Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 7

Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, .VIÐaKlHl/fflVINNUllF FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986 B 7 Tölvur Digital sækir fram GENGI Digital, bandaríska tölvufyrirtækisins á verðbréfa- mörkuðum hefur verið með ólík- indum á undanförnum mánuð- um. Fyrirtækið framleiðir eink- um tölvur til nota í vísindum og verkfræði, og er erfitt fyrir aðra en þá er hafa sérþekkingu að nýta sér tölvurnar. Verð á hluta- bréfum í Digital (DEC) iækkaði nokkuð fyrri part síðasta árs. Frá þeim tíma hefur verð bréf- anna meira en tvöfaldast. Þegar tilkynnt var í síðustu viku að hagnaður fyrirtækisins mánuð- ina janúar—mars (þriðji ársfjórð- ungur reikningsársins sem er júní- maí) hefði verið 85,7% hærri en á sama tíma 1985 hækkuðu hlutir í fyrirtækinu um 3,75 dollara í 177 dollara. Á sama tíma hækkuðu tekjur um 14,2%. Hagnaðurinn var 170,3 milljónir dollara (um 6.800 milljónir króna). Rekstrartekjur námu 1,93 milljörðum dollara (um 80 milljarðar króna). Björt framtíð Margir sérfræðingar telja að gengi DEC eigi eftir að vera meira og Stephen K. Smith tölvusérfræð- ingur hjá Paine Webber Inc. spáir því að hagnaður á hvem hlut verði á þessu reikningsári 9 dollarar og 12 dollarar á því næsta. Þá telja sérfræðingar að hlutir í DEC hækki um allt að 40% fram til 1987. Hvers vegna vegnar DEC eins vel og raun ber vitni? Svarið er nýjungar. Á síðustu 18 mánuðum hefur fyrirtækið kynnt sjö nýjar öflugar og fullkomnar tölvur. Olíkt öðmm tölvufyrirtækjum hefur DEC ekki breytt hönnun á nýju tölvun- um. Þannig geta viðskiptavinir fyrirtækisins gengið að því sem vísu að þeir em að kaupa öflugri tölvu, sem ekki kallar á kostnaðarsamar breytingar á hugbúnaði eins og við kaup á tölvum frá mörgum öðmm fyrirtækjum. Flaggskipin em Micro, VAX II, VAX 8600 og 8650 . Tvær síðamefndu vélamar hafa þegar gefið af sér yfír einn milljarð dollara (um 41 milljarð króna) í tekjur frá því þær vom kynntar í október 1984. Og fyrstnefnda vélin hefur einnig selst mjög vel. DEC hefur selt yfír 20 þúsund vélar á síðustu níu mánuðum. DEC styrkir samkeppnisstöðuna g-agnvart IBM DEC er annar stærsti tölvufram- leiðandinn á eftir IBM og ein ástæða þess hve fyrirtækinu gengur vel nú er að það hefur styrkt stöðu sína gagnvart IBM, sem H. Olsen stofnandi og stjómarformaður DEC er gjam á að kalla, „tölvurisann er vill hafa einokun á markaðnum". í mörg ár hafa þessi fyrirtæki forðast beina samkeppni, IBM hefur átt markaðinn fyrir stórar tölvusam- stæður en DEC verið leiðandi í gerð minni tölva. En samfara örri þróun í gerð einkatölva hafa neytendur meiri áhuga á tengingu við tölvunet en kaupa nýjar vélar. „Og þar stendur DEC betur að vígi en IBM,“ segir Patricia B. Seybold, ritstjóri Patty Seybold’s Office System Rebort í viðtali við Business Week. Allar tölvur DEC em sambæri- legar, byggja á sömu hönnun, tölvur frá IBM em ekki allar sambærileg- ar. Og ólíkt IBM ákvað DEC að taka upp staðal fyrir tölvunet, kall- að Ethemet. Og DEC sækir ákveðið fram á nýjum mörkuðum. I febrúar síðastliðnum, tóku forráðamenn fyrirtækisins óvenjulegt skref og tilkynntu að DEC ætli að þjóna eigendum tölva frá öðmm framleið- endum, ef þeir em tengdir Digital- tölvuneti. Adolph F. Monosson, sem gefur út fréttabréf fyrirtækisins segir að með þessu fjölgi viðskipta- vinum: „þetta er eins og líftrygg- ing,“ segir Monosson, „Þegar þú hefur einu sinni selt og þjónað tölvuneti, þá hefurðu viðskiptavin- ina um alla framtíð." Hætta á fargjaldastríði í A tlan tshafsflugin u AUKIÐ sætaframboð og minnk- andi eftirspurn á flugleiðum yfir Norður-Atlantshafið hafa nú þegar leitt til margskonar undir- boða varðandi fjargjöldin á þess- um leiðum, og margir telja að fargjaldastríð sé óhjákvæmilegt á komandi sumri. Sem dæmi um undirboð má nefna að brezka flugfélagið British Cale- donian, sem heldur uppi ferðum frá Gatwick-flugvelli