Morgunblaðið - 14.03.1986, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1986
-------• ’ 1 1 ......................
B
f
Soffía
Sigfinnsdóttir
Matthías
Matthíasson
AAatsteinn
Maack
Ragnar
Magnússon
Steinunn
Ólafsdóttir
Margrét
Sölvadóttir
Jóhanna Gústa
Baldvinsdóttir
„Sáttur, því aldrinum
breyti ég aldrei“
„Ég mun hætta að vinna um
sjötugt, og þó, því aldrei mun ég
geta hætt að andskotast eitt-
hvað,“ segir Aðalsteinn Maack.
Hann er 66 ára. — „Verð löggilt
gamalmenni í haust," eins og hann
orðar það.
Aðalsteinn býr ásamt konu sinni
í eigin íbúð. Hann hefur nægar
tekjur að eigin mati og góða heilsu.
Hann var spurður að því, hvort
hann sæi fram á miklar breytingar
á fjárhagsstöðu sinni, þegar hann
hættir að vinna:
„Nei, ekki svo mjög. Heilsan er
að sjálfsögðu fyrir öllu, en ég hef
greitt í lífeyrissjóð síðustu 20 árin
og sá lífeyrir að viðbættri ellitrygg-
ingu ætti að duga.“
Aðalsteinn var spurður um þær
hugmyndir sem hann hefur varð-
andi húsnæði fyrir aldraða.
„Það er mjög mikilvægt að fólk
eigi margra kosta völ. Ég vildi búa
á þeim stað, þar sem öll almenn
þjónusta er innan seilinar ef ég
þyrfti á að halda. Ég hef ekki kynnt
mér náið ástand mála í dag, en
af því sem ég heyri, þá er ástandið
í húsnæðismálum aldraðra mjög
alvarlegt."
— Ert þú sáttur við að hætta
að vinna?
„Já, ég er alveg sáttur viö þaö,
því ég hef verið samtíða fólki, sem
hélt að það gæti haldið áfram að
vinna alla sína ævi. Það getur
enginn, en skynsamlegt er að
hætta smátt og smátt."
— Hafðir þú kynnt þér rétt þinn,
t.d. varðandi almannatryggingar,
lífeyrissjóði, hlunnindi hjá hinu
opinbera o.s.frv.?
„Nei, það hafði ég ekki gert fyrr
en ég kom hingaö. Mér sýnist þó
til að byrja með, að málefni aldr-
aðra séu geysilega flókin og erfitt
að setja sig inn í þau. Þetta er
frumskógur reglugerða sem brýnt
er að einfalda. Eg ætla þó að kynna
mér þessi mál mjög vel.
Nei, aldrinum kvíði ég ekkL Ég
er sáttur við minn aldur því honum
fæ ég aldrei breytt."
„Einmanaleikinn
er öldruðum
hættulegastur"
„Það er ákaflega brýnt að aldr-
aðir geti snúið sér að einhverju til
að dreifa athyglinni. Fólk má ekki
heldur loka sig inni, því einmana-
leikinn er öldruðum hættulegastur.
Ég þekki fjölmörg dæmi um fólk,
sem hefur hjaðnað niður, fær sig
ekki til að hafa samband við annað
fólk,“ segir Ragnar Magnússon,
67 ára öryrki.
Ragnar hefur verið hjartasjúkl-
ingur um tima og ekkert unnið, en
hann sér nú fram á bjartari tíð,
því hann ætlar sér að fara aftur
að vinna, þótt það verði aðeins
hlutastarf.
Ragnar og kona hans búa í eigin
íbúð og börnin eru farin að heiman.
Konan vinnur ennþá fullan vinnu-
dag, en hvað gerist þegar hún
þarf að hætta að vinna.
„Við sjáum fram á talsverðar
breytingar. Við höfum þó reynt að
undirbúa okkur.t.d. höfum við flutt
í minni íbúð og minnkað við okkur
eyðsluna."
Ragnar var spurður álits á hús-
næðismálum aldraðra.
„Ég er á sömu skoðun og marg-
ir, sem tekið hafa til máls hér í
kvöld, að hægt væri að byggja mun
heppilegra og ódýrara þjónustu-
húsnæði fyrir aldraða en nú er
gert. Þá ér heppilegra að færa alla
þjónustuna á þrengra svæði frekar
en að dreifa henni út um allan bæ
einsog núergert."
