Morgunblaðið - 23.06.1987, Blaðsíða 32
»»•*■/>* *
Pf
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
Yfír 3 þúsund manns víð
veiðar í Þingrallavatni
FJÖLDI fólks tók þátt í veiði-
og göngudegi fjölskyldunnar á
sunnudag. Yfir þijú þúsund
manns voru við veiðar i Þing-
vallavatni svo dæmi sé tekið og
þeir sem stóðu á göngudeginum
voru sömuleiðis ánægðir með
þátttökuna.
Landssamband stangaveiðifél-
aga bauð fólki ókeypis veiðileyfí á
veiðidegi fjölskyldunnar sem hald-
inn var í þriðja sinn um land allt á
sunnudag. Skátar og ungmennafé-
lög boðuðu þjóðarátak gegn hreyf-
ingarleysi og efndu til skipulagðra
gönguferða víðs vegar um landið.
Veður var með albesta móti og
tilvalið til útivistar og þátttaka mik-
il.
Mikil þátttaka var í gönguferðum
um allt land og voru forráðamenn
göngudagsins mjög ánægðir með
daginn. Auk gönguferða var boðið
upp á siglingu út í Viðey og fór
fjöldi manna þangað.
Þátttaka á veiðidegi Qölskyld-
unnar var einnig með afbrigðum
góð og er ætlað að milli þrjú og
fjögur þúsund manns hafí komið
saman á Þingvöllum í tilefni dags-
ins. I ávarpi sem Rafn Hafnfjörð,
formaður Landssambands stanga-
veiðifélaga, flutti við setningu
veiðidagsins sagði hann m.a. að
ýmislegt sem fram kemur í Islend-
ingasögunum bendi til þess að
stangaveiðiíþróttin hafí verið stund-
uð hér á landi allt frá landnámi. I
dag er talið að um 50.000 manns
stundi stangaveiði að einhveiju
marki hérlendis og má því segja
að stangaveiði sé ein af þjóðarí-
þróttum Islendinga í dag.
Þátttakendur á Þingvöllum voru,
Reykjavíkurborg:
Staða upp-
lýsinga-
fulltrúa
Borgarstjórinn i Reykjavík
hefur auglýst stöðu upplýsinga-
fulltrúa lausa til umsóknar.
Upplýsingafulltrúa er meðal
annars ætlað að aðstoða við öflun
upplýsinga um einstök atriði í
rekstri Reykjavíkurborgar.
Tillaga um stöðu upplýsingafull-
trúa var samþykkt í borgarstjóm
fyrir nokkru. Hugmyndin er þó
gömul og að sögn Bjöms Friðfínns-
sonar er hún tillaga frá stjómkerfis-
nefnd sem starfaði fyrir tveimur til
þremur ámm. Tillögur stjómkerfis-
nefndar, undir forystu Markúsar
Amar Antonssonar, um einföldun
á stjómkerfí borgarinnar tóku gildi
í upphafí þessa kjörtímabils. Staða
upplýsingafulltrúa hefur þó ekki
verið auglýst fyrr en nú.
Starfíð byggist aðallega á frum-
kvæði viðkomandi umsækjanda.
Hann á að sjá um að kynna hina
ýmsu þætti í starfí Reykjavíkur-
borgar og aðstoða almenning og
félagasamtök við öflun upplýsinga
um einstök atriði í rekstri borgar-
innar. Upplýsingafulltrúi mun vera
tengiliður borgaryfírvalda við
hverfasamtök borgarinnar. Hann
mun ennfremur svara fyrirspumum
um Reykjavíkurborg sem berast
erlendis frá og vera ferðamálanefnd
til aðstoðar varðandi kynningu á
ferðamannaþjónustu í Reykjavík.
Þessi staða verður launuð sam-
kvæmt kjarasamningum Reykjavík-
urborgar við Starfsmannafélag
Reykjavíkurborgar og í samræmi
við úrskurð starfskjaranefndar um
röðun starfsins í launaflokk. Vænt-
anlegur yfírmaður upplýsingafull-
trúa verður Gunnar Eydal skrif-
stofustjóri borgarstjómar.
SIRKUS Arena Berdino, frá Dan-
mörku ferðast um ísland og
heldur sýningar næsta mánuð-
inn. Þetta er í þriðja sinn á
þremur árum sem þessi sirkus
sækir íslendinga heim og er
þetta lengsta heimsókn þeirra til
þessa. Það mun vera ætlun aðst-
enda sirkussins að gera ísland
að föstum liðum í ferðaáætlun
hans. Alls heldur sirkusinn sýn-
ingar á fimmtán stöðum hringinn
í kringum landið.
Fjörutíu manns frá sjö mismun-
andi löndum koma hingað með
sirkusnum og taka þátt í sýningun-
um m.a. línudansarar, trúðar,
að sögn Rafns, á öllum aldri og fór
vel á með þeim. Veiði við Vatnskot,
í landi þjóðgarðsins, var mjög góð.
