stefán Snævarr
ATHYGLI skal vakin á því,
að afmælis- og minningar-
greinar verða að berast
blaðinu með góðum fyrir-
vara. Þannig verður grein,
sem birtast á i miðviku-
dagsblaði, að berast í síð-
asta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marg-
gefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki
birt á minningarorðasiðum
Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili. Megin-
regla er að minningar-
greinar birtist undir fullu
höfundarnafni.
Jarðarfarar-
skreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar, krossar.
Græna höndin
Gróörarstöð viö Hagkaup,
síml 82895.
t
Eiginmaöur minn,
GUÐMUIMDUR BLÖNDAL,
Boðagranda 7,
sem lést 12. janúar, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 20. janúar kl. 10.30.
Rósa Gísladóttir Blöndal.
Eiginmaöur minn. t RÓBERT F. HARVEY,
lést að heimili okkar á Flórida 15. janúar.
Inger Fredriksen Harvey.
t
Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og veittu okkur
aðstoö og stuöning við fráfall sonar míns og föður okkar,
HRAFNS MARINÓSSONAR
lögregluvarðstjóra.
Arndís Ásgeirs,
Áml Hrafnsson,
Aðalbjörg Hrafnsdóttir,
Kristínn Hrafnsson,
Arndfs Hrafnsdóttir.
t
Útför
SIGRfÐAR HJÁRTARDÓTTUR,
áöur hjúkrunarkonu á Kleppsspftala,
sem andaðist 10. þessa mánaöar, fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 20. janúar kl. 3 eftir hádegi.
Aðstandendur hinnar látnu.
t
Sendum öllum fjœr og nær alúöarþakkir fyrir samúð og vináttu
við andlát og útför dóttur minnar og systur okkar,
ÖNNU B. HAFÞÓRSDÓTTUR.
Hafþór Guðmundsson,
Kristfn Hafþórsdóttir,
Sigurður Hafþórsson.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug
og vinarþel við andlát og útför
GUÐFINNU EINARSDÓTTUR
frá Bóndhól.
Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki A-deildar Sjúkrahúss Akra-
ness fyrir frábæra hjúkrun í veikindum hennar. Einnig þökkum
við starfsfólki á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi fyrir umönnun
á liönum árum.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐNÝJAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Minna-Núpi, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir skulu færðar læknum, hjúkrunarkonum og öðru
starfsfólki á Sólvangi í Hafnarfiröi fyrir þá góöu umönnun sem
henni var veitt.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar,
STEINUNNAR Þ. GUÐMUNDSDÓTTUR,
rithöfundar,
Arahólum 2.
Helgi Guðjónsson,
Valsteinn Guðjónsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu viö andlát og útför
föður míns, tengdaföður og afa,
BJARNHÉÐINS ÞORSTEINSSONAR,
Hólavangi 26, Hellu.
Svavar Bjarnhóðinsson, Jóhanna Jensen
og barnabörn.
t
Móðir okkar,
ODDNÝ PETRÍNA EIRÍKSDÓTTIR,
verður jarðsungin mánudaginn 20. janúar frá Fossvogskirkju kl.
13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Kristniboðssambandið.
Björg M. Jónasdóttir,
Eiríkur Jónasson,
Ásta D. Jónasdóttir,
Ólafur B. Jónasson,
Stefán Jónasson,
tengdabörn og barnabörn.
Legsteinar I
gramt - - marmari
Opið alla daga, einnig kvöld ó.f Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi,
og helgar. símar 620809 og 72818.
Kransar, krossar
og kistuskreytingar.
Sendum um allt land.
Flóra, Langholtsvegi 89.
Sími 34111.