Morgunblaðið - 20.05.1987, Blaðsíða 7
fHtttgmiftinMft /IÞROrttftimvmjúAtítjR^. maí 1987
B ~7
íþróttabandalag
Keflavíkur
ÍBK
Stofnað: 1956
Heimilisfang:
íþróttavöllurinn í Keflavík
Sími: 92-2730
Framkvæmdastjóri:
Einar Ásbjörn Ólafsson
Formaður:
Kristján Ingi Helgason
Búningur: Gul peysa með blá-
um kraga, bláar buxur, bláir
sokkar með gulri rönd.
Varabúningur: Hvít peysa, blá-
ar buxur og hvítir sokkar.
íslandsmeistarar: 1964, 1969
og 1971.
Bikarmeistarar: 1975.
Leikir
ÍBK
Kl.
21/5 Völsungur—ÍBK 20:00
31/5 Valur-ÍBK 20:00
6/6 IBK-ÞórA. 14:00
10/6 (A-ÍBK 19:00
14/6 ÍBK-KR 20:00
19/6 Víðir-ÍBK 20:00
28/6 ÍBK-KA 20:00
4/7 FH-l'BK 14:00
15/7 ÍBK-Fram 20:00
19/7 ÍBK —Völsungur 20:00
26/7 ÍBK-Valur 20:00
29/7 ÞórA.-ÍBK 20:00
9/8 ÍBK-ÍA 19:00
16/8 KR-ÍBK 16:00
19/8 ÍBK-Víðir 19:00
23/8 KA-ÍBK 19:00
5/9 ÍBK-FH 14:00
12/9 Fram-ÍBK 14:00
Breytingar
Komnir:
Peter Farrell frá Hamilton
Hegli Bentsson frá Víði
Farnir:
Valþór Sigþórsson ÍUMFN
Gísli Grétarsson hættur
• Þorsteinn Bjarnason
30 ára markvörður
400 leikir, 29 A-1
• Skúli Jónsson • Jóhann Júlíusson • Sigurjón Sveinsson
23 ára markvörður 20 ára varnarmaður 26 ára varnarmaður
15 leikir 6 leikir 77 leikir
• Kristján Geirsson
19 ára varnarmaður
3 leikir
0 Einar Kristjánsson
19 ára varnarmaður
12 leikir
• Vilhjálmur Ingvarsson
21 árs varnarmaður
1 leikur
• Rúnar Georgsson • Guðmundur Sighvatss. • Ægir Kárason
31 árs varnarmaður 28 ára varnarmaður 22 ára varnarmaður
370 leikir 10 leikir 15 lejkj,-
• Gunnar Oddsson
22 ára miðvallarleikmaður
45 leikir
• Gestur Gyifason
18 ára miðvallarleikmaður
6 leikir
• Sigurður Björgvinsson
28 ára miðv., 400 leikir, 3
A, 1 U-21, 9 U-18, 3 U-16
• Skúli Rósantsson
27 ára miðv. 100 leikir, 1
U-21, 7 U-18, 4 U-16
• Peter Farrell
30 ára miðvallarleikmaður
7 leikir
• Freyr Sverrisson
24 ára miðvallarleikmaður
47 leikir
• Freyr Bragason
20 ára framherji
10 leikir
• Óli Þór Magnússon
24 ára fram., 250 leikir, 2
A1, 4 U-21, 4 U-18, 4 U16
• Helgi Bentsson
25 ára framh., 50 leikir, 2
A-1, 4 U-21, 4 U-16
0 Ingvar Guðmundsson
24 ára framherji
78 leikir, 2 U-18, 1 U-16
Takmarkið hjá okkur að fá
fleiri stig en í fyrra
- segir Peter Keeling, þiálfari Keflvíkinga
„Keppnistímabilið leggst vel í
mig og við erum tilbúnir 1 slag-
inn,“ sagði Peter Keeling þjálfari
ÍBK.
„Leikmenn mínir hafa lagt ákaf-
lega mikið á sig að undanförnu og
ég get sagt með sanni að þeir
hafa næstum æft jafn mikið og
atvinnumannaliðin gera þegar þau
undirbúa sig í upphafi keppn-
istímabils. Þeir eru líka á einu
máli um að þeir hafi ekki fyrr verið
eins vel undirbúnir. Það er sérstak-
lega góður andi innan hópsins og
á þetta líka við um eiginkonur og
kærustur leikmanna sem hafa tek-
ið fjarveru eiginmanna sinna vegna
æfinga sérstaklega vel."
Keeling sagði að takmark sitt með
Keflavíkurliðið væri að ná upp á
næstu 2 árum liði sem ynni til titla.
Nú væri markið að fá fleiri stig en
á síðasta keppnistímabili og það
næðist ekki nema taka stigin af
neðstu liðunum. „í fyrra fékk ÍBK
21 stig og með því að sigra 5
neðstu liðin tvöfalt getum við náð
30 stigum."
„Valsmenn verða íslandsmeist-
arar í ár, þeir eru með besta liðið.
Fram verður í 2. sæti, Akranes í
3. sæti, ÍBK í 4. sæti og KR í 5.
sæti. Ég hef ekki séð öll liðin leika,
en get ímyndað mér að KA og
Völsungur sem komu upp úr 2.
deild í fyrra verði í neðri hluta deild-
arinnar og seinni hluti keppninnar
verði þessum liðum erfiður."
Keflvíkingar leika sinn fyrsta leik
á útivelli og mæta þá nýliðunum í
1. deild, Völsung á Húsavík. „Við
gátum varla fengið erfiðari leik í
upphafi mótsins og ef ég hefði
fengið að ráða hefði ég síst viljað
mæta þessu liði og Valsmönnum
í fyrsta leiknum. Þeir koma örugg-
lega til með að leika á háum nótum
í þessum fyrsta leik sínum í 1.
deild og eitt er víst, þeir verða vel
studdir af áhorfendum."
Keeling sagði að knattspyrnu-
menn á íslandi væru betri en
honum hefði verið sagt. Hér væru
margir leikmenn sem hefðu góða
tækni og getu. Fólkið hefði ekki
komið sér á óvart, hann hefði ver-
ið í Noregi og Sviþjóð og íslending-
ar væru ákaflega svipaðir
frændum sínum í þessum löndum.
• Peter Keeling