Morgunblaðið - 31.01.1986, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 31.01.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1986 B 13 a.m.k. 4 þúsund „lúx“ í nokkrar stundir á degi hverjum. Og þeir eru fáir sem njóta svo mikillar birtu. Það skiptir í rauninni ekki máli hvort Ijósgjafinn er rafmagn eða sólin sjálf, sé unnt að láta fólki í té næga birtu. Ekkert er þannig því til fyrirstöðu að notast við raflýsingu annað en það að hún er bæði óhentug og of dýr. Raunhæfari lausn er í því fólgin að sitja við vinnu sína við glugga þar sem gluggatjöld eru frádreg- in, segja dr. Kripke og dr. Wever báðir. Það skiptir máli á hvaða tíma dags fólk birtunnar. Snemma á morgnana er birtan þannig að hún flýtir klukku líkamans, en síðdegisbirtan seinkar henni. „Þannig ætti sá sem á erfitt með að sofna á kvöldin og komast á fætur á morgnana að fá eins mikla birtu um leið og hann kemst á fætur," segir dr. Kripke, „t.d. með því að hlaupa spöl áður en hann snæðir morgun- verð eða með því að ganga til vinnu." Þetta flýtir klukkunni. „Sá sem er kvöldsvæfur og vaknar fyrir allar aldir ætti hins vegar að sækjast eftir sem mestri birtu áður en sól sezt.“ Þetta seinkar klukkunni. Með undraverðum hætti má nota dagsbirtuna til þess að leiðrétta truflaða dægursveiflu sem hlýzt af flugi milli tímabelta, en slíkt hefur í senn líkamlegar og andlegar afleiðingar. Það getur tekið líkamann allt að viku að leiðrétta klukku sína þannig að hún gangi rótt á ný og það í samræmi við tímann á nýja staðnum. Dr. Wever heldur því fram að flýta megi endurstillingu klukkunnar um allt að 40% með því einu að fá nægilega mikið af sterkri dagsbirtu. Hvenær dagsins á að sækjast eftir þeirri birtu fer eftir því hvort ætlunin er að flýta klukkunni eða seinka henni, en reglan er sú að þegar flogið er í austur átt þar sem allt að 12 tíma munur er á tímabeltum þarf að flýta klukkunni, en seinka henni að sama skapi þegar flogjð er í vestur. (Úr The New York Times Magazine.) Gönguskíðalönd á höfuðborgarsvæðinu bratta á stöku stað. Þess vegna verður vegurinn að kræklast fyrir hæðir og drög, og botnlang- ar eru lagðir að leiðslunni á stöku stöðum. Seinni kosturinn er á þá leið, að vegurinn fylgi leiðslunni og hún verði ekki lögð eftir landslaginu, heldur verði grafin skörð í nokkra fjallshryggi. Skörðin rúmi hvort tveggja, veginn og leiðsluna. Kosturinn er sá að minna sér á landinu, nema nákvæmlega á þeim stöð- um er leiðsla er lögð. Þetta er þó ekki einhlítt, því á einum stað er fjallshryggurinn svo breiður að útilokað er talið að grafa í gegnum hann. Þessa tvo kosti fékk Um- hverfismálaráð Reykjavíkur til umfjöllunar í síðustu viku, en ráðið hefur látið sér annt um þessa eign Reykjavíkurborgar og vill hlífa Dyrfjöllum við óþarfa jarðraski. Niöurstöður voru þær, að ráðið lagðist ekki gegn fyrir- huguðum framkvæmdum Hita- veitunnar á þessum slóðum. Ráðið benti þó á ýmis atriði í áætlun Hitaveitunnar, sem bet- ur mætti fara. Nefna má að ráð- ið lagðist algjörlega gegn því að Dyrnar væru á nokkurn hátt skerðar, né heldur nánasta umhverfi þeirra. Ráðið lagðist einnig gegn því, að leiðslan yrði lögð í gegnum Dyrdalinn endi- langan. Og svo má nefna að Umhverfismálaráð Reykjavík tók afstöðu með þeim kosti, að grafa skörð í fjallshryggina, frek- ar en að leiðslan fylgdi landslag- inu. Umhverfismálaráð benti Hita- veitunni á að brýna það fyrir starfsmönnum sínum og verk- tökum, að forðast óþarfa skemmdir á umhverfi leiðslunn- ar. Leiðslan verður lögð um land, sem liggur mjög hátt. Gróðurskemmdir geta því haft varanleg áhrif, valdið mun víð- Hér er horft ofan f Dyrdalinn. Myndin er samsett úr tveimur myndum og kunna því hlutföllin að verða örlftið brengluð. Dyrnar eru undir hnúknum lengst til vinstri. Fyrirhugað erað leggja leiðsluna upp kambinn hægra megin við skarðlð. Umhverfismálaráð Reykjavíkur hefur hins vegar bent á að farsælla sé að leggja leiðsluna f gegnum hrygginn hægra megin við miðja mynd. tækari gróður- og jarðvegseyð- ingu en í upphafi var séð. Fátt er svo með öllu illt, að eigi fylgi nokkuð gott, segir máltækið. Einn kostur er sam- fara framkvæmdum Hitavei- tunnar á þessum slóðum. Með tilkomu vegarins opnast sér- staklega skemmtilegur sumar- vegur, akfær öllum tegundum bifreiða, um land sem hingað til hefurverið lokað. Upp úr þessum á búast við að gefi til skíðaiðkana hvað úr hverju. Flestum mun vera kunnugt um þá staði þar sem best er að iðka brekkuskíði, en hvaða staðir skyldu henta öðr- um fremurtil gönguskíðaferða? Á suðvesturhorni landsins er um marga góða skíðastaði að ræða. Flestir leita eftir tiltölu- lega sléttu landi, en þeim fer fjölgandi sem nýta sér göngu- skíðin til náttúruskoðunar, ferð- ast um þær slóðir sem þeir hafa ekki komið á áður. Nefna má fjölmarga fallega staði sem að öðru jöfnu tekur drjúga stund að nálgast, en á gönguskíðum er hægt að fara mun fljótar yfir. Af þessum stöðum skulu nefndir Hengillinn og dalir hans, austan og vestan, Dyradalir, austan Bláfjallahryggjar, sunnan Grindaskarða. Þarna eru óbyggðir og oftast talsverður gangur á þjóðveg. Nær þéttbýlinu má nefna svæði eins og Reykjavatnsheiði, Hólmsheiði, Geldinganes, Vífils- staðahlíð, Kaldársel og fleiri. Innan þéttbýlisins má nefna staði eins og Fossvogsdal, Laugardal, Miklatún, Hljóm- skálagarðinn og fleiri. Gönguskíðaslóðir í Bláfjöllum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.