Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSHPn/AIVINNULÍF FIMMTUÐAGUR 24. APRÍL1986 B ð 4 lespenna inn í tölvuna. Þar með er tvennt unnið. Annars vegar yfírlit um stöðu einstakra verkefna og hins vegar gögn fyrir launaútreikn- ing. Hugbúnaður aldrei fullgerður „Flestir þekkja strikamerkingu á neytendavörum sem kemur að miklum notum í smásöluverslun, en þessa tækni má nýta á ýmsum sviðum," sagði Magnús. „Villu- hætta snarminnkar með þessu móti og auk þess tekur skráning minni tíma.“ „Fyrsta skráningastöðin verður sett upp til reynslu í næstu viku, og við munum síðan í kjölfarið fara að kynna þessar nýjungar fyrir iðnfyrirtækjum sem hafa okkar hugbúnað.“ Snar þáttur í starfseminni er þjónusta við notendur. Til að tryggja að hún verði sem best geta þeir sem þess óska gerst áskrifend- ur að öllum viðbótum sem gerðar eru á hugbúnaðinum. „Hugbúnaður er aldrei fullgerð- ur. Líftími hugbúnaðar sem ekkert er haldið við er varla lengri en tvö ár. Það gildir sama um hugbúnað og annan iðnað; stöðug vöruþróun er nauðsynleg," sagði Gunnar Ingi- mundarson. Hugur hf. er einnig söluaðili fyrir BOS-hugbúnað, en þar er um að ræða alhliða viðskiptahugbúnað sem nota má á ýmsar gerðir tölva, m.a. einkatölvur. Tollstjóri, hug- búnaður til að vinna tollskýrslur og framkvæma verðútreikning, var hannaður af Hug, og vinnur hann með öðrum Bos verkefnum. „Síðast en ekki síst ætlum við okkur að sinna almennri ráðgjöf í tengslum við tölvuvæðingu," sögðu þeir Gunnar og Magnús. „Það líður oft langur tími frá því tölvan er komin í hús og þar til verkefni eru farin að vinna einsog til var ætlast. Fyrirtæki eru misvel í stakk búin til að tileinka sér þessa nýju tækni og þurfa iðulega á ráðgjöf að halda þegar fyrstu skrefin eru stigin," sögðu þeir félagar að lokum. Starfsmenn Hugar eru nú fímm, auk fjögurra lausráðinna. Fastir starfsmenn auk Gunnars og Magn- úsar eru Sigurður Karlsson, Kári Harðarson og Magnús Jónsson. Hugur er til húsa að hamraborg 12 í Kópavogi. Compugraphic kynnir nýjan innskriftar- og umbrotsskjá COMPUGRAPHIC Corporation kynnti í byrjun síðasta mánaðar nýjan umbrots- og setningarskjá sem tengist MCS-setningarkerf- inu, Powerview 5. Umboðsfyrir- tæki Compugraphic á íslandi og deildarstjóri tölvudeildar þess, Sveinn Guðmundsson, staðhæfir að enginn framleiðandi setning- artölva geti nú boðið jafn ódýran og öflugan innskriftar- og um- brotsskjá og Compugraphic ger- ir með Powerview 5. Að sögn Sveins hefur Compugraphic verulega markaðshlutdeild á prentmarkaðinum hér á landi. Um 30 fyrirtæki eru með búnað frá þessu fyrirtæki og þar af 2—3 prentsmiðjur með stærri gerðina af umbrotsskjám frá Compu- graphic. Sveinn segir, að kostimir við að hafa innskrift og umbrot á sama skjá séu augljósir, því að um leið og textinn sé skrifaður inn á skjá- inn, sjái setjarinn hann þegar í stað umbrotinn og geti þannig gert þær breytingar sem nauðsynlegar eru um leið og innskriftin á sér stað. Allar skipanir um leturstærð, línu- lengd, töflur, ramma, lóðrétt og lárétt strik sjáist um leið á skjáum og eins og textinn kemur til með að líta út í endanlegri gerð á papp- ímum. Skjánum á MCS Powerview er deilt niður í ijögur svæði eins og hér segir: Upplýsingalínur sem gefa upplýs- ingar um leturstærð, leturgerð, línulengd, töfludálka og lengd dálks svo eitthvað sé nefnt. Innskriftarsvæði sem getur verið 1—10 línur. Þar sést textinn óum- brotinn ásamt tilheyrandi skipun- um. Umbrotssvæði sem getur verið 1—10 línur. Á umbrotssvæðinu sést textinn eins og hann kemur til með að líta endanlega út, út úr setninga- vélinni. Valmyndasvæði þar sem notandi Morgunblaðið/ÓI.K.M. í RÁSHOLUNUM — Starfsmenn og eigendur nýja hug- búnaðarhússins Þröstur Karlsson, Ólafur Torfason og Magnús Theó- dórsson í húsakynnum Hugbúnaðarbankans í Síðumúla 21. Hugbúnaðarbankinn byrjar starfsemi TEKIÐ er til starfa í Reykjavík nýtt hugbúnaðarfyrirtæki sem kallast Hugbúnaðarbankinn hf. Tilgangur fyrirtækisins er alhliða tölvuþjónusta svo sem ráðgjöf, námskeiðahald, kerfissetning