Morgunblaðið - 15.10.1986, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1986
B i
STJARNAN $
Liðsheildin
okkar
sterkasta
vopn
- segir Páll Björgvinsson þjálfari
„ÞAÐ er nú búið að gera
okkur að íslandsmeisturum
fyrirfram og það er ailtaf
erfitt að standa undir því, “
sagði Páll Björgvinsson,
þjálfari Stjömunnar. En í
könnun sem gerð var meðal
þjálfara og leikmanna 1.
deildarliðanna var Stjöm-
unni spáð sigri í mótinu.
„Ég hef trú á því að þetta
verði skemmtilegt mót því það
eru mörg jöfn lið í deildinni nú.
Það er þó slæmt að í upphafi
mótsins komi upp mál eins og
frestunin á leik Fram og KR
vegna leiðtogafundarins."
„Um baráttuna í vetur held
ég aö það verði þrjú lið sem
koma til með að berjast um
meistaratitilinn, Víkingur, Valur
og vonandi við. Mér sýnist það
eftir fyrstu leikina að Ármann
og Haukar séu á góðri leið nið-
ur í 2. deild aftur."
„Liðsheildin verður sterk-
asta vopn okkar í vetur. í liðinu
er mikil breidd og enginn einn
sem skarar framúr og geta
flestir hlaupið í hvaða stöðu
sem er. En aðalhættan er sú
að leikmenn séu full bjarsýnir
• Einar einarsson
• Hermundur Sigmundss.
9 Sigmar Þ. Óskarsson
• Agnar Róbertsson
9 Halldór Kjartansson
9 Jónas Þorgeirsson
svona í upphafi móts. Þaö get-
ur farið illa ef menn ofmetnast
vegna jákvæðra blaðaskrifa og
spádóma annara leikmanna 1.
deildar."
Páll Björgvinsson þjálfar nú
Stjörnuna í fyrsta sinn, tekur
við af Björgvini Björgvinssyni,
sem nú þjálfar í Noregi. Páll lék
með Víking í fyrra og var þá
íslands- og bikarmeistari með
þeim.
1
9 Sigurjón Guðmundsson
i
# Hafstelnn Bragason
Guðmundur óskarsson
# Magnús Teitsson
# Gytfi Birgisson
# Bjöm Lúövfksson
Gunnlaugur Jónsson
Komum
vel und-
irbúnir
-segir Hannes
Leifsson
fyrirliði
Stjaman Aldur Hmð Þyngd FyrriMð Mfl. lelkir Lands- ieikir Staðaá leikvelli Atvinna
Halldór Kjartansson 19 1,83 83 kg 35 markmaður nemi
Jónas Þorgeirsson 29 1,82 81 kg liðlögreglumanna 4 markmaður lögreghimaður
Sigmar Þröstur Óskarsson 24 1,84 81 kg ÞórVe./KA/Fram 7 1 markmaður skrifstofumaður
Guðmundur Óskarsson 26 1,92 95 kg FH/Þróttur 110 skytta prentari
Siguijón Guðmundsson 22 1,83 75 kg 188 7 homamaður bakari
BjömLúðviksson 22 1,84 79 kg línumaður nemi
Skúli Gunnsteinsson 20 1,83 81 kg 106 línumaður
MagnúsTeitsson 29 1,78 77 kg FH 279 3 línumaður íþróttakennari
Páll Björgvinsson 36 1,82 83 kg Víkingur/KR/Þróttur 7 spilari pípulagningam.
Hermundur Sigmundsson 22 1,91 90 kg 128 4 skytta nemi
Gunnlaugur Jónsson 30 1,86 82 kg Óðinn 189 homamaður lögreglumaður
Gylfi Birgisson 21 1,91 88 kg ÞórVe. 40 skytta lögreglumaður
Hafsteinn Bragason 19 1,71 68 kg 44 homamaður nemi
EinarEinarsson 19 1,89 83 kg 78 1 skytta nemi
Agnar Róbertsson 20 1,80 75 kg 10 homamaður nemi
Hannes Leifsson 30 1,90 88 ÞórVe./Fram 122 3 skytta/spilari lögreghimaður
„ÉG ER mjög bjarsýnn á
gott gengi Stjömunnar f
vetur, annars vœri maður
ekki í þessu. Þetta verður
þö erfftt en við höfum
mannskap tii að takast á við
þetta verkefni, “ sagði
Hannes Leifsson, fyrirliði
Stjörnunnar.
„Við komum vel undirbúnir
til ieiks og hefur Páli Björgvins-
son, þjálfari, komið með margt
nýtt. Hann veit hvað þarf til
að ná árangri og hefur breytt
hugsunarhætti okkar."
„Ég held að við séum sterk-
ari en í fyrra. Þá töpuðum við
fyrir lakari liðunum en unnum
þau sterkari. Nú sem af er
höfum við unnið þau lakari og
vonandi vinnum við þau sterk-
ari í vetur. Nú hafa allir gaman
að þessu og vonandi að þetta
komi hjá okkur í vetur."
„Það verða þrjú lið sem berj-
ast um íslandsmeistaratftilinn
að mínu mati, Víkingur, Valur
og Stjarnan. Baráttan verðum
mikil milli þessara þriggja liða.
Ég vil ekki óska neinu liði falli,
“ sagði Hannes.