Mest var veitt af murtu, en ein-
staka væn bleikja lét einnig glepjast
af agni veiðimannanna. Voru bæði
þátttakendur og forráðamenn að
vonum ánægðir með vel heppnaðan
dag. Undir kvöld fóru veiðmenn
dagsins heim þreyttir en sælir og
jrfírleitt með eitthvað í soðið.
Margur er knár..
Þessir ítölsku trúðar eru meðal þeirra sem skemmta á sýningum
Sirkus Arena Berdino.
Sirkus Arena sýn-
ir víða um land
töframaður og fímleikamenn.
Sirkusinn hefur þegar haldið sýn-
ingar á Husavík og Akureyri og er
um þessar mundir staddur á Hofs-
ósi. Þaðan heldur hann til Blöndu-
ósar og Borgamess en á föstudag-
inn kemur hann til Reykjavíkur þar
sem hann verður í eina viku. Frá
Reykjavík verður haldið til
Keflavíkur og þaðan til Hveragerð-
is, Hvolsvallar, Víkur, Hafnar,
Breiðdalsvíkur, Eski§arðar, Egils-
staða og að endingu verður haldin
lokasýning á Seyðisfirði 14. þessa
mánaðar. Sirkussinn mun halda
tvær sýningar daglega kl. 16 og 20.
Eru
þeir að
fá 'ann
Dauft í Grímsá
„Það er ekki eins gaman að
rekja gang mála nú og eftir opn-
una í fyrra þegar 90 laxar veiddust
tvo fyrstu dagana. Nú veiddi opn-
unarhollið aðeins 12 laxa tvo
fyrstu dagana og alls hafa ekki
nema um 20 laxar komið á land,
en veiðin hófst 16. júní,“ sagði
Sturla Guðbjamarson í Fossatúni
í samtali við Morgunbiaðið í gær.
Að sögn Sturlu er lax genginn
upp um alla á, en svo er að sjá
sem nokkuð sé síðan laxinn gekk,
því hann er ekki nýrunninn og er
lagstur. Bjartviðrið og minnkandi
vatn hefur síðan valdið því að
hann tekur illa. „Þetta er ekki
mikið, en einhver siatti þó og sum-
ir þeirra mjög vænir, til dæmis í
Hörgshylnum undir brúnni, en
þetta gengur afar hægt,“ sagði
Sturla. Drýgsta veiðin er í Strengj-
unum, Lækjarfossi og víðar nærri
Fossatúni, en dauft hefur verið á
neðsta svæðinu, sem ævinlega er
vant að gefa best í vertíðarbyrjun.
Þetta er næstum allt vænn lax til
þessa, en Sturla sagði í gær, að
fyrstu smálaxamir hefðu komið á
land síðustu daga, 4—5 stykki og
vonandi vissi það á gott.
Lifnar yfir Norðurá
Um á annað hundrað laxar eru
komnir á land úr Norðurá og
síðasta holl náði aðeins 18 löxum
í blíðviðrinu. Ekki er áin aldeilis
laxlaus þrátt fyrir lélegar tökur,
400 laxar eru komnir í gegnum
teljarann í Laxfossi og væntanlega
hefur eitthvað gengið fram hjá
honum að auki og er laxinn nú
farinn að veiðast fyrir ofan
Glanna, en yfirleitt gerist slíkt
ekki svona snemma sumars. Því
er til að svara trúlegast, að áin
hefur hlýnað vemlega og laxinn
því gengið fyrr fram og dreift sér.
Sem dæmi um árhita var Þverá
hvorki meira né minna en 16 gráð-
ur um helgina niðri við Brennu
og er það með ólíkindum svona
snemma sumars. Við Brennuna
voru fyrstu útverðir smálaxa-
gangnanna að sýna sig, en þeir
tóku illa eins og svo víða á Vestur-
landi í blíðunni að undanfömu. í
gærmorgun veiddust svo 14 laxar
á svæðinu frá Hræsvelg og upp í
Laxfoss. Mest grálúsugur smálax.
Þetta er því að koma.
Haukan kemur til
„Þetta er að byija að verða
gott núna, það komu fímm ný-
runnir boltalaxar á land í morgun
og menn sáu mikla fískför upp
ána. Haukan opnaði 13. júní og
hefur verið bæði köld og skoluð
þar til nú,“ sagði Torfi Ásgeirsson
í veiðihúsinu við Haukadalsá í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hann sagði 30 laxa hafa verið
komna á land á hádegi, þar af
veiddust 7 laxar fyrsta hálfa dag-
inn og því mætti merkja hversu
slök veiðin hefði verið þar til í
gærmorgun. Allur er laxinn vænn
í Haukunni til þessa með einni
undantekningu, en einn laxanna
vóg aðeins 2 pund. Mikið af aflan-
um hefur verið tekinn á maðk, en
slatti einnig á flugu, aðallega