Morgunblaðið - 21.06.1987, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. JÚNÍ 1987
27
••
Okukennara-
félag Islands:
Þörf á end-
urskoðun
laga um öku-
kennslu
AÐALFUNDUR Ökukennarafé-
lags íslands var nýverið haldinn.
Auk venjulegra aðaifundar-
starfa, var ályktað um umferðar-
mál, þar sem m.a. var hvatt til
þess að nýjar reglur verði settar
um ökukennslu og ökunám.
Aðalfundurinn fagnaði því að ný
umferðarlög hefðu verið samþykkt
á Alþingi, en jafnframt var það
harmað, að ekki skyldu hafa verið
gerðar neinar afgerandi breytingar
í hinum nýju lögum um menntun
ökukennara eða lágmarksfjölda
kennslustunda til ökuprófs.
Fundurinn hvatti til þess að lög-
gæsla yrði aukin verulega, enda
væri það ódýrasta slysavömin, sem
völ væri á. Þá var skorað á um-
ferðaryfirvöld og borgaryfirvöld að
beita meiri nákvæmni við uppsetn-
ingu umferðarmerkja og við yfir-
borðsmerkingu gatna.
Fagnað var framtaki bifreiða-
tryggi ngafél aganna um sérstakt
átak til að reyna að bæta ástandið
f umferðarmálum þjóðarinnar og
lýst yfir fullum stuðningi við „Far-
arheill 1987.“
Stjóm félagsins fyrir næsta
starfsár er þannig skipuð: _ Guð-
brandur Bogason, formaður, Ólafur
Einarsson, gjaldkeri, Amaldur
Ámason, ritari og meðstjómendur
Snorri Bjamason, Finnbogi G. Sig-
urðsson, Kjartan Þórólfsson og
Guðmundur G. Pétursson. í vara-
stjóm voru kjömir Birkir Skarphéð-
insson, Þórður Akólfsson og Stefán
Magnússon.
Norskur kór
syngur í Hall-
grímskirkju
FIMMTÍU manna norskur æsku-
lýðskór er um þessar mundir
staddur hér á landi og mun hann
á sunnudaginn syngja við messu
í Hallgrímskirkju og um kvöldið
á samkomu hjá KFUM og KFUK
að Amtmannsstíg 2b. Kórin held-
ur síðan tónleika í Akureyrar-
kirkju á þriðjudagskvöldið kl.
20.30 og á Egilsstöðum á mið-
vikudagsk völdið.
Kór þessi er frá þremur kirkju-
sóknum í Noregi, Ullem, Rea og
Ris og er ferð hans hér skipulögð
af Þjóðkirkjunni. Kórinn heldur aft-
ur heim með Norrönu á fimmtudag-
inn.
Siglufjörður:
Kvennakórinn í
f ör til Þýskalands
KVENNAKÓR Siglufjarðar
heldur til Þýskalands í dag, 21.
júní og mun hann halda tónleika
með kórum frá bæjunum Riede
og Wheye-Leeste, en þeir eru í
úthverfum Bremen.
Kvennakór Sigluíjarðar fer í boði
þessara kóra og er meiningin að
halda tónleika þar ytra 26. og 27.
júní.
Stjómandi þessara kóra verður
frú Silke, en hún er gift Hlyni
Óskarssyni, frá Siglufírði, og bjó
þar í nokkur ár og stofnaði þá
Kvennakór Siglufjarðar. Þegar þau
hjónin fluttu utan féll starfsemi
hans að mestu niður, og em nú
tólf ár síðan hann söng síðast.
í kómum em 22 konur, en alls
fara um 30 manns í Þýskalands-
ferðina, og hefur kórinn notið
velvildar ýmissa fyrirtækja á Siglu-
firði sem gert hafa konunum
mögulegt að fara í þessa ferð.
Meðfylgjandi mynd er af
Kvennakór Siglufjarðar
MetsöliMidá hverjum degi!
CtNIRljwtGtSII
STRIK/SlA