Morgunblaðið - 23.06.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
Veðurfar í Evrópu:
Vætutíð á
Bretlandi
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsms.
SUMARBYRJUNIN í ár hefur
verið sú vætusamasta síðastliðin
25 ár. Sólskin hefur verið að jafn-
aði minna en í meðalári, ekki
hefur verið hægt að leika krikk-
et vegna rigninga, og Wimbledon
mun að líkindum stöðvast oftar
en einu sinni vegna úrkomunnar.
Útlit er fyrir enn eina rigningar-
vikuna, að sögn veðurfræðinga.
Það, sem af er sumri, hefur lítið
sést af sumarveðri. Votviðrasamast
hefur verið í Austur-Angliu, sem
er norður af London, og í Manchest-
er. Næstum sex þumlungar af vatni
hafa fallið í Manchester það, sem
af er júnímánuði. Það er þumlungi
meira en 1982, sem var votviðra-
samasti júnímánuður á öldinni í
þeirri borg. í suðurhlutum Austur-
Angliu hafa fallið nær sex þuml-
ungar af regni í mánuðinum, sem
er nær þreföld meðalúrkoma á þeim
slóðum í júnímánuði.
Að undanfömu hafa Englending-
ar verið að leika landsleiki í krikket
við Pakistani f Manchester. Hver
leikur tekur nokkra daga, og er
hætt, þegar rignir. Það hefur geng-
ið erfíðlega fram til þessa að ljúka
leikjunum. Wimbledon-tennis-
keppnin hófst í gær, og þá rigndi,
svo að það varð að stöðva leikinn.
Útlit er fyrir rigningu fram eftir
vikunni, og gæti keppnin nokkuð
riðlast við það.
En spár, sem byggjast á hegðun
froska og flugi gauka og svala,
segja, að júlí- og ágústmánuðir
verði þurrir og hlýir, og jafnvel
einnig fyrri hluti september.
Sólstöðuhátíð
Stonehenge, Reuter.
60 HVITKLÆDDIR drúídar
héldu sólstöðuhátíð sl. sunnudag,
á lengsta degi ársins, á hinum
sögufræga stað, Stonehenge í
Englandi. Blésu þeir í hrútshom
og lúðra er þeir fögnuðu sólarupp-
komunni. Mikill fjöldi frétta-
manna fylgdist með athöfninni og
sagði yfírdrúídinn, David Loxley,
að atgangurinn í þeim hefði verið
þvílíkur að hann hygðist sjá til
þess að þeir yrðu ekki viðstaddir
að ári. Um 500 hippar söfnuðust
á staðinn og hélt lögreglan þeim
í skefjum þar til eftir opnunarhá-
tíðina, þá fengu þeir að koma inn
á svæðið, kysstu þeir steinana og
dönsuðu í kring um þá. Til nokk-
urra átaka kom þó milli lögreglu
og hippanna og vom 40 hand-
teknir.
Þýskaland:
Rigningin ógn-
ar sálarheill
þjóðarinnar
MUnchen. Frá Bergft’ótu Friðriksdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞAÐ ER ekki að ástæðulausu,
að talið berst oftast nær fyrst
að veðrinu, þegar fólk kemur
saman hér í Þýskalandi. Síðast-
liðnar sjö vikur hefur rignt
sleituiaust í öllu landinu, og þyk-
ir flestum orðið nóg um. Enda
er það von, því að þetta eru
mestu rigningar á þessum
árstima i rúm 30 ár.
Það er kannski ekki alveg rétt,
að rignt hafi sleitulaust í sjö vikur.
Inn á milli hafa svo sem komið
nokkrir góðir sólardagar, en þeir
gleymast fljótt, um leið og aftur fer
að rigna. Ætla mætti, að sumarið
hefði verið hér á ferð í aprílmán-
uði, en þá skein sól dag eftir dag,
og hitinn fór hvað eftir annað upp
í 25-27 stig. Sumarfötin, sem þá
voru tekin fram, eru nú komin aft-
ur inn í skáp, og í staðinn eru
menn nær dag hvem með regn-
hlífina við höndina.
Það eru svo sannarlega engar
getgátur, að veðurfarið hafí mikil
áhrif á sálarlíf fólks. Fjöldi þeirra,
sem nýtt hafa sér símaþjónustu
kaþólsku kirkjunnar hér í Miinchen
og leitað sáluhjálpar, ku hafa auk-
Gengi gjaldmiðla
London. Reuter.
