Morgunblaðið - 31.01.1986, Qupperneq 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986
Nýjar
rannsóknir
um nauðsyn
dagsbirtu
eftir Jane Og)e
Flest fólk ver mestu af tíma sínum innan
dyra í daufri birtu og lifir þannig
mestmegnis í einskonar eilífu rökkri. Slík
birta er kannski nægilega góð til lestrar eða
til þess að sinna daglegum verkefnum á
heimilinu eða í vinnunni, en vísindamenn
hafa nýlega komizt að þeirri niðurstöðu að
það haf i truflandi áhrif á líkamsstarf semina
að lifa og hrærast í svo daufri birtu
jafnaðarlega. Geti þetta ástand haft mjög
alvarleg áhrif á líkamlega jafnt sem andlega
líðan.
Vísindamenn mæla
eindregið með því að
hver og einn sé úti í
dagsbirtunni drjúga
stund á degi hverjum, en venju-
leg dagsbirta er að minnsta
kosti hundrað sinnum meiri en
sú birta sem venjuleg raflýsing
innan dyra gefur kost á. Með
dagsbirtu eiga vísindamenn þá
ekki við sólskin. Það er hvorki
nauðsynlegt né beinlínis ráð-
legt. Það eina sem sólskin hefur
yfir venjulega dagsbirtu þegar
heilsan er annars vegar er, eftir
því sem bezt er vitað, D-fjörefnið
sem það færir líkamanum.
Nægilegt magn af því fæst með
því að láta sólina skína á smá-
blett í hnakkanum í fimmtán
mínútur annan hvern dag.
Ljósið sem varpast inn í aug-
að á sinn þátt í því að stýra
starfsemi líkamans og tempra
hana. Mannslíkaminn er marg-
slungið kerfi fjölda samofinna
þátta eins og annað kvikt í ríki
náttúrunnar og starfsemi þessa
kerfis er háð taktföstum sveifl-
um. Helztu og augljóstustu
sveiflurnar eru svefn og vaka.
Áhrifa sveiflna líkamsstarfsem-
innar gætir í hverju líffæri, vef
og frumu af reglubundinni ná-
kvæmni. Líkaminn miðar starf-
semi sína við innbyggða klukku,
ef svo má að orði komast, en
samkvæmt þeirri klukku eru 25
stundir í sólarhringnum og ekki
24 stundir eins og þeim hring
sem sólin stýrir heiminum eftir.
Þetta gerir mannfólkinu kleift að
lifa í heiminum eins og hann er
og samstilla hina mörgu þætti
líkamsstarfseminnar.
Langmikilvægasti áhrifavald-
urinn í slíkri samstillingu dýra
og jurta er sveiflan milli dags-
birtu og náttmyrkurs. Þrátt fyrir
það var til skamms tíma álitið
að Ijósið hefði lítil sem engin
áhrif á þessa samstillingu þegar
mannfólkið væri annars vegar.
Talið var að líkamsklukku manna
væri einungis unnt að stilla með
skilaboðum úr hinu félagslega
umhverfi þeirra, s.s. með mat-
artímum og öðrum reglubund-
um tímasetningum í daglegu lífi
þeirra. Nýjustu rannsóknir hafa
hins vegar leitt til þeirrar niður-
stöðu að sé Ijósið nógu bjart þá
verði það ekki til þess að sam-
stilla kerfi líkamsstarfseminnar
hjá mönnum.
„Við höfum nú öðlazt vitn-
eskju um það að það er tvennt
sem orsakar samstillingu hjá
mannfólkinu," segir dr. Riítger
A. Wever hjá Max-Planck-lnstit-
ut í Andechs í Vestur-Þýzka-
landi, en hann er einn fremsti
sérfræðingur veraldar á þessu
sviði. Hann varð fyrstur manna
til þess að sanna að aukin lýsing
hefði þau áhrif að samstilla
klukkukerfi líkamans. Hann ráð-
leggur fólki mjög eindregið að
láta meiri birtu komast að líkam-
anum daglega en gengur og
gerist um flesta eins og sakir
standa. Dr. Daniel F. Kripke,
prófessor í geðlækningum við
Kaliforníu-háskóla í San Diego,
er einn fremsti sérfræðingur
Bandaríkjanna varðandi áhrif
birtu á heilsufarið, er honum
fyllilega sammála. „Ég er á því,"
segir hann, „að svefnleysi, trufl-
anir á hegðunarmynstri og
þunglyndi orsakist að miklu leyti
af því að fólk fái of litla dagsbirtu
eða sé utan dyra á óheppilegum
tíma sólarhrings."
Hversu mikil þarf dagsbirtan
að vera til þess að hafa hin
eftirsóknarverðu samstillingar-
áhrif? „Maður þarf að minnsta
kosti 2 þúsund „lúx" sem jafn-
gildir því að fimmtán 100-kerta
perur séu logandi í þeirri vistar-
veru sem maður dvelst í,“ segir
dr. Kripke. Fyrstu niðurstöður
dr. Wevers gefa til kynna að
samstillingaráhrifin séu ekki
nægilega mikil nema menn fái
I
t
I
I
FERÐAMAL
UMSJÓN/Siguröur Siguröarson
Hálendisferðir að
vetrarlagi
Idesember fara fræknir skíða-
göngumenn að huga að löng-
um gönguferöum um hálendið
seinni hluta vetrar. Á síðustu
árum er það orðið æ algengara
að hópar skíðamanna fari um
hálendi landsins í viku til tíu
daga ferðir. Flestir fara um
páskana. Lagt er upp föstudag
eða laugardag í vikunni fyrir
páska og miðað við að koma á
áfangastað á laugardeginum
fyrir páska, en eiga páskadag-
ana upp á að hlaupa dragist
ferðin á langinn af einhverjum
orsökum.
