Morgunblaðið - 31.01.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 31.01.1986, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986 HEILSAN Augnsjúkdómar og sjónheilsan Rætt við Ólaf Grétar Guðmundsson, augnlækni assaðu bara augun þín, þau eru það dýrmætasta sem þú átt." Ekki skal hér lagður dómur á þessa staðhæfingu sem einni ágætri ömmu varð ósjaldan að orði við barna- börn sín, ung og alsjáandi gagnstætt því sem gerðist með gömlu konuna. Hins vegar deilir enginn um dýrmæti og mikilvægi þess að hafa góða sjón, ekki síst í þjóðfélagi nútímans sem gerir miklar kröfur til sjónarinnar. Við íslendingar erum talsvert vel á vegi staddir í baráttunni gegn augnsjúkdómum og höfum nokkra sérstöðu í þeim efnum, m.a. hvað því viðkemur að flestir þeir sem eiga við einhverskonar augnvandamál að stríða leita til augnlækna, sem eru fleiri hér miðað við höfðatölu en víða annars staðar. Þannig t.d. annast augnlæknar gleraugnamælingar í meira mæli hérlendis en erlendis. Þar eru slíkar mælingar mikið til í höndum optikera. Þetta er þó ekki sagt optikerum til lasts, en vegna þess að íslenskir augnlæknar annast gleraugnamælingar að mestu gefst þeim kostur á að skoða í leiðinni flesta þá sem þurfa á sjónhjálpartækjum að halda og eiga við augnsjúkdóma að stríða, jafnvel þó á mjög vægu stigi sé. Á íslandi starfareinnaugnlæknirá u.þ.þ. hverja 12.000 fbúa til samanburðarvið einn augnlækni á hverja 25.000 - 30.000 íbúa á Norðurlöndunum. Úr hæstu blindu- tíðni í þá lægstu Ofangreindu og öðru til eigum við því líklegast að þakka stað- reyndir sem slíkar að í dag er ís- land á meðal þeirra Evrópulanda sem hvað lægsta blindutíðni hafa, en fram að árinu 1950 vorum við með hæstu blindutíðni í Evrópu, aðallega af völdum gláku. En þó að glákan sem blinduorsök hafi hopað í viðureigninni við lækna og lyf niður í að vera orsakavaldur um 17% blindutilfella á íslandi, eru ýmsir sjúkdómar aðrir sem huga þarf að. Þar má nefna algengustu blinduorsök í hinum vestræna heimi í dag, ellihrörnun í sjón- himnu. Sjúkdómur sem læknar standa nokkuð varnarlausir gagn- vart. En augnsjúkdómar þurfa ekki að orsaka blindu til að teljast alvar- legir og oft er það mikið undir einstaklingnum sjálfum komið hvernig sjónin þróast. „íslendingar eru almennt varkárir með sjónina og hér er ágætt kerfi varðandi forskóla- og skólabörn, sem reglu- lega eru sjónprófuð í gegnum sína skólagöngu," segir Ólafur Grétar Guðmundsson, augnlæknir sem við báðum um að fræða okkur dálítið um þessi mál. Ólafur er augnlæknir, sem eftir nám á augn- deild Landakotsspítala hélt til sér- náms, fyrst í Noregi og síöar í Boston, Bandaríkjunum og eru sérsvið hans hornhimnusjúkdómar og augnónæmisfræði, en á síöar- nefnda sviðinu hafa rannsóknir hans aðallega verið. „Fyrir okkur augnlækna er það eitt mesta vandamálið, að minu áiiti, að við sjáum ekki allt það eldra fólk sem við þyrftum að sjá. Eldra fólk kemur oft ekki til augnlækna nema að það sé þangað boðað eöa sent af öðrum læknum. Það virðist veigra sér við að fara á læknastof- ur þar sem ekki er hægt að ganga beint inn af götunni og fá tíma. Þetta er hins vegar það fólk sem við þurfum helst að ná til og raunar held ég að það væri ekki vitlaust ef hægt væri að koma á einhvers- konar boðunarkerfi sem sæi til þess að ellilífeyrisþegar kæmu reglulega til augnlækna." Þriðjungur þjóð- arinnar með sjónlagsgalla — Hvaða augnsjúkdómar eru það aðallega sem hrjá íslendinga? „Ef við tökum það í heildina, þá er verulegur hluti þjóðarinnar með einhverja