Morgunblaðið - 31.01.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR 1986
B 11
Unnið að hönnun sumarfatnaðar.
Sonja krónprinsessa með Per Spook.
Sumarfatnaður
hannaður að vetri
Per Spook
Per Spook við vefstólinn í húsinu í Sigdal. Fossheimar í Sigdal.
Það gefur auga leið að
tískuhönnuðir þurfa að huga að
sumarfatnaði að vetri til, og svo
öfugt, til þess að framleiðslan
sé tilbúin á réttum árstíma.
Margir þekktir hönnuðir í París
hafa það fyrir siö að fara í
heitara loftslag að vetri til þegar
sumartískan er unnin. Staðir
eins og Marrakesh í Marokkó
og Bermúdaeyjar eru eftirsóttir
staðir til vetrardvalar, þar er
mögulegt að komast í
sumarstemmningu á meðan
veturinn hefur völdin í Evrópu.
Per Spook
Norski tískuhönnuðurinn Per
Spook, sem starfar í París, hefur
þó annan hátt á, hann dvelur á
býli sínu Fossheim, í Sigdal í
Noregi, á meðan hann er að
vinna að sumartískunni. Þar
kveðst hann fá innblástur frá
fegurð landslags og náttúru og
ekki síst birtunni sem framkallar
svofagra liti.
Per Spook er þekktur í tísku-
heiminum og hefur getið sér
gott orð, það er talað um norsk
einkenni í fatnaði hans, og ekki
spillir það fyrir honum að hafa
hannað fatnað Sonju krónprins-
essu í Noregi en hún þykir ein-
staklega smekklega klædd.
Per Spook keypti býlið Foss-
heim fyrir 19 árum síðan og hefur
þar griðastað frá daglegu amstri
í fyrirtaekinu í París. Húsið er
alveg óbreytt að utan en innan-
dyra hefur öllu verið breytt og
lagað að þörfum eigandans.
Þess hefur þó verið gætt að láta
gamla stílinn halda sér og hús-
gögn og búnaður allur með
gömlum blæ.
Sumarfötin hönnuð
Per Spook hefst handa við að
finna lita-„sétteringu“ til að vinna
út frá, síðan tekur við að ákveða
línuna í grófum dráttum og mörg
handtökin frá því að ákveöinn
litur og lögun og flíkin kemur til-
búin til sýningar og sölu. En fatn-
aðurinn er fyrst framleiddur úr
léreftsefnum áður en hafist er
handa með dýrari efnin.
Það geta liðið 3—4 mánuðir
frá því að litur og mynstur efnis
er ákveðið þar til flikin er fullsköp-
uð til sýningar og sölu, þar hafa
margir lagt hönd á plóginn.
Per Spook er farinn að gefa
sér tíma til að vefa efni til prufu,
til að ná fram nákvæmlega lit og
mynstri, en vefnaö þekkir hann
frá blautu barnsbeini þegar hann
fylgdist með móður sinni og
móðursystrum við vefstólinn
heima á Sunnmæri. Þær kenndu
honum meira að segja að spinna.
Hann hyggst ennfremur fara að
lita garn sjálfur. Hönnuðurinn
kveðst hafa mesta ánægju af að
skapa fatnað sem er klæðskera-
saumaður, og er tii daglegra
nota eins og síðbuxur, jakka og
frakka, en eftirspurnin er mest
eftir „selskaps“-fatnaði og elst
hann mest.
Per Spook hannar fatnað fyrir
nútíma-, sjálfstæðar konur að
sögn og þess sjást engin merki
að litfögur sumarföt hans eru
hönnuð á afskekktum stað í
norskum dal þar sem náttúran
liggur í dvala og úti fyrir er jafnvel
brunagaddur.
B.í.
Þýtt og endursagt.
Höfum fengið
umboð fyrir
þessar
frábæru
hárvörur frá
fyrirtækinu
Grazette í
Svíþjóð sem
eru ætlaðar
Vörurnar eru
einungis seldar írá
umboðsaðila á
hársnyrtistofur.
Par er svo hægt að
fá þær keyptar
undir handleiðslu
fagfólks.
G. JÓHANNSSON & CO. Sim, 6452B
KVISTALAND 5
108 REYKJAVÍK