Um hverja páska leggja hópar
á Kjöl og Sprengisand. Margir
leggja upp á Sprengisand úr
Eyjafjarðardölum eða úr Bárð-
ardal. í allflestum tilvikum er
komið við í skálum Ferðafélags
íslands í Nýjadal. Þaðan fara
flestir suður í Sigöldu þar sem
þeir eru sóttir.
Leiðin yfir Kjöl liggur annað
hvort úr Svartárdal eða frá
Mælifelli í Skagafirði, en þaðan
er hin hefðbundna leið. í óllum
tilfellum er komið við á Hvera-
völlum, enda munaður að kom-
ast í heitt bað. Þá er gengið um
Þjófadali og suður í Hvítárnes
og þaðan yfir Bláfellsháls suður
að Geysi, þar sem ferðalangarn-
ir eru sóttir.
Þá má ekki gleyma hinum
vinsælu Landmannalaugaferð-
um. Alltaf fara nokkrir hópar
skíðagöngumanna inn í Land-
mannalaugar. Nefna má að
Ferðafélag íslands stendur fyrir
slíkri ferð um páskana. Séu
snjóalög góð er vinsælt að
ganga frá Sigöldu inn í Land-
mannalaugar og þaðan suður í
Þórsmörk. Jafnvel er það til í
dæminu að þrekmiklir skíða-
göngumenn haldi áfram og fari
yfir Fimmvörðuháls og endi ferð-
ina að Skógum.
Þá má nefna aðra nokkuð
fjölfarna leið en þá er lagt upp
frá Þingvöllum og farið um
Hlöðuvelli og endað í Haukadal.
Norðanlands má nefna ferðir
Ferðalangui íhálendisferð
jm Peystareykjasvæðið, um
Ódáðahraun og inn í Öskju, en
það er löng leið, um 10 daga.
Pá eru þeir til sem ganga á skíð-
um inn í Fiörðu.
Það er ekki að ástæðulausu
að ferðamenn hugi núna að
ferðum sínum um páskana. Há-
lendisferðir að vetrarlagi eru
mjög erfiðar og nauðsynlegar
að skipuleggja allt vel og vand-
lega. Gera þarf nákvæman lista
yfir farangur og mat. Til er í
dæminu að ferðalangar reyni
útbúnað sinn í reynsluferð þegar
líða tekur á febrúar. Nauðsyn-
legt er að kanna vandlega þá
leið sem fyrirhugað er að fara
svo ekkert fari nú úrskeiðis.
Leiðangursmenn þurfa að
kunna á landakort og áttavita
og verða að vera vel á sig
komnirlíkamlega.
Framkvæmdir
í Dyrfjöllum
Fyfirhuguð hitaveitulögn
Hitaveitu Reykjavíkur frá
Nesjavöllum til Reykjavíkur mun
hafa í för með sér talsverða
röskun á landi. Hitaveitan
hyggst leggja leiðslu allt frá
Nesjavöllum að Grafarholti, þar
sem stórir heitavatnsgeymar
hafa verið byggðir. Þaðan verð-
ur heitu vatninu svo miðlað um
höfuðborgarsvæðið. Ekki fer hjá
því að leiðslan verði mjög áber-
andi í landslaginu, þó svo að
reynt verði að hjúpa hana felulit-
um.
Einkum er hætt við að Dyrfjöll
í Grafningi breyti nokkuð um
svip. Dyrfjöll eru hálendasta
svæðið, sem lögnin verður lögð
um. Þarna er tæknilega nokkuð
erfitt að leggja heitavatnspípur.
Landið er í rúmlega 400 m hæð
og háttar þannig, að gróðursælir
dalir og móbergshryggir skipt-
ast á, sem gerir það að verkum,
að Dyrfjöllin henta mjög vel til
útivistar. Meginhluti Dyrfjalla
heyrir til Nesjavöllum, en þeir
eru í eign Reykjavíkurborgar.
Dyrfjöll draga nafn sitt af
svonefndum Dyrum, skarði í
austurhlíðum Dyrdals. Um það
skarð liggur forn þjóðleið milli
byggðarinnar við sunnanverðan
Faxaflóa og uppsveita Árnes-
sýslu. Hinn forni Dyrvegur lá frá
Elliðakoti, skammt fyrir austan
Lækjarbotna, yfir Mosfellsheiði,
yfir Dyrdali og niður í Grafning.
Frá sunnanverðum Faxaflóa
lágu að auki tvær aðrar höfuð-
leiðir. Sú fjölfarnasta var að
sjálfsögðu leiöin yfir Hellisheiði,
þ.e. upp Lögberg, yfir Sandskeið
og Svínahraun, um Hellisskarð
og yfir Hellisheiði og niður í
Ölfus. Hið leiðin var Selvogs-
gata, sem tengdi saman sunn-
anverðan Faxaflóa og á sunnan-
verðan Reykjaneskaga, en þar
vart.d. talsverð útgerð.
Vegna aðstæðna í Dyrfjöllum
verður ekki hjá því komist að
nokkuð jarðrask fylgi fram-
kvæmdum. Nefna má að útilok-
að er að leggja leiðsluna án
þess að byggja upp vegg með-
fram henni. Eftir að fram-
kvæmdum lýkur, tryggir vegur-
inn að viðhald á leiðslunni verð-
urauðveldara.
Sérfræðingar hafa bent á tvo
möguleika við framkvæmdirnar.
Sá fyrri er í því fólginn, leiðslan
verði lögð með landslaginu. Sá
ókostur er þó samfara, að ekki
er hægt að leggja veginn með
landslaginu vegna gífurlegs