Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
138. tbl. 75. árg.___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Yilja ræða hefð-
bundinn heraf la
Vín, Genf, Reuter.
SOVÍÉTMENN lögðu í gær fram
uppkast að tillögu um nýjar við-
ræður um að skera niður hefð-
bundinn herafla i Evrópu, sem
haldnar skuli innan marka Við-
ræðna um öryggi og samvinnu í
Evrópu (CSCE), að því er haft
var eftir sovéskum heimildar-
mönnum í Vín. Max Kampelman,
helsti samingamaður Banda-
ríkjamanna í afvopnunarviðræð-
um risaveldanna í Genf, sagði í
gær að deila um 72 vestur-þýskar
flaugar af gerðinni Pershing 1A
gætu tafið fyrir samkomulagi um
meðaldrægar og skammdrægar
flaugar.
Kampelman sagði að stutt væri
síðan Sovétmenn hefðu fyrst vakið
máls á 1A flaugunum. Vestur-
Þjóðveijar hafa kveðið skýrt á um
það að ekki verði samið um þessar
flaugar í viðræðum risaveldanna.
Hann kvað Bandaríkjamenn enn
bíða eftir svari Sovétmanna við
samningsdrögum um langdrægar
flaugar, sem lögð voru fram í byrj-
un maí. „Þeir hafa nú haft sex vikna
umþóttunartíma. Við viljum byija
að fækka langdrægum flaugum um
helming," sagði Kampelman.
Tillagan, sem Sovétmenn lögðu
fram í Vín, tekur einnig til kjam-
orkuvopna á vígvöllum, sem draga
allt að 500 km. Aðildarríki Atlants-
hafsbandalagsins eru andvíg því og
vilja að þessar viðræður verði ein-
skorðaðar við hefðbundinn herafla.
Uppkastið var lagt fram á fundi
23 aðildarríkja NATO og Varsjár-
bandalagsins, sem hafa hist
óformlega í Vín síðan í febrúar.
Sovéskur stjórnarerindreki sagði
að í uppkastinu væri lagt til að
komið yrði á jafnvægi á sviði hefð-
bundins herafla. í Reykjavíkuryfir-
lýsingu utanríkisráðherra NATO
segir að draga þurfi úr yfirburðum
Varsjárbandalagsríkja í hefðbundn-
um herafla og sagði erindrekinn að
Sovétmenn hefðu viljað taka tillit
til þessa sjónarmiðs.
Innan Atlantshafsbandalagsins
hefur verið deilt um það á hvaða
vettvangi eigi að ræða hefðbundinn
herafla. Frakkar vildu halda slíkar
viðræður innan marka CSCE, en
því voru Bandaríkjamenn andvígir.
Á ráðherrafundinum í Reykjavík
11. og 12. júní var fallist á viðun-
andi lausn. Hefðbundinn herafla
mætti ræða á ráðstefnu 35 ríkja í
Vín, en þær yrðu algerlega sjálf-
stæðar. Ýmis óháð smáríki, sem
taka þátt í CSCE, gætu ályktað um
viðræður um hefðbundin vopn, en
ekki haft áhrif á gang þeirra.
Suður-Kórea:
Stúdentar varpa bensínsprengjum að óeirðalögreglu við hliðið að
Yonsei-háskóla í Seoul í Suður-Kóreu. í bakgrunni sést hvar fólk
hleypur á brott er táragashylki springur. Á innfelldu myndinni reyna
börn á gangi í höfuðborg landsins að veijast táragasi með því að
halda vasaklútum fyrir vitum sér.
Chun forseti vill
leita málamiðlana
Seoul, Washington, Vestur-Berlín, Reuter.
LEIÐTOGAR Suður-Kóreu féll-
ust í gær á að ræða við stjórnar-
andstöðuna, en ekki hefur verið
sagt hvenær það verði. Náms-
menn í landinu virtust ekki binda
miklar vonir við slíkar viðræður
og héldu óeirðir áfram við há-
skóla.
Chun Doo Hwan forseti hefur
lengi vel neitað að koma að máli
Fred Astaire allur
Los Angeles, Reuter.
FRED Astaire, dansarinn
og leikarinn góðkunni, lést
í gær, 88 ára að aldri.
Dánarmeinið var
lungnabólga, en að sögn
vina kom fráfall hans á
óvart því að Astaire þótti
mjög vel á sig kominn.
Þegar Astaire reyndi fyrst
fyrir sér í kvikmyndaveri var
þetta umsögnin sem hann
fékk: „Getur ekki leikið.
Getur ekki sungið. Hár farið
að þynnast. Getur dansað
lítið eitt." Astaire lét slíkt
ekki á sig fá og sló brátt í
gegn með dansi sínum.
Frægasti dansfélagi
Astaire var eflaust Ginger
Rogers, en einnig dansaði
hann við Cyd Charisse,
Eleanor Powell, Ritu
Hayworth og Ann Miller.
Meðal helstu mynda hans
má nefna „Easter Parade,“
„The Band Wagon," „Daddy
Long Legs“ og „Funny
Faces."
