Morgunblaðið - 12.10.1986, Page 22

Morgunblaðið - 12.10.1986, Page 22
R22 PB ►><>r swiVRi! st auíJAauwvpi?. ornAJfiMUoaow MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986 fclk í fréttum Á myndinni má sjá éinvalalið blaðbera á Blönduósi sem hefur staðið sig með sóma. Aftari röð frá vinstri: Rakel Ýr Jónsdóttir, Auður Hafþórsdóttir, Hafdís Gísladóttir, Snorri Bjarnason umboðsmað- ur og Linda Ævarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ragnheiður Ólafsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Lilja Björk Gísladóttir. Framvarðasveitin á Blönduósi ABlönduósi lauk nýlega átaki til að kynna fólki Morgun- blaðið og í því skyni var blaðið borið í hvert hús á staðnum. Til þess að það væri hægt þurftu blaðberamir að leggja þessu máli lið og auka töluvert við starf sitt allan septembermánuð. Snorri Bjamason, umboðsmað- ur Morgunblaðsins, sagði að þessi kynning hefði gengið mjög vel. Sem þakklætisvott fyrir gott starf sendi Morgunblaðið blaðburðar- bömum ljósbláar, áprentaðar peysur með nafni blaðsins og mynd af Högna hrekkvísa. Það má segja um blaðbera- starfíð að það sé í senn ábyrgð- armikið og bindandi starf. Blaðburðarbömum er falin inn- heimta og þar með fjármála- ábyrgð, og þau þurfa að koma blaðinu til áskrifenda hvemig sem viðrar, flesta daga vikunnar, eins fljótt og kostur er. — Jón Sig. ssabljtA Bítillinn Paul McCartney hefur skorið upp herör gegn notkun vímuefna. McCartney berst gegn vímugjöfum Paul McCartney hefur snúið baki við hvers kyns vímugjöf- um og hefur hann nýlega komið fram í fjölmiðlum þar sem hann varar við þeim hættum sem neysla áfengis og eytulyfja hefur í for með sér. Sérstaklega varar hann við neyslu heróíns sem hann segir hafa leitt marga kunningja sína í glötun og nefnir sem dæmi söngvarann Boy George. Sjálfur segist McCart- ney aldrei hafa neytt heróíns. Paul McCartney bendir hins veg- ar á að það sé hæpin stefna að banna sum vímuefni á meðan önn- ur, þ.e.a.s. áfengi og tóbak, hljóti blessun og samþykki stjómvalda. Hann varar einnig við afleiðingum þess að senda ungt fólk sem verður uppvíst að notkun ólöglegra vímu- gjafa í fangelsi þar sem líklegt er að þau kynnist þar sterkum efnum og leiðist út í glæpi. Bftillinn fyrrverandi hefur lengi verið hlynntur lögleiðingu kanna- bisefna og var m.a. stungið í fangelsi í Japan 1980 með mari- huana í fómm sínum. McCartney skýrir þessa breyttu afstöðu sína með því að hann sé orðinn eldri og reyndari og sá heimur sem unga fólkið lifír í nú sé harðari og mis- kunnarlausari en fyrir tuttugu árum. COSPER -10ZM COSPER - Þetta er ekki fótspor, fíflið þitt. Priscilla í hjóna- bandshugleiðingum? PPriscilla Presley er nýkomin úr tveggja vikna ferð til Brasilíú, en þar var hún ásamt elskhuga sínum, Marco Garibaldi, sem er ættaður frá Brasilíu. Garibaldi, sem er tíu árum yngri en Priscilla, er yfír sig ástfanginn af leikkonunni og mun hafa beðið henn- ar margsinnis, en þau kynntust í fyrra þegar þau léku saman í Dallas-þáttunum. Talið er líklegt að Priscilla, sem ekki hefur gift sig aftur eftir að Elvis féll frá, láti að þessu sinni til leið- ast og taki bónorðinu, enda mun henni ekki veita af stuðningi nú, þar sem dóttir hennar, Lisa Maria, er lent í klónum á sértúarsöfnuði. Priscillu er mikið í mun að bjarga dóttur sinni úr höndum safnaðarins enda er talið víst að það sé einkum arfurinn sem hin 18 ára gamla Lisa á í vændum sem söfnuðurinn er á höttunum eftir. Priscilla Presley ásamt vonbiðli sínum, Marco Garibaldi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.