Morgunblaðið - 17.01.1987, Page 3

Morgunblaðið - 17.01.1987, Page 3
% c3 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JANÚAR 1987 bankastjórnarinnar á þessum tíma. Einmitt á þessum tímamótum voru mikilvægar ákvarðanir teknar í við- skiptum bankans og Hafskips. Bankastjómin hafði þá fyrir nokkru synjað félaginu um mikla fyrir- greiðslu. Eftir misheppnaðar til- raunir til sölu fyrirtækisins í rekstri, var fallist á að veita því fyrir- greiðslu gegn 80 milljón króna hlutaíjáraukningu. Sú ákvörðun hefði að sjálfsögðu ekki verið tekin, ef upplýsingar hefðu legið fyrir um þann mikla hallarekstur fyrirtækis- ins, sem þegar var orðinn á þeim tíma. Rétt vitneskja um afkomu Atlantshafssiglinganna þá, hefði einnig haft grundvallarþýðingu. Framangreind fullyrðing nefndar- innar um áhrif vísvitandi blekkinga á gerðir bankastjómarinnar, ef sannar reynast, fær ekki staðist. 10.0 Eftirlit með rekstri og efnahag Hafskips. Bankastjómin tók saman sér- staka greinargerð um eftirlit með rekstri og efnahag Hafskips á árun- um 1984—1985. Greinargerð þessi, frá 31. janúar 1986, sem fylgir þessum athugasemdum í heild, var send skiptaráðendum. Rannsóknar- lögregla ríkisins mun hafa fengið greinargerðina þaðan og einnig nefndin. f greinargerðinni segir: „Útvegs- bankinn hefur undanfarin ár fengið fjögurra mánaða milliuppgjör frá endurskoðanda fyrirtækisins, Helga Magnússyni, löggiltum endurskoð- anda, auk venjulegra ársreikninga." Lögð er áhersla á það í greinargerð- inni, að bankastjórnin sjálf hafi athugað framangreind uppgjör „með aðstoð hagdeildar og endur- skoðanda bankans, eftir því sem þörf var talin á, þar sem reikning- amir vom gerðir upp af löggiltum endurskoðanda félagsins“. Þessi til- högun eftirlits bankans og forsend- ur hennar eru ekki ræddar í skýrslunni. A hinn bóginn er full- yrt, að bankinn hafi ekki eftir 1981 nýtt sér „sérfræðilega þekkingu innan hagdeildar bankans til úr- vinnslu á gögnum Hafskips en það hefði hugsaniega getað orðið til að tryggja hagsmuni bankans betur en raunin varð“. Þó segir á öðrum stað: „Nú er það ekkert lögmál að athugun hagdeildar á tölulegum upplýsingum sé einhlít sem mat á lánshæfni eða tryggi ömgga endur- greiðslu á allri fyrirgreiðslu." Þrátt fyrir þessar mótsagnir og vitneskju um fyrrgreinda vinnutilhögun bankastjórnar, hagdeildar og end- urskoðanda bankans, kemst nefnd- in að þeirri niðurstöðu að „bankinn hafi ekki fylgst- með fjárhag Haf- skips á þann hátt að unnt hafi verið að gera ráðstafanir í tæka tíð til að tryggja hagsmuni bankans". Röksemdin virðist sú fyrir þess- ari fullyrðingu að hagdeildin hafi ekki gert tölulegar úrvinnslur og athuganir á ársreikningum eða áætlunum Hafskips á ámnum 1981—1984. Þá segir í fyrrnefndri greinargerð bankastjórnarinnar um eftirlitshlutverk forstöðumanns lög- fræðideildar að því er varðar Hafskip: „Axel Kristjánsson, að- stoðarbankastjóri, hefur haft milli- göngu um upplýsingaöflun og fundi bankastjómarinnar með forráða- mönnum Hafskips. Honum var ekki falið að kanna tölulega rekstur fyr- irtækisins, en hann hefur fjallað um tryggingar bankans vegna þessa.“ Þrátt fyrir þessa skilgreiningu bankastjórnarinnar er Axel nefndur „eftirlitsmaður" bankans í skýrsl- unni, sem margoft hefur verið tekið fram að hann var ekki og að slík nafngift gefur víllandi mynd af framangreindu hlutverki. 