GENGI Bandaríkj adollars hækk-
aði gagnvart helstu gjaldmiðlum
á gjaldeyrismörkuðum Evrópu í
gær. Verð á gulli lækkaði.
Síðdegis í gær kostaði sterlings-
pundið 1,6065 dollara, en annars var
gengi dollarans þannig að fyrir hann
fengust:
1,3364 kanadískir dollarar,
1,8345 vestur-þýsk mörk,
2,0670 hollensk gyllini,
1,5255 svissneskir frankar,
38,03 belgískir frankar,
6,1195 franskir frankar,
1325 ítalskar lírur,
145,55 japönsk jen,
6,3860 sænskar krónur,
6,7275 norskar krónur,
6,8990 danskar krónur.
Verð á gulli var 442,40 dollarar
únsan.
ist gífurlega síðustu vikur, og er
talið víst, að veðurfarið sé aðalorsök
þessa. En afleiðingar rigninganna
eru miklu fleiri. Bændur eru mjög
svartsýnir vegna lélegrar uppskeru,
og margir þeirra sjá ekki fram á
að geta heyjað nægilega fyrir næsta
vetur. Víða í sveitum er búfénaður
inni, vegna þess að tún eru gegn-
blaut og yrðu samstundis eitt
forarsvað, ef skepnunum yrði hleypt
á þau. Ár hafa flotið yfír bakka
sína og björgunarmenn haft í nógu
að snúast við björgunarstörf, aðal-
lega við björgun alls konar smádýra
úr nauðum.
Verslunareigendur eru skiljan-
lega daufír í dálkinn vegna dræmrar
sölu í sumar. í rigningarveðrinu er
að vonum lítil eftirspum eftir sum-
arfötum og baðfatnaði, og fæstum
dettur í hug að fá sér ís, sem ann-
ars væri daglegt brauð í góða
veðrinu. Svo að ekki sé nú talað
um bjórgarðana, sem ætíð hafa
sett sterkan svip á skemmtanalíf
Þjóðveija á sumrin. í einum stærsta
og þekktasta bjórgarði Miinchenar
- við kínverska tuminn í Enska
garðinum, þar sem venjulega er
stöðugt líf og fjör, er nú vart sálu
að sjá, og mun íjárhagslegt tap
þegar orðið gífurlegt.
Vitanlega eru þó einhveijir, sem
hagnast á hinu slæma veðri, svo
sem ferðaskrifstofueigendur. Allar
sólarlandaferðir ku vera upppantað-
ar út sumarið, og Þjóðveijar
flykkjast í stórum hópum úr landi
í leit að sól og sumaryl. Ferðamála-
frömuðir segjast ekki muna aðra
eins aðsókn, og í sjónvarpsfréttum
nú um helgina var haft eftir fjölda
sólarlandafara, að þeir bókstaflega
yrðu að komast úr landi til að halda
geðheilsu sinni.
En ekki er öll von úti enn. Veður-
fræðingar, sem siðustu vikur hafa
gert allt, sem í þeirra valdi hefur
staðið, til að sjá eitthvað jákvætt
út úr veðurskeytum sínum, boðuðu
loks betri tíð. Vonandi er, að það
gangi eftir, svo að sálarheill þýsku
þjóðarinnar verði borgið og menn
geti farið að brosa á nýjan leik.
NYJ U NG frá
BIODROGA
~>s
TSiodmqa
Við reglulega notkun
JLSkin Initiative* þ.e.
kvölds og morgna
dropafyrirdropa
▼ áviðkvæmustu
blettit.d. enni, í
kringum augun, munn,
nef og háls, næstfrábær
árangur í baráttunni við
ótímabær öldrunarein-
kenni húðarinnar.
EINUSINNI BIODROGA
ALLTAF BIODROGA.
>s
ATH'.
w,ppto út »“®Stnnar°
K Jia afhendiú9“ " f *skin
w^frfSS*00^
pettat«boðj;^gi.s.nguna
Vísindin hafa sigrað
ótímabæra öldrun húðarinnar.
Útsölustaðir: Brá, Laugavegi 74, Stella, Bankastræti 3, Snyrtistofan Hótel
Loftleiðum, Garðabæjarapótek, Vestmannaeyjaapótek, Húsavíkurapótek,
Kaupf. Eyfirðinga, Kaupf. Skagfirðinga, Snyrtist. Lilju, Akranesi.
Bankastræti 3.
S. 13635.
X
J