Morgunblaðið - 12.10.1986, Síða 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
-t
r r
ÍSLANDS
Mörg Ifón í veginum
með ættarskráningu
Rætt við Sturla Friðriksson erfðafræðing
um Erfðafræðinefnd Háskóla íslands
Erfðafræðinefnd Háskóla
Lslands var stofnuð 1965,
en fékk formlega reglugerð
1966. Markmiðið var að
veita forstöðu og
skipuleggja
mannerfðafræðilegar
rannsóknir við Háskóla
Lslands. Nefndin hafði
sjálfstæðan fjárhag og
stjómun frá upphafi ma.
vegna þess að nefndin fékk
ríflegan íjárstyrk utan úr
heimi, aðallega frá
Bandaríkjunum. Fyrst var
það Kjamorkustofnun
Bandaríkjanna sem vehtí
Erfðafræðinefnd styrk en
síðan Orkuráðuneytí
Bandarflganna.
Idag er aðstaða Erfðafræði-
nefndar erfíðari en áður var
því hún nýtur ekki lengur
áðumefndra styrkja en hefur
aðeins úr að spila fjárveitingu
frá íslenska rfkinu. Hún er með
styrk á §árlögum og er aðeins með
lágmarksstarfsemi.
Sturla Friðriksson erfðafræðing-
ur er framkvæmdastjóri Erfða-
fræðinefndar, hann sagði í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins að
meginverkefni nefíidarinnar væri
að koma lýðskrárgögnum, þ.e.
ýmiskonar opinbemm skrám um
m.a. fæðingar, giftingar, dauðsföll
o.fl. í það form í tölvu að hægt sé
að rekja ættir íslendinga, þannig
að bæði sé hægt að fínna forfeður
og áfkomenda einstaklinga eins
langt og skrár ná. Að sögn Sturlu
er nú fyrir hendi í heimildabanka
Erfðafraeðinefndar, sem geymdur
er á disk í háskólatölvunni, slíkar
upplýsingar um íslendinga fædda á
tímabilinu frá 1840 til dagsins í dag
.Skrámar sagði hann misjafnlega
nákvæmar og áreiðanlegar en best-
ar um fólk fætt eftir 1910.
Sturla sagði ennfremur að það
væm mörg ljón í veginum við ættar-
skráningu eftir gömlum kirkjubók-
um og örðugra væri að tengja í
ættir þá sem fæddir væm fyrir
1910. Erfitt væri að rekja óyggj-
andi gamlar heimildir, upplýsingar
um sama einstaklinginn geta t.d.
verið færðar á marga mismunandi
vegu vegna ónákvæmni og misri-
tanna og fleira mætti telja í þeim
dúr. Mikið af tíma starfsfólks*
Erfðafræðinefndar mun hafa farið
i að fullkomna ættarskrána úr þeim
heimildum sem tiltækar em, en þær
em fyrst og fremst ýmsar skrár sem
fengnar hafa verið hjá Hagstofu
íslands, þær skrár hefjast flestar
um 1916. Þá hefur nefndin notað
heimildir úr manntölum m.a. tölvu-
skráð manntalið frá 1910, sem er
mjög fullkomið manntal að sögn
Sturlu, með heimilisfangi og ættar-
tengslum einstaklinga hinnan hvers
heimilis. Einnig hefur nefndin unnið
upplýsingar upp úr kirkjubókum og
tengt þær manntalinu frá 1910.
„Það má segja að þessi tuttugu
fyrstu ár í starfsemi nefndarinnar
hafí farið í að fullkomna ættarskrár
úr þessum gögnum og tengja ein-
staklingana saman í ættartré",
heldur Sturla Friðriksson áfram
frásögn sinni. „Ættartréð er byggt
upp af líffræðilegu einingunni for-
eldrar og bam. Slík ættarskrá fyrir
heila þjóð er varla til nema hér á
landi. Island hefur þótt sérstaklega
hagstætt til að gera svona skrá,
fyrst og fremst vegna þess að hér
eru góðar heimildir um einstaklinga
og vegna þess hvað þjóðin er af-
mörkuð landfræðilega og lítil
hreyfíng inn og út úr landinu. Einn-
ig vegna þess að þjóðin er hæfilega
fámenn til að unnt sé að hafa yfír-
lit yfír skráningu í tölvu, en er þó
,það fjölmenn að hægt er að gera
ýmsar rannsóknir tölfræðilega
marktækar.
Gagn af slíkum skráningum er
bæði ættfræðilegt og félagsfræði-
legt og getur orðið undirstaða að
mörgum rannsóknum á því sviði.
Erfðafræðinefnd hefur einkum beitt
sér fyrir að nota þessi gögn á sviði
mannerfðarfræði og læknisfræði,
t.d. var það eitt af verkefnum erfða-
fræðinefndar að tengja upplýsingar
um blóðflokka þessum lýðskrár-
EGO
EGO-tölvur eru fullkomlega
samhæfðar IBM PC-tölvum
og því getur þú nýtt þér eitt
stærsta hugbúnaðarsafn
heims. EGO ersennilega
besti valkosturinn á PC-tölvu-
sviðinu.
Tveir hraðar: Sami og IBM PC og 70% hrað-
ar • 640 kb innra minni • Grafískur skjár
(720/348) • Tvö disklingadrif, 360 kb hvert - *
• Innbyggö klukka • Samsíöa tengi •Rað-
tengi • Kr. 49.700.-
Tveir hraðar: Sami og IBM PC og 70% hrað-
ar • 640 kb innra minni • Grafískur skjár
(720/348) • 20 mb haröur diskur • Eitt diskl-
ingadrif, 360 kb • Innbyggð klukka • Samsíða
tengi • Raötengi • Kr. 68.900.-
Tveir hraðar: Sami og IBM AT og 33% hrað-
ar • 1 mb minni • Grafiskur skjár
(720/348) • 20 mb harður diskur • 1.2 mb
disklingadrif • Innbyggö klukka • Samsiða
tengi • Raötengi • Kr. 118.000.-
Komið og kynnið ykkur EGO-tölvurnar
GARÐATORG 5, GAKÐABÆ
simi 656510'"
MS DOS 3.2 stýrikerfið, BASIC forrit-
unarmálið, útskriftarforrit fyrir
límmiða, reikningsútskriftarforrit og
ritvinnsluforrit ásamt vönduðu nám-
skeiði hjá Tölvufræðslunni.
Allt þetta fylgir EGO-tölvunni.
AMSTRAD PC W
Locoscript
Námskeið f notkun ritvinnsluforritsins
Locoscript.
Að loknu námskeiði geta þátttakendur
notað forritið hjálparlaust.
Tími: 20. og 21. október kl. 17—20
Fjárhaldsbókhald
Námskeið ínotkun fjárhaldsbókhaldskerf-
isins RÁD frá Víkurhugbúnaði sf.
Að loknu námskeiðinu eru þátttakendur
færir um að nota forritið hjálparlaust.
Tími: 22. og 23. október kl. 17—20.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.
i