Morgunblaðið - 11.07.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1987
5
íslensku keppendurnir á Ólympíumótinu í rússnesku fyrir framan
hótelið í Moskvu þar sem allir keppendurnir bjuggu.
*
Olympíumótið í rússnesku:
Silfur til íslands
ÍSLENSK ungmenni unnu til silf-
urverðlauna á Ólympíumótinu í
rússnesku sem haldið var í
Moskvu dagana 20.- 30. júní.
Ólympiulið íslands skipuðu
Gunnar Hansson og Ásdís Þór-
hallsdóttir sem bæði eru nemend-
ur í Menntaskólanum við
Hamrahlíð.
Til mótsins í Moskvu voru mætt
til leiks lið frá 70 þjóðum. Keppnin
fór þannig fram að liðin tóku þijú
munnleg próf og eitt skriflegt og
var keppt í mismunandi flokkum.
Keppendur voru alls 500 með mis-
langt nám í rússnesku að baki. Þau
Gunnar og Ásdís hafa lært rúss-
nesku við MH í tvö og hálft ár hjá
Ingibjörgu Hafstað. Þau unnu silf-
urverðlaun í sínum flokki og rit-
gerðir þeirra voru lesnar upp á
lokaathöfn leikanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem ísland
tekur þátt í Ólympíumótinu í rússn-
esku en það hefur verið haldið í
Moskvu þriðja hvert ár síðan 1974.
Nýjar plöntu-
og dýra-
tegundir
í Surtsey
Nýjar plöntu- og dýrategundir
hafa fundist í sjónum í kringum
Surtsey. Atta liffræðingar fóru
í leiðangur þangað fyrir stuttu
til þess að kanna dýra- og þör-
ungalif í sjónum i kringum eyna.
Aðalsteinn Sigurðsson fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknarstofnun
var einn af leiðangursmönnum.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að slíkir leiðangrar hefðu
verið famir út í Surtsey frá því
árið 1967. Upphaflega var farið
árlega vegna þess hversu þróunin
var ör til að byija með. Síðan hefur
þróunin verið hægari og frá því
árið 1971 hefur leiðangurinn verið
farinn þriðja hvert ár.
Aðalsteinn sagði að sex af þess-
um átta líffræðingum hefðu kafað
til þess að safna sýnum en mikið
hvassviðri hefði valdið því að aðeins
var unnið í þijá daga. Mörg plöntu-
og dýrasýni voru tekin og bíða nú
greiningar.
Aðalsteinn kvaðst þess fullviss
að margar nýjar tegundir myndu
greinast í smásjám og nú þegar
hefðu nokkrar nýjar dýrategundir
greinst. Þar á meðal væri sæbjúga
og jafnfætla.
Tvær nýjar
plöntutegund-
ir í Surtsey
ÞRÍR líffræðingar, dr. Sturla
Friðriksson, dr. Borgþór Magn-
ússon og Jón Guðmundsson fóru
i siðustu viku i leiðangur til
Surtsey og gerðu þar fimm daga
athugun á uppbyggingu lífríkis.
„Við huguðum einkum að gróðri
og fundum sautján tegundir af
æðri plöntum, þar af tvær nýjar í
Surtsey," sagði dr. Sturla Friðriks-
son í samtali við Morgunblaðið. „í
24 ára sögu eyjarinnar hafa alls
fundist 25 tegundir æðri plantna
og virðist sem sumar komi og fari
þar sem einungis fundust sautján
að þessu sinni. Við athuguðum einn-
ig útbreiðslu plantnanna og hvemig
þeim er smám saman að takast að
þekja alla eyjunna. Það eru einkum
Úöruarfi, melgresi og blálilja sem
eru útbreidd í gróðurríki Surtseyjar.
Af fuglum er það að segja að
mikil fjölgun hefur orðið á varpi
svartbaks og silfurmás á síðustu
. ' árum, en auk þeirra verpa þarna
að staðaldri fýll, teista og rita“,
sagði Sturla að lokum.
<
(ó
'_I
2
Þ
Fj ármögnunarleigan
Lind færir sig
um set
0! I 33
laanoa
LIND
Nú um helgina rekum
við hjá Fjármögnunarleig-
unni Lind smiðshöggið á
flutninga í nýja húsnæðið
okkar í Ingólfsstræti 3. Par
með kveðjum við sambýlis-
fólkið í Bankastræti 5 þar sem
starfsemi okkar var í þann
veginn að sprengja af sér
allar takmarkanir rúms.
Við hlökkum til að taka á
móti þér í nýjum og glæsileg-
um húsakynnum strax á
mánudagsmorgun.
Ingólfsstræti 3, 101 Reykjavík. Sími 62 19 99