Morgunblaðið - 12.10.1986, Qupperneq 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
n
tc If MI rVrMyNDANNA
MÁNUDAGSMYNDIR:
Gamli, góði
Htchccck
Eitt af því fyrsta sem
verður á dagskrá mánu-
dagsmyndadeildar Regn-
bogans í vetur er syrpa
með Hitchcock-myndum
frá fjórða áratugnum, sem
hann gerði áður en hann
flutti til Bandaríkjanna í
upphafi þess fimmta.
Myndirnar sem sýndar
verða eru: Þrjátíu og níu
þrep (The Thirty-Nine
Steps, 1935), Skemmdar-
verk (Sabotage, 1937),
Konan hverfur (The Lady
Vanishes, 1938) og Frótta-
rítarinn (Foreign Corre-
spondent, 1940).
Ferill Alfreds Hitchcock
hófst í Bretlandi á þriðja
áratugnum en það var ekki
fyrr en hann gerði sex þrill-
era eða spennumyndir í röð
á fjórða áratugnum hjá Lime
Grove-kvikmyndaverinu fyr-
ir Gaumont-félagið og
Gainsborough Pictures, aö
hann gat sér nafn sem frá-
bær leikstjóri um víða
veröld. Myndirnar sex voru:
Maðurinn sem vissi of mikið
(The Man Who Knew Too
Much, 1934), Þrjátíu og níu
þrep, Njósnarinn (The Secr-
et Agent, 1936), Ung og
saklaus (Young and Innoc-
ent, 1937) og Konan hverf-
ur. Þrjár þessara mynda
verða sýndar í Regnbogan-
um eins og áður sagði og
Fréttaritarinn að auki.
Michael Balcon fram-
leiddi Þrjátfu og nfu þrep
en handritið gerðu Alma
Reville og Charles Bennett
eftir skáldsögu John Buc-
han. Með aðalhlutverkin
fóru Robert Donat og Mad-
eleine Carrol en meðal
annarra í henni má nefna
Peggy Ashcroft. Myndin
segir frá Richard Hannay
sem situr eitt kvöld í leik-
húsi í London og fylgist með
skemmtiatriði þegar allt i
einu heyrist skothvellur og
fólk rýkur á fætur. Á leið
sinni út rekst Hannay á
unga konu sem spyr hvort
hún megi verða samferða
honum. Um nóttina er kon-
an myrt í íbúðinni hans og
Hannay flækist í leit að al-
ræmdum njósnara og
verður um leið að hreinsa
sig af morðákæru.
Skemmdarverk er einnig
framleidd af Michael Balcon
en handritið gerði Charles
Bennett eftir sögu Joseph
Conrad, sem hét Njósnar-
inn (The Secret Agent). Með
aðalhlutverk í henni fara
Sylvia Sydney, Osar Ho-
molka og Desmond Tester
en myndin segir frá bíóstjór-
anum Verloc og ráðagerð-
um hans og útlenskra
ofstæismanna um að eyði-
leggja neðanjarðarlestar-
kerfi Lundúnaborgar. Verloc
er falið að skilja eftir
sprengju á Piccadilly Circ-
us-stöðinni en svo gerist
það að sprengjan springur
í höndunum á ungum sendi-
sveini í strætisvagni á leið
á stöðina og fjöldi fólks
deyr.
Konan hverfur var fram-
leidd af Edward Black en
handritið skrifaði Sidney
Gilliat og Frank Launder og
er það byggt á sögu Ethel
Lina White. Með helstu hlut-
verk í myndinni fara
Margaret Lockwood, Mic-
hael Redgrave og Basil
Radford, en myndin gerist
að mestu um borð í lest þar
sem ung stúlka á leið úr
sumarfríi kynnist góðlegri,
miðaldra breskri konu, sem
hverfur á dularfullan hátt
þegar líður á ferðalagið.
Stúlkan reynir að komast
að því hvernig á hvarfinu
stendur en fólk segir hana
ímyndunarveika og að það
hafi aldrei séð neina eldri
konu með henni. Loks
kemst hún næstum á þá
skoðun að fólkið hafi rétt
fyrir sér en frekari rannsókn
leiðir annað í Ijós.
