Morgunblaðið - 24.04.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPnÆVINNULÍF FIMMTUDÁGUR 24. ÁPRÍL1986
B 13
Érlent
Verksmiðja framtíðarinnar
Færibanda-fjöldaframleiðslan
sem Henry Ford kom á í bílasmiðj-
um sínum og var bæði sálardrep-
andi fyrir starfsmennina og arð-
vænleg fyrir bílasmiðjumar er orðin
úrelt. Flest það sem smíðað er í
verksmiðjum í dag — hvort sem það
eru bflar, myndavélar eða kerta-
stjakar — er stöðugum breytingum
háð til að fullnægja duttlungum
markaðarins. Mest velgengni iðn-
ríkja tuttugustu og fyrstu aldarinn-
ar verður hjá þeim sem ráða yfír
verksmiðjum sem fljótastar eru að
gera breytingar á framleiðslu sinni.
í verksmiðju einni nálægt Fuji-
ijalli í Japan smíða vélmenni ný
vélmenni. Á daginn starfa 20
manns í verksmiðjunni. Að nætur-
lagi starfa sjálfvirkar vélasamstæð-
umar undir eftirliti eins manns, sem
situr við stjómborð. Er hér um að
ræða martröð sem orðin er að vem-
leika, eða er þetta opinberun óska-
landsins?
Látið ekki biekkjast. Verksmiðj-
an er sýningarskáli fyrir Fanuc,
japanskt fyrirtæki sem sérhæfir sig
í sjálfvirkni. Fáar svipaðar verk-
smiðjur em til enn sem komið er.
En ný alda sjálfvirkni er að ríða
yfir framleiðslugreinamar.
Eitt merki þessa er gífurleg
aukning í sölu sjáifstýritækja fyrir
verksmiðjur. Hjá bandaríska fyrir-
tækinu Intemational Data Corpor-
ation er reiknað með að salan
aukist úr 11 milljörðum dollara á
síðasta ári í 40 milljarða dollara árið
1990. Annað merki þessarar auknu
áherzlu á sjálfvirkni er sá áhugi sem
stærstu fyrirtæki heims hafa sýnt
í málinu. General Motors er þar
fremst í flokki. Árið 1984 keypti
GM-tölvufyrirtækið Electronic Data
Systems (EDS) í Texas fyrir 2,25
milljarða dollara til að auðvelda
hjá sér tölvuvæðingu. Nú ver GM
um 9 milljörðum dollara á ári til
að auka sjálfvirkni við framleiðsl-
una.
Verksmiðjueigendur vilja meiri
sveigjanleika vegna þess að fjölda-
framleiðsla er ekki lengur eftirsókn-
arverð. Flestar málmsmiðrjur byggja
reksturinn á framleiðslu málmhluta
í smáu upplagi. Áætlað hefur verið
að þrír fjórðu allra smíðagripa verk-
smiðjanna séu smíðaðir í aðeins 50
eintökum, eða jafnvel færri. Sjald-
gæft er orðið að verksmiðjur smíði
sama hlutinn í þúsundum eintaka
eins og áður var. En verksmiðjumar
hafa enn ekki fyllilega tileinkað sér
þessar breyttu aðstæður. Mikið af
vélum dæmigerðra málmsmiðija
standa ónotaðar um lengri tíma.
Tölvufræðingar gera sér nú
aukna grein fyrir því hvemig breyta
verður verksmiðjunum til að aðlaga
þær breytilegri framleiðslu. Þeir
binda vonir sínar við samnýtingu
þriggja tækniaðferða, en þær eru:
tölvuvædd hönnun (CAD eða comp-
uter-aided design), sveigjanleg
framleiðslukerfi (FMS eða flexibls
manufactoring systems), og það
sem enn á lengra í land og sérfræð-
ingar nefna tölvusamræmd fram-
leiðsla (CIM eða computer-inte-
grated manufactoring).
Hvert er svo eðli þessara skamm-
stafana? Til að sjá fram í tímann
er rétt að líta á skýrslu sem sjálf-
virknistofnunin við Purdue-háskóla
í Indiana-ríki birti nýlega. í verk-
srniðju framtíðarinnar, segir þar,
verða pantanir teknar til vinnslu
innan nokkurra klukkustunda en
ekki vikna eins og nú tíðkast.
Ef reksturinn á að ganga vel
þarf að finna jafnvægi milli áhuga
neytenda og þess hve auðvelt er
að framleiða vöruna með þeim vél-
búnaði sem tiltækur er. Verkfræð-
ingar við Purdue-háskóla segja að
hönnuðir framtíðarinnar þurfi ekki
að leita til framleiðslufræðinga til
að fá upplýsingar um hvort fram-
leiðslan komi til með að seljast eða
hve mikill framleiðslukostnaðurinn
verði. Tölvuskjárinn sem hönnuð-
imir vinni með verði tengdur tölvu-
stýrðu gagnasafni Qg forritun sem
FRAMTÍÐIN — í verksmiðju einni nálægt Fuji
í Japan smíða vélmenni ný vélmenni. A daginn
starfa 20 manns í verksmiðjunni, en að næturlagi
sjálfvirkar vélasamstæður undir eftirliti eins
starfsmanns.
svari þessum spumingum jafn óð-
um. Tölvumar geti til dæmis svarað
því strax hvort burðarhlutir nýju
vömnnar séu nægilega sterkir, eða
hvort hitaviðnám sé nægilegt, eða
hvort loftmótstaða sé rétt í hveiju
tilfelli. Tölvubankamir gefa upplýs-
ingar um áætlaðan framleiðslu-
kostnað og skráir þau efni og tæki
sem til þarf.
