Morgunblaðið - 14.03.1986, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR14. MARZ 1986
B 3
Á skrifstofu þarf meira en skrifborð og stóla. Við lítum hér inn í fundarherbergið og kaffistofuna, en þar
er sama Ifna f innréttingum og annars staðar í aðalskrifstofunum. í fundarherberginu er borðið frá
Labofa, en stólarnir af sömu gerð og á skrifstofunni. í kaffiherbergfnu eru það svo Sóleyjarstólarnir sem
taka við og litirnir hvítt, grátt og svart þar sem annars staðar.
Þegar horft er eftir ganginum sést vel hvernig lofthœðin nýtur sín,
en lýsingin er í „venjulegri lofthœðu Ijósarör fest í loftið með löngum
vfrum.
hæðin
látin
njóta
sin
Skrifstofa framkvœmdastjórans. Þar inni eru sœnsk húsgögn frá
DUX, en leðurstólarnir eru teiknaðir af þeim austurrfska Brauer. Eins
og sést er lýsingin iátin halda sér, þrátt fyrir minni lofthæð en er í
ganglnum.
Hönnun húsnæðisins
Við ræddum við Einar Ingimarsson, arkitekt, sem
sagði að rými, fjöldi starfsmanna er nota ætti það
og eðli starfanna réðu mestu um hönnun húsnæðis-
ins. Um tíma hefðu svokallaðar opnar skrifstofur
verið taldar heppilegar, en nú kæmu þær helst til
álita í afgreiðslusölum, eða sem hluti þeirra. Svokall-
að „landslagshúsnæði“, þarsem stórum rýmum
væri skipt upp með skermum, hillum, skápum eða
þess háttar væri líka á undanhaldi. Nú væri talið
æskilegast að hver og einn hefði sína skrifstofu þótt
lítil væri.
Inngangur og móttaka fyrirtækis gæfu strax til
kynna þau einkenni sem fyrirtækið vildi þekkjast af
og væri því mikilvægt að vanda þar vel til allra hluta.
Þangað ættu flestir erindi. Húsnæðinu væri venjulega
skipt þannig að næst inngangi væri móttaka og
biðstofa, þá herbergi þeirra erafgreiðslu sinna, til
dæmis gjaldkera og sölufólks, þá ritarar og ýmsir
stjórnendur og innst forstjórar. Herbergin væru
auðvitað mismunandi að stærð og þyrftu stjórnendur
að jafnaði stærri skrifstofur en aðrir þar sem fundir
vaeru oft haldnir inni hjá þeim.
í hverri skrifstofu þyrftu húsgögn að vera sam-
stæð, passa þeim búnaði sem þau væru ætluð og
raðað saman þannig að þau mynduðu góða aðstöðu
til þeirrar vinnu er þar skyldi vinnast. Einar sagði að
í hönnun þyrfti nú að huga að fleiri atriðum en áður
varðandi uppröðun búnaðarins og einnig að fleiri
tæknilegum þáttum. Mikilvægi réttrarlýsingarykist
að mun þar sem tölvuskjáir væru notaðir. Við hönnun
bygginga, þar sem skrifstofur væru fyrirhugaðar
væri nauðsynlegt að gera ráð fyrir hóflegri glerjun,
sérstaklega í sólarátt, eða lituðu gleri í gluggum og
væri hvorutveggja oft nauðsynlegt. Varast bæri að
setja tölvuskjái þar sem glampað gæti á þá frá sól.
Raflýsing þyrfti að vera á réttum stað og heppilegur
litur á flúrpípum lampa. Einnig yrði að gæta þess
að loftræsting væri góð.
Einar sagði að öryggismálum á skrifstofum hefði
verið sinnt ótrúlega lítið hér á landi og væri víðast
hvar hægt að ganga inn án þess að vera spurður
um erindi og dæmi væru um þjófnaði sem framdir
væru í skjóli blaðasölu. Einnig væri fólk truflað við
vinnu af heimsóknum sem það hefði ekki gert ráð
fyrir eða kærði sig ekki um og aetti þetta sérstaklega
við um stjórnendurfyrirtækja. í auknum mæli væri
nú skrifstofum lokað, þannig að þangað kæmust
eklg aðrir en starfsfólk og þeir sem erindi ættu og
yrði þá að fara um hurð sem opnuð væri með raf-
magni.
Erfitt væri að setja fram reglur um val á litum,
Mikilvagterað
helstuhliitir
semnotaáséu
innanseilingar
(Úr upplýsingablöðum
frá Kristjáni Siggeiresyni hf.)
því þar hefðu áhrif tegund og stærð fyrirtækisins
og stærð og gerð húsnæðisins. Til dæmis gæti ein
hæð í húsi eða deild fyrirtækis haft einkennandi lit.