sjónlagsgalla, þ.e. fjar- sýni, nærsýni eða sjónskekkju, sem geta skipt máli. Líklega er það um þriðjungur þjóðarinnar sem er með einhvern þessara galla í þeim mæli að það hái fólki í daglega líf- inu,“ segir Ólafur Grétar og nefnir að fjarsýni sé hvað mest áberandi í þessum efnum. „Á fjærsýni fer þó ekki að bera mikið fyrr en fólk er komið um fertugsaldurinn. Á hinn bóginn er nærsýni algengt vandamál á meðal unglinga og ungs fólks og það þarf tiltölulega litla nærsýni til að sjá verulega illa frá sér. Nærsýnin kemur oftast fram á aldrinum 8-14 ára.“ — Varðandi fjærsýnina, hvað veldur? „Við getum skipt fjærsýni í tvo flokka. Annars vegar er um að ræða svokallaða lestrarfjærsýni, sem kemurtil þegaraugasteinninn stífnar og hættir að geta breytt lögun sinni. Þetta vandamál hrjáir næstum alla yfir 45 - 50 ára aldri. Þar fyrir utan er hluti fólks með meðfædda leynda fjærsýni sem oftast kemur í Ijós um svipað leyti og lestrarfjærsýnin bætist þá við hana." — Gerir fólk sér oftast grein fyrir sínum sjónlagsgöllum? „í flestum tilvikum er um að ræða galla sem fólk uppgötvar sjálft eða þá aðrir benda því á, t.d. skóla- eða heilsugæslulæknar eða þá skólahjúkrunarfræðingar, stundum ættingjar og vinir. Hvað sjónlagsgalla varðar þá skiptir miklu máli að fólk leiti strax til læknis og þeir koma í Ijós, gallarnir séu leiðréttir og það sem ekki skiptir minna máli, að þeirri leið- réttingu sé fylgt eftir. Nærsýni t.a.m. getur verið að breytast í 10 -15 ár. Eins er með aldursfjærsýn- ina, hún getur verið að breytast í meira en áratug, þannig að á þeim tíma þurfi nokkrum sinnum að skipta um gleraugu. Algengar ástæður fyrir óþæg- indum í augum eru auk sjónlags- galla, augnsjúkdómar," segir Ólaf- I„Það verður að teljast alvar- legt þegar maðursér jafn- vel þrjá ungl- ingaúrsama skólabekknum samtímis með slímhimnu- bólgu vegna klamydiu." ur Grétar og nefnir bólgusjúkdóma þar framarlega í flokki, hvarma- bólgur sérstaklega, en þær flokk- ast að vissu leyti til húðsjúkdóma og lýsa sér í ofþornun, hreistri og hrúðri bæði á augnhvörmunum og í rótum augnhára. Hvarmabólgur geta valdið slímhimnubólgu eða hornhimnubólgu." Helstu einkenni hvarmabólga eru sviði, bruni og aðskotahlutstilfinning í augum. Stírur og þreytutilfinning eru hvað verstar á morgnana þegar fólk er nývaknað, tárin í augunum lítið farin að flota og bakteríurnar búnar að leika lausum hala á meðan sofið var. Tár eru hins vegar bakteríu- drepandi þannig aö afleiðingarnar fara minnkandi þegar á líður dag- inn, gagnstætt því sem gerist hvað óleiðrétta sjónskekkju eða fjærsýni varðar." Slímhimnubólga vegna klamidíu- sýkingar — vax- andi vandamál — Er . slímhimnubólga algengt vandamál? „Sú tegund hennar sem er veru- legt og vaxandi vandamál er slím- himnubóiga sem afleiðing klamyd- iu sýkingar. Áður en ég hélt utan Afmæliskaka er ómissandi í hverju afmælisboði. Síð- asta föstudag fjölluðum við um barnaafmæli og birtum upp- skrift af skúffuköku ásamt mynd af einni slíkri er hafði verið listilega skreytt. Hér birtum við 3 myndir til viðbótar. Hugmyndin sem skreyta á kökuna með, er teikn- uð á smjörpappír og klippt út. Hægt er að nýta alla kökuna eins og sést á myndum 1 og 3. Þá er útklippta myndin sett á kökuna og krem sett þar í kring. Síðan er myndin tekin af og annar litur settur innan í. Kakan er síðan skreytt með sælgæti, t.d. lakkrís og súkku- laðitöflum. Kremið er venjulegt smjör- krem og matarlitur settur út í til þess að fá hina ýmsu liti. AFMÆLISKÖKUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.