og forritun. Hugbúnaðarbankinn hefur í umboðssölu stöðluð bók- haldsforrit, fjárhags- og við- skiptamannabókhald, svo og birgða- og pantanakerfi. Þessi kerfi eru gerð af Tölvubankanum sf. og eru notendur þeirra nú á annað hundrað — einkafyrirtæki samvinnufyrirtæki og opinberar stofnanir, að því er segir í frétt frá Hugbúnaðarbankanum. Starfsmenn Hugbúnaðarbankans getur ákveðið stærð umbrots- og innskriftarsvæðis og jafnframt stækkað eða minnkað umbrotið til þess að skoða nánar einstaka hluta þess betur. Valmyndasvæðið hverf- ur af skjánum þegar það er ekki í notkun. Stafímir á umbrotssvæðinu eru sýndir svartir á hvítum fleti en á innskriftarsvæðinu hvítir á svörtum fleti. Vinnslan á MCS Powerview er eins og á öðrum MCS-tölvum. Lykilborðið og forrit t.d. Pow- erpage, lóðrétt strik og töfluupp- setningar virka eins og á öðmm MCS-skjám þó svo þeir hafí ekki umbrotsmöguleika. Þannig er end- urmenntun starfsfólks,- sem kann á MCS-kerfíð, engin. Vinnuspamaður við það að sjá textann umbrotinn um leið og hann er skrifaður inn er eins og allir sjá verulegur. Not- endur Powerview-kerfa hafa orðið varir við mjög mikinn vinnuspamað við uppsetningu á bókum, alls kyns tímaritagreinum svo að ekki sé talað um töfluuppsetningar og uppsetningu ýmiss konar reiknings- forma. MCS Powerview 5 er sjálfstæð tölva sem getur tengst öllum MCS-setningarvélunum þ.e. MCS 8000, sem er með setningarhraða 50 lpm, MCS 8400 sem er með setningarhraða 150 lpm eða 325 lpm. MCS Powerview 5 er byggt í kringum mjög öfluga örtölvu og er með 1 MB minni og 2x320 Kb diskettudrifí. Hægt er að bæta við viðbótarbúnaði eins og t.d. 10 eða 30 MB diskdrifí og innifalið er tengistykki fyrir móttöku á texta frá hinum ýmsu tölvum, stómm og smáum. Compugraphic mun sýna Pow- erview 5 ásamt ýmsum öðrum nýj- ungum á DRUPA-prentiðnaðarsýn- ingunni sem byijar 2. maí nk. i sýningarbás nr. 4E06-4E05. NYJUNG — Hér er unnið á nýja umbrotsskjáinn frá Compugrap- hic Powerview 5 en hann verður kynntur sérstaklega á DRUPA- prentiðnaðarsýningunni í lok næstu viku. Þá sýningu sækir jafnan fyöldi íslendinga. RAINBOwfáZ NAVICATiO Beinar siglingar milli Njarðvikur og Norfolk með Mv. .RAINB0W hopev Flvtium stvkkja-, palla- og gámavoru, fvrstivóru og frvstigáma. Umboðsmenn okkar eru Gunnar Guöjónsson sf Hafnarstræti 5 P0 Box 290 121 Reylgavik Simi 29200 Telex 2014 Mendian Ship Agency. inc 201 E Citv Hall Ave. Suite 501 Norfolk Va 23510 US.A Simi (8041-625-5612 Telex 710-881-1256 Áætlun: Lestunardagar NJARÐVÍK — NORFOLK 24. apríl — 26. apríl 6. maí — 16. maí 26. maí — 6.júní (jfc Rainbow Navigationjnc. eru nú þrír, þeir Magnús Theódórs- son, kerfisfræðingur, Ólafur Torfa- son, kerfísfræðingur og Þröstur Karlsson, kerfísfræðingur sem jafn- framt er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. Stofnendur og eigendur Hug- búnaðarbankans eru ofangreindir starfsmenn en einnig er Tölvubank- inn sf. stór hluthafí og náin sam- vinna milli fyrirtækjanna. Hugbúnaðarbankinn hefur yfír að ráða IBM S/36 og IBM PC tölvum en í frétt fyrirtækisins segir að það sé hins vegar stefna þess að binda sig ekki við ákveðin vörumerki í vélbúnaði heldur þróa kerfí á aðrar tölvugerðir ef svo ber við. Seljend ur og ka upendur hlutabréfa Markmið okkar er að stuðla að eflingu og þróun hluta- bréfaviðskipta hér á landi og að starfrækja hlutabréfa- markað Kaupum og seljum hlutabréf i eftirtöldum hlutafélögum á eftirfarandi verði:*) Eimskipafélagíslands hf. Flugleiðir hf. Iðnaðarbankinn hf. Verslunarbankinn hf. *) Áskilinn er réttur til að takmarka þá fjárhæð sem keypt er fyrir. Veitum hvers kyns ráðgjöf og aðstoð við stofnun hlutafélaga, verðmat hlutabréfa, útboð hlutafjár og kaup og sölu hlutabréfa. Kaupverð Kaupverð Söluverð Söluverð n.v. 100 kr. að lokinni m.v. lOOkr. að lokinni nafnverðs jöfnun nafnverðs jöfnun 340 170 366 183 365 394 125 91 135 98 125 91 135 98 Hlutabréfamarkaðurinn hf Skólavörðustig 12,3. h. Reykjavík. Sími 21677

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.