Morgunblaðið - 18.01.1986, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1986
47
Slmamynd/Nordfoto
• Kristján Arason skorar þriðja mark íslands (leiknum vifi Pólverja.
Allt annað en gegn
Sovétmönnum
— sagði Kristján Arason
„ÞETTA var allt annafi hjá okkur
núna en gegn Sovétmönnum og
baráttan f liðinu var góð allan tfm-
ann. Við áttum á brattan að sœkja
f sfðari hálfleik þar sem þeir voru
yfir allan tfmann þá, og slfkt er
alltaf erfitt," sagði Kristján Ara-
son, markahœsti leikmaður 2.
deildarinnar f Þýskalandi, eftir
leikínn f gœr. Kristján hefur skor-
að 90 mörk fyrir Hameln f deild-
inni og liðið er ífyrsta sœti.
„Við vorum óheppnir með skot
okkar í kvöld auk þess sem dómar-
arnir dæmdu aldrei víti þó svo
leikmenn verðust innan vítateigs.
Það er augljóst af þessum leikjum
okkar hér að það er eitt og annað
sem þarf að lagfæra og vonandi
tekst okkur það á þeim tíma sem
við höfum fram að HM.
Liðin eru farin að þekkja leikkerfi
okkar og því verðum við að fara
að koma með einhver ný kerfi. Það
vantar óneitanlega mikið í liðið
þegar Siggi er ekki með því hann
er svo góöur leikstjórnandi í sókn-
inni. Við Alfreð lékum stöður sem
viö erum ekki vanir að leika og það
erslæmt."
Kristján sagðist fara til Þýska-
lands þar sem Hameln ætti að
leika við Wanne Eickel, lið Bjarna
Guðmundssonar, og síðan kæmi
hann heim og yrði heima þar til
liðið færi út á heimsmeistara-
keppnina.
Einu
sinni
áður
EINU sinni áður hefur fs-
lenska landsliðið f handknatt-
leik tapað með fimmtán
marka mun og það var einnig
f leik gegn Sovétrfkjunum.
Það var árið 1970 sem þetta
gerðist og endaöi sá leikur
með sigri Sovétmanna sem
skoruðu 32 mörk gegn 17
mörkum íslendinga.
Næststærstu töp íslenska
karlalandsliðsins voru þrettán
mörk. Gegn Júgóslövum árið
1970, 15:28, og gegn Ungverj-
um árið 1979 og þá skoraði
íslenska liðið 18 mörk en það
ungverska 32.
Atli Hilmarsson:
Svekktur
„ÉG ER sársvekktur yfir þessum
úrslitum. Við hefðum jafnvel átt
að vinna þá en misstum þá of
langt framúr okkur f sfðari hálf-
leiknum. Undir lokin vorum við
orðnir þreyttir og þá misreiknar
maður oft marktækifærin rangt
og reynir skot úr vonlitlum fær-
um. Baráttan var þó allt önnur
núna en f gær gegn Sovétmönn-
um,“ sagði Atli Hilmarsson eftir
leikinnfgær.
Því má bæta við hór aö Atli
kemur heim með liðinu á morgun
og mun dvelja hór fram að heims-
meistarakeppninni. „Ég verð með
á fullu í þeim undirbúningi sem
framundan er. Það hefur verið stíg-
andi í þessu hjá okkur og ég hef
trú á að okkur takist að lagfæra
þá veiku hlekki sem verið hafa í
leik okkar á þeim mánuði sem við
verðum saman."
Enn tapar ísland
nú fyrir Póllandi
— Kristján varði vel en það dugði ekki
Frá Val Jónatanssynl, btaóamannl Morgunblaðin* f Danmörku.
ÞRÁTT fyrir stórgóða markvörslu
Kristjáns Sigmundssonar, tapaði
fslenska landsliðið sfnum þriðja
leik f röfi, nú gegn Pólverjum
20-22 f Baltic Cup-keppninni f
gærkveldi. Kristján varði 15 skot
í leiknum, þar af þrjú vftaköst.
Stafian í leikhléi var 9-9.
