Morgunblaðið - 15.10.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986 B 7
Leggst
vel í mig
- segir Brynjar Kvaran þjálfari KA
Spái
okkur
sjötta
sæti
- segir Friðjón Jóns-
son fyrirliði
„VETURINN leggst þokka-
lega í mig þó svo við
byrjuðum ekki vel en fyrsti
leikurinn var ekki marktæk-
ur á okkar getu. Ég spáði
okkur í 6. sæti og ætla að
standa við það — að
minnsta kosti eitthvað fram
eftir vetri," sagði Friðjón
Jónsson fyrirliði KA.
„Ég á von á skemmtilegu
móti í vetur. Liðin virðast vera
frekar jöfn að getu og það er
að minnsta kosti ekkert lið sem
er áberandi lakast. Á topinn
líst mér einna best á Stjörnuna
sem sigurvegara. Þeir eru með
góðan mannskap og hafa leikið
lengi saman þannig að þeir
ættu að vera með eitt þróað-
asta liðið, ef svo má að orði
komast.
Við KA-menn treystum
meira á heimaleiki okkar því
það er traustur og góður kjarni
áhorfenda sem kemur til að
fylgjast með leikjum fyrir norð-
an og við erum að vonast til
að Norðanmenn sem búa hér
í bænum fjölmenni á leiki okkar
hér.
Liðið hjá okkur er eingöngu
byggt upp á heimamönnum,
nema hvað Brynjar þjálfari er
ekki frá Akureyri, og í liðinu
eru margir ungir strákar sem
eiga ýmislegt eftir ólært en
eiga eftir að vera í þessu í
mörg ár.
Sigur okkar hér gegn FH í
dag (laugardag) var mjög mikil-
vægur fyrir okkur og hann
þjappar okkur enn betur sam-
an sem liði," sagði Friðjón
fyrirliði KA.
9 Sigfús Karlsson
9 Gisli Heigason
9 Pétur Bjarnason
9 Jón Kristjánsson
9 Jóhannes Bjarnason
„ÞETTA mót leggst bara vel
í mig, að minnsta kosti í
dag,“ sagði Brynjar Kvaran
þjálfari og markvörður KA-
manna er við ræddum við
hann eftir sigurinn gegn FH
i Hafnarfirði á laugardag-
inn.
„Ég held að þetta mót geti
orðið tvísýnt og spennandi og
ég held til dæmis að við hjá
KA getum tapað fyrir öllum lið-
unum, en við getum líka unnið
þau öll á góðum degi og þetta
á við um flest liðin. Það eru
mörg lið áþekk að getu og því
er það dagsformið fyrir hvern
leik fyrir sig sem skiptir höfuð-
máli.“
Ég kann vel við mig sem
þjálfari," sagði Brynjar er við
spurðum hann hvernig það
væri að þjálfa en þetta er í
fyrsta sinn sem hann þjálfar í
meistaraflokki þó svo hann
hafi þjálfað mikið í yngri flokk-
unum.
„Það eru einnig mikil við-
brigði að vera úti á landi. Út
frá þjálfuninni er það verra en
að vera í Reykjavík því það er
miklu meira mál að fá æfinga-
leiki og að auki má segja að
við séum eina liðið sem leikur
raunverulega á útivelli því hin
liðin hafa leikið það marga leiki
í öllum húsunum hér fyrir sunn-
an. Á móti kemur að vísu að
við erum með sterkan heima-
völl og ég vona að KA-menn
fjölmenni á leikina í vetur og
hvetji liðið, sama hvort við leik-
um fyrir norðan eða hér í
bænum.
Ef strákarnir koma til leiks
með sama hugarfari og þeir
gerðu í leiknum gegn FH um
helgina þá er ég viss um að
við getum reitt nokkur stig hér
fyrir sunnan og heima ætlum
við að fá enn fleiri stig," sagði
Brynjar að lokum.
9 Halldór Jóhannsson
9 Gunnar Gíslason
9 Anton Pétursson
9 Guðm. Guðmundsson
Axel Bjömsson
9 Eggert Tryggvason
9 Friðjón Jónsson
9 Hafþór Heimisson
KA Aldur Hnð Þyngd FyrriliA Mfl. leikir Lands- leikir A/ungl. Staðaé lelkvelli Atvinna
BrynjarKvaran 28 1,86 83 kg Vahir/KR/Stjaman 82/9 markvörður þjálfari
Sigfús Karlsson 21 1,87 82 kg Þór markvörður bankamaður
Gísli Helgason 23 1,80 80 kg • markvÖrður bifreiðastjóri
FriðjónJónsson 26 1,89 84 kg KA/HK 126 útispilari mjólkurfr.
Jón Kristjánsson 19 1,89 87 kg 68 0/9 útispilari nemi
Anton Pétursson 19 1,86 72 kg 35 útispilari nemi
GunnarGíslason 25 1,78 89 kg KA/KR 12/15 útispilari íþróttakennari
SvanurValgeirsson 17 1,89 76 kg 7 útispilari nemi
PéturBjamason 22 1,85 78 kg 69 útispilari bflasali
Guðmundur Guðmundsson 24 * 1,93 97 kg 121 línumaður skrifstofumaður
HafþórHeimisson 20 1,84 78 kg 66 línumaður nemi
Axel Bjömsson 19 1,86 83 kg 16 0/2 homamaður nemi
Jóhannes Bjamason 24 1,75 75 kg KA/Grótta 64 homamaður íþróttakennari
Eggert Tryggvason 20 1,88 78 kg 5 homamaður blaðamaður
Halldór Jóhannsson 26 1,83 76 kg KR 7 homamaður landslagsark.
Þorleifur Ananíasson 37 1,82 66 524 homamaður skrifstofumaður