til New York, Los Angeles, Atlanta og Dallas/ Fort Worth í Bandaríkjunum hefur lækkað fargjöld fram og til baka á virkum dögum milli Gatwick og New York um 74 sterlingspund, úr 362 pundum í 288 pund (úr kr. 22.300,- í kr. 17.740,-) fyrir mánuð- ina apríl og maí. Og lækkunin er enn meiri fyri rhelgarferðir. Bandarísk flugfélög hafa einnig boðið afsláttarfargjöld á flugleiðum yfir N-Atlantshafið, og nemur af- slátturinn allt að 30%. Talsmaður Alþjóðasambands flugfélaga, IATA, segir að sæta- framframboð á nýlinum vetri hafí verið langt umfram eftirspurn, og nýtingin verið það léleg að um 750.000 sæti hafi verið óseld í mánuði hveijum að meðaltali. Jafn- gildir þetta því að um 100 þotur af gerðinni DC 10 hafi að jafnaði flogið tómar yfír Norður-Atlants- hafíð í hverjum vetrarmánuðina. Þrátt fyrir þessa lélegu sætanýt- ingu og rúmlega 28% samdrátt í fyrirfram bókunum fyrir komandi sumar miðað við sumarið í fyrra ætla mörg flugfélaganna að fjölga ferðum sínum yfir Norður Atlants- hafið á sumri komanda. Þar ber fyrst að telja Pan American flug- félagið, sem nú hefur selt flugrekst- ur sinn á flugleiðunum yfir Kyrra- hafið og ætlar að einbeita sér að Atlantshafsfluginu. Pan Am verður í sumar með 175 ferðir vikulega milli Ameríku og Evrópu, en í fyrra voru ferðimar 146 í viku og árið 1984 vom þær aðeins 98. American Airlines mun nálega tvöfalda ferða- Fjárlög fjöldann, og verður með 21 ferð í viku frá Chicago til Evrópu auk flugs frá Dallas/Fort Worth. Og Delta Airlines verður með 34 ferðir vikulega frá Atlanta, en var í fyrra með 23 ferðir í viku. Minni fjölgun er fyrirhuguð hjá evrópskum flug- félögum, og hefur til dæmis Air France ákveðið sama ferðafjölda í ár og í fyrra. En Lufthansa ætlar þó að fjölga ferðum sínum til San Francisco og Houston, og British Airways ætlar að halda uppi dag- legum ferðum til Tampa í Florida í sumar, en í fyrra vom ferðimar fimm í viku. (Heimild: Financial Times og Wall Street Jorunal) Landbúnaður fær mest 55% verðmætasköpunar 1983 var í iðnaði Á FJÁRLÖGUM fyrir yfirstand- birtust þessar upplýsingar. Þar er andi ár nema framlögtil málefna bent á til samanburðar verðmæta- atvinnuveganna 879 milljónum sköpun þessara þriggja atvinnu- króna. Tæplega lielmingur fram- greina árið 1983, en ekki em til laga ríkissjóðs fer til landbúnað- nýrri upplýsingar. Þar var hlutfall ar, 36% til sjávarútvegs og nær öfugt miðað við framlög ríkisins. 15%tiliðnaðar. Verðmætasköpun iðnaðar var í riti sem samband málmiðnaðar- ■ 55,1%, sjávarútvegs 33,4% og land- fyrirtækja hefur nýlega gefíð út búnaðar 11,5%. TÍDNIBREYTAR FYRIR RIÐSTRAUMSMOTORA ^ FRÁ 0HITACHI Tœkninýjung sem byggö er upp ó ör- tölvutœkni Þýöur gangur á rafmótor einnig viö lága tíöni. Stillanlegur hrööunartími frá 1—150 sek. Mjög einföld handvirk stjórnun. Möguleiki á aö stýra sjálf- virkt. Grensásvegi 7.108 Reykjavik, Box 8294, S:681665, 686064 MOVEMcrn CgHTIWCATC Ctflltnings SKJALAGERÐ Til aó vörusendingar milli landa nái til réttra aðila á umsaminn og hagkvæman hátt er mjög mikilvægt, að rétt sé gengið frá útflutningsskjölum og spara þannig kostnaö og fyrirhöfn er fylgir rangt útfylltum skjölum. Tilgangur námskeiðsinsj er að kynna gerö helstu útflutningsskjala sem notuð eru vegna útflutnings frá íslandi til annarra landa. Þátttakendur munu þurfa að leysa hagnýt verkefni og er þannig stefnt að þvl að þeir fái sem mesta reynslu I útfyllingu sllkra skjala. Námskeiðið er ætlað þeim er sjá m. a. um gerð útflutningsskjala eða hafa hug á að hefja sllk störf. Leiðbeinendur veröa: Karl Garðarsson og Magnús Ásmundsson frá tollstjóraembættinu I Reykjavlk og Jón Bjarni Bjarnason frá Flutningamiöluninni. Staður og tími: Ánanaust 15, 29.-30. aprll 1986, kl. 9.00-13.00. :a sei^. spprrafV,gir úrfVl ÚTFLUTNINGS OG MARKADSSKÓU ÍSLANDS Stjómunarfélaa Islands Ánanaustum 15 ■ 101 Reykjavlk ■ 91-621063 ■ Tlx2085

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.