Morgunblaðið - 12.10.1986, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 12.10.1986, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986 B 29 Póst- og símamálastofnunin: FRÁ BLAÐAFULLTRÚA í Velvakanda 23. sept. sl. birtist athugasemd frá Fjólu Jóhannsdótt- ur, Austurbrún 6, þar sem hún kvartar yfír því að hafa árangurs- laust leitað til Pósts og síma í því skyni að fá gert við síma sem hún keypti á fijálsum markaði. Spyr hún í framhaldi af þessu hvemig standi á því að ekki sé hægt að fá gert við síma sem stofnunin hiki samt ekki við að taka af ýmis gjöld. Einn- ig bætir hún við að þegar umræddir símar hafi komið til landsins hafi þeir ekki verið með innstungur fyr- ir íslenskt kerfí. Hún hafí þá reynt að fá keypta rétta innstungu hjá Pósti og síma, en verið neitað um hana af sömu ástæðu og henni var neitað um viðgerð símans, þ.e.a.s. vegna þess að hann var ekki keypt- ur hjá stofnuninni. Það skal upplýst að ekki eru greidd gjöld til Pósts og síma af venjulegum símtækjum. Fyrir við- gerð þeirra er að sjálfsögðu greitt. Varahlutir og viðgerðaþjónusta Pósts og síma hvað varðar símtæki miðast við að tækin séu keypt hjá stofnuninni. Þegar bilun verður á símtæki ætti notandi að snúa sér til réttra aðila sem eru söluaðilar viðkomandi búnaðar. Seljandi þarf að ganga þannig frá tengingu símtækisins að hún samræmist al- Grettir — Réttir Mikið heyrist nú skrafað um nýtt fyrirbæri í sambandi við frjálsar sjónvarpsútsendingar og „Stöð 2“. Er þar rætt annars vegar um búnað sem afskræmir myndina hjá þeim sem ekki eru áskrifendur og liggur því beint við að kalla „gretti“ og svo hins vegar tæki til að rétta myndina af, sem sumir vilja kalla afréttara, en mætti einfaldlega kalla „rétti“ (réttir, rétti, rétti, rétt- is). Fleygi þessu svona fram til um- hugsunar. Kveðja til leiðtoganna Gorbachev. Reagan og Reylqavik, rödd sem um heiminn fer. Hvisli þeim b!ærinn,vaggi þeim aldan i kyrrðinni hér, hugrekki til að fagna þeim friði er frelsinu ber. Gorbachev, Reagan og Reykjavík, réttið mér friðarhönd, vekið i hjartanu vonarsól hún vaki við vonarströnd hvert einasta heimsins byggða ból blessa þau tryggðarbönd. Gorbachev, Reagan og Reykjavík, rauði loginn sem brann verði raunanna rökkur saga, er réttlætir engan mann, látið andann frá Íslandi sldna yfír hin stóru höf svo böm vorrar framtíðar finnist ei grátin á feðranna gröf. Gorbachev, Reagan og Reykjavík, regn yfir landið fer minnir á það að máttarvöldin mönnunum stærra er. Þó er af höndum heimsins manna höggvin í lífið skörð, semjið nú um það böl að banna svo birti á guðs mins jörð. Islenskur bóndi S.H. menna símakerfinu. í þessu sambandi er nauðsynlegt að minna á skyldur innflytjenda, en um þær má lesa í Reglugerð um notenda- búnað til teningar við hið opinbera fjarskiptakerfí (31. júlí 1985). í 5. gr. III. kafla segir m.a.: „Innflytjandi eða innlendur fram- leiðandi skal ábyrgjast viðhalds- þjónustu fyrir þann búnað sem hann ílytur ínn eða íramleiðir. í þessum tilgangi skal hann ávallt hafa í þjón- ustu sinni starfsfólk með tilskilin réttindi, sem nánar eru skilgreind í VII. kafla reglugerðar þessarar eða gera skriflegan samning við þjónustufýrirtæki, sem hefur slíku starfsfólki á að skipa.“ Jóhann Hjálmarsson, blaða- fulltrúi Póst- og símamála- stofnunar. Það er reynt að rétt- læta f óstureyðingar Kristján Baldursson, Akur- eyri, skrifar. Ágæti ritstjóri Velvakanda. Vegna athugasemdar yðar um pistil minn Málssvari hins þögula hóps, langar mig að fá að koma á framfæri eftirfarandi: Í fyrsta lagi var það vfðs fjarri huga mínum að særa nokkum mann með orðum mínum. En þar sem um er að ræða málefni, háal- varlegt og hræðilegar staðreyndir sem gerast í fóstureyðingum, bæði hjá okkar þjóð og öðrum, þá valdi ég þessi sterku orð málinu til áherslu. Einnig vegna þess að mér fínnst ákveðin tilhneiging svæfa umræður um málið og ýta því und- ir teppið. Eins er reynt að réttlæta þessar aðgerðir. Þetta slævir sið- gæðisvitund manna. Eg talaði undir fullu nafí og vitn- aði í orð Páls postula og