Morgunblaðið - 12.10.1986, Síða 4

Morgunblaðið - 12.10.1986, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986 HÁSKÓLI ÍSLANDS Þarfmeira tíl enkrít töfíuf borð ogstól Rætt við Ásmund Brekkan, forseta læknadeildar háskólans, um húsnæðismál deildarinnar, læknisfræðibókasafn og fleira. | læknadeild Háskóla Islands voru í lok vormisserís 1986 skráðir 279 stúdentar í sex kennsluárgöngum og nú í haust hófu 113 stúdentar nám á fyrsta ári. Það verða þó aðeins 36 þeirra sem halda náminu áfram á öðru árí, skv. numerus clausus reglu deildarínnar, sem miðast við að ekki séu fleirí í læknisnámi en hægt sé að veita klíníska kennslu, þ.e. verklega kennslu innan veggja sjúkrahúsanna, svo vel gott megi teljast að mati deildarinnar. Þrátt fyrir að deildin sé því ekki þéttssetin nemendum í samanburði við ýmsar aðrar fjölmennari, ríkja að sögn forráðamanna talsverð vandkvæði á í húsnæðismálum hennar. Þannig bendir Asmundur Brekkan, forseti læknadeildar á, að í raun sé hvergi kennt í eigin húsnæði deildarinnar, að undanskilinni einni kennslustofu eða svo, að öðru leyti sé um að ræða leigu- og lánshúsnæði. Kennsla læknadeildar er dreifð út um allan bæ,“ segir Ásmundur. „Sem dæmi um það þá er .kennsla í grunngrein- um, eins og líffræði og líffærafræði til húsa við Grensásveg og svipaða sögu er að segj um húsnæði sem er leigt við Ármúla. Á báðum stöð- um er einnig um að ræða samnýt- ingu húsnæðis með Verk-og raunvísindadeild Háskólans, sem þyrfti ekki að vera slæmur kostur, en verður það óhjákvæmilegayegna þrengslanna sem skapast. I hús- næði á homi Sigtúns og Nóatúns er svo heilbrigðisfræði kennd. Klínísk kennsla fer svo fram á spítölunum, Landspítalanum, Borg- arspítalanum og Landakoti og jafngildir það leiguhúsnæði, þó að ekki sé greidd leiga. Þannig er húsnæði fyrir nemendur í raun ekki fyrir hendi, nema kannski ein kennslustofa í aðalbyggingunni, þar sem inngangsgreinar á 1. ári s.s. líffræði, eðlisfræði og sálarfræði eru kenndar. Hins vegar er sumt leiguhúsnæðið, eins og í Nóatúninu mjög gott.“ - Hvað um aðra kennslu sem heyrir undir læknadeild? „Þar er svipaða sögu að segja. Kennsla á námsbraut í sjúkraþjálf- un er í leiguhúsnæði við Vitastíg, sem búið er að kosta talsverðu fé í að innrétta og hjúkrunarfræðin er til húsa í gamla hjúkrunarskólan- um,“ segir Asmundur. - Hvemig lítur framtíðin út í þessum málum? „Framtíðarsetur læknadeildar- innar verður væntanlega í bygging- um á sameiginlegri lóð háskólans og Landspítalans, þannig að klínísk kennsla verður áfram á sjúkrahús- unum, en vísindalegar rannsóknar- stofur að mestu leyti í byggingum á Landspítalalóðinni og þá líka í byggingum sem eiga eftir að rísa þar. í Byggingu 7 nýja húsinu í mýrinni verður aðsetur kennslu í grunngreinum, en sem stendur er einungis tannlæknadeildin komin með aðsetur þar. Læknadeildinni eru ætlaðar tvær hæðir í Byggingu 7 og vonandi verða þær fullgerðar að mestu á næstu þremur árum. Það er til ijár- magn til að he§a framkvæmdir þar inni og byrjun 1. áfanga verður boðin út nú fyrir áramót. Svo er líklega búið að tryggja fjárveitingu til framkvæmda á næstu þremur árurn." - Hvað um aðstöðu til náms að undanskildu húsnæði? „Það er náttúrulega ljóst að meira þarf til en krít, töflu, borð og stól. Vísindarannsóknir eru deildinni nauðsynlegar og aðstaða tii þeirra, en læknadeildin ber þess merki að byijað var af vanefnum og tækjakostur er mikið til orðin úreltur. Hins vegar er aðstaða á sjúkrahúsunum talsvert góð og læknadeildin nýtur góðs af því að geta nýtt sér gögn og gæði spítal- anna. Ljósi punkturinn í þessum málum öllum, því að við erum nú ekki alsvartsýn fyrir hönd deildar- innar, og að mínu mati það besta sem hefur komið fyrir deildina er fyrirhugað læknisfræðibókasafn í samvinnu háskólans og Landspítal- ans, sem verður í húsnæði gamla hjúkrunarskólans." - Hvað nákvæmlega felur læknisfræðibókasafn í sér? „Það sem ætlunin er að verði í læknisfræðibókasafninu er í fyrsta lagi bókasafn, öðru lagi lestrarað- staða og í þriðja lagi nýsigagnasafn ásamt nýtingaraðstöðu. Þessi að- staða gæfí okkur alla möguleika á að taka upp nútímalegar náms- og kennsluaðferðir með safnið sem miðstöð gagns og gæða og við bind- um miklar vonir við það.