Leikurinn byrjaði vel fyrir ísland,
því að Kristján varði tvö vítaköst
frá Tiuczynski og var hann því
kominn í gang og átti eftir að sanna
það enn betur. íslendingar náðu
mest tveggja marka forustu um
miðjan fyrri hálfleik er staðan var
6-4.
Stuttu seinna meiddist línumað-
urinn snjalli Þorgils Óttar Mat-
hiesen og varð að yfirgefa leikvöll-
inn og tók ekki meira þátt í leikn-
um. Þetta atvik vó þungt í ósigri
liðsins, því Þorgils er mjög mikil-
vægur hlekkur fyrir liðið í sóknar-
leiknum.
Pólverjar héldu í við íslendinga
það sem eftir lifði hálfleiksins og
var staðan 9-9 er flautað var til
leikhlés. Pólverjar skoruðu svo
fjögur fyrstu mörkin í seinni hálfleik
og gekk þá bókstaflega ekkert upp
hjá landanum. Páll Ólafsson tók
síðan til sinna ráða og skoraði þrjú
Það þarf að
laga sóknina
— segir Kristján Sigmundsson
„VIÐ töpum leikjum okkar alltaf
á sama atriðlnu. Við fáum allt of
mörg mörk á okkur úr hraðaupp-
hlaupum eftir mistök í sóknar-
leiknum. Þó svo þetta hafi ekki
verið eins algengt f kvöld og
venjulega þá var þetta of mikið,"
sagði Kristján Sigmundsson
markvörður eftir leikinn.
„Leikmenn eru of fljótir á sér í
sókninni og oft eins og þeir ætli
að gera tvö mörk í hverri sókn.
Það er ekki svo mikið að fá á sig
22 mörk í leik og því augljóst að
það þarf að laga sóknarleikinn.
Undirbúningur okkar er rétt að
hefjast núna og á þeim rúma mán-
uði sem við höfum til stefnu hef ég
trú á að þetta smelli saman hjá
Alfreð Gíslason:
Passa ekki
í kerfin
„ÉG KOMST aldrei f takt við
þennan leik og það er greinilegt
að ég þekki ekki leikkerfi liðsins
nógu vel og þess vegna finn ég
mig engan veginn," sagði Atfreð
Gíslason eftir leikinn.
„Ég get ekki tekið þátt í undir-
búningnum fram að HM. Það er
hugsanlegt að ég geti komið heim
í leikina þar og verið síðan í viku
fyrir heimsmeistaramóitð en ég tel
það ekki þjóna neinum tilgangi
því ég passa ekki inn í þau leik-
kerfi sem liðið er með.“
okkur. Ég reikna með 8.-10. sæti
á HM og alit þar fyrir ofan er plús
fyrirokkur."
Bogdan
tjáði sig
ekki
EFTIR leik íslands og Pól-
lands f gærkvöldi ætlaði
blaðamaður Morgunblaðsins
á staðnum að ræða vifi þjálf-
ara íslands, Bogdan Kowal-
czyk, en þá brá svo vifi að
hann vildi ekki tala við blaða-
mann og ekkert tjá sig um
leikinn.
Það var greinilegt að Bogd-
an var ekki ánægður með
frammistöðu íslenska liðsins
gegn löndum sínum og fyrrver-
andi félögum því hann á 160
landsleiki að baki sem lands-
liðsmarkvörður Póllands.
mörk í röð og breytti stöðunni í
14-13. Pólverjar náðu svo aftur
fjögurra marka forustu um miðjan
seinni hálfleik og höfðu (slendingar
því á brattan að sækja. íslensku
strákarnir gáfust þó ekki upp og
náöu að jafna leikinn með mikilli
baráttu og skoraði Geir Sveinsson
jöfnunarmarkið 20-20, er hann
blakaði boltanum í netið eftir að
markvörður Pólverja hafði varið
skot frá Kristjáni Arasyni. Pólverjar
skoruðu síðan 21. mark sitt ertvær
mínútur voru til leiksloka. íslend-
ingar fengu möguleika á því að
jafna, en Atli Hilmarsson var of
bráður og skaut úr vonlausu færi.
