Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, vmaapn/javiNNuijr FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
B 15
i
fulltrúm frá hinum Norðurlöndun-
um. Ferðakostnaður er greiddur af
viðkomandi nefnd. Af gögnum sem
dreift var á fundinum má ráða að
möguleiki er fyrir okkur að taka
sæti í nefnd sem fjallar um stafróf,
m.a. notkun ISO 8859. Við eigum
að nota þetta tækifæri, en taka
þarf ákvörðun strax svo hægt sé
að fylgja þessu boði eftir.
Hér hefur aðeins verið gerð grein
fyrir nokkrum atnðum sem fram
komu á fundinum.
Almennt um fram-
kvæmd verkefnisins
Þetta verkefni er óhemju viða-
mikið og skiptir því miklu máli að
vinnubyrðin deilist á löndin öll. Eins
og fram hefur komið mun sænska
staðlastofnunin hafa á hendi sam-
ræmingu aðgerða. Síðan verður
deilt niður á löndin að fylgjast með
starfi í ISO, IEC, CEN, CENELEC,
CCITT, CEPT (skammstafanir —
sjá skýringar í lok greinar) o.s.frv.
Til þess að tryggja að upplýsingar
berist örugglega á milli landa verð-
ur notast við tölvuþing. Það á einnig
að tryggja að fundarefni á fundum
erlendis verði skýrt skilgreind og
stuðla þannig að markvissum
vinnubrögðum.
Framkvæmd verk-
efnisins
hérlendis
Skilyrði fyrir þátttöku í starfmu
er að stofnaðar verði landsnefndir
í hverju landi um sig. Hér yrði því
að stofna nefnd sem kalla má Tölvu-
tækninefnd. Hún væri skipuð full-
trúum frá helstu hagsmunaaðilum
á þessu sviði. Vegna stöðlunarstarf-
semi í CCITT auk þess sem hlutverk
símayfírvalda er verulegt á þessu
sviði er nauðsynlegt að Póstur og
sími eigi fulltrúa í nefndinni. Einnig
þurfa að sitja í henni fulltrúar
notenda, framleiðenda, seljenda og
rannsóknarstofnana á sviði tölvu-
tækni. Eðlilegt má telja að nefndin
heyri undir staðladeild Iðntækni-
stofnunar íslands (ITÍ).
Þessi nefnd þarf að vera skipuð
sérfræðingum á sviðinu og þarf að
geta tekið ábyrgar ákvarðanir í
málum sem upp kunna að koma,
lagt línur um hvað skuli leggja
áherslu á og hvað skipti minna máli.
Til verkefnisins þarf að ráða
starfsmann sem sér um að ákvörð-
urium nefndarinnar verði fylgt eftir.
Við gerum það að tillögu okkar að
starfsmaðurinn hafi starfsaðstöðu
hjá raftæknideild Iðntæknistofnun-
ar en teljist starfsmaður staðla-
deildar.
Fjármögnun
Norræna ráðherranefndin mun
veita nokkru fé til verkefnifeins í
heild. Þessu fé verður síðan deilt
milli landanna. Það sem kemur í
okkar hlut mun duga til þess að
borga laun manns í hlutastarfi og
kostnað vegna almennrar skrif-
stofuaðstöðu. Eins mun ráðherra-
nefndin veita fé til greiðslu kostnað-
ar við tölvuþingið og ferðakostnað
tveggja manna á fundi hjá INSTA-
C9-nefnd.
En þetta fé dugir ekki eitt sér
til greiðslu kostnaðar vegna þessa
verkefnis. Fjármögnun innanlands
er því nauðsynleg. Um þessa fjár-
mögnun verður að leita til helstu
hagsmunaaðila hér á landi en einnig
er þess vænst að hið opinbera leggi
þó nokkurt fé af mörkum.
Lokaorð
Hér verður að hafa snör handtök
og stofna Tölvutækninefnd. Verk á
þessu sviði verður ekki unnið á
ódýrari hátt en unnt er að gera í
samvinnu við frændþjóðir okkar á
hinum Norðurlöndunum. Aukaaf-
urð af starfinu er reynsla í alþjóð-
legu _ stöðlunarstarfi, reynsla sem
fáir Islendingar hafa. Þessi reynsla
mun væntanlega reynast dijúg við
aðra stöðlunarstarfsemi á sviði
tölvutækni en sú starfsemi er nauð-
synleg ef þróa á iðnað á þessu sviði
á Islandi.
Helgi Jónsson er deildnrstjóri
vinnsludeildar Reiknistofu Há-
skóla íslands ogJóhannes Þor-
steinsson deildarstjóri staðladeild-
ar Iðntæknistofnunar.
