Morgunblaðið - 12.10.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
B 17
75 ára
iiiiiiiiin
iiiiiiiiiii
SWPMYNDŒIJR
SÖGU HÁSKÓLANS
1: Stúdentagarða fyrir háskólann var fyrirhugað
að reisa á Skólavörðuholti og unnu stúdentar í
sjálfboðavinnu við að grafa grunn garðanna. Þann
12. nóvember 1928 var þessi mynd tekin þegar
Magnús Jónsson dósent í Guðfrseðideild og síðar
prófessor, var við sjálfboðavinnu ásamt nemendum
sínum. Á myndinni eru í fremri röð f.v. Einar M.
Jónsson, Sigurður Pálsson, síðar prestur á Selfossi
og vígslubiskup, Bergur Bjömsson, síðar prestur
í Stafholti og prófastur, Þorgrímur Sigurðsson,
síðar prestur á Staðarstað og prófastur, Jón Thor-
arensen, síðar prestur í Reykjavík, Magnús Jónsson
dósent og Siguijón Guðjónsson, síðar prestur í
Saurbæ og prófastur. í miðröðinni eru f.v. Garðar
Þorsteinsson, síðar prestur í Hafnarfírði og prófast-
ur, Óskar J. Þorláksson, síðar dómkirkjuprestur f
Reykjavík og prófastur, Jón Þorvarðsson, síðar
prestur í Reykjavík og prófastur og Guðmundur
Benediktsson, síðar prestur á Barði í Fljótum.
Aftast standa svo f.v. þeir Einar Guðnsson, síðar
prestur í Reykholti og prófastur, Jón Jakobsson,
síðar prestur á Bílduda! og Gunnar Jóhannesson,
síðar prestur á Stóra-Núpi og prófastur.
2: Mensa var löngum matstofa stúdenta og þar
tók Bjöm Magnússon þessa mynd.
3: Læknanemar í 1. hluta námsins sjást hér við
líkskurð árið 1925. þeir em f.v. Karl Vilhjálmur
Guðmundsson, Bjöm Bjamason, Gísli Friðrik Pet-
ersen, Stefán Guðnason, Högni Bjömsson, Bjami
Sigurðsson, Jón Steffensen og Valtýr H. Valtýsson.
4: Háskólarektor og prófessorar á tröppum há-
skólabyggingarinnar á vígsludegi háskólans 17.
júní 1940. í fremstu röð f.v. má sjá m.a. Alexand-
er Jóhannesson, háskólarektor, Ágúst H. Bjama-
son, prófessor, Ólaf Lámsson, prófessor, Magnús
Jónsson, prófessor og Sigurð Nordal, prófessor. í
annarri röð f.v. má svo sjá m.a. Benedikt G. Wa-
age, þáv. forseta íþróttasambands íslands, Einar
Ólaf Sveinsson, háskólabókavörð, Jón Hjaltalín
Sigurðsson, prófessor og litlu §ær prófessor Ás-
mund Guðmundsson og prófessor Guðmund
Thoroddsen. Ljósmyndina tók Vignir.
5: Frá vígsluhátíðinni.
6: Þessi ljósmynd er líklega tekin af Guðfræði-
deild háskólans veturinn 1928-29, en á henni má
sjá í tveimur fremstu röðunum f.v. þá Benjamín
Kristjánsson, Einar Guðnason, Kristinn Stefáns-
son, Jón Jakobsson, Einar Sturlaugsson, Þorgrím
Sigurðsson og Óskar J. Þorláksson. Lengst til
vinstri í þriðju röð situr Sigurður P. Sívertsen,
prófessor.
7: Tíu ámm síðar, 1938 leit Guðfræðideildin svona
út, á mynd sem Ólafur Magnússon tók. í neðri röð
f.v. Bjöm Magnússon, dósent, Ásmundur Guð-
mundsson, prófessor, Sigurlaug Bjömsdóttir, stud.
theol., Magnús Jónsson, prófessor, Sigurður Ein-
arsson, dósent og Ragnar Benediktsson, stud.
theol.. Fyrir aftan standa svo stúdentamir f.v.
Stefán Snævar, Árelíus Níelsson, Bjöm Bjömsson,
Sigurður Kristjánsson, Ástráður Sigursteindórs-
son, Guðmundur Helgason og Sigurbjöm Einars-
son.
8: Dregið var í happdrætti háskólans í fyrsta sinn
10. mars 1934, á sviðinu í Iðnó. Það vom tvö
böm sem drógu úr hjólunum, Ingigerður Jóns-
dóttir og Jónas Guðbrandsson, en í öðra dró
Ingigerður númer, en Jónas vinnigsupphæðir í
hinu. Auk þeirra em á myndinni Pétur Sigurðs-
son, háskólaritari og fyrsti framkvæmdastjóri
Háskólahappdrættisins, hægra megin við hann
sitja Sigurður Ólason, lögfræðinur, sem var í happ-
drættisráði og Jörgen Hansen, starfsmaður
Háskólahappdrættisins og lengst af skrifstofu-
stjóri þess. Lengst til hægri stendur Armann
Jakobsson, þá starfsmaður happdrættisins, en stðar
lögfræðingur og bankastjóri.
I