Pólverjar þökkuðu fyrir sig og tóku
lífinu með ró og bættu við 22.
marki sínu þegar nokkrar sekúndur
voru til leiksloka.
Islenska liðið sýndi baráttu í
þessum leik, varnarleikurinn og
markvarslan var góð, en sóknar-
leikurinn ekki sem skyldi. Óheppni
fylgdi einnig liöinu, þar sem þeir
áttu fjögur stangarskot. Kristján
var bestur eins og áður segir,
Steinar stóð sig mjög vel og kom
sterkur út úr stöðu hornamanns.
Kristján Arason, Páll og Guðmund-
ur Guömundsson skiluðu einnig
sínu hlutverki vel.
Pólska liðið lék sennilega sinn
besta leik í þessari keppni. Þeir
eru í svipuðum gæðaflokki og ís-
lenska liðið og ekki komnir mikiu
lengra en þeir í undirbúningi sínum
fyrir heimsmeistarakeppnina.
íslendingar voru utan vallar í tólf
mínútur og Pólverjar í fjórar.
Dönsku dómararnir Per Eldrönd
og Erik Skov dæmdu þennan leik
mjög illa, en bitnaði það jafnt á
báðum liðum. (slendingar skoruðu
sjö mörk af línunni, sex úr hraöa-
upphlaupum, fimm fyrír utan og
tvö með gegnumbrotum. Pólverjar
gerðu þrjú mörk af línunni, sex úr
hraðaupphlaupum, tiu fyrír utan
og þrjú með gegnumbrotum.
Mðrfc lilandt:
Páll Ólafsson 5, Steinar Birgisson 4, Krístján
Arason 4, Atli Hilmarsson 3, Guðmundur
Guðmundsson 2, Þorgils Óttar Mathiesen og
Geir Sveinsson 1 mark hvor.
Marfcahœstir í liði Pólverja voru Bogdan
Wenta með 7 mörk og Zbigniew Tiuczynskl
með S mörk.
Þorgils Óttar:
Ekki alvarlegt
„VONANDI eru þessi meifisli mín
ekki alvarleg. Ég missteig mig og
það kom hnykkur á hhéð. Ég finn
ekkert til núna en það er ekki
alveg afi marka þvf ég er svo
dofinn,“ sagði Þorgils Ottar Mat-
hiesen eftir leikinn ígær er hann
var spurður um meiðsli þau er
hann hlaut.
„Sóknarleikur okkar var ekki
nógu markviss í leiknum og einnig
spilaði smá óheppni með skotin
inní þetta tap. Þessi leikur var mun
betri en gegn Austur-Þjóðverjum
og Sovétmönnum og menn lögðu
sig að minnsta kosti fram núna.“
Því má bæta hér við að Gunnar
Jónsson læknir liðsins sagöist ótt-
ast að meiðsli væru meiri en í
fyrstu sýndist og það væri alla
vega Ijóst að Óttar léki ekki meira
með í þessu móti.
Páll meiddur
PÁLL Ólafsson á við meiðsli afi
strfða. Læknir fslenska landslifis-
ins sagði f gær að hann óttaðist
að beln f rist Páls væri brotið eða
brákafi og ekki væri ólfklegt að
skera þyrfti hann upp til að laga
þetta.
Þaö væri bagalegt fyrir Pál og
íslenska landsliðið ef þetta reynist
rétt því Páll leikur stórt hlutverk
bæði hjá sínu félagi, Dankersen,
og íslenska landsliðinu.
:
Hið vinsæla herrakvöld fulltrúaráðs Vfk-
ings verður haldið nk. föstudag 24. jan-
úar í Iðnaðarmannahúsinu við Hallveig-
arstíg. Húsið verður opnað klukkan
19.15 en borðhald hefst klukkan 20.30.
Fjölbreytt skemmtiatriði. Heiðursgestir
verða nýbakaðir íslandsmeistarar Vík-
ings í handknattleik.
Miðar seldir við innganginn.
VÍKINGAR, FJÖLMENNIÐ 0G
TAKID MEÐ YKKUR GESTII