— Vissir þú um rétt aldraðra
áður en þú komst hingað?
„Nei, eiginlega ekki. Ég hef ekki
borið mig eftir neinum upplýsing-
um. Mér finnst þó mikið vanta upp
á að nauðsynlegustu upplýsingar
um rétt aldraðra séu almennt nógu
skýrlega fram settar. Þessu þarf
að kippa í lag. Annars finnst mér
námskeiðið vera mjög heppilegt
og nauðsynlegt. Með þessu fyrir-
komulagi næst mun betra sam-
band við aldraða og þá hlýtur
árangurinn að skila sér. Námskeið-
ið er því skref í rétta átt."
„Ellin er ekki
feimnismár
„Mörgum finnst erfitt að tala
um ellina eins og hún sé eitthvert
feimnismál. Þetta er algjör mis-
skilningur. Við eldumst alla tíð og
verðum að lokum öldruð, bara ef
við lifum nógu lengi," segir Stein-
unn Ólafsdóttir, 74 ára húsmóðir.
Steinunn býr ásamt manni sín-
um í eigin húsnæði. íbúðin er mjög
stór, of stór eftir því sem hún segir
sjálf. Áður var margt í heimilinu,
en nú eru börnin farin að heiman,
en þau hafa ekki ráðist í það að
minnka við sig af ýmsum ástæð-
um.
„Ég myndi gjarnan vilja skipta
og komast í lítið raðhús eins og
boðið er upp á hjá DAS í Hafnar-
firði. Lfkast til fengjum við ekki það
verð fyrir íbúðina sem slíkt raðhús
myndi kosta. Við höfum búið í
sömu íbúðinni síðan 1945 og þar
viljum við vera meðan heilsan leyf-
ir.“
Steinunn kveður það hafa verið
mikil viðbrigði að hætta fullri vinnu,
en margt annað hafi komið í stað-
inn. „Ég var svo heppin að geta
farið í tómstundastarf, fyrst á
Hallveigarstöðum og síðan hér í
Norðurbrúninni. Hér er ég mjög
ánægð. Svo stunda ég sundlaug-
arnar reglulega og nýt þess mjög
mikið.
Annars vildi ég að þú skilaðir
kærum þökkum til Þóris S. Guð-
bergssonar og starfsfólks hans,
svo og þeirra, sem byggt hafa upp
tómstundastarfið. Eins máttu skila
miklu þakklæti til starfsfólksins hér
í Norðurbrún 1.“
„Meðan heilsan og
kraftar leyfa“
„Nei, ég er ekki hrædd við ellina.
Ég er svo félagslynd í mér og á
góða vini og kunningja. Svo er ég
mjög mikiö fyrir ýmiskonar handa-
vinnu og ég hlakka bara til að fá
að vera samvistum við gott fólk,“
segir Margrét Sölvadóttir, 62 ára
afgreiðslustúlka.
Margrét býr ásamt maka sínum
í eigin húsnæði sínu. Börnin eru
farin að heiman og þau eru tvö
eftir. Þau hafa góðar tekjur að
hennar mati, en býst við geysileg-
um breytingum á eftirlaunaaldri.
Hún hefur ekki verið i lífeyrissjóði
nema um skamman tíma og hann
frá 1970. Hún segist þó vilja halda
áfram að vinna sé það mögulegt.
Margrét var spurö álits á hús-
næðismálum aldraðra.
„Ég vil sjálf vera heima svo lengi
Auður Jónsdóttir, fulltrúl og Slgrfður Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi.
styrki að ræða, eða millifærslu, þá
tekur Félagsmálastofnunin að sér
að greiða ýmsa reikninga fyrir
umsækjandann, s.s. símareikning,
rafmagnsreikning o.s.frv.
Sigríður: „Margir halda að þjón-
usta fyrir aldraða sé að mestu leyti
sjálfvirk. En svo er ekki í mörgum
tilvikum. Aldraðir þurfa að sækja
um. Oft er erfitt að fá gamalt fólk
til aö leita til okkar. Það líkir þessu
við sveitastyrki, en það er mikill
misskilningur. Það á rétt á aðstoð
okkar rétt eins og það á rétt að
sjúkrahúsvist án greiðslu."