11.0 Aukin fyrirgreiðsla til Hafskips? Villandi upplýsingar. í skýrslunni koma fram villandi upplýsingar um þróun viðskipta Hafskips við Útvegsbankann, sér- staklega á tímabilinu 1984 fram til gjaldþrots. Engin tilraun er gerð til að kryfja upphæðir til mergjar. Tölum er þannig stillt upp, að les- andi skýrslunnar fær þann skilning að bankastjómin hafi ausið fé í fyrirtækið sfðustu árin. í meginat- riðum skýrist hækkun skuldbind- inga félagsins við bankann frá miðju ári 1984 á eftirfarandi hátt: 1. Gengisbreytingar höfðu í för með sér miklar hækkanir útlána í krónutölu. 2. Vextir af lánum vom ekki greiddir og bættust við höfuðstólinn með skuldbreytingarlánum. 3. Leggja þurfti út fé vegna greiðslu á ábyrgðum sem bankinn var í. 4. Veitt var fyrirgreiðsla vegna hlutaQáraukningar, sem tryggð var með skuldabréfum vegna hennar. Til frekari skýringa skulu til- greindar eftirfarandi tölur: 3. Viðskipti Útvegs- banka íslands og Hafskips frá árinu 1984 Samkvæmt áætlunum, sem lagð- ar vom fram snemma árs 1984, var gert ráð fyrir hagnaði á rekstri Hafskips. Vegna ýmissa ófyrirsjá- anlegra ytri aðstæðna varð mikil breyting þar á. T.d. breyttist gengi ísl. krónunnar meira en gert hafði verið ráð fyrir, erlent skipafélag fékk einokun á siglingum fyrir varnarliðið en af því leiddi 10—11 milljón dollara tekjutap á ári fyrir íslensku skipafélögin. Þetta orsak- aði harðnandi samkeppni og farmgjaldalækkanir. Fleiri atriði komu til, eins og margoft hefur komið fram. Af þessu hlaust gífur- legur rekstrarhalli. Tölulegar upplýsingar um þennan stórfellda halla bámst seint til bankastjómar- innar, t.a.m. var óvemlegt tap 5,8 milljónir skv. uppgjöri löggilts end- urskoðanda félagsins fyrir fyrstu 8 mánuði þess árs. Haustið 1984 óskuðu forráða- menn Hafskips ítrekað munnlega eftir mikilli fyrirgreiðslu bankans vegna greiðsluerfíðleika. Banka- stjómin synjaði jafnan þessari málaleitan og varð það m.a. til þess að forráðamenn Hafskips ræddu við stjórnendur Eimskipafélags íslands um sölu á öllum hlutabréfum félags- ins. í desembermánuði fékk bankastjórnin í hendur, frá félag- inu, áætlun um að tap á árinu myndi nema um það bil 55 milljón- um króna. Um líkt leyti fóm stjóm- endur Hafskips þess formlega á leit að bankinn veitti fyrirtækinu tveggja milljón dollara lán til þess að greiða lausaskuldir. Þessari beiðni var algjörlega hafnað af bankastjóminni. í kjölfar þessarar synjunar ræddu Hafskipsmenn enn við forráðamenn Eimskipafélags íslands um sölu á hlutabréfum Hafskips. Sú samningalota stóð skamma hríð „vegna slæmrar vígstöðu" eins og einn stjórnandi Hafskips komst að orði. Á hinn bóginn var ákveðið að stefna að 80 milljón króna hlutafjáraukning^u, úr 16 millj. upp í 96 milljónir króna. Þetta gekk síðan eftir og nýir hlut- hafar greiddu inn til félagsins, í kjölfar hlutahafafundar, sem hald- inn var í febrúar 1985, 77 milljónir króna með skuldabréfum á næstu mánuðum. Þessi skuldabréf vom handveðsett bankanum vegna fyrir- greiðslu sem veitt var vegna hlutafjáraukningarinnar. Um þetta fmmkvæði banka- stjórnarinnar og synjun um fyrir- greiðslu strax á hausti 1984 er fjallað á yfirborðslegan og villandi hátt í skýrslunni. Hvergi er minnst á að bankastjórnin hafi algjörlega synjað um fyrrgreinda lánafyrir- greiðslu og fullyrt að Hafskipsmenn hafi á eindæmi og án allra afskipta bankans staðið að viðræðunum við Eimskip. Þá er hvergi bent á að bankastjómin hafi ekki haft upplýs- ingar um annað en að tap félagsins yrði 55 milljónir króna, þegar ákvörðun var tekin um að fallast á 80 milljón króna hlutafjáraukningu. í stað þess að geta þessara aug- ljósu staðreynda setur nefndin fram eftirgreindar staðhæfingar (bls. 75): „Hlutafjáraukningin í ársbyij- un 1985 kom hins vegar of seint. Hún dugði hvorki til að mæta áföll- um ársins 1984 (sem vitneskja fékkst ekki um hversu mikil vom fyrr en eftir ákvörðun um þá aukn- ingu!) né hinu stórfellda tapi á Atlantshafssiglingunum 1985.