Morgunblaðið - 23.06.1987, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚNÍ 1987
51
Karólína ásamt frænda sinum. Morgunbiaðið/Ámi
90 ára afmæli Karólínu
Jóhannsdóttur í Stykkishólmi
Stykkishólmi:
A90 ára afmæli Karólínu Jó-
hannssdóttur í Stykkishólmi,
13.júní, mættu vinir hennar og
velunnarar til að samfagna henni.
Menn komu víða að, frá Reykjavík
og fleiri stöðum. Henni bárust
margar góðar gjafir og svo mikið
af blómum að einstætt var. Heilt
haf af blómum umkringdi hana.
Starfssvettvangur Karólínu var
allur í Stykkishólmi; þar var hún
þjónn meðan kraftar leyfðu. Fyrir
sitt góða starf í þágu Stykkis-
hólmsbúa ákvað bæjarstjóm
Stykkishólms að halda henni veg-
legt samsæti á Dvalarheimilinu,
þar sem hún nú dvelur. Bæjar-
stjórinn og frú voru mætt að
samgleðjast góðum borgara og
færðu henni gjöf og blóm og
kveðju bæjarstjómar. -Ámi.
Mazda
- ~~~
Bestu kaupin eru hjá okkur!
Hjá okkur fáiö þiö original pústkerfi í allar geröir
MAZDA bíla. Viö veitum 20% afslátt ef keypt eru heil
kerfi meö festingum. Kaupiö eingöngu
EKTA MAZDA pústkerfi
eins og framleiðandinn mœlir meö
— þau passa í bílinn.
BÍLABORG HF.
FOSSHÁLSI 1. S.68 12 99.
f-í
„Dyonysos -öðru nafni
Bakkus“, elsta finnanlega
málverkið eftir s t g r
Steingrímur St.Th.Sigurðsson,
listmálari, hélt 62. einkasýningu
sína í Eden í Hveragerði nú í júní.
Steingrímur hefur málað frá unga
aldri, en stundað málaralistina sem
atvinnumensku undanfarin 21 ár.
Sýninguna í Eden tileinkaði hann
„undanförnum sjö góðum ámm í
Íífi sínu“. Af því tilefni hefur hann
látið gera eftirprentun af elsta
málverkinu sem varðaveist hefur
eftir hann. Það er olíumálverk sem
hann nefnir „Dionysos- öðm nafni
Bakkus", málað haustið 1948.
„Það er góður kunningi minn,
Jón Guðjónsson rafvirkjameistari á
Veðurstofunni sem á frummyndina
og gaf mér leyfi til að láta gera
eftirprentun af henni“ sagði
Steingrímur. Myndin er gefín út í
150 tölusettum eintökum, litgreind
í Odda og er prentuð í fullri stærð,
14 x 15 cm.
„Þegar ég málaði þessa mynd
hafði ég um skeið verið blaðamaður
á Tímanum og leigði hjá Guðrúnu,
systur Davíðs skálds. að Fjölnisvegi
7, í tveimur þakherbergjum. Vorið
48 kom ég heim frá Englandi, en
þar hafði ég talsvert fengist við að
mála. A þessum ámm hafði ég enn
ekki ákveðið að gera málaralistina
að lífsstarfi og fór með þetta eins
og mannsmorð“, sagði Steingrímur.
Myndin, „Dionysos-öðm nafni
Bakkus" er olíumálverk, málað á
olíuborinn papír. „Sumir hafa viljað
sjá í því mexíkönsk áhrif, en ég lít
fýrst og fremst á það sem persónu-
lega tjáningu með táknrænu ívafi.
Það má etv. segja að efniviðurinn,
vínguðinn, tengist þessum sjö ára
áfanga í lífi mínu, þó það hafí á
sínum tíma fyrst og fremst verið
fantasía um stóran þátt í lífinu."
Steingrímur sagði að sýningin í
Hveragerði hefði gengið yfirmáta
vel. „Það er ekki síður ástæða til
að minnast andlegra áfanga í lífí
sínu en líkamlegra; stundum fer
hvort tveggja saman,“ sagði málar-
inn að lokum.
AUK hl. 3.157/SIA