„1315manns
á bidlista“
„Með byggingu þjónustuibúð-
anna í Norðurbrún 1 voru mörkuð
tímamót í þjónustu við aldraða.
Þarna var bryddað upp á nýju
formi, sem gerði fólki kleyft að
halda sjálfstæði sínu og tekjum í
stærra húsnæði. Aldraðir búa í
leiguíbúðum, einstaklings- eða
hjónaíbúðum. Þetta hefur reynst
ákaflega vel og íbúðum af þessu
tagi hefur fjölgað," segir Petrina
Ásgeirsdóttir, félagsráögjafi hjá
Félagsmálastofnun Reykjavíkur.
Hún flutti erindi á námskeiðinu um
húsnæðis- og vistunarmál aldr-
aðra.
í samtali við blaðamann sagði
Petrína að nú væri 1315 aldraðir
einstaklingar á biðlista, 1186
umsóknir. Um 500-600 manns
óska eftir þjónustuíbúðum, um
200-300 eftir vernduðum þjón-
ustuíbúðum og 300-400 eftir dval-
ar- og hjúkrunarheimilinu Drop-
laugarstöðum. Margt af þessu
fólki hefur ekki eignast íbúðir eða
á ekki íbúðir. Þeir sem eiga íbúð
fá í fæstum tilvikum að komast í
þjónustuíbúö. Þetta fólk er ekki
talið njóta forgangs.
„Um 720 manns hafa verið
metnir sem forgangshópur sam-
kvæmt fáanlegum upplýsingum
um þá, s.s. umsóknum, læknis-
vottorðum og viðtölum við ætt-
ingja eða vini, auk þess sem fulltrú-
ar Félagsmálastofnunar hafa
heimsótt hluta af þessu fólki.
Á síðasta ári komust 35 ein-
staklingar inn af biðlistanum, þar
affimmhjón."
KRANSAKÚKUMÚT
iBIERING
LAUGAVEGI 6 SÍM114550
sem heilsa mín og kraftar leyfa.
íbúöin er að vísu stór, en börn og
barnabörn koma tíðum í heimsókn
og veitir þá ekkert af húsrýminu."
Margrét taldi sig hafa vitað litið
um réttindi aldraðra, en vita nú
mun meira en áður vegna nám-
skeiðsins. „Ég vildi fá að fræðast
um það sem framundan er og
þess vegna kom ég á þetta nám-
skeið."
„Lífið gengur
ágætlega“
„Ég á mér mörg áhugamál,
stunda innhverfa íhugun og les
mikið. Mér finnst lífið ganga ágæt-
lega. Kannski einangra ég mig of
mikiö, ég veit það getur verið
hættulegt, en þannig er ég gerð.
Ég dáist aftur á móti að því fólki
sem sækir tómstunda- og félags-
starf aldraðra," segir Jóhanna
Gústa Baldvinsdóttir, 74ára ekkja.
Jóhanna býr ein í stóru húsi, en
hún vill ekki minnka við sig, því
minningarnar eru bundnar húsinu.
„Mér finnst bráðnauðsynlegt að
huga að þeim, sem vilja vera heima
og geta það, því ekki vilja allir fara
í þjónustuíbúðir eða á vistheimili."
Jóhanna taldi sig vita nokkuð
um réttindi aldraðra fyrir nám-
skeiðið. „En þetta námskeið er
ákaflega nauðsynlegt og hér hef
ég fengið upplýsingar um margt
sem gott er að vita.
Svona fundir þyrftu að vera
oftar. Það er reglulega ánægjulegt
að vera innan um fólk, sem hefur
sömu aðstæður og maður sjálfur.
Ég er þessu fólki sem að nám-
skeiðinu stóð afskaplega þakklát. «*r
Ég hefði ekki viljað missa af því
fyrirnokkurn mun.“
sjálfstýringar
Wagner-sjálfstýringar,
komplett með dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskað er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niður í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auðveldar í
uppsefningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stærðir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verð og
greiðsluskilmálar.
Atlas hf
*6orgartún 24 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík