Morgunblaðið - 19.12.1986, Side 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1986
HVAD
ERAÐ
GERAST
UM
FÉLAGSLIF
Neskirkja:
Samvera aldraðra
Jólafundur verðurá laugardaginn
kl. 15-17.00. Gestirverða þau Sig-
rún Hjálmtýsdóttir (Diddú), Sigfinnur
Þorleifsson og ungt tónlistarfólk.
Kvikmyndasýning MÍR:
Tvær frétta- og
fræðslumyndir frá
Sovétríkjunum
Nk. sunnudag, 21 .desember
kl. 16., verða sýndartværfrétta-og
fræðslumyndirfrá Sovétríkjunum í
bíósal MÍR að Vatnsstíg 10. önnur
myndin fjallar um fjölskrúðuga al-
þýðulist I fimm sovétlýðveldum:
Lettlandi, Úkraínu, Georgíu (Grúsíu),
Úzbekistan og Rússneska sam-
bandslýðveldinu. Hin myndin er um
þjóðdansaflokk barna ITbilisi, höf-
uðborg Sovétlýðveldisins Georgíu.
Skýringar eru með báðum myndun-
' um á ensku.
Aðgangur að kvikmyndasýning-
um MIR er ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir.
Áhugahópur um bygg-
ingu náttúrufræðihúss:
íslenskur skógur,
náttúrufræðisýning
Desembersýning Áhugahóps um
byggingu náttúrufræðihúss verður
f um íslenskan skóg. Sýningin stend-
urfram til áramóta. Opnunartími er
14-22 daglega nema laugardaga
og sunudaga en þá er opið frá
16-22. Nokkrar minni sýningar
verða settar upp í tengslum við
aðalsýninguna. Aðalsýningin er sett
upp af starfsmönnum Rannsóknar-
stöðvar Skógræktar Ríkisins.
Hlaðvarpinn:
M.H.Í. selur myndir
Myndlista- og Handíðaskóli ís-
lands verður með markað í Hlað-
varpanum fram að jólum. Margt
verður til sölu s.s. litlar teikningar,
vatnslita- og grafíkmyndir, leirmunir,
ýmsirjólamunir, jólakortog kökur.
' Opið virka daga og sunnudaga
frákl.14-18, laugardaga og á Þor-
láksmessu gildir opnunartími versl-
ana.
Ungir sjálfstæðismenn:
Jólaknall
Félög ungra sjálfstæðismanna á
höfuðborgarsvæðinu, Heimdallur
FUS Reykjavík, Baldur FUS Seltjarn-
arnesi, Týr FUS Kópavogi, Huginn
FUS Garðabæ og Stefnir FUS Hafn-
arfirði efna til sameiginlegs jól-
aknalls í Neðri deild Valhallar á
laugardaginn og hefst skemmtunin
kl. 21:30. Allir ungir sjálfstæðis-
mennvelkomnir.
* Hótel Örk:
Hlaðborð, freyðivín
sund og sauna
í vetur hefur verið ákveðið að
hafa svokallaðan „Brunch" að
amerískum sið á Hótel Örk á sunnu-
dögum milli kl. 11 og 15. Orðið
„Brunch" samanstendur af ensku
orðunum breakfast og lunch sem
þýða morgunverður og hádegis-
verður. Hér er um að ræða hlaðborð
með köldum og heitum réttum
j ásamt osti, paté og ávöxtum svo
eitthvað sé nefnt. Þá er kalt
freyöivín, gosdrykkir eða kaffi boriö
fram með hlaðborðinu fyrir þá sem
þess óska. Fleira en hlaðborð og
freyöivín er innifalið í verðinu, því
matargestirfá frítt í sundlaug og
sauna. Helmings afsláttur er fyrir
börn undirfjórtán ára aldri. Fastar
s áætlunarferðirerufarnarfrá Um-
ferðamiðstöðinni til Hveragerðis.
Gott er að panta borð meö fyrirvara
og afsláttur er veittur hópum ef
pantað er með fyrirvara.
Alexvið Hlemm:
Danskur desember
Nú í desember er boðið upp á
klassiska jólarétti á veitingahúsinu
Alex, Laugavegi 126 v/Hlemm.
Þessi danski matseðill verður í boði
allan daginn fram til kl. 18. Einnig
verðurveitingahúsið með „sérvín-
seðil", þar sem í boði eru ýmis
góðvín, sérpöntuð fyrir Alex.