Sérfræðingamir hjá Purdue
segja að fljótlega verði unnt að
he§a framleiðslu eftir að hönnun
er lokið. Verksmiðjustjórar þurfi
ekki lengur að búa vélar sínar nýj-
um tækjum í hvert skipti sem breyt-
ingar verða á framleiðslunni. I
framtíðarsmiðjunum verða heldur
ekki gömlu smíðavélamar sem
sinna aðeins einu verkefni hver,
eins og málmskurði, slípun, steypu
eða suðu. Það verða fjölhæfar véla-
samstæður sem vinna öll þessi verk
og ganga allan sólarhringinn. Ef
þessi framtíðarsýn Purdue og ann-
arra stofnana kemst í framkvæmd
mun sjálfvirknin fela í sér hags-
bætur sem koma ekkert lækkuðum
vinnukostnaði við. Þörf verksmiðj-
anna fyrir að safna kostnaðarsöm-
um birgðum og varahlutum til að
mæta hugsanlegri eftirspum verður
að engu. Sjálfvirknin leiðir til þess
að hagkvæmt getur orðið fyrir
smiðjumar að taka að sér smærri
verkefni. Vélamar þurfa ekki að
standa lengi ónotaðar. Ifyrirtæki
sem ætla sér að reka verksmiðjur
sínar á gamla mátann sitja senni-
lega uppi verkefnalaus.
(Heimild: The Economist)
Á meðan þú lest þessa auglýsingu
verða til 60 Ijósrit í U-BIX
Ijósritunarvélum á Islandi. Að
meðaltali eru það 5 Ijósrit á
sekúndu, allan daginn, allan ársins
hring. Það er vegna þess að U-BIX
Ijósritunarvélarnar eru öflugar og
hraðvirkar, hljóðlátar og einfaldar í
notkun og hafa lága bilanatíðni.
U-BIX Ijósritunarvélar fást í 12
mismunandi útfærslum, eru með
sjálfvirka lýsingu og yfirleitt allt það
er prýðir góðar Ijósritunarvélar. Þess
vegna er U-BIX sjálfsagður kostur
þegar Ijósritun er annars vegar.
U-BIX LJÓSRITUNARVÉLAR
VERÐ FRÁ....KR. 69.800 stgr.
%
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
%
H verf isgötu 33 - S í mi 91 -20560
Helstu söluaöilar: Bókaversl. JónasarTómassonar Isafirði • Bókaversl. Þórarins
Stefánssonar Húsavík • Bókval Akureyri • E.Th. Mathiesen Hafnarfirði • Fjölritun s.f.
Egjisstöðum • Kaupfél. Árnesingah.f. Selfossi • Kjarni Vestmannaeyjum
*tíT
ISIANDS
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss
Elvira Oría
Bakkafoss
Elvira Oria
NEWYORK
Bakkafoss
Elvira Oria
Bakkafoss
Elvira Oria
HAUFAX
Bakkafoss
Bakkafoss
BRETLAND/
MEGINLAND
IMMINGHAM
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
FEUXSTOWE
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
ANTWERPEN
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
ROTTERDAM
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
HAMBORG
Álafoss
Eyrarfoss
Álafoss
Eyrarfoss
GARSTON
Fjallfoss
Fjaltfoss
IMMINGHAM
Laxfoss
Laxfoss
BREMERHAVEN
Laxfoss
Laxfoss
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
ÁLABORG
Skógafoss
Skógafoss
FREDRIKSTAD
Skógafoss
Reykjafoss
Skógafoss
Reykjafoss
HORSENS
Reykjafoss
Reykjafoss
GAUTABORG
Skógafoss
Reykjafoss
Skógafoss
Reykjafoss
KAUPMANNAHÖFN
Skógafoss
Reykjafoss
Skógafoss
Reykjafoss
HELSINGJABORG
Skógafoss
Reykjafoss
Skógafoss
Reykjafoss
HELSINKI
Skip
Skip
GDYNIA
Dettifoss
ÞÓRSHÖFN
Skógafoss
Reykjafoss
Skógafoss
Reykjafoss
ÁLABORG
Dettifoss
RAUMA
Dettifoss
umeá
Dettifoss
RIGA
Dettifoss
6. mai
21. maí
3. júnf
17. júní
5. mai
19. maí
2. júní
16. júni
10. mai
20. júni
27. apr.
4. mai
11. maí
18. mai
28. apr.
5. maí
12. maí
19. maí
29. apr.
6. mai
13. maí
20. maí
1. maí
7. maí
14. maí
21. mai
2. mai
8. maí
15. maí
22. maí
28. apr.
12. maí
5. maí
19. maí
6. maí
20. mai
28. apr.
12. maí
29. apr.
6. maí
13. mai
20. maí
9. mai
23. maí
30. apr.
7. maí
14. maí
21. maí
1. mai
8. maí
15. maí
22. maí
1. maí
8. mai
15. mai
22. maí
28. apr.
5. maí
18. maí
4. maí
11. mai
18. mai
25. maí
5. maí
8. maí
15. mai
Áætlun innanlands.
Vikulega: Reykjavík, isa-
fjöröur, Akureyri.
Hálfsmánaöarlega: Húsa-
vík, Siglufjörður, Sauöár-
krókur, Patreksfjöröur og
Reyöarfjörður.
EIMSKIP
Pósthússtraati 2.
Sími: 27100