Nokkrar skammstafanir:
CCITT — The Intemational Tele-
graph and Telephone Consultative
Committee.
CEN — European Committee for
Standardization (Staðlanefnd
Evrópu).
CENELEC — European Committee
for Electrotechnical Standardizat-
ion (Staðlanefnd Evrópu á raf-
tæknisviði).
CEPT — European Conference of
Postal and Telecommunication
Adm.
ECMA — European Computer
Manufacturers Association (Sam-
tök tölvuframleiðenda í Evrópu).
IEC — Intemational Electrotec-
hnical Commission (Alþjóðanefnd
raftæknisviðs).
INSTA — Inter Nordic Standardiz-
ation (Samtök um samnorræna
stöðlun).
IS — Intemational Standard (al-
þjóða staðall).
ISO — International Organization
for Standardization (Alþjóða staðla-
stofnunin).
OSI — Open Systems Interconnec-
ton referenee model (Viðmiðunar-
líkan um samtengingu tölvukerfa).
SIS — Swedish Standards Institut-
ion (Sænska staðlastofnunin).
SKIPAVIÐGERÐIR
Félag málmiðnaðarfyrirtækja efnir til námskeiðs
um undirbúning og framkvæmd skipaviðgerða
og STÝRT VIÐHALD 5.-7. maí nk. að Hverfis-
götu 105, Reykjavík.
Námskeiðið er ætlað þeim aðilum í smiðjum, sem
taka á móti og skipuleggja viðgerðarverk, vélstjór-
um og/eða þeim, sem hafa umsjón með viðhaldi
skipa hjá útgerðum.
Fjallað verður í fyrirlestrum og með verklegum
æfingum um; verklýsingar, áætlanagerðir, matá
tilboðum og val á viðgerðarverkstæði, undirbúning
fyrir framkvæmd viðgerða, uppgjör og síðast en
ekki síst hvernig staðið er að stýrðu viðhaldi, sem
nú ryður sér til rúms. í þessari yfirferð fá þátttak-
endur gott yfirlit yfir það sem nýjast er í þessum
efntim og geta betur áttað sig á eigin stöðu og
því sem taka þarf á til að ná betri árangri í viðgerð-
um skipa — bæði frá sjónarhóli útgerðar/skipafé-
laga og smiðja.
Þátttökugjald er kr. 7.500,- (matur, kaffi og nám-
skeiðsgögn innifalin).
Þátttöku ber að tilkynna í síma 91 -621755 eigi
síðaren 30. apríl.
/TITI PKLAC MÁLMlÐNRBARFYRffilTEW
L*f--* Hv»rfl»fl6lu105-101 R«yk)«vlk ..B1-621755
BRÁÐFALLEG
Marks:
Good industrial
design
RAFEINDARITVÉL MED LETURKRÓNU
Gabriele 9009 fékk hina eftirsóttu umsögn
„Good Industrial Design" fyrir frábæra hönnun.
Gabriele 9009 er nýr mælikvarði fyrir ritvélar.
SÉRSTAKLEGA GOTT ÍSLENSKT LETUR.
Leiöréttingaminni 2 línur.
Ritvél á skrifstofuna
Einkaritvél fyrir atvinnumanninn
Heimilisritvél
Verðkr. 32.S00.-
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 686933.
Viðskipti í erlendum gjaldeyri
GENGISÁHÆTTA
0G SKULDASTÝRING
Stjórnunarfélag íslands heldur námskeið sem ætlaö er stjórnendum fyrirtækja og
stofnana og öðrum þeim er taka ákvarðanir um viðskipti í erlendum gjaldeyri.
Markmið þess er að auka þekkingu og hæfni við ákvarðanatöku í fjármálastjórn.
Efni:
— Grundvallaratriði í skuldastýringu og markmið varðandi gengisáhættu.
—Áhætta vegna gengisbreytinga á erlendum markaöi og tiltækar leiðir til að
verjast þeim.
— Greining á áhættuþáttum í fjárhags- og rekstrarstöðu fyrirtækja.
— Kostnaöarsamanburður á lánasamningum.
— Áhætta vegna gengisbreytingar krónunnar og leiðir til að verjast
gengistapi.
— Samanburður á vöxtum á innlendum og erlendum markaði, skammtíma-
og langtímalán.
— Dæmi um gjaldeyrisstýringu (slenskra fyrirtækja.
Leiðbeinendur:
Dr. Siguröur B. Stefánsson
hagfræöingur hjá
Kaupþingi hf.
Tryggvi Pálsson frann-
kvæmdastjóri fjármálasviös
Landsbanka islands
Dr. Sigurður B. Tryggvi Pálsson
Stefánsson
Timi: 5.-6. mal, kl. 9.00-13.00.
Stjórnunarfélag Islands
Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66