Morgunblaðið - 11.07.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JLJLÍ 1987
49
Metsölublad á hverjum degi!
Díana á ballettinum
Þessi mynd var tekin af prinsessunni af Wales þar sem hún spjallar við Rússneska ballettdansarann
Rudolf Nureyev eftir hátíðarsýningu Konunglega ballettsins á Rómeó og Júlíu nú í vikunni, en Nurey-
ev dansaði þar hlutverk Mercutios.
Reuter
Aldraðir gæta bús og dýra
Munchen, frá Bergljótu Friðriksdóttur.
Hver kannast ekki við vandamálið þegar fjölskyldan er
að fara í sumarfríið og af ótta við innbrotsþjófa vantar
einhvern til að líta eftir húseigninni? Og ekki auðveldar það
málið ef einnig þarf að finna pössun fyrir gæludýr heimilisins.
Þýskum athafnamanni datt fyrir fimm árum snjallræði í
hug og stofnaði fyrirtæki sem „leigir út“ eftirlaunafólk og
ellilífeyrisþega til að líta eftir húsum og húsdýrum. Fólk
getur valið úr hvort það vill konu, karl eða hjón, fólk sem
ekki reykir, dýravini eða áhugafólk um garðyrkju til að búa
í húsum sínum. í síðasta lagi þremur tímum fyrir brottför
heimilisfólksins þarf gæslumaðurinn að vera kominn þangað
sem honum eru afhentir lyklar og honum gefin fyrirmæli, í
um helmingi tilfella fylgir gæludýr samningnum.
Reglurnar sem gæslumaðurinn þarf að fýlgja eru strang-
ar. Yfir daginn má hann aðeins yfirgefa húsnæðið í mesta
lagi þrjá tíma í einu og eftir að dimma tekur, aðeins eina
klukkustund. Vilji gæslumaðurinn fá heimsóknir verður hann
að fá sérstakt leyfi til þess og verða gestirnir að vera farn-
ir kl.22.
Um 50 manns starfa nú hjá þýska fyrirtækinu. Ekki er
mikið upp úr vinnunni að hafa, eða 13,50 vestur-þýsk mörk
á dag (ca. 270 ísl.kr.), en fólkið er ánægt að geta gert eitt-
hvað gagn og jafnframt þénað um leið örlitla peninga.
I þessu máli sem öðrum er þó aldrei of varlega farið. A
meðan að gæslumaður nokkur vaktaði einhveiju sinni hús
eitt í Hamborg brutust bíræfnir þjófar inn á heimili hans
og stálu öllu steini léttara.
Hjónin fara í fríið og gæslumaðurinn lítur
eftir húsinu og hundinum.
Kannaðu nýjar
bmgðvíddir!
Sæla í Sóldós!
VEITINGAHÚS
Vagnhöfða 11, Reykjavík. Sími 685090.
Nýju og gömlu dansarnir
í kvöld frá kl. 22.00-03.00.
Hljómsveitin Danssporið ásamt söngkonunni
Kristbjörgu Löve leika fyrir dansi.
mhmhh Dansstuöið er í ÁrtúnP
Tríó Andra
Backmann
leikur létta danstónlist
frá kl. 22.00.