TÓNLIST
Tónlistarskóli Kópa-
vogs:
Jólatónleikar
Seinni jólatónleikar T ónlistarskóla
Kópavogs verða í Kópavogskirkju
sunnudaginn 21. desember, kl.
14.00. Aðgangur er ókeypis og öll-
umheimill.
Bústaðakirkja
Lúðrasveit verka-
lýðsins heldurtón-
leika
Sunnudaginn 21. desember nk.
heldur Lúðrasveit verkalýðsins jóla-
tónleika í Bústaðakirkju og hefjast
þeir klukkan fimm síðdegis. Við
væntum þess að fólk sjái sér fært
að líta smá stund upp úr jólaamstr-
inu og koma á tónleika þessa.
Aðgangurerað vanda ókeypis.
Stjórnandi lúðrasveitarinnar er Ellert
Karlsson.
Hafnafjarðarkirkja:
Kór Öldutúnsskóla
heldurtónleika
KórÖldutúnsskóla heldurjólatón-
leika í Hafnafjarðarkirkju sunnudag-
inn 21. desember kl. 17.00.
Efnisskráin er fjölbreytt og á tónleik-
unum koma fram um 100 nemend-
ur.
GesturkórsinsveröurJónas Ingi-
mundarson, píanóleikari, sem leika
mun nokkur verk eftir meistara slag-
hörpunnar. Stjórnandi Kórs Öldut-
únsskóla er Egill Friðleifsson.
Neskirkja:
Jólasöngvar á
sunnudaginn
Eins og jafnan síðasta sunnudag
fyrirjól er guðsþjónusta með óhefð-
bundnu sniði. Að þessu sinni er það
fjöldi barna sem flytur tónlist. Skóla-
hljómsveit Kópavogs leikur jólalög,
börn úrtónlistarskólanum á Selt-
jarnarnesi leika á hljóðfæri og
smáfólkið úryngsta skóla borgar-
Graf ík í breyttri mynd
Hljómsveitin Grafík kemur nú um helgina fram í fyrsta
sinn í breyttri mynd. Hinir nýju meðlimir hljómsveitar-
innar eru þau Baldvin Sigurðsson, bassaleikari, sem
áður lék með Baraflokknum og Andrea Gylfadóttir,
söngkona. Aðrir í Grafík eru þeir Hjörtur Howser,
hjómborð, Rúnar Þórisson, gítar, og Rafn Jónsson,
trommur. Þessi nýja útgáfa af Grafík mun koma fra
í Tónabæ á föstudagskvöld og í Duus húsi á sunnu-
dagskvöld.
innar, Grandaskóla, syngur. Sigurð-
ur Pálsson cand. theol. flytur
hugleiðingu. Að auki er almennur
söngur og orgelleikur.
Langholtskirkja:
Norsk lúðrasvert
meðtónleika
Um helgina er væntanleg hingað
til lands norsk lúðrasveit, Norges
Nasjonale Ungdomskorps, sem er
á heimleið eftir tónleikaferð um
Bandarikin. Norges Nasjonale Ung-
domskorps efnirtil tónleika I
langholtskirkju mánudaginn 22.
desemberog hefjast þeir kl. 17.00.
Efnisskráin erfjölbreytt en stjórn-
endur eru þeir Christer Johannesen
og Trevor Ford.
Háteigskirkja:
Skólakórar Garða-
bæjar halda tónleika
þriðja íjólum
Laugardaginn 27. desember, þriðja
íjólum, halda Skólakórar Garðabæj-
artónleika í Háteigskirkju undir
stjórn Guðfinnu D. Ólafsdóttur.
Fluttur verður helgileikurinn Hljóðu
klukkurnareftirWalterog Caron í
þýðingu Guðfinnu D. og Rúnars Ein-
arssonar. Eldri deild kórsins flytur
verk eftir Handel, Pergolesi og þjóð-
lög frá ýmsum löndum.
Píanóundirleikur er í höndum
Auðar Skúladóttur. Einnig mun
strengjasveit aðstoða við undirleik.
Inngangseyrirerkr. 100.
Tónabær og Duus hús:
Grafík með tónleika
Hljómsveitin Grafík heldur tón-
leika íTónabæ á föstudagskvöldiö
og í Duus húsi á sunnudagskvöld.
Þetta er í fyrsta skipti sem hljóm-
sveitin kemur fram opinberlega f
breyttri mynd.