Sterka liti þyrfti að nota í hófi og velja fremur þá liti
er vendust vel, nema fó1k væri tilbúið til að breyta
litum eftir því hvað væri ítísku, en slíkt væri dýrt.
Auðvelt væri að gefa starfsfólki kost á að hafa per-
sónulega hluti í kring um sig t.d. blóm, myndir og
þess háttar og sjálfsagt að gera ráð fyrir slíku þegar
hugað væri að heildarútliti.
Starfsumhverfl mikilvægt
Segja má að vinnuandi og starfsumhverfi skipti
fólk stöðugt meira máli, þvíflestireyða a.m.k. helm-
ingi þess tíma sem þeir eru vakandi á vinnustað sín-
um. í ársbyrjun 1981 tóku gildi lög um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. í fyrstu grein
þeirra segir m.a. að með lögum þessum sé leitast
við að tryggja öruggt og heilsusamlegt starfsum-
hverfi og skilyrði fyrir því að innan vinnustaðanna
sjálfra sé hægt að leysa öryggis-og heilbrigðisvanda-
mál, í samræmi við gildandi lög og reglur, í samræmi
við ráðleggingar aðila vinnumarkaðarins og í sam-
ræmi við ráðleggingar og fyrirmæli Vinnueftirlits ríkis-
ins. Nefnd erfélagsmálaráðherra skipaði sl. haust
til að gera tillögur um endurskoðun laganna hefur
lagt til að endurskoðun verði frestað um 5 ár, m.a.
vegna þess að lögin séu mjög viðamikil, langan tíma
taki að byggja upp þá starfsemi er þau gera ráð
fyrir, ekki hafi fengist nægilega löng reynsla af fram-
kvæmd þeirra og sum ákvæðin hafi ekki komið til
framkvæmda.
Gestur Friðjónsson, eftirlitsmaður, hefur m.a. eftir-
lit með aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi i þjón-
ustu- og skrifstofuhúsnæði í Reykjavík. Við spurðum
hann hvernig þessum málum væri háttað hvað skrif-
stofuhúsnæði varðaði. Hann sagði að algengast
væri að loftræstingu, raka- og hitastillingu væri
ábótavant. Einnig yllu rangar vinnustellingar, óheppi-
leg lýsing o.fl. oft óþægindum. Þar sem margir not-
uðu sömu tölvu þyrftu borð fyrir lyklaborð og skjái
helst að hafa stiglausa stillingu, til þess að henta
sem bestfyrir hvern notanda. Ekki mætti gleymast
að kenna þeim sem nota ættu búnaðinn að stilla
hann rétt, en ótrúlega algengt væri að að röng still-
ing stóla og borða ylli óþörfum starfskvillum hjá
skrifstofufólki. Vinnueftirlit ríkisins veitti ráðgjöf og
upplýsingar um þessi efni og gæti fólk leitað þangað.
Gestur sagðist telja mikilvægt að alls staðar yrði
komið á því skipulagi er lögin gera ráð fyrir þ.e. að
fulltrúaratvinnurekenda og starfsfólks á hverjum
stað fjalli um mál varðandi aðbúnað, hollustu og
öryggi. Þar sem slíkt fyrirkomulag hefði verið tekið
upp, væru vandamálin færri, enda væri markmiðið
með þessari nýskipan að mál væru leyst innan fyrir-
tækja og stofnana og aðeins vísað til Vinnueftirlitsins
ef samkomulag byggt á grunvelli laganna næðist ekki.
LrOft-
Iaðalskrifstofum Fjárfesting-
arfélagsins á 4. hæð við
Hafnarstræti var ákveðið að
láta lofthæðina njóta sín,
en húsnæðið er að hluta til
undir súð. „Það er ekki mikið af
gluggum, þannig að ég vildi nýta
sem best birtuna sem af þeim er,
auk þess að hafa lýsingu og liti
sem gerði húsnæðið sem bjart-
ast," segir Auður Vilhjálmsdóttir,
innanhússarkitekt, sem hannaði
innréttingar. Hvíti liturinn ræður
þar ríkjum með gráum lit á skilrúm-
um og gólfteppum, en húsgögnin
eru ýmist svört viðar- eða stálhús-
gögn, keypt eða sérsmíðuð frá
Imco. Á aðalskrifstofunum, sem
voru teknar í notkun fyrir róttu ári,
starfa 7 manns, þar af 3 í opnu
rými aftan við móttökuna og 4 f
skrifstofuherbergjum. Rýmið við
mótttökuna var stækkað með því
að láta lyftu koma þar inn í, í stað
þess að hafa hana á sérstökum
stigagangi, eins og gerist á öðrum
hæðum hússins.