Og að lokum er það
Fréttaritarinn. Framleið-
andi hennar var Walter
Wanger en handritið skrif-
uðu þau Charles Bennett,
Joan Harrison, James Hilton
og Robert Benchley eftir
sögu Vincent Sheean. Með
aðalhlutverkin í myndinni
fara Joel McCrea, Laraine
Day, Herbert Marshall,
Harry Davenport, Qeorge
Sanders og Robert Benc-
hley. Bandarískur frétta-
maður er sendur til Evrópu
og lendir þar í hættulegum
njósnamálum. Fréttaritar-
inn var áróðursmynd en
síðasta orðræðan í henni
er hvatning til Bandraíkja-
manna um að taka þátt í
stríðinu gegn Þjóðverjum.
Áróðursmeistari Hitlers,
Josep Göbbels, sagði um
þessa mynd Hitchcock: Frá-
bær áróðursmynd, fyrsta
flokks framleiðsla sem á án
efa eftir aö hrífa fólk í óvina-
löndum. Time sagði hana
eina af bestu myndum árs-
ins 1940.
Kærleiksbirnirnirfara í
leiðangurtii að losa heim-
inn við hinn llla anda, sem
lætur alla krakka líða illa.
á þeim. Þegar þeir eru allir
samankomnir má finna í
þeim allar þær jákvæðu og
mannlegu tilfinningar sem
til eru. Hér eru nokkur
dæmi:
Knúsarinn: Hann getur
aldrei stillti sig um að faðma
þá að sér sem í kringum
hann eru.
Heppni-björn: Hann er
heppnastur allra og til merk-
is um það er fjögurra blaða
smári framan á honum.
Afmælis-björn. Hann sér
um að allir eigi skemmtileg
afmæli.
Vina-björn. Hann ber
blóm á maganum og ef þú
ert vinalaus er hann
skammt undan.
Óska-björn. Hann sér um
að draumar þínir rætist.
Og svona mætti lengi
telja. Leikstjóri þessarar
teiknimyndar eru Arna Selz-
nick en hún er aðeins þriðja
konan í allri kvikmyndasög-
unni, sem leikstýrir teikni-
mynd í fullri lengd, eftir því
sem segir í kynningu með
myndinni. Hinar tvær voru
Lotta Reiniger frá Þýska-
landi sem leikstýrði Ævintýri
Ahmed prins árið 1926 og
Joy Batchelor frá Bretlandi,
sem gerði Ruddigor árið
1966.
vinum ef hann bara opni
fyrir sig töfrabókina og gefi
sér frelsi. Og það gerir Nik-
ulás og llli andinn fær hann
í lið með sér til að fjarlægja
alla ást og hlýju af jörðinni.
Þá fara Kærleiksbirnirnir
af stað að bjarga málunum
en það gengur ekki vel hjá
þeim í fyrstu. Þeir viilast og
lenda í undarlegu landi sem
kallst Tilfinningaskógurinn
en sem betur fer búa þar
frændur þeirra og þeir sam-
einast í baráttunni gegn
hinum llla anda.
Svona er sagan í banda-
rísku teiknimyndinni Kær-
leiksbirnirnir sem
Austurbæjarbíó er nýbyrjað
að sýna. Kærleiksbirnirnir
urðu til árið 1981 og hver
þeirra um sig er búinn einni
ákveðinni tilfinningu eins og
væntumþykju, von, gleði
eða vinskap og merki þess
má sjá framan á maganum
Kærleiksbirnirnir
í Austurbæjarbíói
Kærleiksbirnlrnir týnast f
Tilfinníngaskóginum með
vinum sínum Kim og Jason
og lenda í ýmsum hættum.
Langt uppi yfir jörðinni,
i Kærleikslandinu, búa
Kærleiksbirnirnir. Þaðan
fylgjast þeir með því fólki
á jörðinni sem þarfnast
ástar og umhyggju og
þannig er ástatt um mun-
aðarlausu systkinin Kim og
Jason. En í fyrstu berjast
þau á móti góðvild Kær-
leiksbjarnanna þar til þau
fiytjast á dularfuilan hátt
upp í Kærleikslandið að
þau verða full af hlýju og
ástúðlegum tilfinningum.
Á meðan það gerist er
ungur aðstoðartöframaður,
sem heitir Nikulás, svo
óskaplega einmanna og
vinalaus að hann lofar að
gera hvað sem er til að eign-
ast vini. Áður en Kærleiks-
birnirnir ná til hans heyrir
hann rödd úr svartri töfra-
bók í bókasafni töframanns-
ins en það er rödd sem
tilheyrir hinum llla anda. Illi
andinn lofar Nikulási því að
hann muni eignast fullt af