“ Þegar þessi margrædda ákvörðun um hlutafjáraukninguna var tekin, Iá fyrir það eitt um raunvemlega afkomu á Atlantshafssiglingum, ítrekað og staðfest í fylgiskjölum með ársreikningi síðar (í maí 1985) að 25 m.kr. hagnaður hefði orðið á þessum siglingum á árinu 1984. Ákvörðunin um hlutafjáraukning- una var auðvitað tekin miklu fyrr en svo, að tap á árinu 1985 hafi verið séð fyrir. Hvemig var þá hægt að ætlast til þess að hún hafi dugað til að mæta hinu stórfellda tapi á Atlantshafssiglingunum 1985? Hér ber allt að sama bmnni. Nefndin virðist ekki gera sér grein fyrir því hvaða upplýsingar banka- stjómin hafi — eða gat haft — um afkomu Hafskips um áramótin 1984-1985, þegar ákvörðunin um hlutafjáraukninguna var tekin. Sömu röksemdir og hér hafa ver- ið raktar, gilda um þá fullyrðingu nefndarinnar að „það hafí verið mjög misráðið af bankastjómm Útvegsbankans að nota ekki tæki- færið ... að þvinga Hafskip til að semja í alvöru" við Eimskip um sölu á félaginu um áramótin 1984—1985. Þegar ákvörðunin um hlutafjáraukninguna var tekin, var ekki vitað að tap félagsins yrði meira en 55 milljónir króna á árinu 1984. Þetta var ekki hægt að sann- reyna með neinni rannsókn hag- deildar eða annarra fyrr en reikningar ársins lágu fyrir, en það var síðustu daga maímánaðar 1985. Á það skal einnig bent að ekkert liggur fyrir, svo vitað sé, um að unnt hafí verið að „þvinga Hafskip til að semja í alvöru" við Eimskip á þessum tíma. Vilji forráðamanna Eimskips til „að semja í alvöru" hefði þurft að koma til. Hver vill fullyrða að svo hafí verið? Þá skal vikið að Atlantshafssigl- ingum Hafskips. I skýrslunni gætir mótsagna þeg- ar fjallað er um Atlantshafssigling- ar Hafskips, sem hófust haustið 1984. í kaflanum um orsakir gjaldþrots félagsins segir á bls. 11: „Helstu orsakir gjaldþrotsins má rekja til eftirfarandi staðreynda: 1. Langvarandi tapreksturs fé- lagsins. 2. Missis vamarliðsflutninganna vorið 1984. 3. Atlantshafssiglinganna, sem hófust haustið 1984.“ Síðar segir orðrétt á bls. 13: „Hafskip hefði væntanlega orðið gjaldþrota þótt Atlantshafssigling- amar hefðu ekki komið til, en þær flýttu fyrir gjaldþroti félagsins og gerðu það stærra en ella.“ Þá segir í skýrslu nefndarinnar á bls. 12: „Ráðamenn félagsins höfðu undir- búið Atlantshafssiglingarnar um tveggja ára skeið...“ Á næstu blaðsíðu segir: „Með Atlantshafssiglingunum tók félagið heljarstökk út í óvissuna.“ Vandséð er hvernig þessar umsagnir eru samrýmanlegar rökréttri hugsun. Er það ekki fullmikill og tímafrekur undirbúningur að vera tvö ár að taka heljarstökk út í óvissuna?! Þegar metnar em aðstæður haustið 1984, á þeim tíma sem þessi nýi þáttur í rekstri félagsins hófst, er rétt að hafa eftirfarandi í huga: Staða erlendra endurlána 31/12 1983 ágengiþess dags Staða innlendra lána 31/12 1983 kr. kr. 250.759 þús. 19.128 þús. Staða lána 31/12 1983 samt. kr. 269.887 þús. Hækkun í kr. til 6/12 1985 skýrist þannig: Hækkun vegna gengisbr. kr. 186.411 þús. Vextir og kostn. (skuldbr.) kr. 47.465 þús. Gjaldfallnar ábyrgðir: a) sem stofnað var til fyrir 31/12 1983 kr. 43.148 þús. b) sem stofnað var til eftir 31/121983 kr. 9.109 þús. Skuldbr. á innlendu láni kr. 16.000 þús. Lán veitt v/hlutafj.aukn. kr. 78.887 þús. Önnur hækkun beinna lána kr. 650.907 þús. kr. 2.353 þús. Samtals kr. 653.260 þús. Staðaerlendralána6/12 1985 ágengi þess dags kr. 643.625 þús. Staða innlendra lána 6/12 1985 kr. 9.635 þús. Staða lána 6/12 1985 samt. kr. 653.260 þús. Ath.: Keyptir víxlar samþykktir af öðmm hækkuðu um kr. 46 milljónir á þessu tímabili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.