Reuter
við Kim Young-sam, helsta leiðtoga
stjómarandstöðunnar. Talsmaður
flokks Chuns, Lýðræðislega rétt-
lætisflokksins, sagði að Chun hefði
samþykkt að uppfylla þau skilyrði,
sem Kim hefur sett fyrir fundi. Þau
em að mótmælendum, sem hand-
teknir hafa verið síðan róstumar
hófust 10. júní, verði sleppt og
stjómarandstæðingurinn Kim Da-
e-jung verði látinn laus úr stofu-
fangelsi.
Kim Dae-jung hafði ekki verið
látinn laus í gær, en hann fékk að
ræða við háttsettan embættismann
úr bandaríska sendiráðinu í
S-Kóreu. Bandaríska sjónvarps-
stöðin NBC ræddi við Kim í stofu-
fangelsinu skömmu eftir að Chun
sagðist reiðubúinn til viðræðna við
stjómarandstöðuna. Sagði Kim,
sem verið hefur í stofufangelsi síðan
um miðjan apríl, að hann fylgdist
af áhuga með framvindu mála:
„Verði ég látinn laus mun ég gera
mitt besta til að hreyfing okkar
verði hófsöm og ekki komi til of-
beldis.“
Kim Young-sam ákvað að fresta
mótmælum, sem halda átti á föstu-
dag, vegna fyrirhugaðra viðræðna
við Chun, en námsmenn í Suður-
Kóreu sýndu ekki sömu sáttfysi.
Að sögn lögreglu kom til átaka við
tuttugu þúsund námsmenn á 58
stúdentagörðum. Þar af hefðu tíu
þúsund námsmenn tekið þátt í
óeirðum í Seoul.
Meðan á óeirðunum stóð undir-
bjuggu stjómmálaforingjar lands-
ins sig undir viðræður. Talið er að
Chun hafí farið að ráðum Rohs
Tae-woo, leiðtoga Lýðræðislega
réttlætisflokksins, er hann ákvað
að ræða við andstæðinga sína. Chun
vill að Roh verði eftirmaður sinn
þegar hann fer frá í lok sjö ára
kjörtímabils síns í febrúar.
Efasemdir hafa sprottið upp um
að unnt verði að halda Ólympíuleik-
ana í Seoul á næsta ári. Þegar hefur
komið fram að yfírvöld í Los Angel-
es í Bandaríkjunum séu reiðubúin
til að halda leikana. Eberhard Diep-
gen, borgarstjóri Vestur-Berlínar,
Reuter
sagði í viðtali við dagblaðið Bild á
sunnudag að halda mætti Ólympíi
leikana þar. „Ég er þess enn full-
viss að leikamir verði haldnir :
Seoul, en þurfí að halda þá annars
staðar er Berlínarbúum ekkert ac
vanbúnaði," sagði borgarstjórinn.
Sjá vettvang á miðopnu.
Endurskoða Tyrkir
aðild sína að NATO?
Istanbul. Reuter.
TYRKIR hótuðu í gær að endur-
skoða aðild sína að Atlantshafs-
bandalaginu i kjölfar samþykkt-
ar þings Evrópubandalagsins
þess efnis að nauðsynlegt væri
að tyrknesk stjórnvöld viður-
kenndu að þjóðarmorð hefði
verið framið á Armenum árið
1915.
Kenan Evren, forseti Tyrklands,
sagði í ræðu er hann hélt í gær í
borginni Sivas, í miðhluta Tyrk-
lands, að endurskoða bæri aðildina
að NATO. Hann sagði að nokkrar
NATO-þjóðir, sem hann nafn-
greindi ekki, styddu kúrdíska
skæruliða. Tyrkneskir stjómmála-
menn halda því fram að samþykkt
Evrópuþingsins hafí orðið til þess
að Kúrdar réðust á laugardag á
þorp í suð-austurhluta Tyrklands
og myrtu 30 manns, þar af 16 börn.
Stjómmálaskýrendur segja að
forsetinn sé þeirrar skoðunar að
þingmenn á Evrópuþinginu, sem
komi frá aðildarríkjum NATÓ, geri
sér ekki grein fyrir hemaðarlegu
mikilvægi Tyrklands. Her Tyrkja
er sá næstfjölmennasti af heijum
Atlantshafsbandalagsríkjanna og
þeir eiga landamæri að Sovétríkjun-
um, Búlgaríu, íran, írak, Sýrlandi
og Grikklandi.
Sjá fréttir á síðu 26.
Áreiðanlegt
alnæmispróf?
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKIR vísindamenn kveðast
hafa fundið aðferð til að prófa
alnæmi og segja að hún veiti
fullvissu fyrir því hvort hlutað-
eigandi sé haldinn sjúkdómnum.
„Alnæmisprófíð verður tilbúið til
almennrar notkunar eftir um níu
mánuði,“ sagði Anders Vahlne, einn
vísindamannanna, við Reuters-
fréttastofuna í gær. Vahlne sagði
að sér og félögum sínum hefði tek-
ist að þróa efni, sem reyndar er
þegar notað í öllum alnæmisprófun-
um, til að greina HlV-veiruna, sem
fínna má í öllum alnæmissjúkling-
um. Þetta efni hefði hingað til verið
búið til með líffræðilegum aðferð-
um, en sænsku vísindamennimir
hefðu framleitt efnið með rannsókn-
arstofuaðferðum.
Tillaga Sovétmanna í Vín: