Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Flugleiðir með
alla veitingasölu
FLUGLEIÐIR verða með alla veitingasölu í flugstöð Leifs Eiríksson-
ar. Samningur þess efnis var undirritaður við Flugleiðir 15. júni
síðastliðinn. Um 10 aðilar gerðu tilboð í veitingastarfsemina.
Veitingastarfsemi í flugstöðinni
felst í því, að um eitt aðaleldhús
er að ræða, kaffíbar, starfsmanna-
mötuneyti, veitingasölu á útsýnis-
stað, vínstúku og aðalveitingasal
undir glerþaki. Veitingastarfsemi
er öll í höndum eins aðila, þar sem
aðeins er um eitt eldhús að ræða.
Að sögn Péturs Guðmundssonar
flugvallarstjóra var veitingasalan
boðin út og annaðist Almenna verk-
fræðistofan útboðið. „Sveit manna
með sérþekkingu á fjármálum og
veitingamálum yfírfór tilboðin og
mælti með því að tilboði Flugleiða
yrði tekíð og varð það niðurstað-
an,“ sagði Pétur. Tilboð Flugleiða
felur í sér fasta greiðslu og ákveðið
hlutfall af veltu. „Var það mat okk-
ar að tilboð þeirra gæfi mest í aðra
hönd miðað við þá veltutölu, sem
allir tilboðsaðilar notuðu og einnig
hafði þjónustuþátturinn þar mikið
að segja.“ Lágmarksársgreiðsla
fyrir veitingaaðstöðu var í útboði
10,6 milljónir og var tilboð Flug-
leiða lægra en það.
Útgáfustjórn Þjóðviljans:
*
Svavar og Olaf-
ur Ragnar hætta
SVAVAR Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, Kristín Á. Ólafs-
dóttir, varaformaður, Ólafur Ragnar Grímsson, formaður fram-
kvæmdastjórnar, og Adda Bára Sigfúsdóttir hurfu öll úr útgáfustjórn
Þjóðviljans á aðalfundi Útgáfufélags Þjóðviljans, sl. fimmtudags-
kvöld. Samkvæmt heinúldum Morgunblaðsins hafði tekist um það
óformlegt samkomulag á sl. vetri að þeir Svavar og Ólafur Ragnar
hættu báðir, þar sem vera þeirra í útgáfustjórninni þótti hefta fag-
leg störf stjórnarinnar.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að útgáfustjómin hafí að meira eða
minna leyti verið óstarfhæf vegna
pólitískra átaka á milli Svavars og
Ólafs Ragnars og því hafí tekist
samkomulag um þetta. Þá hafí
mönnum þótt eðlilegt að ráðast í
frekari hreinsanir andstæðra póla
og samist hafí um að þær Kristín
A. Ólafsdóttir og Adda Bára Sigfús-
dóttir gengju úr stjóminni af sömu
ástæðum. Öll báðust þau undan
endurkjöri á aðalfundinum.
í aðalstjóm sitja nú: Álfheiður
Ingadóttir, Guðni Jóhannesson,
Guðrún Hallgrímsdóttir, Halldór
Guðmundsson, Helgi Guðmunds-
son, Hrafn Magnússon, _01ga
Guðrún Ámadóttir, Mörður Áma-
son og Ragnar Ámason. í vara-
stjóm sitja Sigríður Hanna
Sigurbjömsdóttir, Kristín Ólafs-
dóttir, Páll Baldvin Baldvinsson og
Sæunn Eiríksdóttir.
Á fundinum var gerð tillaga um
Bjöm Jónasson, hjá Svart á hvítu,
í aðalstjóm, en hann náði ekki
kjöri. Sömu sögu er að segja af
Kristínu Ólafsdóttur. Gerð var til-
laga um hana í aðalstjóm, en hún
náði ekki kjöri. Morgunblaðið hefur
heimildir fyrir því að þótt menn séu
til þess að gera sáttir við þessa
nýju stjóm, þá sé kurr í ákveðnum
mönnum á ritstjóm Þjóðviljans
vegna þess að Bjöm náði ekki kjöri.
Ritstjómarmeðlimir Þjóðviljans
ásamt yngra fólkinu í flokknum
munu hafa viljað að áherslunni á
blaðinu verði breytt, úr þeirri
pólitísku togstreitu sem verið hefur
á milli andstæðra póla í flokknum
yfír í faglegri umfjöllun, þar sem
menn kæmu við sögu sem hefðu
vit á útgáfustarfsemi og rekstri.
Því töldu ákveðnir ritstjómarmeð-
limir Þjóðviljans að Bjöm Jónasson
væri kjörinn til þess að taka sæti
í útgáfustjóminni. Sömuleiðis er
ritstjómin ekki alltof hrifin af kjöri
Guðrúnar Hallgrímsdóttur efna-
verkfræðings í stjómina. Benda
menn á að hún hafí aldrei komið
nálægt blaðarekstri. Hún tilheyri
tvímælalaust dyggasta stuðnings-
mannaliði Svavars og hljóti þvl að
hafa verið kjörin í stjómina til þess
að gegna pólitísku varðhundshlut-
verki.
Morgunblaðið/EG
Fleiri seiðum sleppt en nokkru sinni
Vogum.
Fjögur hundruð þúsund laxaseiðum verður
sleppt í sjó frá hafbeitarstöðinni Vogalaxi í
Vogum í sumar. Fyrstu 150 þúsund seiðunum
var sleppt frá stöðinni sl. föstudag og á næstu
tiu dögum verður 250 þúsund seiðum sleppt.
Seiðin hafa verið alin í kerum í eitt og hálft
ár og eru 25-50 grömm að þyngd þegar þeim
er sleppt til sjógöngu. Laxinn hefur eins konar
innbyggða ratsjá og eftir eitt ár i sjó kemur
hluti seiðanna í stöðina aftur, 5-7 pund að
þyngd. Aldrei hefur fleiri seiðum verið sleppt
frá íslenskri hafbeitarstöð en frá Vogalaxi nú.
Aðeins tvisvar hefur fleiri Atlantshafslaxaseið-
um verið sleppt í heiminum fram til þessa.
Ríkismat sjávarafurða:
Umhverfi frysti-
húsa víða áfátt
RÍKISMAT sjávarafurða hóf 9.
júní síðastliðinn úttekt á aðstöðu
fiskvinnslustöðva til að fram-
leiða gæðavöru, þar sem lögð er
áhersla á að fá glögga mynd af
ástandi hreinlætis- og búnaðar-
mála. Átak þetta er undir heitinu
„Fiskvinnsla til fyrirmyndar". í
sýnishorni af upplýsingum, sem
fram hafa komið í úttektinni,
kemur fram að umhverfi frysti-
húsanna, sem könnuð voru, er
heldur áfátt en hins vegar virtist
starfsmannaaðstaða almennt
vera í lagi.
Verkefni þetta er liður í þeim
áherslubreytingum sem orðið hafa
á starfsemi Ríkismatsins í kjölfar
endurmats á verksviði stofnunar-
innar, sem unnið hefur verið í
samráði við aðila sjávarútvegsins
og stjómvalda. Meginniðurstöður
Fjöldi erlendra gesta á
bókmenntahátíð í haust
Bókmenntahátíð verður
haldin í Reykjavík 13.—19. sept-
ember í haust. Þetta er önnur
bókmenntahátíðin, hin fyrsta
var haldin 1985 og var ljóða-
hátíð, en að þessu sinni verður
áhersla lögð á óbundið mál.
Vemdari hátíðarinnar er frú
Vigdís Finnbogadóttir forseti.
Frumkvæði að hátíðinni átti
Knut Odegárd forstjóri Norræna
hússins og er hann jafnframt
framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Stjóm hátíðarinnar skipa: Ámi
Siguijónsson ritstjóri, Einar Kára-
son rithöfundur, Halldór Guð-
mundsson útgáfustjóri, Ingibjörg
Bjömsdóttir fulltrúi, Sigurður
Valgeirsson útgáfustjóri, Thor
Vilhjálmsson rithöfundur, Knut
0degárd forstjóri og Ómólfur
Thorsson bókmenntafræðingur.
Langflestir höfundanna koma
frá Norðurlöndunum. Að auki er
boðið fulltrúum annarra landa til
þess að styrkja bókmenntasam-
skipti Norðurlanda og umheims-
ins. Þegar hafa þessir höfundar
þegið boð að koma:
Frá Danmörku Poul Bornum,
Klaus Rifbjerg og Dorrit Willum-
sen; frá Finnlandi Kaari Utrio,
Eeva Kilpi og Johan Bargum; frá
Álandseyjum Karl-Erik Berg-
mann; frá Noregi Jon Michelet,
Tor Obrestad og Herbjorg
Wassmo; fulltrúi Sama Rauni
Magga Lukkari; frá Svíþjóð Sven
Delblanc, Sara Lidman og Ola
Larsmo; frá Chile Isabel Allende;
frá Vestur-Þýskalandi Luise Rins-
er; frá Austur-Þýskalandi Erwin
Strittmatter; frá Frakklandi Be-
nolte Groult og Alain Robbe-
Grillet.
Vonir standa til að nöfn fleiri
rithöfunda bætist við listann m.a.
þátttakendur frá Bandaríkjunum,
Sovétríkjunum og Bretlandi, en
sem stendur er beðið svara frá
þessum löndum.
Bókmenntahátíðin hefur fengið
styrk frá Norræna menningar-
sjóðnum. Reykjavíkurborg hefur
gefið vilyrði fyrir fjárveitingu og
Norræna húsið og einkafyrirtæki
munu einnig styrkja hátíðina.
Nokkur sendiráð og menningar-
stofnanir greiða fargjöld rithöf-
unda viðkomandi landa.
þess endurmats voru þær, að verk-
svið Ríkismatsins verði fyrst og
fremst að stuðla að og fylgjast með
hvort fískvinnslufyrirtækin séu hæf
hvað varðar búnað, hreinlæti og
þekkingu til að framleiða vöru.
Jafnframt er talið eðlilegt að eftir-
lit með framleiðslu og mat á
afurðum færist i æ ríkari mæli til
framleiðenda sjálfra og sölusam-
taka.
Gefíð hefur verið út sýnishom
af þeim upplýsingum, sem fram
hafa komið í úttektinni. Af tólf
frystihúsum, sem könnuð voru
reyndist umhverfí tveggja vera
slæmt og fímm gallað. Fimm reynd-
ust vera í lagi og eitt til fyrirmynd-
ar. Einnig var starfsaðstaða
könnuð. Starfsaðstaða tveggja
reyndist slæm, aðstaða þriggja göll-
uð, þtjú í lagi og fjögur til fyrir-
myndar.
Mikið selt af
ánamöðkum
NÚ ER aðalstangaveiðitfminn og
mikið er selt af ánamöðkum fyr-
ir lax og silung.
Þurrkatíðin undanfarið veldur því
að þeir sem bjóða ánamaðka til
sölu geta vart annað eftirspum.
Algengt verð í sumar mun vera 8
krónur fyrir silungamaðkinn og 12
krónur fyrir laxamaðkinn. Sam-
svarandi verð í fyrra var 6 og 8
krónur. Lítið framboð undanfarið
getur þó hækkað verðið til muna.