“ - Nú hefur komið fram að nám í læknisfræði hérlendis er aðeins byrjunin á öðru og meira námi i sérgreinum sem menn fara í erlendis. Er ráðgert að deildin bæti við sig kennslu í sérgreinum? „Núna fara allir sem útskrifast úr læknadeild í sémám, en kennsla í læknadeild er nær eingöngu miðuð E N D Sögurafdr. Jóni Hjaltatín landlækni Hann var ljúfur í viðmóti, nema við hómópata. Magnús Andr- ésson fékkst nokkuð við hómópata- lækningar, þegar hann var í Reykjavík. Eitt gamlárskvöld, eftir að hann hafði tekið guðfræðiprófíð, flutti hann áramótaræðu í Dóm- kirkjunni. Var hún mjög rómuð, og skóruðu ýmsir kirkjugestir á Magn- ús að gefa ræðuna út á prent. Það var gert. Litlu síðar kom Hjaltalín á skrifstofu biskups. Þá var Magn- ús þar biskupsskrifari. „Komið þér sælir, Magnús minn!“ segir Hjaltalín. „Mikið lof fáið þér fyrir ræðuna yðar. Þér ættuð nú að halda áfram á þeirri braut, en URMINNINGAR sleppa hómópatíunni." Þá svarar Pétur biskup: „Ekki minnkar það Magnús, þó að hann lækni bæði sál og líkama". Dr. Hjaltatín hafði verið læknir í her Dana og átti vopn alla ævi sína. Eitt sinn á efri árum Hjaltalín brá hann sér inn í Hafnarstræti með riffíl í hendi. Nemur hann stað- ar í námunda við hús Sigurðar Melsteðs lektors og tekur að skjóta skáhallt upp í loftið og skýtur nokkrum skotum, og var talið, að sumar kúlumar hefðu lent í stafnin- um á húsi lektors. Maður gekk þar fram hjá, sem Hjaltaiín stóð. Sá ávarpaði hann og spurði, hvað hann væri að skjóta. „Hómópata", svarar Hjaltalín. „Upp í loftið?" segir maðurinn. „Já, ég tek þá á flugi", svarar Hjaltalín. (Eftir frásögn Áma Þórarinssonar) Læknanám á kreppu- árunum Eitt af, sem við áttum að læra í líffærafræði hjá prófessor Guðmundi Hannessyni, var að kryfja lík. Lík voru af skomum skammti til þessara nota og eru það enn, því að nú verða læknastúdent- ar að leggja land undir fót og fara í hópum til Skotlands til að kryfja. Einu líkin, sem læknadeildin gat fengið, vom af algjömm einstæð- ingum, með því skilyrði, að háskól- inn_ kostaði útförina í staðinn. Á öllum námsferli mínum feng- um við aðeins eitt lík til að kryfja. Við voram því margir um það, eða nánar tiltekið allir á fyrsta, öðm ogþriðja ári, átta eða tíu stúdentar. Kmfningin fór fram í litlu húsi vestan við alþingishúsið. Þar var rannsóknastofa prófessors Níelsar Dungals og einnig kompa, sem kmfíð vat í. Þama inni var bæði heitt og þröngt, og við unnum í hálfan mán- uð við að kryfja líkið, hvem einasta vef inn að beinum. Þá var komið að því að „snúa“ sem kallað var. Það þótti merkur áfangi og átti helzt að gerast með viðhöfn. En til þess þurfti brennivín að skála í, og þetta var á bannámn- um. Að lokum tókst okkur þó að fá átta heilflöskur af brennivíni fyrir sjö krónur stykkið í einu af apótek- um bæjarins - og þóttumst góðir. Ég átti víðan frakka og raðaði flöskunum innan í fóðrið á honum. Að því búnu lögðum við af stað drjúgir í spori með hinn dýrmæta feng. Við gengum allir í hóp og ég í miðjunni, svo að enginn sæi nú, hvað ég var orðinn bústinn. Þegar í kompuna kom, röðuðum við okkur í kringum líkið - og ská- iuðum með virktum. Glös höfðum við náttúmlega engin, en létum stútinn ganga frá manni til manns. í miðjum klíðum kemur prófessor Guðmundur inn og segir: „Jæja piltar mínir! Hvemig geng- ur nú?“ „Þetta gengur ágætlega", svör- uðum við - heldur kindarlegir á svip. En hann saup á með okkur - og úr þessu varð hinn ágætasti gleð- skapur. Síðan kmfðum við líkið að aftan- verðu næsta hálfan mánuðinn, og má nærri geta, hvemig loftið var orðið í kompunni. Ung stúlka, sem starfaði á rannsóknastofunni hjá Dungal, var eitt sinn send til að kalla á einn okkar í síma. Hún opnaði dymar, kom í gætt- ina - og á samri stundu steinleið yfír hana. (Úr endurminningum dr. med. Frið- riks Einarssonar)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.