Nýr bassaleikari hljómsveitarinn-
arer Baldvin Sigurðsson, sem áður
lék með Baraflokknum og Andrea
Gylfadóttir ný söngkona. Aðrir (
hljómsveitinni eru þeir Hjörtu How-
ser, hljómborð, Rúnar Þórisson,
gítar, og'Rafn Jónsson trommur.
SOFN
Þjóðminjasafn íslands
Opiðfjóradaga
vikunnar
Þjóðminjasafn íslands eropið
laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 13.30 til
16.00. Hópar geta fengiö leiðsögn
um safniö á öðrum tímum sam-
kvæmt samkomulagi.
Sjóminjasafnið:
Opið um helgar
Sjóminjasafn íslands verður opið
í vetur laugardaga og sunnudaga
frákl. 14-18, en hópargetatíma
ef aörir tímar henta þeim betur.
Tímapantanir eru í síma 91-52502
á mánudögum og fimmtudögum
10-12 og 14-15.
Jólatónleikar
Tónlistarskóla Kópavogs
Seinni jólatónleikar Tónlistarskóla Kópavogs veröa í
Kópavogskirkju sunnudaginn 21. desember kl 14.00.
Árbæjarsafn:
Opið eftir sam-
komulagi
Enginn fastur opnunartími er yfir
veturinn en safnið er opið eftir sam-
komulagi. Siminn er 84412.
Sædýrasafnið:
Dýrin mín stór
ogsmá
Sædýrasafnið verður opið um
helgina eins og aðra daga frá kl.
19 til 19. Meðal þess sem er til
sýnis eru háhyrningar, Ijón, ísbjörn,
apar, kindur og fjöldi annarra dýra,
stórra og smárra.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Safn og garður
Listasafn Einars Jónssonar er
opið alla laugardaga og sunnudaga
kl. 13.30 til 16. Höggmyndagarður-
inn er opinn daglega frá kl. 11 til 17.
Ásgrímssafn:
Opið sunnudaga,
þriðjudaga og
fimmtudaga
Ásgrímssafn er opið sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga milli kl.
13.30 og 16.
MYNDLIST
Ingólfsbrunnur:
Birgir Schioth sýnir
Birgir Schiöth opnaði sýningu í
Ingólfsbrunni við Aðalstræti þann
22. nóv.. Hann sýnir22 myndir,
bæði teikningar og vatnslitamyndir.
Sýningin er opin á opnunartima
verslana og ersölusýning. Hún
stendur út desembermánuð.
Slunkaríki ísafirði:
Jólasýning
Nú stendur yfir í Slunkaríki á
ísafirði samsýning 11 listamanna.
Þar eru grafíkmyndir eftir Björgu
Þorsteinsdóttur, Daða Guðbjörns-
son, Helga Friðjónsson, Jenný
Guðmundsdóttur, Jón Reykdal,
Kristinn Harðarson, Sigrid Valtingoj-
erog Þórð Hall. Þá sýna Sigrún
Einarsdóttir og Sören Larsen gler-
muni og Ragna Ingimundardóttir
sýnir kermík.
Sýningin verður opin alla daga frá
kl. 16 til 18.
Menningarmiðstöðin
Gerðubergi:
Jóhann G. Jóhanns-
son sýnir
Laugardaginn 6.des. opnaði Jó-
hann G. Jóhannsson, myndlista- og
tónlistamaður, málverkasýningu í
Menningarmiöstöðinni Gerðubergi,
Breiðholti. Á sýningunni eru yfir 80
verk, flest vatnslitamyndir, unnin á
tímabilinu 1985-86. Sýningin er
sölusýning og hefur verið framlengd
til 21 „desember. Hún eropinföstu-
dag 14-22, laugardag 14-18 og á
sunnudaginn kl. 14-20.
Aögangur er ókeypis.
Norræna húsið:
Finnskir minnispen-
ingarí100ár
Nú stenduryfir í anddyri Norræna
hússins sýning á finnskum minnis-
peningum. Sýningin verðuropin
daglega og stendur yf ir til desemb-
erloka.
Gallerí Gangskör:
Jólasýning
Laugardaginn 6.des. hófst jóla-
sýning í Gallerí Gangskör. Sýningin
eropinvirka daga frá kl. 12 til 18
ogumhelgarfrákl.14til 18,enhún
stendur út desember.