lagði út af þeim. Ég klikkti út með nokkrum fullyrðingum sem em mín sannfær- ing. Ég tel mikla nauðsyn á því að almenn hugarfarsbreyting verði til þess að hægt verði að snúa frá helstefnu til lífsstefnu áður en það verður um seinan. Með þökk fyrir birtinguna. Þessir hringdu . . Er kötturinn þinn týndur? Elín hríngdi: Hjá mér hefur dvalið svart- flekkóttur köttur síðan á mánu- daginn síðasta. Hann er með rauða ól um hálsinn en enga aðra merkingu. Kötturinn er á besta aldri, hálfstálpaður, en hængurinn er að honum semur illa við heimil- isköttinn, sem ekki getur liðið neinar boðflennur. Það má því segja að hér á heimilinu hefur ríkt stríðsástand í heila viku. Ég vona því heitt að þessar línur nái augum eiganda kattarins og hann beiji upp á hjá mér að Álfhólsvegi 39. Síminn hjá mér er 4 18 30. Hver fann veskið ? Veski tapaðist fyrir utan Versl- unarskóla íslands eftir málfund þar föstudaginn 3. október sl. í veskinu voru, auk skilríkja, ávís- anir sem ekki fást innleystar í banka. Ef einhver kynni að hafa fundið veskið, er hann, eða hún, beðin(n) að hafa samband við eig- andann í síma 18044. Fundar- launum er heitið. Pétur og Bjartmar æöislegir Dísa hríngdi: Ég vil skila æðislegu þakklæti til Péturs og Bjartmars sem heim- sóttu okkur hér í Breiðholtsskóla. Þeir eru frábærir. Efla ber sem mest tengsl Bandaríkjanna og íslands Þórunn hringdi: Grein Péturs Guðjónssonar, sem birtist á dögunum í DV, hef- ur vakið miklar umræður og deilur. Mér fínnst hann setja fram algjörlega óraunhæfar hugmynd- ir, við eigum ekki að verða friðlýst þjóð. Við eigum þvert á móti að reyna að koma okkur sem best við Bandaríkin því við færum ábyggilega á hausinn ef þeir hættu að kaupa fískinn af okkur. Og vitaskuld njótum við öryggis vegna nærveru bandarísku her- mannanna hér á landi. Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til - eða hringja milli kl. 11 og 12, mánudaga til fostudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfti, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Einar Gíslason, forstöðumaður Fíladelfiu og Kjell Samuelsson með viðurkenningarskjalið. Viljum vinna að friði á grund- velli trúar, vonar og kærleika - segir Kjell Samuelsson HÉR á landi er nú staddur í fimmta sinn, á vegum Fíladelfíu- safnaðarins, svíinn Kjell Samu- elsson og mun hann predika og syngja í Fíladelfíu í kvöld, sunnu- dagskvöld kl. 20.00. Einnig mun Kjell í þessarí íslandsheimsókn afhenda Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, skjal frá stofnun- inni „Ankar-korset“, í Svíþjóð, en hann er stofnandi og forseti hennar. „Við viljum vinna að friði á grundvelli trúar, vonar og kærleika, sem við táknum með akkeri, krossi og hjarta", sagði Kjell Samuelsson í samtali við Morgunblaðið. „Við teljum, að þetta þrennt sé grun- dvöllur mannlegrar tiiveru. Á skjalinu sem ég mun afhenda Vigdísi Finnbogadóttur em þessi þijú tákn, akkerið, krossinn og hjartað en einnig textinn við lag sem ég hef samið og verður líklega sungið í fyrsta skipti á friðarfundin- um á Lækjartorgi í dag. Þetta lag kemur síðan út á plötu í næstu viku bæði á ensku og rússnesku. Ég hef einnig látið búa til viður- kenningarskjöl fyrir Reagan og Gorbachev og hefur texti lagsins verið þýddur yfir á rússnesku og ensku á þeim. Ég veit þó ekki hvort ég fæ tækifæri til þess að afhenda þeim þau núna“. SJÁLFSTÆÐISMENN REYKJAVÍK! RÚNAR Á ÞING Kosningaskrifstofa, Klapparstíg 26 e.h. s. 28843. Háskólabíó kynnir ný myndbönd með íslenskum texta Verndarinn Hörku spennumynd um lögreglu- mann frá New York, sem lendir í baráttu við alþjóðlegan eitur- lyfjahring. Aöalhlutverk Jackie Chan. Hin hraðfleygu ár Vinirnir eru í kappi við tímann. Það er stríð og herþjónusta bíður piltanna, en fyrst þurfa þeir að sinna áhugamálum sínum, stúlk- um... tSU HSKUH TEXTt Til varnar krúnunni Það byrjaði sem hneykslismál en varð brátt að lífshættulegum lygavef. Einn maður kemst að hinu sanna en fær hann að halda lífi nógu lengi til að koma því á prent...

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.