Morgunblaðið - 12.10.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 1986
B 31
Sean Connery
Þrjátíu ára leikferill
Sean Connery heldur upp á
þrjátíu ára leikferil þessa dag-
ana. Sean, sem ólst upp í
fátækrahverfi í Skotlandi, varð
víðfrægur snemma á sjöunda
áratugnum fyrir að leika James
Bond. Þá var kappinn orðinn
þrítugur og hafði lengi reynt fyrir
sér í kvikmyndum.
James Bond-ævintýrið hótst
nokkru eftir að hann var kosinn
best vaxni karlmaður í Skot-
landi. Sean hafði þá nýlega
fengið áhuga á leiklist en tók
hana samt ekki alvarlega. Eng-
inn veit með vissu hvers vegna
Sean var boðið að leika James
Bond, en leikritaskáldið Noel
Coward hafði afþakkað boðið
og hvatti Sean til að taka því;
Noel taldi sig ekki þurfa frekari
staðfestingu á eigin ágæti. Svo
Sean þekktist boðið og fyrsta
myndin með James Bond, sem
hét Dr. No var tekin til sýninga
árið 1963. Bond varð fljótt vin-
sæl bíómyndapersóna og Sean
naut sín vel í hlutverkinu; hver
myndin rak aðra: Goldfinger,
From Russia With Love, Thund-
erball, You Only Live Twice, og
Demantar eyðast aldrei, sem var
síðasta myndin um Bond sem
Sean lék í, gerð árið 1971. Sean
fékk greidda eina milljón dala,
sem var gífurlegt fé í þá daga,
en hann gaf það allt til eflingar
menntamála heima hjá sér í
Skotlandi.
Sean Connery hafði meiri
metnað en að leika sömu per-
sónuna ár eftir ár. Hann lék
meira að segja í nokkrum mynd-
um milli þess sem hann lék
Bond, en þær myndir voru eins
ólíkar Bond-myndunum og
hugsast gat. Meðal þeirra voru
The Hill eftir Lumet og The
Molly Maguires eftir Ritt, en sú
síðarnefnda fjallaði um verka-
lýðsbaráttu í námahéraði;
hvorug naut vinsælda meðal al-
mennings, en sýndu að Sean
Connery gat leikið. Hann var
ákveðinn í að hætta við James
Bond, þrátt fyrir girnilegt boð frá
framleiðandanum Broccoli, sem
fékk George Lazenby til að leika
Bond, með hræðilegum árangri,
en það var svo árið 1973 sem
Roger Moore tók við. Sean tók
síðan aftur til við Bond tíu árum
síðar, þegar hann át ofan í sig
loforð þess efnis að segja aldrei
aftur aldrei.
Sean réðst þegar í stað á bita-
stæðari kvikmyndahandrit en
formúlan um Bond leyfði. Sean
var yfirleitt heppinn með val hlut-
verka, hann lék með mörgum
merkum leikurum, Michael
Caine í „Kóngur vildi hann
verða", og Audrey Hepburn í
mynd um Hróa hött á efri árum,
og mörgum fleiri, undir leikstjórn
ekki ómerkari stjóra en Lumet,
Borrman, Huston, Attenborough
og Fred Zinnemann.
Tónabíó hefur undanfarnar
vikur sýnt nýjustu mynd kapp-
ans, Hálendinginn, sem að vísu
telst ekki Connery-mynd, en sýn-
ir þó að Sean Connery er enn í
fullu fjöri, og stendur sig mun
betur en flestir jafnaldrar hans.
Hann lauk fyrir skömmu við að
leika í Nafni rósarinnar, sem
gerð er eftir samnefndri sögu
Umbertos Eco. Leikstjórinn er
franskur, Jean-Jacques Annaud,
sá hinn sami sem gerði „Leitina
að eldinum". Sean leikur ViL
hjálm, einkaspæjara á miðöld-
um, sem kemur í ítalskt klaustur
og er fenginn til að leysa morð-
gátuna óleysanlegu, en með
honum leikur enginn annar en
F. Murray Abrahams, sem lék
Salieri i kvikmyndinni „Ama-
deus". Nafn rósarinnar verður
frumsýnd síðari hluta ársins og
gæti orðiö jólamynd Háskóla-
bíós.
Sean Connery í Hálendingnum.
af Casio hljómborðum, synthesizer-
um og fylgihlutum (RZ-1 trommuheili,
SZ-1 sequencer) í okkar rúmgóðu
nýju verslun að Laugavegi 26.
CASIO
— umboðið,
Laugavegi 26.
Sími 91-21615.
STÆRSTU OG GLÆStLEGUSTU TÖLVUSÝNINGU
SEM HALDIN HEFUR VERIÐ Á ÍSLANDI
LÝKUR í KVÖLD KL. 22.00
(fyrsta skipti á íslandi eru öll stærstu
tölvu- og hugbúnaðarfyrirtækin saman
komin á einum stað. Meira en 40
aðilar sýna, á u.þ.b. 1700 m2 sýningar-
svæði, allt það nýjasta sem tölvutækn-
in býður.
Sýningargestir fá tækifæri til að kynn-
ast tölvum og hugbúnaði af eigin raun
í „Skjáverinu“. Þar gefst einnig tæki-
færi til að reyna hæfileika sína í
æsispennandi og skemmtilegum leik
sem nefnist „dulrænir hæfileikar“.
Verðlaunin eru LASER PC tölva frá
Gunnari Ásgeirssyni og aukavinn-
ingar.
Pétur Hjaltested tónlistarmaður heldur
tónleika á u.þ.b. klukkustundar fresti
og leikur eingöngu á tölvur.
Sérfræðingar halda fyrirlestra um mál-
efni sem tengjast tölvum í íslensku
þjóðlífi.
Aðgöngumiðinn er jafnframt happ-
drættismiði.
Verðlaunin eru glæsileg: VISO PC
töiva, helgarferð fyrir tvo til Húsavíkur
með Flugleiðum, tölvunámskeið hjá
Stjórnunarfélaginu og Framsýn o.fl.
Missið ekki af einstæðri sýningu!
Fyrirlestrar dagsins:
Stórkostleg sýnlng - frœðandi og skemmtileg
Tölvusýning í Borgarleikhúsinu
8.-12. október.
augljós