Morgunblaðið - 23.06.1987, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
39
= HEÐINN =
VÉLAVERSUUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
kona, vestræna kona. Ekki segja
konur með múhammeðstrú nota
getnaðarvöm. Þær vilja ekki. Allah
gefa okkur nóg land handa öllum.
Vesturlönd eiga láta okkur friði, þá
við lifa og hafa allt gott.Þá allir
hafa land og tíu böm,“ segir Harry
tárvotum augum, eftir að hafa gert
játningu fyrir henni.
Svo að Charlotte fer heim, mörg-
um kílóum léttari og reynslunni
ríkari og skýrslan hennar hlýtur að
verða sérkennileg.
Ég veit ekki hvort þessi kilja er
komin í búðir hér. Vonandi að það
verði ekki löng bið á að svo verði.
Fyrir utan að vera mjög fyndin býr
hún yfir mjög svo athyglisverðum
sannindum sem hollt er að lesa.
ÆVINTÝRI í SULANASIU
RYÐFRIAR
HA-OG LÁGÞRÝSTI
ÞREPADÆLUR
1 OG 3JA FASA
Erlendar b«kur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Jill Tweedie:Intemal Affairs
Útg.Penguin 1987.
Varla á allra færi að skrifa drep-
fyndna bók um takmörkun bam-
eigna í Suðaustur Asíu. En það hefur
Jill Tweedie gert hér. Aðalsöguper-
sónan er Charlotte Macanally, hún
er akfeit og nýfráskilin. Félagsráð-
gjafí og vinnur á heilsugæzlustöð í
London, og á þeirri deild þar sem
metin eru leyfi til fóstureyðinga.
Charlotte gefst nú óvænt tækifæri
að fara til Sulanesiu í Suðaustur
Asíu og kynna sér þar, hvemig
gengur að fá íbúa til að nota getnað-
arvamir og gera ítarlega skýrslu um
niðurstöðumar.
Charlotte lætur tilleiðast og
wyrstu dagana hennar í Sulanasiu
þeytist hún um með fröken Millicep,
örþreyttri og yfirstressaðri konu.
Óborganlegar lýsingar á „merkileg-
um“ fundum og hádegisverðarboð-
um, sem fröken Millicep kemur í
kring. Charlotte veltir fyrir sér,
hvort skyn hennar sjálfrar sé eitt-
hvað meira en lítið brenglað, því að
hún getur ekki með nokkru móti
talið vit i að eyða öllum tímanum á
þennan hátt. A vegi hennar verður
ástralskur blaðaljósmyndari, Keliy
og hann slæst í för með henni út á
landið. Þar er fylgdarmaður hennar
ungur innfæddur maður, herra
Harry. Hann fer með hana út um
allt, og sýnir henni hveija heilsu-
gæzlustöðina af annarri, verksmiðj-
una og ég veit ekki hvað.Allt sem
hann sýnir henni er til sönnur á
hversu vel gengur með bamatak-
markanimar. Og hann notar tækifæ-
rið að kynna henni eitthvað af landi
sínu. Herra Harry er sannfærður
um, að áætlun hinna heittelskuðu
stjómvalda er rétt. Tvö böm eru
gleðigjafar. En ekki meir. Og hann
segir Charlotte að allir séu svo ham-
ingjusamir að geta nú fengið
getnaðarvamir. Það er að segja kon-
umar, því að karlmönnum verður
náttúrlega ekki boðið upp á slíkt.
í fyrstu tekur Charlotte þetta allt
gott og gilt, sem henni er sagt. Þetta
hljómar eins og það á að gera og
sennilega getur hún samið um þetta
hina merkustu skýrslu, þegar hún
kemur heim.
En málin em ekki eins augljós
og henni fannst í fyrstu. Kelly er
fyrri til að átta sig á því. Sæla lands-
manna og gleði er beizkju blandin,
þegar allt kemur til alls. Og meira
að segja hinn dyggi og trúi Harry
reynist ekki allur þar sem hann er
séður.
„Þú fara frá Sulanasiu, kristna Jill Tweedie
kkur van
samlnlisfólk I Skeifuna7
Nú er tækifærði að komast í Skeifuna fyrir
framtíðina. Hafðu samband við fram-
kvæmdastjóra JP-innréttinga í síma 83913
eða 31113. Þú ert líka velkominn á staðinn.
Til leigu verslunar-, veitinga- og
lagerhúsnæði samtals 920 m2.
í Skeifunni 7, Reykjavík, er til leigu samtals
920 fermetra húsnæði sem skiptist í:
A. Verslunarhú’snæði 255 m2
B. Lagerhúsnæði 330 m2
C. Veitinga- eða verslunarhúsnæði með
gróðurskála 335 m2
Allt í kringum okkur er iðandi mannlíf og ört
vaxandi þjónustu- og verslunarkjarni.
Umhverfis húsið okkar er einstaklega snyrti-
legt, fallegur trjágróður og feiki nóg af mal-
bikuðum bílastæðum. Við lítum björtum aug-
um til framtíðarinnar, og það munt þú líka
gera í húsinu hjá okkur.
í Skeifunni 7 eru þessi fyrirtæki: ÓSA-Ólafur Stephensen auglýsingar, almenningstengsl og JP-innréttingar.
innréttingar
Skeifan 7 - Reykjavik - Simar 83913 31113